Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1995, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995
Neytendur
Verð á grænmeti og
ávöxtum hærra en í júní
- framboð og eftirspum ræður, segir Máni Ásgeirsson hjá Sölufélaginu
Aö undanförnu hefur verið nokkur
umræöa um hækkandi verð á græn-
meti og ávöxtum hér á landi. í verö-
könnun, sem DV geröi í gær, kemur
fram að verö á þessum vörutegund-
um hefur hækkað nokkuð frá því
sem var um miöjan júní en viömæ-
lendur DV segja enga eina ástæðu
vera fyrir hækkuninni og einnig aö
veröiö geti hríðlækkað hvenær sem
er.
Eins og sjá má á meðfylgjandi töfl-
um hafa þó ekki allar tegundir hækk-
aö, sumar lækka og aðrar standa
nánast í stað.
Verðkönnunin
Könnunin var gerö meðal sjö
stórra verslana á höfuöborgarsvæð-
inu. Þær eru: Bónus, 10-11, Nóatún,
Fjarðarkaup, Garðakaup, Kjöt og
fiskur og Hagkaup. Tekið var niður
verð á flestum tegundum grænmetis
og ávaxta. Ekki var tekið tillit til
gæöa í könnuninni en hvergi var að
sjá áberandi slæmar vörur.
Til samanburðar var haft verð frá
því um miðjan júnímánuð sem tekið
var þá í sömu verslunum.
Ellefu ávaxta- og grænmetisteg-
undir voru valdar úr og meðaltal af
verði verslananna fundið út, bæði
fyrir daginn í gær og júnímánuð.
Valdar voru algengar ávaxta- og
grænmetistegundir, burtséð frá því
hvort þær hefðu hækkað eða lækkað
að undanfömu. Ef svo vildi til að
verslanirnar væru með tilboð á þeim
tíma sem könnunin var tekin voru
þau látin gilda, þrátt fyrir að verðiö
heföi verið mun hærra daginn áður.
Samanburðurinn
Eins og sjá má á súluritunum hér
á síðunni var nokkur munur á verði
ávaxtanna og grænmetisins frá því í
júní og fram í ágúst. Meðalverðmun-
ur á ávöxtum milli mánaðanna var
Þessi kona ætlar að fá sér blaðlauk en hann er meðal fárra tegunda sem hafa hækkað vegna GATT. Aðrar hækkanir
á grænmeti og ávöxtum, sem orðið hafa að undanförnu, má meðal annars rekja til rysjóttrar tíðar. DV-mynd GVA
31 kr. eða tæp 23% og á grænmeti 67
kr. eða rúm 30%.
Einstakar tegundir ráöa þó mjög
miklu. í grænmetinu vegur til dæmis
mjög þungt aö gulrætur hækka úr
92 kr. í 463 kr. Odýrastar voru þær
í júní í Bónusi á 69 kr. og þær eru
enn ódýrastar þar en kosta nú 329
kr. Ástæðan er sú að um þessar
mundir eru íslenskar gulrætur aö
koma á markaðinn og við það hækk-
ar verðið.
Eins og áöur sagði voru aöeins
valdar ellefu vörutegundir og verðið
á þeim kannað. Vel getur verið að
meiri verðmunur liggi í öðrum teg-
undum.
200 þúsund milli mánaða
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Heilsustofnunar Náttúrulækn-
ingafélags íslands, er einn þeirra sem
telur ávexti og grænmeti hafa hækk-
að mikið síðustu mánuðina.
„Okkur hér hefur brugðið mjög í
brún við að sjá þá hækkun sem hefur
orðið á grænmeti að undanförnu.
Okkur hefur sýnst að hækkunin
nemi 40-60% á milli mánaða, það er
að segja frá júni og fram í júlí. Ein-
stakar vörutegundir hafa hækkað
mikið og eins er hækkunin almenn
á þessum markaði," sagði Árni.
Hann sagði jafnframt að hækkunin
væri mjög bagaleg fyrir Heilsustofn-
unina þar sem mikið væri keypt af
grænmeti.
„Mér sýnist að í grænmetinu leiði
þessi hækkun til 200 þúsund króna
hækkunar í grænmetiskaupum okk-
ar, bara á milli mánaða,“ sagði Árni
en hann bætti því við að vonandi
myndi verðið lækka aftur á næstu
vikum.
Er GATT ástæðan?
„Ég get ekki séð að Gatt hafi neitt
með þessa hækkun að gera, nema
auðvitað hvað varðar blaðlaukinn og
icebergsalatiö sem frægt er orðiö.
Verð á grænmeti og ávöxtum er mjög
fljótandi og stjórnast mest af fram-
boði og eftirspurn," sagði Máni Ás-
geirsson hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna.
Hann bætti við að þaö hefði verið
rysjótt tíð aö undanförnu og það
gæti orsakað verðhækkanir.
„Ef það kemur sól á næstunni og
framboðiö eykst er ég viss um að
grænmetið lækkar aftur. Það er
ósýnileg hönd sem stjórnar þessu,"
sagði Máni að lokum.
Bónus með langbesta verðið
Það vekur athygli í könnuninni að
Bónus er með lægsta veröið í öllum
tegundum grænmetis, bæði í júní og
nú í ágúst.
Jón Ásgeir Jóhannesson hjá Bón-
usi tók undir það með Mána að verð-
ið á þessum markaði réðist af fram-
boði og eftirspurn. Hann sagði jafn-
framt að neytendur væru farnir að
gera kröfu um betri vöru en áður.
„Viö höfum á undanförnum mán-
uðum verið að kaupa betri og betri
vöru erlendis frá. Neytendur eru
mjög vandlátir á grænmeti og ávexti
og er það gott. Menn sjá að það er
enginn sparnaöur í þvi að kaupa 10
ódýr epli ef helmingurinn er ónýtur
og hinn helmingurinn vondur. Krafa
kúnnans er þvi gæði. Við höfum
brugðist við því og það bitnar náttúr-
lega eitthvað á verðinu," sagði Jón
Ásgeir.
Dagsferöir til Grænlands:
Odýrara fyrir Islendinga
- erlendirferðamenn borga 12.000 krónum meira fyrir ferðina
Ferðaskrifstofan Nonni á Akur-
eyri hefur í sumar boðið upp á
nokkuð sérstakt tilboð á Græn-
landsferðum sínum. Þar er íslend-
ingum boðin 12 þúsund kr. afslátt-
ur af dagsferðum til Kulusuk á
Grænlandi en útlendingar borga
fullt gjald.
Ferðir þessar hafa kostað 29 þús-
und kr. og hafa erlendir ferðamenn
verið mun duglegri en íslendingar
við að nýta sér þær. Þess vegna
ákvað ferðaskrifstofan að bjóða ís-
lendingum þessar ferðir á 17 þús-
und kr. til þess að hvetja þá til
untanl'arar.
„Þessi hugmynd kom upp í byij-
un sumars vegna þess hve landinn
hefur nýtt sér þetta lítið. Það er
ekki hægt að segja annað en þessu
hafi verið vel tekið. íslendingar eru
að verða helmingurinn af þeim sem
fara í þessar ferðir," sagði Theód-
óra Torfadóttir hjá Ferðaskrifstof-
unni Nonna.
Theódóra sagði jafnframt að eng-
inn hefði kvartað yfir því að með
þessu væri verið að mismuna fólki
eftir þjóðerni, enda væri ekki verið
að hækka verðið fyrir erlenda
ferðamenn heldur lækka það fyrir.
íslendinga.
„Það má ekki skilja þetta sem ein-
hverja kynþáttamismunun. Til
dæmis fá allir útlendingar sem eru
búsettir hér á landi ferðirnar á 17
þúsund,“ sagði Theódóra. Aðspurð
sagði hún að hinir erlendu ferða-
menn hefðu ekki gert athugasemd-
ir við þennan verðmun, enda vissu
þeir ekkert af „íslenska11 verðinu.
Það er Flugfélag Norðurlands
sem flýgur með viðskiptavini
Ferðaskrifstofunnar Nonna en
þess má geta að hjá Flugleiðum
kosta dagsferöirnar til Kulusuk
29.200 kr„ sama af hvaða þjóðerni
menn eru.
Má þetta?
Hjá Samkeppnisstofnun, sem er
sá aðili sem hefur með mál af þessu
tagi að gera, fengust þær upplýs-
ingar hjá Guðmundi Sigurðssyni
að engar kvartanir hefðu borist
vegna þessa máls.
„Það hefur tíðkast í þessum
ferðamannabransa að erlendir
ferðamenn borga meira en íslend-
ingar fyrir sömu þjónustu. Ég veit
ekki hvort þaö er einhver ástæða
til þess að amast yfir því. Á meðan
enginn kvartar yfir þessu höfum
við ekki séð ástæðu til þess að gera
athugasemdir," sagði Guðmundur.