Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 53 J.J. Soul Band. J.J. Soul Bandá Blúsbarnum J.J. Soul Band hóf feril sinn á Blúsbarnum og í kvöld ætla þeir að endumýja kynnin og skemmta gestum staðarins fram eftir nóttu. Niðjamót Niðjamót Péturs Sveinssonar verður haldið í dag og á morgun á Egiisstöðum. Minningarhátíð um Sölva Helgason verður haldin í fæðingarsveit hans, Sléttuhlíð í Skagaíirði, í dag og hefst ki. 14.00. Fyrirlestur í Norræna húsmu á morgun kl. 17.30 mun Borgþór Kærnested halda fyrirlestur á sænsku og finnsku um islenskt samfélag. Opið hús Bahá’íar eru meö opið hús að Álfabakka 12 í Mjódd kl. 20.30. Fjöiskylduhlaup f dag verður efnt til fjölskyldu- hlaups í Viðey. Hefst það kl. 14.00 og verða hlaupnir 3 km. Unun. Risadansieikur Ununar Hin vinsæla hljómsveit, Unun ætlar að vera með risadansleik á Tveimur vinum í kvöld. Sólóisfi á Sólon Einar Kristján Einarsson verður sólóisti á Sóloni íslandusi annað kvöld. Ástarsaga úr fjöllunum Á hstahátiðinni Gullkistan á Laugarvatni verður í dag sýnt barnaleikritið Ástarsaga úr íjöll- unum í íþróttasal Héraðsskólans kl. 14.00. Sálin á Norðfirði Sálin hans Jóns mins er á ferð um landiö og leikur sveitin á Norðfirði í kvöld. Sumarhátíð varnarliðsmanna Varnarliðsmenn halda árlega sumarhátíð sína með karnival- sniði í dag í stóra flugskýlinu á Keflavikurflugvelli. Hjartagangan í dag er Hjartagangan - göngu- dagur fjölskyldunnar og er geng- iö frá fjölmörgum stööum á land- in. í Reykjavík er gengið um Ell- iðaárdal. Fjölskyldudagur í Fjölskyldugarðinum í dag verður Toyota meö fjöl- skyldudag og meðal þeirra sem komafram eru Magnús Scheving og Toyota-danshópurinn og Stjómin og Sigga Beinteins. Heitt verður á suðausturhominu Hæglætisveður ætti að verða um allt landið í dag en nokkuö verður mis- skipt hversu heitt verður á landinu. Spáö er vestan- og norðvestan kalda. Veðriðídag Sem og fyrri morgna verður þoku- súld til að byrja með, aöallega við norðurströndina en annars verður bjartviðri. Hitinn verður 6 til 20 stig. Svalast verður á annesjum norðan- lands en heitast verður suðaustan- og austanlands þar sem hitinn gæti hæglega farið í 20 stig yfir hádaginn og þar verður einnig bjartast. Sólarlag í Reykjavík: 23.57 Sólarupprás á morgun: 3.06 Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.40 Árdegisflóð á morgun: 9.00 Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri skýjað 19 Akumes léttskýjað 13 Bergsstaðir skýjað 15 Bolungarvik súld 11 Kefla víkurflugvöllur þokumóða 9 Kirkjubæjarklaustur hálfskýjað 16 Raufarhöfn hálfskýjað 19 Reykjavik súld 8 Stórhöfði skýjað 8 Helsinki skýjað 14 Kaupmarmahöfn léttskýjaö 21 Ósló rigning 13 Stokkhólmur léttskýjaö 17 Þórshöfn léttskýjað 9 Amsterdam léttskýjað 25 Barcelona léttskýjað 26 Chicago skýjað 21 Feneyjar heiðskírt 28 Frankfurt léttskýjað 28 Glasgow mistur 17 Hamborg léttskýjað 23 London mistur 29 LosAngeles alskýjað 16 Lúxemborg léttskýjað 29 Madrid léttskýjað 28 Malaga rykmistur 25 Mallorca léttskýjað 29 Montreal heiðskirt 24 New York skýjað 22 Nice léttskýjað 25 Nuuk léttskýjað 10 Orlando þokiunóða 25 París léttskýjað 31 Róm léttskýjað 25 Valencia mistur 27 Vín léttskýjað 27 Winnipeg alskýjað 10 dagsro]Jil Samuel L. Jackson og Bruce Willis þurfa að leggja mikið á sig líkamlega í hlutverkum sínum. Die Hard, þriðji hluti Sam-bíóin sýna við miklar vin- sældir þriðju Die Hard myndina, Die Hard with a Vengeance. Enn sem fyrr leikur Bruce Willis hinn harðsvíraða lögreglumann, John McClane. Hann hefur verið öör- um snjallari að þefa uppi vand- ræði en ólíkt fyrri myndunum tveimur, þar sem McClane var réttur maður á röngum stað, leit- Kvikmyndir ar hættan hann nú uppi. Óvinur- inn, Simon, á mikið sökótt við McClane og ef McClane verður ekki snar í snúningum kann að verða lítið eftir af New York. Breski stórleikarinn Jeremy Ir- ons leikur Simon og er þetta í fyrsta skipti sem hann leikur harðsnúinn glæpamann, auk þess sem hann hefur látið lýsa á sér hárið. Samuel L. Jackson leikur saklausan New York-búa sem veröur óvart samstarfsmað- ur Johns McClane. Leikstjóri myndarinnar, John McTiernan, leikstýrði einnig fyrstu Die Hard myndinni. Hann hefur leikstýrt nokkrum stórum hasarmyndum, auk Die Hard myndanna tveggja. Má þar nefna Predator, The Hunt for Red Octo- ber og The Last Action Hero. Nýjar myndir Háskólabíó: Tommy kallinn Laugarásbíó: Don Juan De Marco Saga-bfó: Kynlifsklúbbur í Paradís Bióhöllin: Die Hard with a Vengeance Bíóborgin: Ed Wood Regnboginn: Before Sunrise Stjörnubíó: í grunnri gröf Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 158. 30. júní 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 62,730 62,990 63,190 Pund 99,950 100,350 100,980 Kan. dollar 45,610 45,830 46,180 Dönsk kr. 11,6020 11,6600 11,6610 Norsk kr. 10,1590 10,2090 10,2220 Sænsk kr. 8,6360 8,6800 8,6940 Fi. mark 14,6880 14,7620 14,8100 Fra. franki 12,9050 12,9700 12,9110 Belg. franki 2,2024 2,2134 2,2154 Sviss. franki 54*300 54,7000 55,1700 Holl. gyllini 40,4200 40,6200 40,7100 Þýskt mark 45,2900 45,4800 45,5300 it. líra 0,03822 0,03844 0,03844 Aust. sch. 6,4350 6,4740 6,4790 Port. escudo 0,4280 0,4306 0,4330 Spá. peseti 0,5165 0,5196 0,5242 Jap.yen 0,73930 0,74300 0,76100 írsktpund 102,650 103,260 103,400 SDR 98,27000 98,86000 99,55000 ECU 83,3900 83,8100 83,9800 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Heimild: Almanak Háskólans Hótel Selfoss: Fyrir nokkrum árum var liljóm- sveitin Greifarnir meöal vinsæl- ustu sveita landsins. Eftir nokk- urra ára þyrnirósarsvefn hafa þeir nú tekið saman á ný og komu sam- an fyrst á Hótel íslandi kvöldið.fyr- ir og á þjóðhátíöardaginn. Að sögn liðsmanna hafa þeir tekiö upp það nýmæli að spila engin ný lög held- ur aðeins gömul og góð lög sem fylgdu þeim áður. Einnig hafa gömlu fótin og búningarnir verið dregnir fram og rykið dustað af gömlum og hnitmiðuðum dans- sporum. { kvöld munu Greifarnir leika á Hótel Selfossi og með í fór austur fyrir fjall verður efnileg hljóm- sveit, Cigarette. Greifamir segjast Greifarnir eins og þelr litu út á sínum gullaldarárum. ætla að missa gjörsamlega stjórn á sér í taumlausri gleði og öll gömlu Greifalögin munu óma fram eftir nóttu. Frjálsar oggolf Þeir sem bregöa sér á Laugar- dalsvölhnn um helgina ættu að geta séð spennandi keppni en þar fer fram stórmót í fjölþraut með þátttöku nokkurra landa. Meðal keppenda er Jón Amar Magnús- son sem náöi frábærum árangri í tugþraut fyrir stuttu. Hann er með langbestan árangur allra keppenda i tugþrautinni og er i íþróttir dag meðal bestu tugþrautar- kappa í heiminum. Nú fara iram hjá mörgum golf- klúbbum meistaramót klúbb- anna og þvi ekki mikið um opin mót þessa helgi en þar sem fjórir stórir klúbbar héldu meistaramót sín í síðustu viku verður boðið upp á opið mót, Pepsi Cola mótið, í Leirunni í dag. Á meðan er landsliðið í golfi að hefja keppni í Evrópumeistaramótinu sem haldiö er í Belgíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.