Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Side 5
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 5 Fréttir Bretar vilja skrásetja vörumerkið „IcelancT 1 Bandaríkjunum: „Þekkt af sum- um sem ísland“ - segir meðal annars 1 skráningarumsókn fyrirtækisins Vöruhúsakeðja, sem starfað hef- ur undir heitinu Iceland Frozen Foods í Bretlandi í nokkur ár, hefur sótt um að fá vörumerkið skráð einnig í Bandaríkjunum. Skrifstofa Útflutningsráðs í Bandaríkjunum hefur komið mótmælum á fram- færi viö bandarísk yfirvöld þar sem þetta vörumerki er talið skemma markaðssetningu íslenskra fyrir- tækja erlendis, t.d fyrir Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna, íslenskar sjávarafurðir og íslenskt marfang. Þau munu reyndar vera hikandi að leggja fram formleg mótmæli þar sem vöruhúsakeðjan kaupir talsvert magn af íslenskum fiski í Bretlandi til frekari úrvinnslu. Vöruhúsakeðjan selur frosnar vör- ur úr sjávar- og landbúnaðarafurð- um og hefur gert síðan 1970. Fyrir- tækið er einnig komið í sölu á tölvuhugbúnaði. í umsókn um skráningu vöru- merkisins í Bandaríkjunum, sem DV hefur undir höndum, skrifa forráðamenn Iceland Frozen Foods nokkurra lína rökstuðning fyrir því af hverju þeir vilja nota vöru- merkið „Iceland". Taka þeir skýrt fram að þeir eigi ekki við landið ísland, sem á enskri tungu nefnist Iceland. í umsókninni stendur m.a.: „Landsvæðið, þekkt af sumum sem ísland, er afskekkt eyja í Norð- ur-Atlantshafinu milli Grænlands og Skandinavíu. Það er ekkert sem bendir til þess að viðskiptavinir okkar haldi að vörur okkar og þjónusta eigi uppruna sinn í ein- hverju landfræðilegu svæði, þ.e. íslandi. Það er erfitt að ímynda sér að landfræðilega svæðið, þekkt sem ísland, geti komið upp í huga viðskiptavina okkar þar sem landið er afskekkt og ólíkleg staðsetning vegna notkunar á vörumerki, ekki síst ef varan tengist mat og tölvu- hugbúnaði." Vöruhúsakeðjan segist nota „Ice- land“ til að leggja áherslu á að fyr- irtækið selji frosnar vörur. í um- sókninni segir enn fremur: „Vörumerkið ísland hefur fleiri merkingar, eins og „íslandsmosi", sem er neysluhæf flétta og inni- heldur sterkju líkt og notuð er í lyfjaframleiöslu." -bjb Umsókn Iceland Frozen Foods í Bandaríkjunum: Trúi því ekki að þetta gerist - segir sölumaður hjá íslensku marfangi hf. „Eg vil bara ekki trúa því aö fyr- irtækið fái þetta vörumerki skráð. Það myndi að sjálfsögðu skemma fyrir markaðssetningu okkar og annarra íslenskra útflytjenda í Bandaríkjunum," sagði Björn Ól- afsson, sölumaður hjá Islensku marfangi hf„ sem flutt hefur út sjávarafurðir til Bandaríkjanna til margra ára undir vörumerkinu Icelandic Waters. Björn sagði það ótrúlegt ef fyrir- tæki með breskan uppruna gæti fengið vörumerkið Iceland skráð, þá heföu bandarísk lög eitthvað breyst. íslenskar sjávarafurðir hf. starf- rækja verksmiðju í Bandaríkjun- um og selja þar fisk undir vöru- merkinu Icelandic Seafood. Sæmundur Guðmundsson, að- stoðarforstjóri íslenskra sjávaraf- urða, hafði ekki heyrt af þessari umsókn Iceland Frozen Foods, IFF, þegar DV hafði samband við hann. Hann sagði að fyrirtækið myndi vissulega fylgjast með afgreiðslu umsóknarinnar en vildi að öðru leyti ekki tjá sig frekar fyrr en niö- urstaða væri komin. Hann sagði að íslenskar sjávarafurðir ættu einhver viðskipti við IFF í Bret- landi en þau væru óveruleg. Ekki náðist í gær í forráðamenn Sölumiöstöðvar hraðfrystihúsanna sem nota vörumerkið Icelandic Freezing Plants á erlendum mörk- uðum þótt verksmiðjan í Banda- ríkjunum nefnist Coldwater Seafo- od. -bjb II Lögreglan i Hólmavilt fékk til- að um var að ræða hitamæli sem kynningu um torkcnnilcgan hlut í kafbátar nota til þess aö mæla sjáv- fjöru skammt frá Hólmavík ,sem arhita. Ekki sýndist mönnum mæl- talið var að gæti verið sprengjá. irinn geta komið að notum og því Þegar betur var að gáð kom í ljós 1 varhonumhentí ruslið. -sv Fimmfaldur 1. vinningur! 1. vinningur stefnir í 20 milljónir króna Nú cr að nota tíEkifíenð! - Leikur einn! Fáðu þér miða fyrir kl. 20.20 á laugardaginn. Nú hefur verið opnað fyrir 800-númer til Bandaríkjanna Talsímaþjónusta Pósts og síma er sjálfvirk um allt land og að auki til 202 annarra landa. Hún er mest notaða þjónusta okkar. Nú hðfum við gert samkomulag um að opnað verði fyrir hringingar héðan í græn númer í Bandaríkjunum sem kallast 800-númer. Mörg bandarísk fyrirtæki auglýsa einungis 800-númer sem ekki hefur verið hægt að hringja í frá íslandi fyrr en nú. Við vekjum athygli á því að þessi símtöl eru ekki gjaldfrjáls, þau greiðast að fullu af þeim sem hringir. PÓSTUR OG SÍMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.