Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 42
50 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 Afmæli Ólafur Geir Sigurgeirsson Olafur Geir Sigurgeirsson, Sól- vangsvegi 1, Hafnarfirði, verður sjötugur á mánudaginn. Starfsferill Ólafur fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann fór til sjós fjórt- án ára og var þá hjálparkokkur á bv. Júpiter frá Haífnarfirði. Hann var síðan á ýmsum skipum og bát- um frá Hafnarfirði, lengst af á tog- aranum Garðari Þorsteinssyni og Surprice og á bátum frá Ingólfi Flygenring, síðast sem mótoristi. Ölafur kom í land eftir tuttugu og sex ára sjómennsku og starfaði eftir það lengi í Vélsmiðju Hafnar- íjarðar. Hann var síðan vélstjóri við vatnsdælustöð Vatnsveitu Hafnarfjarðar í Kaldárbotnum en hóf störfhjá ÍSAL1977 og vann þar til 1993 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Ólafur hefur verið félagi í Lions- klúbbi Hafnarfjarðar sl. tuttugu og fimm ár og hlaut Melvin James skjöldinn fyrir fórnfúst starf á veg- um klúbbsins. Hann sat í stjórn Sjómannafélags Hafnarfjarðar um árabil, var varaformaður þess í nokkur ár og sinnti ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Hann hlaut heiö- ursmerki Sjómannadagsráðs 1995. Ólafur var félagi í Haukum frá unglingsárum og stjórnaði knatt- spyrnudeild Hauka um sjö ára skeið frá 1970. Þá er hann virkur í Félagi eldri borgara í Hafnarfirði og er formaður skemmtinefndar þess. Fjölskylda Ólafurkvæntist 16.11.1946 Sal- vöru Sumarliðadóttur, f. 6.11.1946, húsmóður. Hún er dóttir Sumarl- iða Einarssonar og Guðrúnar R. Sigurðardóttur. Börn Ólafs og Salvarar eru Ingi- björg Guðmunda, f. 31.12.1945, fata- hönnuður í Danmörku, og á hún einn son; Bára, f. 20.8.1946, en maður hennar er Elías Andri Karlsson og á hún tvær dætur; Arnfríður Kristín, f. 3.6.1950, sj úkrahði og verslunarmaður á Selfossi, gift Steingrími Viktors- syni kjötiðnaöarmanni og eiga þau þrjá syni; Sólrún, f. 7.5.1954, d. 12.9. 1954; Sigrún, f. 7.5.1954, d. 11.9.1954; Sigurgeir, f. 7.5.1961, símsmíða- meistari og verkstjóri hjá Landssí- manum, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Oddnýju Hrafnsdóttur, starfsmanni á Sólvangi, og eiga þau einn son, auk þess sem Oddný á dóttur frá því áður; Hilmar Már, f. 25.12.1964, rafeindatæknir í Hafn- arfirði, kvæntur Eygló Sigurjóns- dóttur verslunarmanni og eiga þau tvö börn; Guðbjörn, f. 1.4.1967, sím- smíðameistari í Reykjavík, kvænt- ur Áslaugu Eyfjörö húsmóður og eiga þau tvö börn, auk þess sem hann á son. Systur Ólafs: Ingibjörg, f. 1920, húsmóðir í Reykjavík; Helga, f. 1922, húsmóðir í Hafnarfirði. Foreldrar Ólafs voru Sigurgeir Ólafsson, f. 19.9.1894, d. 31.1.1979, sjómaður í Borgarnesi og síðan í Hafnarfirði, og k.h., Kristín Arn- fríður Pétursdóttir, f. 31.1.1892, húsmóðir. Ætt Sigurgeir var sonur Ólafs, b. á í Hamri í Borgarhreppi og verka- manns í Borgamesi, Sigurðssonar, b. á Eyri í Svínadal, Sigurðssonar. Móðir Ólafs var Helga Ólafsdóttir. Móðir Sigurgeirs var Geirfríður Þorgeirsdóttir, b. á Mel í Staðar- sveit, Finnsonar og Þórunnar Jón- asdóttur. Kristín Arnfríður var dóttir Pét- urs, útvb. í Þrengslabúð í Hellna- sókn, Péturssonar, b. í Hrísdal, Guðmundssonar, b. í Hrísdal, Jóns- sonar. Móðir Péturs í Hrísdal var Þórlaug Sigurðardóttir. Móðir Pét- urs í Þrengslabúð var Metta Ólafs- dóttir, b. á Höfða, Klemenssonar Róbert Dan Jensson Uppsafnaðar tölur júnímánaðar Pú berð númerin á miðanum þinum saman við númerin hér að neðan. Pegar sama númerið kemur upp á báðum stöðum hefur þú hlotið vinning. Róbert Dan Jensson, forstöðumaður Sjómælinga íslands, Eskiholti 13, Garðabæ, verður sextugur á morg- un. Starfsferiil Róbert fæddist á Búðum á Fá- skrúösfiröi og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Stýrimannskól- ann í Reykjavík, lauk prófum frá farmannadeild 1957, lauk prófum frá varðskipadeild 1962 og stundaði nám í sjómælingum hjá U.S. Naval Oceanographic Office 1965-66. Róbert var stýrimaður á dönskum flutningaskipum 1957-58 og 1963-64, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni 1958-62, starfsmaður Sjómælinga íslands 1962-63 og frá 1964. Fjölskylda Róbert kvæntist 14.6.1959 Krist- björgu Stefánsdóttur, f. 31.7.1939, hjúkrunardeildarstjóra. Hún er dóttir Stefáns Jónssonar og Stein- unnar Jónsdóttur sem bæði eru lát- in. Börn Róberts og Kristbjargar eru Björg Dan, f. 14.4.1959, tannfræðing- ur og sjúkraliði í Reykjavík, gift Oddi Finnbjarnarsyni arkitekt og eigaþautvosyni;SigrúnDan,f. ~ 21.9.1960, sjúkraliöi í Garðabæ, gift Árna Dan Einarssyni tæknifræðingi og eiga þau tvær dætur; Andri Dan, f. 29.3.1971, matreiðslunemi; Þ. Edda Dan, f. 13.4.1973, nemi. Bræður Róberts: Kristmann Dan, f. 14.3.1937, d. 30.5.1941; Kristmann Dan, f. 26.4.1942, d. 10.8.1988. Andlát Ólafur Geir Sigurgeirsson. og Guörúnar Illugadóttur. Móðir Kristínar Arnfríðar var Ingibjörg Vigfúsdóttir, b. í Yxna- keldu, Vigfússonar, og Maríu Gísladóttur. í tilefni afmælisins er opið hús í Haukahúsinu að Flatahrauni í Hafnarfirði sunnudaginn 2.7. kl. 16.00-19.00. Róbert Dan Jensson. Foreldrar Róberts: Jens Lúðvíks- son, f. 29.9.1910, d. 23.4.1969, skip- stjóri og útgerðarmaöur á Fáskrúðs- firði, og Björg Andrea Magnúsdótt- ir, f. 22.1.1911, húsmóðir. Róbert tekur á móti gestum á morgun, sunnudaginn 2.7., milli kl. 17.00 og 20.00. Happatöh 010230 .r , 009707 27. |Úni 078090 300702 909006 Happatölur 28.júní 609959 097367 397132 676901 242925 Happatöiur 29. júní 926076 294379 213356 492317 822046 Happatölur 30. júní 828516 544899 565522 562335 453547 FLUGLEIDIRjmT SONY DRAUMAFERÐ OG FARAREYRIR Með Farmiða ert þú kominn I sþennandi SUMARLEIK Happaþrennunnar og DV Farmiðinp er tvískiptur og gefur tvo möguleika á vinningi. Á vinstri helmingi eru veglegir peningavinningar, sá hæsti 2,5 MILUÓNIR, og á þeim hægri eru glæsilegir ferðavipningar og „My First Sony' hljómtæki. Fylgstu með I DV alla þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga. Ferða- og hljómtækjavinninga má vitja á markaðsdeild DV Pverholti 14. Davíð Ólafsson Davíð Ólafsson seðlabankastjóri, Þorragötu 7, Reykjavík, lést mið- vikudaginn 21.6. sl. Útför hans fór fram frá Dómkirkjunni í gær. Starfsferill Davíð fæddist i Bakkagerði 25.4. 1916 og ólst þar upp til fjögurra ára aldurs, bjó á Norðfirði til níu ára aldurs og síöan í Viðey til 1933 er hann flutti til Reykjavíkur. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1935 og Bac.sc.oec.-prófi frá háskólanum í Kiel 1939. Davíð var forseti Fiskifélags ís- lands og fiskimálastjóri 1940-67 og hankastjóri Seðlabanka íslands 1967-86. Hann var landskjörinn alþm. 1963-67. Davíð var árlegur fulltrúi á fund- um Efnahags- og samvinnustofnun- ar Evrópu til 1986, fastafúlltrúi ís- lands í Álþjóðahafrannsóknarráð- inu 1952-67, sat í stjórn Fiskimála- sjóðs 1954-68 og formaður 1967-68, í stjórn Bjargráöasjóðs íslands 1940-67, í bankaráði Framkvæmda- banka íslands 1961-66, í stjórn Framkvæmdasjóðs íslands 1966-67, í stjórn Samábyrgðar Islands á fiski- skipum 1962-67, í stjórn Hafrann- sóknastofnunar 1962-67 ogí stjórn Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins 1962-70, í Rannsóknarráði ríkis- ins 1962-67, formaður stjómar Hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins og síðar Aflatryggingasjóðs sjávar- útvegsins 1949-67, formaður stjórn- ar Fiskveiðasjóðs íslands 1967-86, formaður stjómar Verðjöfnunar- sjóðs fiskiðnaðarins 1969-86, for- maður Germaniu 1972-77, forseti Ferðafélags íslands 1977-85, í vís- indaráði Krabbameinsfélags Islands 1985-90, í stjórn Almenna bókafé- lagsins um skeið og í stjórn Heild- verslunarinnar Heklu frá 1990. Davíö var heiðursfélagi Fiskifé- lags íslands og Germaniu og í heið- ursráði Krabbameinsfélags íslands. Hann var sæmdur stórriddara- krossi fálkaorðunnar, auk KDD, KNO, StkÞV, SHmRK. Fjölskylda Davíð kvæntist 31.5.1941 Ágústu Þuríði Gísladóttur, f. 4.4.1918, hús- móður, dóttur Gísla Jónssonar, prests á Mosfelli í Grímsnesi, og Sigrúnar Kjartansdóttur húsmóður. Börn Davíðs og Ágústu Þuríðar em Ólafur, f. 4.8.1942, ráðuneytis- stjóri forsætisráðuneytisins; Sig- rún, f. 30.10.1955, cand. mag. og rit- höfundur, búsett í Kaupmannhöfn. Systkini Davíðs: Margrét, f. 4.11. 1910, d. 1983, skrifstofustjóri; Gísli, f. 3.1.1912, ritstjóri; Þorbjörg, f. 17.12.1917, húsmóðir; Þórir, f. 23.7. 1920, d. 1940; Hulda, f. 24.4.1922, rit- ari; Sigrún, f. 17.8.1927, húsmóðir. Foreldrar Davíðs voru Björn Ólaf- ur Gíslason, f. 1888, d. 1932, fram- kvæmdastjóri útgerðarfélagsins Kára í Viðey, og Jakobína Davíðs- dóttir, f. 1882, d. 1966, húsmóðir. Ætt Ólafur var bróðir Magnúsar, föður Gísla píanóleikara. Ólafur var son- ur Gísla, b. á Búðum í Fáskrúðsfirði Högnasonar, járnsmiðs á Skriðu í Breiðdal, bróöur Kristínar, langömmu Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. Högni var sonur Gunnlaugs, prests á Hallormsstað, Davið Ólafsson. Þóröarsonar, prests í Kirkjubæ í Tungu, Högnasonar prestaföður. Móðir Ólafs var Þorbjörg, systir Ei- ríks, bókavarðar í Cambridge, dóttir Magnúsar, prests í Heydölum Bergssonar. Jakobína var dóttir Davíðs, fram- kvæmdastjóra Pöntunarfélags Ey- firðinga, Ketilssonar, bróður Krist- ins, föður Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS, Siguröar, ráðherra og forstjóra SÍS, Aðalsteins, framkvæmdastjóra SÍS, og Jakobs fræðslumálastjóra. Davíð var einnig bróðir Sigurðar, afa Jónasar Haralz, fyrrv. banka- stjóra. Móðir Jakobínu var Margrét HalIgrímsdóttirThorlacius, b. á Hálsi í Eyjafirði, bróður Jóns, afa Birgis Thorlacius, fyrrv. ráðuneyt- isstjóra, og langafa Örnólfs rektors. HaÚgrímur var sonur Einars Thorlacius, prests að Saurbæ í Eyja- firði, og Elínar Hallgrímsdóttur Thorlacius, sýslumanns í Suður- Múlaþingi, Jónssonar. Móöir Einars prests í Saurbæ var Ólöf, systir Þor- steins, afa Jónasar Hallgrímssonar skálds.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.