Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ1995 Heldurðu að ég sé alkóhólisti? Nökkvi læknir hitti fyrir skemmstu í nýju Hvalijarðar- göngunum miðjum fyrir hreina til- viljun Sonju skólasystur sína úr Svartaskóla. Þau höfðu ekki sést lengi en Nökkvi vissi að hún var gift, vann í banka og átti mannvæn- leg börn. Páll, maður hennar, var háttsettur fulltrúi á opinberri skrif- stofu, nokkrum árum eldri en Sonja, feitlaginn, brosmildur lions- maður sem þótti liðtækur við ljósa- perusölu. Nökkvi hitti hann eitt sinn á málverkasýningu. Hann var illa haldinn, rauður og þrútinn og drakk mikið af freyðivínsgutli sem veitt var. Fyrr en varði var hann orðinn vel kenndur, hress, talaði hátt og kastaði fram blautlegum stökum. Sonja var mjög óróleg og lét sig hverfa inn í næsta málverk meðan maður hennar lagði áherslu á miðrímið. Nokkru síðar hitti Nökkvi þau í boði í sendiráði á af- mæhsdegi Pols Pots. Sama var uppi á teningnum, Páll drakk mikiö hrísgrjónabrennivín og varð ölv- aðrienaðrirgestir. Hjálparbeiðni „Getur þú talað við hann Pál fyr- ir mig?“ spurði Sonja þegar þau höfðu heilsast með virktum. „Af hverju?“ spurði Nökkvi. „Hann er farinn að drekka of mikið, stundum um hveija helgi, stundum í miðri viku.“ „Heldurðu að hann vilji tala við mig?“ spurði Nökkvi. „ Já, hann vill það,“ sagði Sonja. Ákveðið var að hittast daginn eftir. Páll kom á tilsettum tíma, hress, vel klæddur, í ljósteinóttum jakkafótum, blárri skyrtu og með grænleitt slifsi, skreytt mynd af blesóttri verð- launameri að westan. „Þú vildir tala við mig,“ sagði hann, „en ég get sagt þér strax að ég er enginn alkóhólisti eins og Sonja heldur fram. Ég smakka vín en ég hef aldr- eimisstúrvinnu." „Jæja,“ sagði Nökkvi, „ertu tilbúinn að svara nokkrum spumingum þar sem þú skoðar drykkjuna, færð stig fyrir svörin og við metum ástandiö út frá því?“ „Ég er til í það,“ sagði Páll. Spurningarnar: 1. Hefurðueinhverntímann ákveðið að hætta að drekka í að minnsta kosti eina viku og mistek- ist? Páll hugsaði sig um og sagði svo: „Já, mér hefur mistekist það Á læknavaktiimi IKm v L Óttar Guðmundsson læknir nokkrum sinnum." „Svo þú hefur reynt að hætta þó drykkjan sé ekk- ert vandamál," sagði Nökkvi. „Já, ég var orðinn leiður á rövlinu heima, lofaöi þeim bindindi en mis- tókst," sagði Páll og brosti. 2. Verðurðureiðurþegareinhver reynir að ræða það við þig að þú drekkir of mikið og vill ráðleggja þér eitthvað í þeim efnum? „ Já,“ sagði Páll, „hvort ég geri. Ég þoli bara alls ekki þegar Sonja er að gagnrýna drykkjuna." 3. Hefurðueinhverntímann reynt að stjórna drykkjunni með því að skipta um víntegundir, farið úr sterkum drykkjum yfir í létt vín eða í bjór? „Já,“ sagði Páll, „ekki get ég neitað því. Ég hef reynt að stjórna drykkjunni með því að fara yfir í veikari sortirnar og núna síð- ast í bjórinn." • 4. Hefurðufengiðþérafréttara síðusta árið? „Já,“ sagði Páll, „ekki get ég neitað því; þegar við hjónin vorum á Spáni í sumar fékk ég mér alltaf bjór í morgunsárið. En er bjór afréttari?" „Já,“ sagðiNökkvi. 5. Öfundarðuþásemgetadrukk- ið án þess að lenda nokkurn tímann í vandræðum? „Já,“ sagöi Páll, „ég hálfófunda þá sem alltaf halda haus og verða aldrei of fullir og muna alltsemgerist." 6. Hefurdrykkjanskapaðein- hver vandamál heima fyrir? „Já,“ sagði Páll', „þú veist það. Við erum alltaf að rífast út af þessu og hún hefur hvað eftir annað sett mér afarkosti. Svo eru krakkarnir farn- ir að agnúast út í mig þegar ég fæ mér í glas.“ 7. Hefurþigvantaðívinnuvegna drykkju á siðasta ári? „Nei,“ sagði Páll. „Alveg viss?“ sagði Nökkvi. „Ja, ég hef kannski mætt of seint eða lengt eitthvað matartímann vegna drykkju en það kemur ekki oft fyrir. Einu sinni tilkynnti ég mig veikan eftir fyllirí.“ 8. Hefurðu einhvem tímann fengið óminni eða blakkát eftir drykkju? „Já, oft,“ sagði Páll. „Stundum man ég eiginlega ekki neitt eftir gott fyllirí.“ 9. Hefurþéreinhverntímann fundist að hf þitt yrði betra og skemmtilegra ef þú drykkir ekki? „Kannski," sagði Páll, „en þó veit ég það ekki. Mér fmnst gaman að fá mér í glas, verst að geta illa stjórnað því. Ætli svarið sé ekki já.“ 10. Færðu stundum sektarkennd eftir drykkju? „Já, oft,“'sagði Páll, „sérstaklega ef eitthvað hefur kom- ið upp á milli okkar Sonju.“ Niðurstaðan: „Jæja,“ sagði Nökkvi, „þegar þetta er tekið sam- an svarar þú með mörgum jáum. Samkvæmt þessu hefurðu áfengis- vandamál." Páll varð hugsi: „En ég hef aldrei misst neitt úr vinnu vegnadrykkju." „Nei,“ sagði Nökkvi, „en það er kannski ekki aðalmálið, oft kemur drykkjan seinast niður á vinnunni." „Ég er ekki tilbúinn að fara í meðferð," sagði Páll. „Nei, en við skulum ræða betur næst hvað hægt er að gera en það er stórt skref fram á við ef þú áttar þig á vandamálinu. Ef menn svara þessum spurning- um oftar en þrisvar sinnum með jái er um alvarlegt vandamál að ræða.“ Þeir kvöddust en ákváðu að hittast aftur eftir nokkra daga ogræðaaðgerðir. 9 0 4 * 1 7 0 0 kr. 39.90 min. Don't lose contact with the world. Call 904-1700 and hear the latest in world news in English orDanish. Tækin sem þú getur treyst 5,5-57 kg Frá 11 kg Alhliða þvotlatæki fyrir stærri og smærri verkefni hjá þvotta- húsum, efnalaugum, hótelum, veitingahúsum, sjúkrastofnun- um, fiskvinnslum, sláturhúsum, fjölbýlishúsum o.fi. Bjóðum einnig hvers kyns tæki fyrir efnalaugar ÞURRKARAR M IPSO ÞVOTTAVÉLAR HEILDVERSLUN Smiðjuvegi 4 (græn gata), 200 Kópavogur Sími 567 3414 - fax 567 3415 Yilt þú feta í fótspor Cadfaels? BT• TAKTU ÞÁTT í f spennandi leik Ip^ lÍ BÓKANNA éé SJÓNVARPSINS Þú getur unnið þér inn helgarferð með heimsókn í j^ Shrewsburyklaustur, heimaslóðir spæjaramunksins vinsæla sem er frægur af bókunum og líka úr sjónvarpi. Það eina sem þú þarft að gera er að leysa eina eða fleiri af fjórum gátum um Bróður Cadfael svörin við gitunum finnur þú I bókunum um Cadfael. Ef þú leysir allar fjórar giturnar fjórfaldar þú vinningsmöguleika þína. Gáturnar birtast ein í einu f HELGARBLAÐI DV. I. júlí-gáta Liki ofaukið o reigans Dregið verður úr réttum lausnum og hlýtur einn heppinn sigurvegari glæsilega helgarferð fyrir tvo til Shrewsbury með heimsókn í klaustrið. íh: tA 1 Flogið verður 25. ógúst með Air Emerald / fil Luton ó Englandi - möguleiki er að fram- J Car TRAú. lengja dvölina í Englandi eða ó írlandi. >AUKAVERÐLAUNI Tíu heppnir þótttakendur verða dregnir úr pottinum og hljóta þeir tíu Úrvalsbækur að eigin vali, að heildarverðmæti 8.950 kr. hver pakki. - Skilafrestur er til 9. ógúst. Þú sendir lausnirnar til Úrvolsbóka - merkt Bróðir Cadfael - Þverholti 11 - 105 Reykjavík. Bækurnar um bróður Cadfael fóst ó næsta sölustað og kosta aðeins i 895 kr, °9 enn f>ó minna ó sérstöku tilboði í bókaverslunum. IphiTTOiþurv qut»i mðy»ueLUN m EMERALD AIR imngrm tyrlr Imgrm vmrO 13róðí r CADiAI-X

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.