Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1995, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ1995
Fréttir
Flokksskrifstofa Alþýöubandalagsins notuð 1 baráttu fyrir Margréti?
Veiti ollum þjónustu
og svara þessu engu
- segirEinarKarlHaraldssonframkvæmdastjóri
„Eg get ekki neitað því að ég hef
heyrt að framkvæmdastjóri ílokks-
ins noti flokksskrifstofuna til að
hringja og vinna fyrir Margréti og
orðið var við það en ég vil ekki gera
neitt mál úr því á þessu stigi máls-
ins. Ég trúi því auðvitað ekki fyrr en
ég tek á að þeir sem eru starfandi á
vegum flokksins, hvort heldur á
ílokksskrifstofu eða annars staðar,
gæti ekki fyllsta hlutleysis og hlut-
lægis,“ segir Steingrímur J. Sigfús-
son, varaformaður Alþýðubanda-
lagsins og formannsframbjóðandi.
Verulegrar óánægju gætir meðal
stuðningsmanna Steingríms yfir því
að Einar Karl Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins,
beiti sér fyrir Margréti Frímanns-
dóttur en hún hefur boðið sig fram
til formanns gegn Steingrími í for-
mannskjöri á landsfundi flokksins í
október. Samkvæmt heimildum DV
hefur Einar Karl meðal annars notað
flokksskrifstofuna til að hringja og
afla Margréti stuðnings.
„Opinþprlega er ekki annað við
hæfi en að framkvæmdastjóri flokks-
ins standi fyrir utan alla flokka-
drætti en það þýðir ekki að maður
sé ekki búinn að gera upp hug sinn.
Ég svara því engu hvort ég sé að
vinna fyrir Margréti. Ég hef veitt öll-
um þeim þjónustu sem hafa leitað til
mín og það skiptir öllu máli en ég
held að það fari ekkert á milli mála
innan flokksins hvaða afstöðu ég
hef. Ég hef hins vegar hvergi kynnt
hana opinberlega og ætla mér ekki
að gera það,“ segir Einar Karl Har-
aldsson, framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins.
- Menn eru óhressir með að skrif-
stofa flokksins sé notuð í atkvæða-
veiðar fyrir annan frambjóðandann.
Er það ekki óeðlilegt?
„Nei, það er bara betra og þetta ber
bara svolítinn vott um að það sé að
færast hiti í málin. Þegar stjómmála-
umræða er komin á þaö stig að menn
hafa eftir það sem er sagt í tveggja
manna tali þá er hitastigið það sama
og í prestskosningum. Ef menn hafa
eitthvað að athuga við mín störf taka
þeir það væntanlega upp í stofnunum
flokksins," segir Einar Karl.
-GHS
Hinn sjötugi auðkýfingur Hasso Schutzendorf:
Ríkasti maður
Evrópu mættur
- ásamt 27 ára konu sinni, Astrid
„Við erum loksins komin og ætlum
aö dvelja á íslandi í viku hjá Sigga
vini okkar. Við erum komin til að
njóta loftslagsins héma því hitinn
heima á Mallorca var alveg að drepa
okkur. Ég var að vonast eftir að fá
rigningu og ég sé að það hefur geng-
ið eftir,“ sagði þýski auðkýfingurinn
og íslandsvinurinn Hasso
Schutzendorf við DV þegar hann
kom til landsins í gærkvöldi ásamt
konu sinni, Astrid.
Velkomin til Mallorca!
„Við erum mjög ánægð með að
hafa komist hingað. Þetta er í annað
sinn sem ég kem til íslands. Ég er
ekki í neinum sérstökum viðskipta-
erindum nema þá til að hvetja alla
íslendinga, sem eru á leiðinni til
Mallorca, til aö koma við hjá mér og
leigja bíl. Það veröur tekið vel á
móti þeim,“ sagði Hasso, brosandi
út að eyrum í rigningunni.
Hasso er sjötugur að aldri og
Astrid, sem er kólumbísk, er 27 ára.
Hún er tíunda eiginkona Hassos og
gengu þau í það heilaga fyrir tveimur
ámm í Las Vegas með tilheyrandi
viðhöfn. Brúðkaupið kostaði „að-
eins“ 4,5 milljarða króna og vora Sig-
urður Bjamason og kona hans á
meðal gesta. Þar kynnti Hasso Sigurð
sem manninn sem gerði hann ríkan.
Auk þess að eiga 5 þúsund bíla böa-
leigu rekur Hasso hótel og banka á
Spáni og í Þýskalandi. Eignir hans
era metnar á hundruö milljarða
króna. Sjálfur segist hann vera rík-
asti maður Evrópu.
Flugleiðir báðust afsökunar
Hasso og kona hans komust núna
til íslands í annarri tilraun. Eins og
kom fram í DV í síðustu viku var
Astrid stöðvuð á flugvellinum í
Amsterdam þegar þau ætluðu með
Flugleiðavél tö íslands. Kólumbískt
vegabréf hennar var ekki tekið gjlt
og krafist var vegabréfsáritunar.
Hasso sagði við DV að hann hefði
tekið því öla.
„Þetta var leiðinlegt og ég fór í fússi
á Rolls Royce bílnum alla leiö tö
Mallorca í einum áfanga. Það leystist
úr þessu sem betur fer. En núna er-
um við loksins komin," sagði Hasso.
-bjb
4
Herdis Huld Henrýsdóttir heldur hér á steininum sem braut rúðu og lenti
í andliti Áshildar Vilhjálmsdóttur með þeim afleiðingum að hún kjálkabrotn-
aði. DV-mynd Guðfinnur Finnbogason
Móöir átta ára stúlku sem kjálkabrotnaöi í skriðunni:
Heljarhræðsla og grátur
í bílnum er við biðum
Hrópin haf a bjargað mannslíf um
Stuttar fréttir
Rykogasml
Bændur á Suðurlandi kvarta
undan miklu ryki á Landvegi frá
Heklu þar sem mikö umferð vik-
urflutningaböa er. Fólkiö telur
rykið valda rykofnæmi og asma.
RÚV skýrði frá þessu.
Snjórskemmirtré
Snjóþunginn í vetur olli miklu
tjóni á trjám á Vestfjörðum og
dæmi eru um að tré hafi brotnaö
í spón skv. RÚV,
Hætt við yf irvinnubann
Blugumferðarstjórar eru hættir
viö áður boöaö yfirvinnubann.
Deöu þeirra og atvinnurekanda
hefur verið vísað til sáttasemjara.
Misrétti mótmælt
Forseta Alþingis hafa verið af-
hentar 5 þúsund undirskriftir þar
sem mótmælt er kynjamisrétti í
skaðabótamálum. Starfsfólk
Samvinnuferöa stóö fyrir undir-
skriftum skv. Stöð 2.
Mjölverksmiðju lokað
Fiskönjölsverksmiðjunni á Pat-
reksflrði verður lokað í ágúst tak-
ist Fiskveiðasjóði ekki aö selja.
Morgunblaðið greinir frá.
Vesturbyggð fær aðstoð
Fyrirtæki í Vesturbyggö fá 48
miöjónir vegna sameininga úr
Vestfjarðaaðstoöinni skv. Mbl.
-rt
Guðfirmur Finnbogason, DV, Hólmavik;
„Við vorum að koma norðan úr'
Árneshreppi eftir dagsdvöl. Það
höfðu faöið nokkrir steinhnullungar
á veginn, sem ekki var auðveldlega
komist framhjá, ég stöövaði því bö-
inn og fór að tína þá af veginum.
Fólk sem dvaldi í sumarhúsi í Kald-
baksvíkinni kom okkur til aðstoðar.
Ég var sestur inn í bíönn með fram-
rúðuna skrúfaða niður, átti aðeins
eftir að þakka fólkinu fyrir aðstoðina
þegar ég heyri börnin hrópa aö þaö
væri að koma grjótskriða niður hlíð-
ina. Ég geröi mér grein fyrir því á
stundinni hve mikil hætta væri á
ferðum og það gæti verið spuming
um líf eða dauða að komast í burtu
sem fyrst frá þessum stað,“ segir
Henry G. Níelsen, sjómaður á
Hólmavík, sem lenti í hremmingum
í Kaldbakskleif ásamt fjölskyldu
sinni. „Okkur leiö ööum • alveg
hræðöega þessi fáu augnabök sem
það tók að keyra út úr þessu en um
annað var ekki aö ræða til þess að
eiga von um að sleppa lifandi frá
þessu. Stelpan okkar slasaðist öla
þegar steinn kom þjótandi inn um
gluggann. Það var ekki fyrr en við
komum út fyrir hættusvæðið sem
hægt var að sinna henni. Síðan ók ég
eins hratt og ég þorði, sagði við lög-
regluna sem ég mætti á leiðinni að
ég myndi ekki virða nein hraðatak-
mörk undir þessum kringumstæð-
um,“ segir Henrý. Flugvél sótti telp-
una tö Hólmavíkm’ en hún reyndist
kjáikabrotin auk fleiri áverka.
„Við vorum aö koma norðan úr
Árneshreppi og komum að skriðu á
veginum við Kaldbakshorn. Við tínd-
um steina af veginum og fólk kom
að sem hjálpaði okkur. Þegar við
keyrðum af stað heyrðum við fólkið
öskra. Við gáfum aöt í botn. Ég leit
upp í hlíðina og sá bara reyk, ég vissi
að það væri að koma skriða niður.
Það greip um sig heljarhræðsla í
bílnum. Þama er þverhnípi niður í
sjó og ef við hefðum farið þar niður
væram við ekki á meöal manna. Það
var grátur og mikö hræðsla í bönum.
Ég bara beið og hugsaði: „Skyldi
maður komast af eða ekki?“ Við vor-
um að sleppa í gegn þegar fyrsti
steinninn úr skriðunni kom inn um
gluggann á afturhurðinni og kjálka-
braut dóttur mína,“ sagði Guöveig
Hrólfsdóttir frá Hólmavík sem lenti
ásamt manni sínum, Henry Nielsen,
og þremur börnum í skriðunni við
Kaldbakshorn norðan Hólmavíkur
undir kvöld á sunnudag.
DV hitti Guðveigu og Áshildi, 8 ára
dóttur hennar, á Borgarspítalanum
í gær. Stúlkan varð fyrir 800 gramma
steini úr fialUnu sem skaust af miklu
afli inn um rúðu í bílnum og lenti á
kjálka hennar. Stúlkan var sofandi
og að jafna sig eftir erfiðan sólar-
hring - slysið, hennar fyrsta flug á
ævinni, sem var sjúkraflug að vest-
an, svæfingu og erfiöa aðgerð þar
sem kjálkabeinið, sem hafði nánast
farið í sundur hægra megin, var lag-
að.
„Stúlkan, sem sat við gluggann,
fékk glerbrotin yfir sig en Áshödur
fékk steininn í sig,“ sagði Guðveig.
„Hún hafði hallað sér fram í miðju-
sæflnu aftur í til að sjá upp í hlíðina.
Það urðu bara öskur og læti inni í
bílnum. Við gripum handklæði fyrir
stúlkuna og branuðum án þess að
hugsa um annað en að komast í
burtu. Fyrst heyrðist ekkert í stúlk-
unni, það var eins og hún hefði dofn-
að. Þegar við ókum að Hólmavík
reyndum við að halda henni vakandi
og töluðum við hana alla leiðina. Hún
reyndist vera með stóran skurð alveg
inn að beini þegar farið var að skoða
hana,“ sagði Guðveig.
Þær mæðgur fóru suður í sjúkra-
flugvél og fór stúlkan í aðgerð á
sunnudagskvöld. -Ótt
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já
"‘i 3 904-1600
Eru sköllóttir karlmenn
kynþokkafyllri en aðrir?
Alllr I 8taff»n» fctfflnu m«ti t6nv»l»»[m» g«t» nýtt »ér þ»tt* frjónmtB.