Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 7 White-Westinghouse • 75 - 450 lítrar • Stillanlegur vatnshiti • Tveir hitastillar • Tvö element • Glerungshúð að innan • Öryggisventil! • Einstefnulokar • Frí heimsending í Rvk. og nágrenni VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR 30 ÁRA RAFVORUR ARMULI 5 -SIMI 568 6411 Fréttir áður nú 100g Ferða- og dvalarkostnaður alþingismanna: Þessi kostnaður hef ur verið greiddur í mörg ár - segir Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalistans „Varöandi ferða- og dvalarkostnað alþingismanna breytist það eitt í nýju lögunum um þingfararkaup að nú fá þingmenn greiddan ferðakostn- að vegna ferða innan eigin kjördæm- is. Það var ekki áður. En ef þing- menn, jafnvel þingflokkar, fóru út á land tii fundahalda eða viðræðna í tengslum við pólitískt starf þá var bæði fargjaldið greitt og dagpeningar til uppihalds. Þannig hefur þetta ver- ið árum saman,“ sagði Kristin Ást- geirsdóttir, þingkona Kvennalistans. Það virðist hafa komið mörgum á óvart þegar Ólafur G. Einarsson, for- seti Alþingis, sagði í samtali við DV nýlega að svona hefði þetta verið lengi og nefndi sem dæmi Jóhönnu Sigurðardóttur þegar hún var að stofna Þjóðvaka í fyrra. Menn héldu að ferða- og dvalarkostnaður hefði ekki verið greiddur fyrir hvaða ferð út á land sem þingmenn hafa viljað fara því alltaf er hægt að tengja slík- ar ferðir póhtísku staríl. í nýju þing- fararkaupslögunum, sem samþykkt voru á siðasta degi vorþingsins, er nánar tekið fram hvernig þessum kostnaðargreiðslum skal háttað. Þar eru einnig þau nýmæli, sem Kristín nefnir, að þingmenn fá nú samkvæmt þeim greiddan ferða- kostnað innan eigin kjördæmis. Eftir er að setja ákveðnar reglur um vega- lengdir innan kjördæmisins í þessu sambandi. Ekki stendur til að greiða fyrir fyrstu kílómetrana en hversu langt menn þurfa að fara til að fá greitt á eftir að ákveða. Kristín Ástgeirsdóttir sagði að ef þessi ferða- og dvalarkostnaður hefði ekki verið greiddur fyrir þingmenn þá heíðu þeir einfaldlega ekki getað sinnt starfi sínu. Þá sagðist hún ekki vera að tala um ferðakostnað þing- manna utan af landi milli þings og kjördæmis, heldur kostnað allra þingmanna. „Það hefur verið þannig um langt skeið að Reykjavíkurþingmenn hafa fengið 18 þúsund krónur, Reykjanes- þingmenn 24 þúsund og þingmenn allra annarra kjördæma 31 þúsund krónur á mánuði. Þessar upphæðir hafa átt að dekka allan ferðakostnað þeirra vegna starfsins. Ég vil taka það fram að þetta er ekki greiðsla fyrir landsbyggðarþingmenn til að korna sér til og frá vinnu. Það er greitt sér.“ /rSMRUD Ný og sterri pakkning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.