Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
Trimm
Islandsmeistari
í ofurþríþraut
Einar Jóhannsson er 34 ára verslun-
armaður sem á sér óvenjulegt og
krefjandi áhugamál. Hann er eini
íslendingurinn sem keppir í því sem
kalla má ofurþríþraut en slíkar
þrautir samanstanda af 3,8 km sundi,
180 km hjólreiðum og 42,5 km hlaupi.
Einar hefur, einn íslendinga, keppt í
slíkri þraut erlendis sumariö 1994 í
Roth í Þýskalandi. Auk þess hefur
hann tekiö þátt í minni þríþrautum
hér heima og í Svíþjóð.
Þekktust slíkra ofurþríþrauta er sú
sem fer fram á Hawaii árlega og er
kölluð Ironman. Þríþrautin sem Ein-
ar keppti í í Roth er eina þríþrautin
í Evrópu sem veitir tilteknum íjölda
keppenda þátttökurétt í Ironman en
1500 manns fá að keppa á Hawaii.
Einar var ekki mjög langt frá því að
-v öðlast rétt til keppni á Hawaii en
hann varð í 284. sæti af um 2000 kepp-
endum í Roth og lauk keppni á 9.45
klst. sem er býsna góð frammistaða
en hefði þurft að bæta tímann um
ca 89 mínútur til að fá rétt til að
keppa á Hawaii.
Sundið tók 58 mínútur, hjólreið-
arnar tóku 4.55 klst. og hlaupið 3.47
Suður-
nesja-
maraþon
Á morgun er Suðurnesjamara-
þon öðru sinni og hefst vlð Gler-
augnaverslun Keflavíkur við
Hafnargötu kl. 14. Það vekur at-
hygli að heimsfrægur hlaupari,
Hugh Jones, tekur þátt i hlaupinu
en Jones hefur áður hlaupiö á
íslandi og sigrað í Reykjavíkur-
maraþoni. Boðiö er upp á 3 km
skemmtiskokk, 7 og 25 kílómetra.
Suðumesjamaraþon vakti verð-
skuldaða athygli í fyrra fyrir gott
skipulag og verður eflaust ekki
minni þátttaka í ár en var í fyrra.
lronman
1.500 manns taka þátt árlega í
Ironman á Hawaii en fyrst var
keppt 1979 og þá tóku 12 þátt.
Árlega taka 20 þúsund manns
þátt í slíkum þrautum víða um
heim meö það fyrir augum að
komast til Hawaii en keppnin þar
er talin þyngsta þrautin vegna
erflðra aðstæðna. Frægustu þrí-
þrautarjaxlar í hópi karla eru
tvímælalaust Dave Scott, sem
hefur sigrað 6 sinnum, og Mark
Allen sem hefur sigrað flmm
sinnum. 1994 máttu þeir báðir
lúta í gras fyrir Greg Welch.
og að auki rúmar 12 mínútur í skipt-
ingar.
- Var þetta nokkurn veginn sá ár-
angur sem hann vildi ná?
„Á þátttökublaðinu var reitur fyrir
áætlaðan tíma og fyrir fram skrifaði
ég 9.45 í hann svo'þetta var nokkuð
eftir áætlun," sagði Einar í samtah
við Trimmsíðuna. Sigurvegarinn í
Roth fékk tímann 8.02 en enn hefur
enginn komist undir 8 klst. í keppni
sem þessari.
- Hvernig æfa menn sig fyrir shka
þraut?
„Ég ákvað fimm mánuðum áður
að taka þátt í þessu og fór þá að auka
æfingaálagið. Það gerði ég einkum
með því að auka hlaupaæfmgar en
algengast er að sá hluti reynist
mönnum erfiöur."
Einar jók álagið verulega miðað við
þaö sem venjulegu fólki finnst hæfi-
legt. Síðustu 12 mánuðina fyrir þrí-
þrautina æfði hann alls í 700 klukku-
stundir sem er nálægt 2 stundum á
dag að jafnaði og synti á þessum tíma
504 km, hjólaði 9.800 km og hljóp 1677
km. Mesta æfingaálag í einni vikú
skömmu fyrir keppni var 31 klukku-
stund en ísland er ekki sérlega hent-
ugt fyrir æfingar þessu tagi vegna
vetrarveðra en ef vel ætti að vera
væri þríþrautarmaður að taka 46
tíma hjólareiðaæfingar í febrúar.
Rétt er að geta þess að á þessum tíma
vann Einar aðeins hálfa vinnu enda
varla tími til annars. En er hann
ekki alltaf einn á æfingum?
„Ég undirbjó mig, þ.e. samdi æf-
ingaáætlanir, sjálfur og hjóla mikið
einn en hleyp með ÖL-hópnum á
sunnudögum en annars einn. Ég
syndi með íþróttafélaginu Ármanni
og er þar undir leiðsögn þjálfara.
Annars er ég mikið einn því það er
enginn annar sem æfir svona mikið.“
Einar fékk styrk frá Ármanni til
fararinnar en stóð að öðru leyti
straum af kostnaði sjálfur. Þátttöku-
gjaldiö í keppnina í Roth er um 20
þúsund ísl. krónur en auk þess er
ferðakostnaður og dvalarkostnaður
en Einar var kominn til Lúxemborg-
ar nokkrum dögum fyrir keppnina
til þess að venjast hitanum og lofts-
laginu.
„Ég var svo heppinn að á þessum
tíma var 30 stiga hiti í Evrópu svo
ég fékk góða aðlögun."
- En hvað er Einar að fást við um
þessar mundir?
„Ég er nú ekki að æfa eins mikið
og fyrir þríþrautina. Mér sýnist ég
stefna í 600 tíma æfingar þessu ári.
Ég ætla að keppa dálítið í hjólreiðum
hérna í sumar og langar til að hlaupa
dálítið meira en ég hef gert. En ég
hef verið að hjóla svo mikið að ég er
ekki í nógu góðri hlaupaþjálfun."
- Hvað með Reykjavíkurmaraþon?
„Ég hef tekið þátt í því en aldrei
keppt í hehu maraþoni. Besti tíminn
Umsjón
Einar Jóhannsson á fullri ferð I ofurþriþraut í Roth sumarið 1994.
Páll Ásgeir Ásgeirsson
minn í hálfu er 1.24:24 síðan 1992 en
ég veit ekki hvað ég geri í sumar.“
• í dag er Einar að keppa í hjólreið-
um Reykjavík-Hvolsvöllur um titil
íslandsmeistara og segist stefna á
sigur.
- Skiptir þú greinum milli daga þeg-
ar þú ert að æfa eða gerir þú eitthvað
af þessu þrennu á hverjum degi?
„Hver grein hefur sinn aðaldag þar
sem lögð er megináhersla á hana.
Þannig er sunnudagur helsti hlaupa-
dagurinn meðan annar dagur er tek-
inn í hjólreiðar og svo framvegis.
Einn dagur fer í hvíld og hinir dag-
amir eru blandaðar æfingar. Á vet-
urnar nota ég lyftingar svolítið til
þess að auka styrk.“
- Þarf Einar ekki að hugsa mikið um
mataræðið í svo miklum æfingum?
„Ég reyni fyrst og fremst að borða
nóg og hafa fæðuna nokkurn veginn
rétt samansetta. Ég þarf um 6000
hitaeiningar við mikið æfingaálag og
vil taka 2530% þess úr fitu en afgang-
inn úr kolvetnum. Við svona langar
æfingar brennir maður mikhli fitu.“
í keppni í þríþraut, sem tekur rúma
9 tíma, þarf keppandi að drekka um
lítra á klukkustund og helst að borða
talsvert en það er helst í hjólreiðun-
um sem menn borða á leiðinni.
Einar segist ekki hafa fengist við
keppnisíþróttir á yngri árum, fyrir
utan hálfa fótboltaæfingu hjá KR fyr-
ir mörgum árum og keppni í borð-
tennis á barnsaldri. Hann tók þátt í
fyrstu hjólreiðakeppninni 1980 í Ör-
firisey og sigraði í 10 km. Þá var
keppt í nokkur ár en svo lagðist
keppni í hjólreiðum af en var endur-
vakin um 1990.
- Ætlar þú að fara aftur í ofurþrí-
þraut?
„Ég stefni auðvitað að því. Nú veit
ég hvernig þetta er og hvað ég get
bætt. Mig dreymir auðvitað um að
komast til Hawah einhvern tímann
og keppa í Ironman þar og ég mun
ekki leggja á mig aðra keppni eins
og þá í fyrra nema vera viss um að
ná inn í hóp þeirra sem komast til
Hawaii.
Ég veit að ég get bætt tímann minn
í hlaupinu og kannski get ég tekið
örlítið af hjólatímanum. Tíu mínút-
um betri tími í hlaupinu er mitt tak-
mark. Aldurinn 35-40 er sá besti til
að keppa í svona þrautum svo ég hef
nógan tíma enn.“
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Framfarir koma með
ástundun og þolinmæði
Mikilvægt er að stunda æfingar af
kostgæfni. Sérstaklega er mikilvægt,
þegar lítlll grunnur er fyrir hendi,
að hlaupa reglulega, annars er alltaf
veriö að byrja á byrjunarreit. Þolin-
mæði og ástundun eru einkunnarorð
sem ég gef öllum. Framfarir eru
miklar í byrjun en koma aðeins ef
ástundun er góð. Menn geta auðvitað
-10 km, hálfmaraþon og maraþon
finnst þú vera illa fyrirkahaður(köll-
uð) getur verið gott að taka-sér hvíld-
ardag í stað þess að ofbjóða líkaman-
6. vika. 2/7—8/7
um. Það er mjög viturlegt að hlusta
á boð líkamans. Líkaminn gefur þér
mjög greinileg skilaboð ef um ofþjálf-
un er að ræða. Þá er betra heima
setið en af stað farið.
Jakob Bragi Hannesson
1 verið misjafnlega upplagðir og ef þér
VOLVO 850 I
Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
lOkm 21 km 42 km
Sunnudagur 8 km ról. 16 km ról. 24 km ról.
Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld
Þriðjudagur 6km (hraðaleikur): 10km (hraðaleikur): 10km (hraðaleikur):
Fyrst 2 km ról. og Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan
síðan 2 km hratt og 1 km hratt, síðan 1 km 1 km hratt, síðan 1 km
loks2kmról. hægt 3x og 2 km hægt 3x og 2 km
ról. I lokin ról. I lokin
Miðvikudagur 7kmról. 12kmról. 15kmról.
Fimmtudagur Hvild 8 km ról. 14km ról.
Föstudagur 4kmról. 10 km ról.. 10 km ról.
Laugardagur 5kmjafnt 8kmjafnt 8kmjafnt
Samt.: 30 kfn 64 km 81 km
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
FLUGLEIDIrJSs' ^