Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 39 > I ) > > t > I I Skák Reiðskóli Reynis. Kasparov hafði betur gegn vélaraflinu: Peðsrán varð tölvunni að falli Haft er eftir Garrí Kasparov í ný- legu blaðaviötali að á þessari öld hafi tölvan ekki minnsta möguleika í alvarlegri kappskák. Hann var þar spurður um baráttu tölva við skák- manninn og var fljótur að bæta viö: „Ég mun sjálfur taka áskoruninni!“ Nú reynir á þessi orð hans því að afráöið er að á næsta ári tefli hann sex skáka einvígi við tölvuforritið „Deep Blue“í eigu IBM sem álitin er öflugasta skáktölva heims. Forritið Deep Blue tók við af fyrirrennara sínum, „Deep Thought", sem atti kappi við Kasparov árið 1989 en beið algjört skipbrot. Nú segjast mennim- ir bak við tölvuna vera með skrímsh í höndunum sem sé næstum því til- búið að fara á mannamót. Tölvan er í Camegie-Mellon háskólanum í Pittsburg í Bandaríkjunum þar sem rík hefð hefur skapast kringmn skákforritasmíð. Frá því Kasparov tefldi við Deep Thought árið 1989 hefur þróunin ver- ið ör. Nú er svo komið að tölvan tefl- ir óaðfinnanlega ef fimm menn eða færri em á taflborðinu - henni tekst einfaldlega að tæma möguleika stöð- unnar. í þessum endatöflum hefur tölvan komið með magnað innlegg til skákfræðanna sem em stöður með gagnkvæmri leikþröng - þ.e. hvomg- ur getur leikið án þess að skemma stöðu sína. Þessar stöður era fleiri en mannlegt auga fær greint. Gott dæmi era endatöflin hrókur og peð gegn hróki sem stórmeistarinn John Nunn hefur skrifað heiia bók um - með aðstoð tölvu. Eftir því sem umhugsunartíminn er styttri eykst styrkur tölvimnar í samanburði við skákmanninn. Hár- fínt stöðumat og djúphugsaðar áætl- anir era enn þeirra veikasti hlekkur, a.m.k. í samanburði við gríðarlega reiknigetu. í hraðskákum era öflug- ustu tölvuforritin nánast orðin ósigr- andi og í atskákum geta þau gert reyndustu meisturam skráveifu. Þessu fékk Kasparov t.a.m. að kynn- ast á PCA-atskákmótinu í London fyrir réttu ári þar sem tölvuforritið Chess Genius sló hann út úr keppn- inni. Stund hefndarinnar var rannin upp á dögunum þegar Kasparov mætti Chess Gerúus í þýska sjón- varpinu. Forritið var nú keyrt á 120 mHz Pentium tölvu en systir hennar í London í fyrra var „aðeins“ 90 meg- ariða. Minnstu mátti muna að Ka- sparov þyrfti aftur að játa sig sigrað- an. Hann viðurkenndi það sjálfur að lokinni fyrri skákinni að taflið hefði verið tapað eftir tuttugu leiki. Tölvan gerði sig hins vegar seka um dæmi- gerð mistök - seildist eftir peði á kostnað stöðunnar og þá var meist- arinn ekki lengi að snúa taflinu við. Hvitt: Garrí Kasparov Svart: Chess Genius 3 Drottningarbragð. 1. c4 c6 2. d4 d5 3. Rf3 RfB 4. Rc3 a6 Strax sjást fyrstu merki þeirrar þróunar sem orðið hefur í tölvuskák. Nú þykir forritaranum rétt að sneiða hjá troðnum slóðum en eigi alls fyrir löngu var þessu öfugt farið - skák- meistarinn reyndi með öllum ráðum Afráðið er að á næsta ári tefli Garrí Kasparov sex skáka einvígi við tölvu- forritið „Deep Blue“í eigu IBM sem álitin er öflugasta skáktölva heims. Umsjón Jón L. Árnason að „koma tölvunni út úr teóríunni". Kasparov bregst við þessu sjald- gæfa afbrigði á rökréttan hátt; eftir 5. e3 væri 5. - b5 möguleiki. 5. c5 g6 6. Bf4 Bg7 7. h3 0-0 8. e3 Rbd7 9. Bd3 Re8 10. Hcl?! Þessi og næsti leikur Kasparovs reynast ekki vel. 10. - f6! 11. e4?! e5! 12. dxe5 Rxc5 13. exd5 fxe514. Be3 Rxd3 + 15. Dxd3 e4! Tölvan teflir af mennskum mætti - eins og sjálfur Kasparov stýri svörtu mönnunum! Nú er 16. Rxe4 Bf5 hagstætt svörtum en raunar era góð ráð dýr. 16. Dxe4 Rf6 17. Dc4 Rxd5 18. Rxd5 ekki 18. 0-0 vegna 18. - Bxh3! o.s.frv. 18. - Be6! 19. 0-0 Bxd5 20. Dg4 Bxf3 Tvístrar peðastöðunni og varla gagnrýnisvert. Hins vegar er 20. - Dc8!?, sem stimgið var upp á í skák- skýringasalnum, einnig sterkt og að halda biskupnum með 20. - Bxa2 kom einnig vel til greina. 21. gxf3 Dd5 22. Hcdl 22. - Dxa2 Þetta er dæmigert fyrir vélrænan hugsunarhátt tölvunnar. Hún á kost á tveimur peðum og metur „heil- brigða peðið" meira en tvípeðið á f- línunni. í sjálfu sér er leikurinn ekki slæmur þótt drottningin fjarlægist eilítið miðin. Hins vegar er 22. - Dxf3 einfalt og sterkt; eftir drottninga- kaupin ætti svartur að vinna um síð- ir. 23. Hd7 Hf7 24. Hfdl Db3? Hér er 24. - He8 með hugmyndinni 25. - De6 rétti leikurinn. 25. Hld3 Dxb2? En nú verður græðgin tölvunni að falli. 26. Dc4! Haf8 Eða 26. - Df6 27. Hxb7 og næst 28. H3d7 og Bc5 Uggur í loftinu. 27. Hxf7 Hxf7 28. Hd8+ Bf8 29. Bh6 Nú á Kasparov vinningsstöðu en ekki er sama hvemig teflt er úr henni. Tölvurnar era þekktar fyrir ótrúlegustu seiglu í erfiðum stöðum, enda láta þær ekki svo auðveldlega hugfallast. 29. - Da3 30. De6! Til að hindra 30. - De7 30. - Dc5 I A 1.1 1 k A A A A A III A S A B C D E F G H A 1 Á S Jl I + A i A A A * 31. h4! Db4 32. f4 Dbl+ 33. Kh2 Db4 34. Kg2 Da3 35. h5! gxh5 36. f5 Db4 37. Hxf8 + Dxf8 38. Bxf8 Kxf8 39. fl6 Hxf6 - Og tölvan lýsti sig sigraða um leið. 16.-18. júní: 3 daga námskeið, 27.-30. júní: 4 daga námskeiö, 1.-6. júlí: 2 daga námskeið og 4 daga ferð á Arnarvatnsheiöi. Reynir Aöalsteinsson, Sigmundarstödum, Hálsasveit, sími/fax 435 1383. Garðahönnun Umhverfisráðgjöf Stanislas Bohic Helga Lilja Bjömsdóttir Ath. Rétt símanúmer 561 3342 Vinnustofa Garðastræti 38, Reykjavík Óskum eftir hjólhýsum og tjaldvögnum á staðinn til sölu. Vaktað plan. Löggild bifreiðasala við Miklatorg s. 562-1055 Akureyrarblað fsjrssjrs/sjssjsssjffffssssfssffj Aukablað AKUREYRI Miðvikudaginn 14. júní nk. mun Akureyrarblað fylgja DV. Þar verður m.a. fjallað um Akureyri sem ferðamannabæ, rætt við fólk í ferðaþjónustu og margt fleira. Eins og venjan er verður í þessu 15. Akureyrarblaði hugað að mannlífi í bænum. Þá verður farið í heimsókn í fyrirtæki, rætt við fólk í atvinnulífinu og fólkið á götunni. Þeir sem hafa hug á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 563-2722. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga í þetta aukablað er fimmtudaginn 8. júní. ATH.! Bréfasími okkar er 563-2727. Athugið! Akureyrarblaðinu er dreift með DV um allt landið en sérstök áhersla er lögð á dreifingu þess á Akureyri og nágrenni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.