Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Side 14
14 LAUGARDAGUR 3. JÚNl 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK, SlMI: 563 2700 FAX: Auglýsingar: 563 2727 - Aðrar deildir: 563 2999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimaslöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritstj@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, slmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk„ helgarblað 200 kr. m. vsk. Gott á neytendur Svo virðist sem fullorðið fólk í ábyrgðarstöðum í þjóð- félaginu hafi ímyndað sér, að GATT-frumvarp ríkis- stjómarinnar mundi leiða til innflutnings á erlendri bú- vöm á 30% hærra verði en innlend búvara. Þetta fólk hefur nú reiknað dæmið betur og segist hafa verið blekkt. Þeir, sem reyndari em, vissu alltaf, að aldrei stóð til að leyfa innflutning. Frumvarpssmiðir höfðu það verk- efni að búa svo um hnútana, að enginn kostur væri á innflutningi erlendrar búvöm, jafnvel þótt það jafiigilti mörg hundmð prósent tolli og allt upp i 1400% toll. Markmið frumvarpsins var að fulinægja formsatrið- um, en ekki efnisatriðum í samkomulagi, sem ísland haföi samþykkt í fjölþjóðlegu viðskiptasamstarfi á vegum GATT. Markmið frumvarpsins er lögfræðileg aðferð við aó leyfa innflutning búvöra án þess að leyfa hann. Að baki framvarpsins em stóm framsóknarflokkamir tveir. Þeir hafa báðir jafhan sýnt, að þeir fyrirlíta neyt- endur og taka jafnan 100% afstöðu gegn þeim. Þetta er ósköp eðlilegt, því að þetta gera neytendur sjálfir, sem hafa áratugum saman fúslega látið hafa sig að fífli. Hátt matarverð á íslandi er ekki efnahagslegur vandi, heldur pólitískur. Kjósendur styðja jafnan mest og bezt þá flokka, sem líklegastir em til að halda matarverði í landinu sem hæstu. Þetta gera þeir, þótt það kosti hverja fjögurra manna Qölskyldu 320.000 krónur á hverju ári. Allir kjósendur em líka neytendur. En kjósendur líta ekki á hagsmuni neytenda sem mikilvægan þátt í hags- munum sínum. Margir þeirra vilja, að hagsmunir neyt- enda séu teknir fram yfir sérhagsmuni, en sá vilji er ekki svo ákveðinn, að hann ráði pólitískri afstöðu. Ef kjósendur greiddu atkvæði sem neytendur, mundu þeir rústa gamla flokkakerfið. En það gera þeir ekki. Þótt boðið yrði upp á sérstakan stjómmálaflokk neyt- enda, styddu þeir hann ekki. Þeir styðja ekki heldur Alþýðuflokkinn, því að allir vita, að hann svíkur. TÍl vamar hagsmunum neytenda em samtök sérvit- urra neytenda og örfáir kaupmenn, sem hafa hagnazt á að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna. Þessir aðilar hafa hátt um þessar mundir, af því að ríkisstjómin er greinilega að fara í kringum anda GATT-samningsins. Nöldrið er tekið upp í Ijölmiðlum, þar sem það rís og hnígur. Hljómgrunnur í þjóðfélaginu er nánast enginn. Kjósendur vilja láta nauðga sér sem neytendur eins og þeir hafa jafiian látið gera. Þeir vilja leyfa helztu stjóm- málaöflum landsins að traðka á sér á hefðbundinn hátt. íslendingar hafa margsinnis séð lotur í umræðum og deilum um mikilvægi hagsmuna neytenda annars vegar og landbúnaðarins sem kerfis hins vegar. Jafnan hefur niðurstaðan orðið sú, að hagsmunir neytenda verða 100% að víkja fyrir hagsmunum landbúnaðarkerfisins. Núna stendur ein slík lota. Að henni lokinni mun kerfið halda áfram sinn vanagang af algem tillitsleysi við hagsmuni neytenda. Við þvi er ekkert að segja. Þjóð- in vill hafa þetta svona. Hún er meira en fús til að borga herkostnaðinn af yfirgangi landbúnaðarkerfisins. Reikningsdæmi GATT-finmvarpsins liggja á borðinu, alveg eins og önnur reikningsdæmi landbúnaðarins. Samanlagt segja þessi dæmi, að hver fjögurra manna fiöl- skylda í landinu verður að greiða 320.000 krónur á ári til að halda uppi vonlausu batteríi landbúnaðar. Fólk vill þjást í þágu landbúnaðarkerfisins. Það er kjami málsins. Þess vegna er framvarp ríkisstjómarinn- ar ofur eðlilegt. Það er raunar gott á neytendur. Jónas Kristjánsson Óyndisúrræði ein eftir í Bosníu Balkanskaginn er ekki viröi beina eins skotliða frá Pommem, sagði Otto von Bismarck til rök- stuðnings því að Þýskaland bland- aði sér ekki í erjur þar um slóðir. Samt varð sú raunin að skot í Sarajevo 1914 uröu upphafið að hildarleiknum sem lauk með hruni þýska keisaraveldisins, sem jámk- anslarinn hafði beitt allri sinni læ- vísi til að mynda, auk „blóðs og jáms“ sem hann stærði sig af opin- skátt. Enn hefur glámskyggni forustu- manna ríkja Vestur-Evrópu á þýð- ingu atburða á Balkanskaga leitt þá í ógöngur. Fyrir þrem árum hefði mátt stöðva uppgang serb- neskrar hernaðarstefnu með því að eyða af sjó serbnesku fallbyssu- virkjunum sem skutu á miðalda- perluna Dubrovnik og úr lofti þeim sem lögðu barokkborgina í Vuko- var í rúst. Nú fallast Sameinuðu þjóðunum, NATÓ og öllum herveldum Vestur- landa hendur þegar Bosníu-Serbar svara loftárásum flugvéla NATÓ á vopnabúr sín með því að taka frið- argæsluliða SÞ í Bosníu, flesta frá Bretlandi og Frakklandi, í gíslingu hundruðum saman. Ráðamenn hafa að vísu stór orð um að öllum ráðum verði beitt til að frelsa gíslana úr haldi skilmála- laust. Clinton Bandaríkjaforseti hefur meira aö segja við orð að máske láti hann bandarískan liðs- afla taka tímabundinn þátt í að styrkja stöðu gæsluliðs SÞ í Bosníu. En aðgerðir láta á sér standa. Það sem gerst hefur síöan Bos- níu-Serbar buðu SÞ byrginn og raunhæfa þýðingu getm- haft er að aukinn Uðsaíli og flotastyrkur hef- ur verið sendur á vettvang. Munar þar mest um flugvélaskip frá Bandaríkjunum og Frédddandi sem komin eru eða að koma á Adríahaf ásamt fylgiskipum. Með banda- rísku flotadeiltflnni eru 2000 land- gönguliðar með vopnabúnað sinn og hliðstæð liðssveit með þeirri frönsku en franska stjómin heldur leyndu hver liðsstyrkurinn er. Ásamt 6000 manna Uði sem breska stjómin hefur ákveðið að skuU tiltækt tfl aðgerða 1 Bosníu eru þetta allt bardagasveitir með fuUan vopnabúnað dl skyndiað- gerða, ekki léttvopnaö gæsluUð. Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson Hreyfanleiki manna og vopna byggist á flutningaþyrlum og vemdarflug kæmi frá móðurskip- unum fyrir ströndinni. Heyrst hefur að undirbúnings- sveitir Breta séu þegar komnar til Króatíu, ef ekki Bosníu. En flutn- ingar sem einhverju geta breytt taka tima. Þar að auki er með öUu ósýnt að ríkisstjómimar, sem hlut eiga að máli, hafi komið sér saman um hvað Uðsaukinn eigi að taka sér fyrir hendur og í hverju skyni. Friðargæsluliðið í Bosníu er þar í umboði Öryggisráðs SÞ og undir yfirstjóm alþjóðastofnunarinnar. Nú hefur Butros Butros GhaU, að- alritari SÞ, sent Óryggisráðinu skýrslu þar sem hann lýsir yfir aö staða gæsluUðsins sé óþolandi eftir síðustu atburði. í stað þess að kalla það brott leggur hann til að fjöl- þjóðaUð verði sent á vettvang undir yfirstjóm þeirra ríkja sem leggja því mannafla. þetta virðist fara nærri áformum Frakklandsstjómar sem hefur látið að því Uggja að bardagasveitir eigi að koma til og skakka leikinn í Bosníu að vissu marki, í upphafi með því að ijúfa umsátur Serba um Sarajevo með því að tryggja sam- gönguleið milli borgarinnar og strandar og gera flugvölUnn ömgg- an fyrir skothríð Serba. Breska stjómin virðist hins vegar hallast að því að bardagasveitun- um skuU beita tfl að endurskipu- leggja friðargæslusveitirnar og þjappa þeim saman svo þær verði ekki eins berskjaldaðar og nú fyrir þeim sem ekki virða friðhelgi þeirra. Ádráttur Bandaríkjaforseta um Uðsinni í Bosníu seint og um síðir virðist miðast við aðgerðir til að koma þessu breska áformi í ffamkvæmd. Um þær mundir sem þetta er rit- að er að hefjast fundur Öryggis- ráðsins um skýrslu aðalritara. Ekki er búist við neinum ákvörð- unum sem máh skipta úr þeirri átt á næstunni. Meginástæðan er hversu afstaða ríkisstjómanna sem úrsUtaatkvæði hafa er enn um margt óljós og hikandi. Eina aðgeröin sem breytt gæti stöðu mála á svipstundu væri aö handsama Radovan Karadzic, for- ingja Bosníu-Serba, Ratko Mladic yfirhershöfðingja þeirra og helst nokkra aðstoðarmenn í viðbót. Bæði Bretar og Frakkar hafa tfl umráða víkingasveitir sem sýnt hafa að þær láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. En þær yrðu að njóta leiðbein- inga njósnara á staðnum þar sem leggja á tfl atlögu. Þar að auki fylg- ir slíku áhlaupi mikfl áhætta, eins og Bandaríkjamenn reyndu þegar frelsun gíslanna i sendiráöi þeirra í Teheran mistókst hrapaflega. Sænskur hermaður f gæslullfil SÞ vlð borglna Tuzla, yfirlýst griðasvæði SÞ, fylgist með árásum Serba sem skjóta á borgina. Simamynd Reuter Skoöanir aimarra Verkfall er undantekning „Það heyrir til undantekninga að lykilhópar í þjóö- félaginu efni til verkfalls vegna kröfu um hærri laun. Þegar það gerist, eins og nú, er ekki einasta verið að lýsa á kröftugan hátt yfir vonbrigöum með aö atvinnurekendur hafi hafhað peningakröfunni. VerkfaU starfsmanna ríkis og bæja endurspeglar einnig djúpstæða óánægju og reiði með það sem verkfallsmenn telja slæma og hrokafulla meðferð í langan tíma og í mörgum kjarasamningum." Úr forustugrein Arbeiderbladet 1. júní. Ráðuneyti lögð niður „Það er til merkis um hvemig póUtískt andrúms- loft í Bandaríkjunum hefur breyst að nú er ekki í tísku að búa til ný ráðuneyti heldur að leggja þau niöur. Fjárlagatfllögumar sem fulltrúadeildin er að skoða fela meðal annars í sér tillögur um að leggja niður ráðuneyti viðskipta, menntimar og orkumála. Tillögumar sem öldungadeildin ræðir em mildari, að minnsta kosti nú. Þar er aöeins gert ráö fyrir að viðskiptaráðuneytið verði lagt niöur.“ Úr forustugrein Washington Post 31. maí. Vandi á höndum „Mikil ógn vofir yfir sjúkrahúsum okkar. Reiðir hj úkrunarfræðingar, sem finnst aö mánaðarlangt löglegt verkfall til aö krefjast hærri launa hafi verið til einskis, áforma að vinna samkvæmt reglunum. Það þýðir að ellefu klukkustunda vinnutímareglunni verður framfylgt, frídögum verður ekki aflýst og enginn sveigjanleiki verður í daglegu statfi á sjúkra- húsunum. Arangurinn verður örugglega sá aö bið- Ustar lengjast enn og lengdust þeir þó mikið á meðan á verkfallinu stóð.“ Úr forustugrein Politiken 30. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.