Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
Stuttarfréttir
Utlönd
Ennfrestað
Réttarhöldura yfir þremur
breskum hermönnum, sem
ákæröir eru fyrir að hafa drepiö
danska stúlku á Kýpur í fyrra-
haust, hefur verið frestaö einu
sinni enn.
GroíBrussel
Gro Harlem
Brundtland,
forsætisráð-
herra Noregs,
sagði eftir fundi
meö forseta
framkvæmda-
stjórnar ESB í
Brussel að Nor-
egur hefði nánari pólitísk og efna-
hagsleg tengsl við sambandið en
nokkurt land annað og bætti við
að áhrifin væru meiri ef landið
heföi gengið í ESB.
Nýrmiðjuflokkur
Hervé de Charette, utanríkis-
ráðherra Frakklands, sagðist í
gær ætla að stofna nýjan miðju-
flokk og undirstrikaði þar með
klofninginn innan samsteypu-
stjórnarinnar.
Talasaman
Andstæðingar fylkingar í ít-
ölskum stjórnmálum ætla að
ræða saman um reglur fyrir
næstu þingkOsningar.
Friðurekkiíhætfu
Stjórnvöld í Bretlandi og ír-
landi neituðu í gær að hætta væri
á aö friðarumleitanir færu út um
þúfur en sögðu vopnaeign lýð-
veldissinna þránd í götu.
RáðistáNorðmenn
Ráðist var á norska sendinefnd
verkalýðsforkólfa og blaða-
manna í Pakistan þegar heim-
sækja átti verksmiöju þar sem
börn eru látin vinna.
Varistþrælslundina
Páfi varaði íbúa Slóvakiu við
því að láta efnishyggjuna og siö-
ferðilegan þrældóm ná tökum á
sér.
Jeltsín rekur ráðherra
Borís Jeltsin
Rússlandsfor-
seti rak tvo
háttsetta ráð-
herra og yíir-
mann gagn-
njósna landsins
vegna árásar
tsjetsjenskra
uppreisnarmanna á sjúkrahús í
Rússlandi á dögunum en varnar-
málaráðherrann Gratsjov slapp.
Hægiráhagvexti
Mjög hægði á hagvexti í Banda-
ríkjunum á fyrsta ársfjóröungi
þar sem neytendur héldu fast um
budduna.
Reuter
Vöruverð erlendis:
Bensínið upp
áný
- hlutabréf lækka
Eftir töluverða lækkun á bensíni á
heimsmarkaði sl. mánudag hefur
verðið hækkað jafnt og þétt síðan og
hefur náð svipaöri stöðu og í síöustu
viku. Olíufélögin hér heima voru
undrasnögg til að lækka í þetta sinn
og ber að fagna því.
Hlutabréfaverð er almennt lægra en
fyrir viku í helstu kauphöllum heims.
í Bretlandi er ástæðan einkum órói í
stjómmálum eftir að John Redwood
tilkynnti mótframboð gegn Major.
í kauphöllinni við Wall Street
reikna fjárfestar meö að rikisstjórn
CUntons lækki vexti í næstu viku.
Viöskiptasamkomulagið við Japana
hafði hins vegar góð áhrif. -Reuter
Hugh Grant kominn aftur heim til kærustunnar:
Elizabeth fékk
tvibreitt rúm
Breski leikarinn Hugh Grant, sem
lögregla í Hollywood greip glóðvolg-
an í kynlífsleik við vændiskonu í vik-
unni, kom heim til Bretlands í gær-
morgun og fór rakleiðis til kær-
ustunnar Elizabethar Hurley á heim-
ili þeirra í þorpinu West Littleton.
Tugir blaðamanna og ljósmyndara
sátu um hús skötuhjúanna þrátt fyr-
ir að Hurley hefði beðið fjölmiðla um
að láta þau í friöi. Fréttamenn urðu
vitni að því þegar komið var með
risastóran blómvönd að húsinu og
skömmu síöar sáu þeir, sér til
óblandinnar ánægju, að komið var
með tvíbreitt rúm.
„Þetta er tilvalinn staður fyrir
sættir," lét einn fréttamannanna þá
út úr sér.
Síöar sást til þeirra Hughs og Eliza-
bethar, einhvers glæsilegasta pars
Bretlands, þar sem þau snæddu há-
degisverð í garðinum. Það þótti
benda til að þau töluöust að minnsta
kosti við.
Hurley viðurkenndi á fimmtudag
að hún væri ráðvillt og að sér fynd-
ist hún ein og yfirgefm.
„Liz hringdi í mig í morgun," sagði
Angela Hurley, móðir Elizabethar,
við fréttamenn. „Hún sagði mér að
hún hefði það fint.“
Breska þjóðin, og sjálfsagt fleiri,
bíður nú spennt eftir því hvort Eliza-
beth lætur Hugh sigla lönd og leiö
vegna uppátækisins í Hollywood.
Hann hefur verið ákærður fyrir ósið-
legt athæfi og að sögn lögreglunnar
vestra er þar átt við munnmök.
Bresk blöö hafa boöið allt að fimmt-
án milljónum króna fyrir frásögn
vændiskonunnar en hún hefur ekki
enn fundist.
Reuter
Franski tiskuhonnuðurinn Pierre Cardin, sem hér er annar frá hægri, og Jeff Knipper, aðstoðarmaður hans, ganga
yfir Rauða torgið í Moskvu í fylgd með starfsliði hins nýja Maxim’s veitingastaðar í borginni. Þetta er fyrsti Max-
im’s veitingastaðurinn sem tekur til starfa í Rússlandi. Símamynd Reuter
Súdansforseti undirbýr átök
Omar Hassan al-Bashir, forseti
Súdans, hvatti lcmdsmenn sína í gær
til þess að búa sig undir aö grípa til
vopna og verja landið gegn meintu
samsæri Egypta um að steypa stjóm
hans.
Rúmlega þijú hundruð þúsund
Súdanir hlýddu stríðskalli íslams,
Allahu akbar eða guð er mikill, og
flykktust á fjöldafund þar sem þess
var minnst aö sex ár eru liðin frá því
al-Bashir hrifsaði völdin og kom á fót
ríkisstjórn sem byggir á lögum ís-
lamstrúarinnar.
Bashir sagði að óvinir sínir væru
að safnast saman í Egyptalandi til
að hvetja Hosni Mubarak Egypta-
landsforseta til að ráðast inn í Súd-
an. Reynt var að ráða Mubarak af
dögum í Eþíópíu í vikunni og hefur
Súdönum verið kennt um.
Súdanir segja að liðsforingi hafi
fallið í átökum á landamærunum að
Egyptalandi en því neita Egyptar,
svo og því að þeir séu að safna liði
við umdeilt landamærasvæðið.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
14407,17
| tunna
Bensín 92 okt.
Bensín 98 okt
■ Ifill
1UUUU ' 9500 K\
/ja^?
8500 ^ J/
8000 9200,13
1 M A M J
Í2150 j2100 2050 2000 11950. [1900.! |1850: DMUQ I
Jr\/ I
jSZl I Ki 1 lr • I ■
mamjI
Efnahagslífið
veldur Juppé
áhyggjum
Hætterviöaö
bakslag komi í
viðleitiú Alains
Juppés, forsæt-
isráðhci’ra
Frakklands, til
að draga úr at-
vinnuleysi í
landinu þar
sem nýjar tölur sýna að iðnaðar-
framleiðslan í apríl dróst saman
um 1,8 prósent miðað við mánuð-
inn á undan,
Nýjar tölur um atvinnuleysi
sýndu að það minnkaði i maí,
áttunda mánuðinn í röð, en þó
ekki nándar nærri eins mikið og
Juppé hafði stefnt að. Atvinnu-
leysingjum fækkaöi um tæplega
fimmtán þúsund, eða 0,5 prósent.
Juppé treystir á vaxandi hag-
vöxt til að hann geti staðiö við
loforð sín um 700 þúsund ný störf
fyrir lok næsta árs.
Læknirinn sagði
konunni að hún
værikarlmaður
Tuttugu og sex ára gömul gift
kona í Hunan-héraði í Kína fékk
heldur óþægilegar fréttir frá
læknum sínum fyrir skömmu.
Þeir sögðu henni að hún væri í
rauninni karlmaöur með sjald-
gæfan ertðagalla.
Konan leitaöi til lækna við há-
skólasjúkrahús héraðsins þar
sem hún hafði ekki blæðingar og
gat ekki eignast barn. Viö rann-
sókn kom í ljós að krómósóma-
uppbygging konunnar sýndi að
hún væri karlmaður sem liti út
sem kona þar sem gen vantaði.
Að sögn kínversku fréttastof-
unnar Xinhua er þetta fyrsta til-
felli sinnar tegundar í landinu.
Konan/karlinn gengst nú undir
hormónameðferð meö kven-
hormóninu estrógen.
Gráðugurígóð-
anmatogvín
en horgar aldrei
Hálfsextugur maður á Jótlandi
á ekki upp á pallborðið hjá lög-
reglu og veitingahúsaeigendum i
Esbjerg þessa dagana. í þessari
viku einni hefur maðurinn verið
handtekinn þrisvar eftir að hafa
gætt sér á dýrindis mat og vínum
án þess að eiga eina einustu
krónu í vasanum.
„Vandinn er sá að hann elskar
góðan mat og vín en vill ekki
borga fyrir,“ segir Henning Niels-
en lögreglufulltrúi i Esbjerg.
Myndum af svikahrappinum
svanga hefur nú verið dreift á
veitingahús borgarinnar og því
gæti reynst erfitt fyrir kauða að
halda uppteknum hætti.
Treystið mér
eða tapið kosn-
ingunumella
John Maíor,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, greip til
hræðsluáróð-
ursins þegar
hann talaði til
329 þingmanna
íhaldsflokksins
sem hafa atkvæðisrétt í leiðtoga-
kjörinu á þriðjudag og sagði að
þeir yrðu að fylkja liði um hann
eða eiga á hættu að tapa næstu
þingkosningum sem verða eigi
síðar en i maí 1997.
Þetta var svar Majors við þeim
oröum Johns Redwoods, sem
keppir viö hann um leiötogasæt-
ið, aö þingmenn ættu að hrinda
af sér „kosningabölvuninni sem
hcföilagstáþá". Reuter, Ritzau