Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ1995 21 ísland (plötur/diskar) I 1 (1 ) Post Björk t 2(3) Smash Offspring t 3 ( - ) Reif i runnann Ýmsir I 4(2) Bítilædi Sixties J 5(5) Stjórnarlögin 1989_1995 Stjórnin $ 6(4) Teika Bubbi & Rúnar t 7 ( - ) History - Past, Present and Future... Michael Jackson t 8 (Al) Pulp Fiction Úr kvikmynd | 9(6) Twisturinn Vinir vors & blóma 4 10(7) Forrest Gump Úr kvikmynd $11(8) Pulie Pink Floyd 4 12 (10) Dookie Green Day 4 13 ( 9 ) Reif í kroppinn Ýmsir 4 14 (11) Now 30 Ymsir | 15 (15) Parklife Blur t 16 ( - ) Batman forever Úr kvikmynd t 17 (Al) Heyrðu6 Ýmsir t 18 (Al) Definitely Maybe Oasis 4 19 (17) Þólíðiárogöld Björgvin Halldórsson 4 20 (12) Transdans4 Ýmsir Listinn er reiknaöur út frá sölu í öllum helstu hljómplötuversiunum í Reykjavík, auk verslana víða um landið. c London (lög) J 1. (1 ) Unchained Melody/White Cliffs... Robson Green & Jerome Flynn t 2. ( 5 ) Boom Bom Boom Outhere Brothers I 3. ( 2 ) Hold Me, Thrill Me, Kiss Me,... U2 t 4. ( - ) Whoomph! (There It Is) Clock t 5. ( - ) This Is a Call Foo Fighters 4 6. ( 3 ) I Need Your Loving (Everybody's...) Baby D t 7. ( 8 ) Think of You Whigfield 4 8 (4) Scream Michael Jackson/Janet Jackson t 9. ( - ) Stillness in Time Jamiroquai J 10. (10) IGirlLikeYou Edwyn Collins New York (lög) Bretland (plötur/diskar) Bandaríkin (piötur/diskar) t 1. ( - ) Pulse Pink Floyd 4 2. (1 ) Cracked Rear View Hootie and The Blowfish • 3. ( 4 ) Pocahantas Povcrty's Úr kvikmynd 4 4. ( 2 ) Throwing Copper Live t 5. ( 7 ) Crazysexycool TLC t 6. ( - ) Let Your Dim Light Shine Soul Asylum t 7. ( 8 ) John Michael Montgomery John Michael Montgomory t 8. ( - ) Tales from the Punch Bowl Primus ♦ 9. ( 6 ) II . Boyz II Men 410. ( 5 ) Friday Úr kvikmynd Bon Jovi Á útopnu um heiminn Bandaríska rokkhljómsveitin Bon Jovi hefur veriö viö hljómleikahald á Bretlandseyjum undanfarna daga. Hún kom þrívegis fram á Wembley- leikvanginum ásamt Van Halen, Thunder og Ugly Kid Joe. Þaðan lá leiðin til Gateshead og loks til Sheffi- eld. Hvarvetna voru viðtökurnar eins og best varð á kosið. Enda virð- ist tónlistin á nýjustu plötu Bon Jovi, These Days, ætla aö faha vel í kramið. Hljómsveitin.er einmitt á heimsferð þetta árið til að kynna hana og fer víða í því augnamiði. Liösmenn Bon Jovi eru nú aðeins fjórir. Bassaleikarinn, Alec John Such, var rekinn fyrir nokkrum mán- uðum eftir það sem heitir „ýmis at- vik“ og er kærkomin tilbreyting frá hinni hefðbundnu ástæðu, „ósættan- leg tónlistarleg sjónarmið". í hans stað er kominn Hugh McDonald. Hann telst ekki fastur liðsmaður enn þá, hvað sem síðar kann að verða. Hinir eru allir á sínum stað: Jon Bon Jovi söngvari, Richie Sambora gítar- leikari, Tico Torres trommari og hljómborðsleikarinn David Bryan. Þótt árin séu ekki ýkja mörg síðan Bon Jovi sendi frá sér metsöluplöt- una Slippery when Wet er hljóm- sveitin gjörbreytt frá því sem þá var. í hljómleikaferðinni, sem farin var til að fylgja henni eftir, var það yfirlýst stefna fimmmenninganna að komast yfír eins mikið af kvenfólki og mögu- legt var. Nú eru þeir orðnir öllu ráð- settari en þá. Torres er hættur að drekka, hefur tekið einkaflugmanns- próf, haldið nokkrar listsýningar og smíðað sér bát. Sambora er nýkvænt- ur leikkonunni Heather Locklear og Bryan fæst við að semja tónlist fyrir kvikmyndir og ala upp komunga tví- bura með konu sinni. Sjálfur er Bon Jovi tveggja bama faðir, hyggur á kvikmyndaleik þegar hljómleika- ferðinni lýkur og segist vera hæstá- nægður með hlutskipti sitt. „Auðvitað gæti ég hætt öllu hljóm- Jon Bon Jovi: Áheyrendahópurinn hefur sífellt breikkað með árunum eftir því sem tónlistin hefur orðið blandaðri. leikahaldi strax í dag ef ég vildi,“ seg- ir harm. „Peningar em ekkert vanda- mál. Ég gæti spilað á pöbbum þegar mér sýnist tekið upp plötur þegar ég nenni og haft það notalegt heima þess á miili. Eg þarf ekki að spila fyrir tug- þúsundir á útileikvöngum til að halda sjáifsímyndinni í lagi.“ En auð- vitað gerir hann það ekki. Hann er búinn að halda hljómsveitinni Bon Jovi úti í tólf ár. Vinsældimar hafa stöðugt vaxið og sennilega er hljóm- sveitin á hátindinum núna. Hún blandar saman hressu iðnaðarrokki, sem alla tíð hefur verið vörumerki hennar, og rólegum, hugljúfum ball- öðum og hefur fyrir vikið breikkað áheyrendahóp sinn verulega. Southside Johnny er fyrirmyndin Jon Bongiovi var alla tíð handviss um hvaö hann ætlaði að gera þegar hann yxi úr grasi. Hann ætlaði að verða rokkari og helst líkjast átrún- aðargoðinu sínu, Southside Johnny Lyons, sem allra mest. Helst vildi hann fá að ganga í hljómsveit hans, The Ashbury Jukes, þegar fram liðu stundir. „Allt það sem ég kann að gera á sviði hef ég lært af Southside Johnny. Ég sagði honum meira að segja að það væri honum að kenna að ég kynni ekki að dansa. Hann kann það nefnilega ekki heldur,“ segir Bon Jovi sem breytti eftirnafni sínu nokkru áður en hljómsveitin með sama nafni var stofnuð. „Ég var meira að segja harðánægður með að fyrsta platan okkar seldist í 350 þús- und eintökum. Plötur Ashburys Jukes seldust í því upplagi og mér fannst það nóg.” Framtíðin átti hins vegar eftir að verða nokkuð öðruvísi. Síðari plötur hljómsveitarinnar seldust í milljóna- upplagi og það átti ekki fyrir hljóm- sveitinni Bon Jovi að liggja að spOa í þrjú þúsund manna sölum eins og fyrirmyndimar. Fljótlega kom í ljós að Bon Jovi nægði ekkert minna en stærstu gerðir af íþróttaleikvöng- um. „Það er í tísku að hallmæla leik- vöngunum en ég kann vel við mig á þeim,“ segir söngvarinn. „Þeir gefa manni tækifæri til að láta allt vaða af fullum krafti og þeir em ekkert ópersónulegri en maður vill hafa þá sjálfur. Ég get alveg ávarpað ein- hvem í hundruðustu röð ef því er að skipta. Það skiptir engu höfuðmáli hve margir koma að hlusta í hvert sinn. Aðalatriðið er að koma því al- mennilega til skila sem maður vill gera. Það er hið eina sem ég kann. Ég hætti snemma í skóla til að geta snú- ið mér að músíkinni og ég ætla að halda mig við hana meðan ég get.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.