Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Page 4
4
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
Fréttir__________________________________________________________________________________pv
Aðkeyrsla að nýjum leikskóla um íbúðahverfi:
Stóreykur hættu á slysum
segja íbúar í Teigahverfi 1 Reykjavík
„Við eru mjög ósátt við þessa fram-
kvæmd og okkur fmnst eins og
ákvarðanir hafi verið teknar án þess
að menn hafi velt afleiðingunum fyr-
ir sér. Þaö er ekki nóg með að eini
gæsluvöllurinn í hverfinu þurfi að
víkja, og börnunum þannig vísað út
á götu, heldur er stuðlað að því að
umferð aukist gríðarlega á sömu göt-
um,“ segir Gunnhildur Gísladóttir,
íbúi í Teigahverfi, en þar eru hafnar
framkvæmdir við byggingu leikskóla
á horni Gullteigs og Hofteigs. Gert
er ráð fyrir aö ekið verði að leikskól-
anum innan úr íbúðahverfinu en
íbúarnir telja aö nær hefði verið að
hafa aðkeyrsluna af Reykjavegi.
„Mér skilst að þarna eigi að rísa
leikskóli fyrir 80 börn. Mér finnst
ekki óeölilegt að gera ráð fyrir álika
mörgum bílum á hverjum morgni,
bílum sem þyrftu að aka hér í gegn-
um hverfið, meðfram gönguleið
barna á leið í mjög fjölmennan skóla.
Við viljum að framkvæmdir verði
stöðvaðar meðan máhð verði skoðað
til þrautar. Það hljóta að vera til aðr-
ar skynsamlegri leiðir í málinu en
að leggja börnin okkar í hættu með
því að auka umferðina í hverfmu,"
sagði Gunnhildur.
„Við gerðum hefðbundna grennd-
arkynningu á þessu máli í vetur og
fengum fáar athugasemdir. Laugar-
nesskóli geröi athugasemd vegna
umferðarmála og þau mál er verið
aö skoða hjá umferðardeild borgar-
innar. Verkið er komið það langt á
veg að ekki er hægt að stöðva fram-
kvæmdir eða færa skólann. Gæslu-
völlurinn, sem víkur, hefur verið
mjög illa nýttur og ég skil ekki þá
röksemd. Ég tel okkur vel geta leyst
umferðarmálin á annan hátt en aö
færa aðkeyrsluna þegar þar að kem-
ur,“ sagði Árni Þór Sigurðsson,
formaöur stjórnar Dagvistunar
barna. -SV
Orðstír saf nsins
hef ur beðið
álitshnekki
- segir J>ór Magnússon þjóðminjavöröur
„Það má auðvitað segja að orðstír
safnsins hafi beðið nokkurn álits-
hnekki í allri þessari umræðu sem
var í fjölmiðlum í fyrra. Ekki bara
silfurmálsins vegna heldur var líka
margt annað sem kom til. Ekkert af
þessu var safninu til góðs en ég held
að safnið sem stofnun hafi ekki beðið
hnekki. Hitt má segja að þetta hafi
verið nokkur auglýsing fyrir safnið
þótt maður hefði kosið að auglýsing
hefði verið öðru vísi,“ segir Þór
Magnússon þjóðminjavörður um
rannsóknina á Miðhúsasilfrinu.
Hann segir að menn hefðu mátt
vera gætnari í tali þegar rætt var um
efasemdir um uppruna silfursins.
Það hafi einnig verið rangt að hefja
rannsóknina sem leyndarmál. Það
hafi orðið til þess aö menn fóru að
tala um að glæpsamlegt athæfi hafi
verið á ferðinni. Þór neitar því að
nokkur hafi leitt hugann að því að
einhveijum starfsmönnum bæri að
vikja í ljósi niðurstöðunnar, öllum
geti orðið á. í þessu álitamáli hafi
menn hins vegar bara viljað fá vís-
indaleganiðurstööu. -pp
Nýja Puma Landhelgisgæsluþyrlan:
Rekstrarkostn-
aðurinn 10 milij*
ónir á mánuði
„Ég tel að rekstrarfé fyrir nýju
Puma björgunarþyrluna í ár sé
tryggt. Það fékkst aukafjárveiting á
fjárlögum þessa árs til hennar og svo
er Landhelgisgæslan alltaf með ein-
hveija hagræðingu í gangi í rekstrin-
um svo þetta ætti að ganga upp,“
sagði Þorsteinn Pálssön dómsmála-
ráðherra í samtali við DV.
Þegar rætt er um rekstur Puma
þyrlunnar er ekki um neinar smá-
upphæðir að ræða. Að sögn Helga
Hallvarðsson, skipherra og stað-
gengils forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar, er gert ráð fyrir að rekstur
hennai1 kosti 10 milljónir króna á
mánuði. Þá er reiknað með 400 flug-
tímum á ári og að flugtíminn kosti
300 þúsund krónur.
„Þá er einnig eftir töluverð flug-
mannaþjáifun á þessa þyrlu og hún
er fimalega dýr,“ sagði Helgi Hall-
varðsson.
Landhelgisgæslan á síðan TF Sif
og TF Gró, sem er smáþyrla. Helgi
segir að það hafi komið fram í ræðum
viö móttöku á Puma þyrlunni á dög-
unum að nauösynlegt væri að selja
aðra hvora minni þyrluna.
„Við hér hjá Landhelgisgæslunni
teljum það vera lífsspursmál að fá
að halda TF Sif á meðan við erum
með þyrlurekstur. Það geta ailir séð
kostina við það. Kostnaðurinn við að
senda stóru þyrluna eftir slösuðum
manni upp f fjall er svo mikill á
móti því að senda TF Sif. Flugtími
Puma þyrlunnar er sem fyrr segir
300 þúsund krónur en ekki nema 130
þúsund krónur á hinni. Auðvitað
væri gott að geta haldiö TF Gró líka
því staðreyndin er sú að við náum
tekjum inn á hana og hún skilar arði.
En það verður víst ekki bæði sleppt
og haldið," sagði Helgi Hallvarðsson.
Rekstrarkostnaður Puma-þyrlunnar
130 þús. kr./klst.
300 þús. kr./klst.
Áætlaður rekstur á
mánuði er 10 milljónir
og reiknað með 400
flugtímum á ári sem
hver kostar 300
þúsund krónur.
DV
„Fyrirtækið hefur tekið upp þessa þjónustu og hún hefur mælst vel fyrir og ánamaðkarnir rokseljast," sagði af-
greiðslumaður á bensínstöð Skeljungs í Árbæjarhverfi. Þar hefur verið tekin upp sú nýjung að hafa ánamaðka til
sölu fyrir stangaveiðimenn sem ekki stunda þá list kasta flugu. Þetta eru stórir og feitir laxamaðkar og kostar
stykkið 25 krónur. Dæmi er um að laxamaðkar séu seldir á 30 krónur stykkið. Hér er Kristján Thorp bensinaf-
greiðslumaður með handfylli af ánamöðkum fyrir framan bensintankinn. DV-mynd BG
Bikarmeistarar KR:
Fá Þór í heimsókn
- í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSI
í gærdag var dregiö í 8 liða úrslit
Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Bikar-
meistarar KR drógust gegn 2. deild-
ar liöi Þórs og fer leikurinn fram í
Frostaskjóli. Þórsarar komu mjög
á óvart þegar þeir unnu í Eyjum í
fyrrakvöld en KR-ingar unnu
Stjómuna í spennandi leik.
Valur mætir Grindavík á Hlíðar-
enda en bæði liðin eru við botn 1.
deildar. Grindavik komst í úrslita-
leikinn í fyrra í fyrsta skipti í sögu
liðsins en Valur hefur mikla hefð í
bikarnum þannig að búast má við
harðri baráttu.
Keflavík fær 2. deildar lið Fylkis
í heimsókn og þar getur allt gerst.
Fylkir er við topp 2. deilar og vann
góðan sigur á 1. deildar liöi Leifturs
í síðustu umferð.
Loks leikur Fram á heimavelh
gegn sigurvegaranum úr leik 23 ára
liða IA og Þórs. Framarar unnu
glæstan sigur á íslandsmeisturum
Akurnesinga og gætu nú aftur lent
gegn Skagamönnum. Leikur 23 ára
liðanna fór fram á Skaganum í
gærkvöldi eftir að DV fór í prentun.
Leikur KR og Þórs fer fram
þriðjudaginn 11. júlí en hinir þrír
leikirnir verða miðvikudaginn 12.
júlí.