Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 1. JÚLl 1995 11 Eyjólfur Sverrisson, atvinnumaður í knattspymu: England eða Frakk- land er draumurinn „Mér fannst ágætt aö vera í Tyrk- landi og það gekk líka mjög vel í knattspymunni. Ég var nokkuö ánægður meö eigin frammistöðu. Nýir leikmenn verða oft að þola þaö að vera gagnrýndir mikið í byrjun og einhverjar umræður voru um að ég félli ekki inn í leikkerfi liðs- ins. En mér fannst mér ganga mjög vel í byrjun hjá liöinu," sagði Eyj- ólfur Sverrisson, atvinnumaður í knattspyrnu, sem spilaði á síðasta ári með tyrkneska liðinu Besiktas og varð meistari með því liði í vor. Eyjólfur, sem er 26 ára gamall, stóð sig mjög vel, skoraði 9 mörk og var annar markahæsti maður liðsins á nýliðnu keppnistímabili. „Það kom heldur lakari tími hjá mér í lok fyrri umferðarinnar en þetta gekk mjög vel hjá mér í seinni umferð deildarinnar. Mér fannst bæöi bera á ánægju meö mína frammistöðu og eins hinu gagn- stæða þó að í heildina væri það á jákvæðu nótunum.“ Leikaraskapur áberandi Eyjólfur sagði að tyrknesk knatt- spyrna væri að sumu leyti frá- brugðin þeirri sem leikin er norðar í Evrópu. „Tyrkir eru meira í þessu litla spili og það fylgir fótboltanum mik- ill leikaraskapur. Áhorfendur eru einnig mjög blóðheitir en maður fann lítið fyrir neikvæðu hliðunum á því vegna þess hve Besiktas gekk vel á tímabilinu. Hins vegar sá maöur að það var ekkert grín að vera leikmaður í atórliði ef þvi gekk illa, því þeir voru undir mikilh pressu frá áhangendum. Áhang- endum gat orðið ansi heitt í hamsi og leikmenn geta lent í ýmsu.“ - Nú hefur þér lánast að vera í tveimur erlendum liðum sem bæði hafa náð meistaratitli, Stuttgart og Besiktas. Hver er galdurinn á bak- við velgengnina? „Það má kannski segja að ég hafi verið venju fremur heppinn. Ég á frekar erfitt meö að útskýra lán mitt í þessum efnum, en vonandi hef ég átt einhvern þátt í þessu.“ Framhaldið óráðið - Nú hefur það heyrst að þú stefnir á önnur miö og spilir ekki meira í Tyrklandi. Hvaö er fram undan hjá þér? „Það er nokkuð ljóst að ég spila ekki áfram í Tyrklandi á næsta keppnistímabili og heldur ekki hjá Stuttgart, sem leigöi mig til Tyrk- lands á síðustu leiktíð. Það hefur ekki verið allt of mikið um það að lið hafi veriö að spyrjast fyrir um mig, en draumurinn er að komast til Englands eða Frakklands. Það er mikið að gerast í Englandi, mik- ill áhugi forráðamanna, margir frægir knattspyrnumenn eru á leiðinni þangað og knattspyrnan þar er að batna. Ég geri mér þó ekki vonir um að komast að hjá neinu stórhðanna í Englandi. Það er veriö að skoða hlutina og þá möguleika sem eru fyrir hendi, umboðsmaður minn er að vinna í mínum málum. Stuttgart mun alla vega, eftir því sem ég kemst næst, ekki standa í vegi fyr- - ætlar ekki að spila áfram í Tyrklandi ir því að ég fari annað. Maður veit heldur ekkert hvernig framtiðin verður, því heimur knattspyrnumannsins er hverfull. Ég hef hingaö til verið heppinn og sloppið að mestu við meiðsl, en maður gæti þess vegna lent í meiðslum á morgun og ferillinn verið búinn. Ég tek bara hvert ár fyrir sig og met stöðuna að loknu hverju keppnistímabili. Þegar ferl- inum lýkur, hvenær sem það verð- ur, þá á ég frekar von á því að koma heim. Maður er jú íslendingur." Eyjólfur er ekki sá eini í fjöl- skyldunni sem þykir vera góöur í fótbolta. Sverrir, bróðir Eyjólfs, er 24 ára og hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með Leiftri frá Ólafsfirði í fyrstu deildinni. „Sverrir hefur staðið sig mjög vel í sumar, en ég er búinn að sjá tvo leiki með honum. Hann á alveg möguleika á því að gerast atvinnu- maður í knattspyrnu. í rauninni var hann alltaf bestur okkar bræðranna í knattspyrnunni. Það ætti að vera nokkuð góður tími fyrir hann núna að reyna fyrir sér. En það er fyrst og fremst hann sjálfur sem tekur ákvörðunina, hann er vanur að ráða sínum gerð- um sjálfur því hann hefur bein í nefinu." Tyrkland kom á óvart Eyjólfur var á því að Tyrkland Eyjólfur stóð sig mjög vel á síðasta keppnistimabili, skoraði 9 mörk og var annar markahæsti maður tyrkneska liðsins Besiktas sem hampaði meistaratitlinum í lok tímabilsins. DV-mynd BG hefði komið honum nokkuð á óvart. „Landið er orðið vestrænna en maður gerði sér grein fyrir, alla vega í Istanbúl (innsk: heimaborg Besiktas). Þar fyrir austan í Tyrk- landi er víst allt öðruvísi umhorfs. Áhrifa frá múslímum gætir greini- lega í landinu. Aðstæður allar eru allt aðrar í Tyrklandi en heima á íslandi. Rik- asta og stærsta félagið, Fenerbac- he, hefur á bak við sig 20 milljón manna stuðningshóp, næststærst er Galatasaray með um 17 milljónir en Besiktas hefur stuðning um 13 milljón áhangenda." Eyjólfur Sverrisson er nú í fríi hérlendis, á heimaslóðum sínum á Sauöárkróki. „Ég fer utan ein- hvern timann í júlí til viðræðna við önnur liö. Þá er hugsanlega frétta að vænta af framhaldinu hjá mér. Ég hef mestan hug á að komast að hjá klúbbi sem hefur metnað til þess að ná árangri. En maður verð- ur að horfa raunsætt á málin, lik- urnar á því að maður komist að hjá einhverjum af þeim allra stærstu, eru hverfandi," sagði Eyj- ólfur að síðustu. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.