Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 Dagur í lífi Ingu Jónsdóttur listakonu á Seyðisfirði: Tuttugu sttmda vinnudagur fyrir afmælishátíðina Inga Jónsdóttir listakona hefur verið önnum kafin að undanförnu við undirbúning listsýninga i tilefni 100 ára afmæl- ishátiðarinnar á Seyðisfirði. DV-mynd Jóhann Jóhannsson Ég vaknaði rúmlega átta á mánu- dagsmorguninn eftir aðeins fjögurra klukkustunda svefn. Vinnudagarnir að undanfórnu hafa verið langir því það hefur verið mikið verk að und- irbúa metnaöarfulla afmælishátíð. Ég gaf mér tíma til að borða Cheeri- oshringi í morgunmat ásamt syni mínum, Helga, sem einnig vinnur að undirbúningi afmælishátíöarinnar, og eiginmanninum Þorgils en síminn tók mig þó frá borðinu í tvö skipti. Dóttir mín, Þóra, sem er 12 ára, svaf fram eftir en hún aðstoðar við hús- verkin þessa dagana. Þóra Guðmimdsdóttir arkitekt kom og við yfirfórum merkingar fyr- ir sýningarstaði. Ég fór svo og náði mér í fjórar duglegar hjálparhendur Hiddu og ísleifs til að ljúka við að hreinsa sýningarhúsnæði Þorvaldar Þorsteinssonar sem væntanlegur var með morgunfluginu. Iðandi mannlíf á nýja torginu Síöan lá leiðin í Stái hf. þar sem ég náði í stálgrindina í plakatstand- inn sem ég ætla að setja niður á Seyð- isfirði fyrir myndhstarsýninguna mína sem heitir Attir og verður opn- uð um helgina. Um leið athugaði ég hvemig smíði vegna listaverksins Útlínur miðaði. Það er verk eftir Kristján Guðmundsson og veröur afhjúpað á afmælishátíöinni. Menn voru í óðaönn að ljúka smíðinni og metnaðurinn mikill og eftirvænting eftir að sjá verkið á sínum stað sem verður nýja torgið í bænum. Það var Þóra sem úannaöi torgið og það hefur tekist mjög vel. Þar iðar allt af lífi þessa dagana og börnin sækja í tjörn- ina til að busla í góða veðrinu núna. Ég fór með stálgrindina yfir í áhaldahús þar sem ég ræddi við Gulla verkstjóra og Kristján smið um lokafrágang og setti Helga son minn inn í verkiö. Á leiðinni að dvalarstað Þorvaldar og Ingibjargar Björnsdótt- ur, sem leikstýrir Aldamótaelexír, tíndi ég blóm úti í móa. Ég bauð þau velkomin á staðinn. Viö Þorvaldur skoðuðum sýning- arhúsnæðið og ræddum um sýning- una hans sem tengist seyðfirskum veruleika. Á heimleiðinni skildi ég Þorvald og Ingibjörgu eftir við fjöl- skyldumyndirnar í glugga matvöru- verslunarinnar Brattahlíð á meðan ég hljóp í bakaríið. Sýningin er hug- mynd okkar Péturs Kristjánssonar og er vel sótt. Þorvaldur og Ingibjörg komu með heim í hádegissnarl og vorum við því sex í hádegismat. Fjöldi skilaboða beið mín heima og þurfti ég að afgreiða ýmis mál í gegn- um símann. Meðal þeirra sem höfðu hringt var Stefán Halldórsson á Listasafni íslands til þess að fá frétt- ir og staðfestingu á skipulagningu. Sigurður Árnason myndlistarmaöur var kominn á staðinn. Auk þess að halda sjálfur einkasýningu var hann svo vinsamlegur að sjá um uppsetn- ingu á sýningu heimamanna í skól- anum. Fýluferð upp á flugvöll Eftir hádegi gekk ég einnig frá nokkrum atriðum í sambandi við dagskrárblaðið. Því næst brunaði ég upp á Egilsstaði til þess að ná í mynd- listarsýninguna mína, það er plaköt- in, úr prentun. Plakötin voru prent- uð hjá Héraðsprenti og þar eiga menn hrós skilið fyrir lipurð og þol- inmæði fyrir að prenta eins og ég vildi. Ég fór fýluferð á flugvöllinn þvi pakki sem ég átti von á kom ekki. Þegar ég kom aftur til Seyðisíjarðar biðu mín fleiri skilaboð og tókst mér að afgreiða þau. Kíkti aftur á stand- inn minn til að velja lit á hann. Ég lauk einnig við að ganga frá boðs- kortum vegna sýninga. Eftir kvöldmat fór ég í stjórnstöð- ina uppi í skóla og sat þar við hönn- un sýningarblaðsins til klukkan þrjú um nóttina. Þrátt fyrir langa vinnu- daga hefur þetta verið mjög gaman og allir sem maður leitar til hafa sýnt mikla lipurð. Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu og íjórtándu getraun reyndust vera: 1. Vaigarður Reynisson 2. Tryggvi Aðalbjörnsson Hjallalundi 7c Lónabraut 41 600 Akureyri 690 Vopnafjörður Finnur þú fimm breytingar? 316 Myndiraar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er aö gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. 1. verðlaun: TENSAI feröaútvarp með kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmíðstöð- inni, Síöumúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð- laun heita: Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróöir Cad- fael, aö verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiölun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú funm breytingar? 316 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Nafn: Heimili:.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.