Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1995, Qupperneq 24
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995 •
32
Sviðsljós
Spielberg
heiðraður fyrir
skrásetningu
Rudolph Giuliani, borgarstjóri
í New York, heíur heiðrað kvik-
myndaleikstjórann Steven Spiel-
berg fyrir störf hans sem stofn-
andi minningarsjóðs um þá sem
komust lifandi frá helfor gyðinga.
Spielberg flakkar um heiminn og
ræðir við þetta fólk. Ætlunin er
að koma efninu í margmiðlunar-
form svo saga þess gleymist ekki,
kynslóöum framtíðarinnar til
viðvörunar.
Vitnisburöur hinna eftiriifandi
verður meöal annars varðveittur
í helfararsafhinu í New York sem
áætlað er að taki til starfa árið
1997.
„Þetta verk er minnisvarði mn
fortíöina og minnir okkur á að
við eigum stööugt að endurskoða
sarntíð okkar," segir Spielberg.
Þúsundir flöktandi kerta
við gröf rokkkóngsins
Aðdáendur rokkkóngsins Elvis
Presley eru ekki af baki dottnir. Þeir
nota hvert tækifæri sem gefst til að
koma saman og minnast átrúnaðar-
goðsins á viðeigandi hátt. Einni slikri
minningarhátíð er nýlokið í Memp-
his, heimaborg kóngsins.
Þeir skiptu tugþúsundum, Elvis-
aðdáendurnir, sem komu þar saman
í heila viku og gerðu sér sitthvað til
skemmtunar.
Elvis-vikunni lauk með hefðbund-
inni kertavöku við gröf söngvarans
mjaðmamjúka á bak við glæsihús
hans, Graceland. Hvorki fleiri né
færri en fimmtán þúsund aðdáendur
sóttu vökuna á þriðjudagskvöld,
sannarlega hátíðleg stund í nætur-
kyrrðinni í Tennessee.
Kona nokkur frá Michigan við
vötnin miklu í norðri skartaði húð-
flúrsmyndum af átrúnaðargoðinu á
framhandleggjum sínum og sagði sú
að hún mundi dá Elvis og dýrka um
aldur og æyi. Fleiri húðflúr eru
væntanleg. „Ég ætla að bæta viö hhð-
unum að Graceland," sagði konan.
„Manninum mínum finnst ekkert
heimskulegra en maður verður að
upplifa þetta. Þetta er meiri háttar
atburður," sagði önnur kona, Diane
Holbrook frá Dallas í Texas.
Það var fyrirtæki eitt sem kennt
er við rokkkónginn Elvis Presley
Aðdáendur rokkkóngsins Elvis Presleys minntust átrúnaðargoðsins í heila viku í Memphis þar sem hann er grafinn.
Simamynd Reuter
sem stóö fyrir kertavökunni en þegar árið 1982 átti hann ekki von á jafn- þá að fólk kæmi alls staðar að úr
forstjórinn efndi til fyrstu vokunnar miklum fjölda og raun bar vitni, hvað heiminum.
£7
/ 'í ,,
'jLi/
/ ■
t
:
L1\J U
s o,
Arlene Shovald:
Hönd að handan
Spenna - ástir - afbrýði - og jafnvel
yfirnáttúrulegir atburðir!
Bók handa þeim sem kunna að meta
rómantík, spennu og vísbendingu um
líf að loknu þessu.
j
Aðeins 895 kr. á næsta sölustað og ennþa
minna í áskrift.
IIJMKBÆKUR
sími 563-2700
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRADA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Lát Jerrys Garcia í síðustu viku hefur hleypt miklu lífi i viðskipti með hluti
sem tengjast Grateful Dead. Simamynd Reuter
Dauði Jerrys Garcia hvetur viðskiptin:
Plötusala tók
kippuppávið
Gitarleikarinn Jerry Garcia var
varla orðinn kaldur eftir andlátið í
síðustu viku þegar áhrif dauða hans
á viðskiptin urðu ljós. Sala á plötum
með hljómsveitinni Grateful Dead
stórjókst, sérstaklega gömlu plötun-
um, og mikið líf færðist í sölu á afls
kyns hlutum tengdum hljómsveit-
inni eins og gömlum plakötum, eigin-
handaráritunum, miðum á tónieika,
myndmn og fleiru.
Plötur með Gratefful Dead og Jerry
Garcia seljast nú eins og heitar
lummur í Bandaríkjunum og víðar.
Sérfróðir menn um Gratefui Dead
segja að reyndar hafi plötur hljóm-
sveitarinnar lítið söfnunargildi þar
sem tónlistin sé svo útbreidd. Ekki
sé nóg með að hljómsveitin hafi gefið
út tugi platna á 30 ára ferli heldur
séu til ótal „bootleg" upptökur með
hljómsveitinni, upptökur sem gerðar
eru af tónleikagestum. Meðan flestar
hljómsveitir og útgáfnfyrirtæki hafa
megnustu skömm á upptökustarf-
semi tónleikagesta var reyndin allt
önnur hjá Gratefuí Dead. Þar á bæ
var séð til þess að upptökuáhuga-
menn fengju sérstakt svæði fyrir sig
nálægt hljóðstjórnarpúltinu og í ein-
staka tilfellum gátu áhugasamir
tengt upptökugræjur sínar beint við
púltið.
En plaköt með eiginhandaráritun
sveitarmeðlima eru nú gufls ígildi og
eiga enn eftir að hækka í verði. Sama
má segja um aðra hluti sem tengjast
hljómsveitinni. Þetta þykir ekki síst
merkflegt þar sem Grateful Dead var
lengi mjög afhuga aflri markaðssetn-
ingu á fylgihlutum og slíku. En
reyndar var komið skipulagi á þau
mál hin síðari ár og gróðinn stjam-
fræðflegur.
Útgáfufyrirtækið Arista hefur tek-
ið að sér dreifingu á mörgum plötum
Grateful Dead og með haustinu er
væntanleg plata frá tónleikum í
Þýskalandi 1972 sem nefnist „Hund-
red Year Hail“.