Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1995, Side 20
20
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ1995
Á toppnum
Lagið Hold Me, Thrill Me,
Kiss Me, Kill Me, úr kvikmynd-
inni Batman forever er í topp-
sæti íslenska listans aðra vik-
una í röð. Lagið, sem er flutt af
hinni þekktu hljómsveit, U2,
kom nýtt inn á listann í síðustu
viku. Myndin Batman forever,
með leikaranum Val Kilmer í
aðalhlutverki, var frumsýnd
vestanhafs fyrir nokkru og
segja þeir sem til þekkja að hún
eigi eftir að ná miklum vinsæld-
um.
Nýtt
Lagið Come out and Play, með
bandarísku hljómsveitinni Off-
spring, kemur nýtt inn á listann
þessa vikuna. Lagið, sem er af
nýjustu plötu þeirra félaga,
Smash, hefur notið þónokkurra
vinsælda upp á síðkastið. Hér er
á ferðinni hrátt Seattle-rokk.
Hástökk
Hástökk vikunnar er lagið
Wherever Would I Be með D.
Springfield/D. Hall, sem eru
mörgum kunnh-. Lagiö, sem er
búið að vera í þijár vikur á list-
anum, var í 28. sæti í síðustu viku
en er nú komið í 15. sæti. Það
verður spennandi að sjá hvort
þeir kumpánar komast ofar á list-
ann í næstu viku.
Sýnt og
selt
Talsmenn Courtne Love hafa
látið þær fréttir frá sér fara að eit-
urlyf hafi hvergi komið við sögu
á dögunum þegar söngkonan var
flutt meðvihmdarlaus á sjúkra-
hús. Þeir segja að Love hafi ein-
ungis tekið róandi lyf samkvæmt
læknisráði í sambandi við flug-
ferð frá New York til Seattle en
slíkt geri söngkonan iðulega til
að slaka á. Eitthvað höfðu töfl-
umar öflugri áhrif á heilsu Love
því við komuna tfl Seattle var
hún nánast út úr heiminum og
þurfti aðstoð tO að komast frá
boröi. Við komuna heim tO sín
var hún svo faOin í dá og því kah-
að á lögreglu og sjúkralið. Það
fylgdi sögunni að Love væri nú
við hestaheOsu.
Stríðinu
lokið
Pearl Jam er um þessar mund-
ir á tónleikaferðalagi um Banda-
ríkin en vegna deilna við miða-
sölufyrirtækiö Ticketmasters
hefur hljómsveitin neyðst tO aö
leika í minni tónleikaihöOum og
í smærri bæjum og borgum en
venja er tO. Talsmenn hljómsveit-
arinnar hafa nú látið hafa það eft-
ir sér að sveitin muni láta af stríð-
inu við Ticketmasters vegna þess
að liðsmenn hennar hafi ekki
áhuga á að fara í aðra eins tón-
leikaferð og þá sem nú stendur
yfir.
I BOÐI
ég&S
X BYLGJUNNI A SUNNUDAG KL. 14.00
ÞESSI VIKA SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM T«f>P 4®
1 1 2 ...2VIKANR.1 HOLDME.THRILLME, KISSME, KILLME U2
2 2 10 3 END OF THE CENTURY BLUR
(D 10 17 4 THIS AIN'T A LOVE SONG BON JOVI
(3) 16 26 5 BIG YELLOW TAXI AMY GRANT
5 4 6 3 CUANTO LA GUSTA PÁLL ÓSKAR OG MILUÓNAMÆRINGARNIR
6 6 7 4 NO MATTER WHAT YOU DO OLIVIA NEWTON-JOHN
Cz)- 17 24 3 MÉR VAR SVO KALT S.S.SÓL
8 3 1 9 ARMY OF ME BJÖRK
Ga) 20 22 4 SÖKNUÐUR SIXTIES
(iö) 19 - 2 THINK OF YOU WHIGFIELD
11 S 3 7 SOME MIGHT SAY OASIS
12 8 9 7 LIGHTNING CRASHES LIVE
25 - 2 RANGUR MAÐUR SÓLSTRANDARGÆJARNIR
14 7 4 6 LET HER CRY HOOTIE & THE BLOWFISH
© 28 30 3 ... HÁSTÖKK VIKUNNAR... WHEREVER WOULD I BE D. SPRINGFIELD/D. HALL
16 12 13 6 l'LL BE AROUND RAPPIN '- TAY
© 1 ... NÝTTÁ LISTA - COME OUT AND PLAY OFFSPRING
NÝTT
18 14 21 5 WATER RUNS DRY BOYS II MEN
- - 1 DECEIVED IN BLOOM
(20) 21 23 4 COME AND GET YOUR LOVE REAL MCCOY
21 13 14 4 BUDDY HOLLY WEEZER
M\ NÝTT 1 MORGUNN TWEETY
23 11 5 7 VOR í VAGLASKÓGI SIXTIES
24 9 2 7 BE MY LOVER LA BOUCHE
25 30 38 3 (YOU GOT ME) ALL SHOOK UP NELSON
26 15 15 5 LOVE CITY GROOVE LOVE CITY GROOVE
(22) rnn 1 KYRRLÁTT KVÖLD REGGAE ON ICE
ds) NÝTT 1 EVERYBODY'S GOT TO LEARN SOMETHING BABY D.
<5a) 30 NÝTT 1 1 DON'T BELIEVE CIGARETTE/HEIÐRÚN ANNA
6 SOMEONE TO LOVE JON B. 8< BABYFACE
rTii 1 1 CAN LOVE YOU LIKE THAT ALL 4 ONE
(32) 35 - 2 IF YOU ONLY LET ME IN MN8
© 39 - 2 HRAÐI VINIR VORS OG BLÓMA
<J4) 38 - 2 AULAKLÚBBURINN BUBBI OG RÚNAR
(35) 36 - 2 SCREAM M. JACKSON/J. JACKSON
(m) 37 NYTT 1 FANNFERGI HUGANS SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
37 > 1 EVERY GUY TAKE THAT
J J 1 ALL IT TAKES HANNE BOEL
1 l'LL BE THERE FOR YOU REMBRANTS
NÝTT 1 LET YOUR YEAH BE YEAH ALI CAMPBELL
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niöurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DV i hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt í vali "World Chart" sem framleiddur eraf Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
f989
'aasaEE7
GOTT ÚTVARPI
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
w
Afdrifarík
mistök
One Little Indian, hljómplötu-
útgáfa Bjarkar, gerði afdrifarík
mistök á dögunum þegar fyrsta
smáskífa nýrrar sveitar fyrirtæk-
isins, Skunk Anansie, var gefln
út. Vegna þessa komst lagið ekki
inn á topp 40 í Bretlandi, og þar
með í Top of the Pops, en það telst
afar mikilvægt fyrir alla kynn-
ingu. Mistökin fólust í því að
strikamerkið á plötuumslaginu
var fellt inn í skreytingu plötunn-
ar en fyrir vikið gekk erfiðlega að
láta afgreiðslukassa plötuversl-
ana lesa merkið. Allt hefði þetta
blessast ef afgreiðslufólk hefði
slegið númer plötunnar sam-
viskusamlega inn eins og gera á
í tilvikum sem þessum. A þessu
urðu hins vegar talsverðir mis-
brestir og þar með varð Skunk
Anansie af sæti á topp 40. Tals-
menn One Little Indian eru mið-
ur sín út af þessu því samkvæmt
þeirra útreikningum hefði platan
náð 28. til 30. sæti listans ef klúðr-
ið hefði ekki komið til.
Rory
Gallagher
fallinn frá
I
Gamla gítarhetjan, Rory
Gallagher, er fallin frá, aðeins 47
ára að aldri. Gallaghers hafði
kennt sér lifrarmeins fyrir
nokkru og var lagður inn á
sjúkrahús. Þar kom í ljós að (
lifrarígræðsla var nauðsynleg og
til að byrja með virtist hún hafa
heppnast vel. Síðan komu upp
erfiðleikar sem að lokum leiddu
til dauöa Gallaghers. Hann var
um langt árabil í allra fremstu
röð blúsgítarleikara heims og var
á sínum tíma boðin gítarleikara-
staða Micks Taylors í Rolling Sto-
nes, en hafnaði boðinu.
Plötu-
fréttir
Breska hljómsveitin Sleeper,
sem vakti athygli fyrir nokkru
með plötunni Smart, er þegar
komin í hljóðver að nýju til að
hljóðrita nýja plötu.. .Gene, sem
sló í gegn með plötunni Olympi-
an, er byrjuð undirbúning að í
næstu plötu sem stendur til að
komi út i byrjun næsta árs. Mart-
in Rossiter, söngvari Gene, hefur
látið i það skína í viðtölum að
hljómsveitin hyggist skipta um
stfl og hverfa frá gítarrokkinu
sem einkenndi plötuna Olympi-
an...Og um miðjan ágúst er vænt-
anleg ný plata frá Tears for Fears
en ekki er alveg ljóst hversu fjöl-
menn hljómsveitin er nú, en síð-
ast var hún orðin eiús manns
hljómsveit...
-SþS-