Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
Afmæli Dagblaðsins
V^)Siglufjöröur
Húsavík
,0Vopnafjöröur
ÍZSmTPfZT.
o/M Akureyri
Sauðárkrókur
Blönduós
Eskifjöröurit
o/S Snæfellsbær
kranes
Hveragerði
aeyjar
Selfoss
Dagblaðið 2
20 afmælishátíðir
n foí’i) nm li1i.iilH
Afmælishátíðir verða á eftirtöldum stöðum, talið i stafrófsröð: Akranesi, Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Eskifirði, Grindavík, Húsavik, Hveragerði, Höfn Hornafirði, ísafirði, Kefla-
vík, Ólafsvik, Patreksfirði, Sauðárkróki, Selfossi, Siglufirði, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Vopnafirði. Að sjálfsögðu má búast við því að afmælisbarninu skjóti upp annars staðar á leiðinni
til þess að fagna afmælinu.
Afmæiishátíð lesenda
Guðbjörg Ragnarsdóttir byrjaði snemma að lesa Dagblaðið. Mynd RaSi.
í september og oRtóber mun DV
ferðast um landið til að fagna 20 ára
afmæli Dagblaðsins með lesendum
sínum til sjávar og sveita. Afmælið
sjálft er í dag, 8. september, en skipu-
lagðar afmælishátíðir verða á 20
stöðum og auk þess verður komið
við á tugum annarra staða á leiðinni.
Hátíðir verða á eftirtöldum stöð-
um, talið í stafrófsröð: Akranesi fyrir
íbúa svæðisins að Borgarbyggð, á
Blönduósi fyrir bæjarbúa og íbúa
nærliggjandi sveitarfélaga, í Borgar-
nesi fyrir íbúa Borgarbyggðar og
nágrennis, á Egilsstöðum fyrir Hér-
aðsbúa og íbúa á nærliggjandi fjörð-
um, á Eskifirði fyrir bæjarbúa og
íbúa næstu fjarða, í Grindavík fyrir
íbúa svæðisins að Reykjanesbæ, á
Húsavík fyrir bæjarbúa og íbúa nær-
liggjandi sveitarfélaga, í Hveragerði
fyrir bæjarbúa og íbúa í nálægum
bæjum að Selfossi, á Höfn Homafiröi
fyrir íbúa suðurfjarða Austurlands,
á ísafirði fyrir íbúa norðurfjarða
Vestfjarða, í Keflavík fyrir íbúa
Reykjanesbæjar, í Ólafsvík fyrir íbúa
Snæfellsbæjar og nágrennis, á Pat-
reksfirði fyrir íbúa Vesturbyggöar
og nágrennis, á Sauðárkróki fyrir
bæjarbúa og íbúa nærliggjandi
sveita, á Selfossi fyrir íbúa í Ames-
og Rangárvallasýslum, á Siglufirði
fyrir bæjarbúa og nágranna, fStykk-
ishólmi fyrir íbúa staðarins og ná-
grennis, í Vestmannaeyjum fyrir alia
Eyjapeyja og á Vopnafirði fyrir bæj-
arbúa og íbúa á norðurhluta Austur-
lands. Að sjálfsögðu má búast við því
aö afmælisbaminu skjóti upp á öðr-
um stöðum á leiðinni til þess að fagna
afmælinu.
Lesendur DV eiga að geta fundið
einhvern staö í sínu nágrenni til þess
að mæta til hátíðar og hitta Tígra og
fleiri. Þeir sem em á faraldsfæti á
þessum tíma munu fá nákvæmar
dagsetningar með góðum fyrirvara
til þess að missa ekki af neinu.
Góð tengsl
við lesendur
Ef frá er talin afmælishátíð í Perl-
unni á morgun ætlar DV, ólíkt öðrum
afmælisbörnum, að sækja sína gesti
heim. Allt frá fyrstu útkomu DB fyr-
ir 20 ámm og fram til dagsins í dag
hefur DB og síðar DV verið í nánum
tengslum við lesendur sína. Þau
tengsl hafa ekki síst verið lesendum
á landsbyggðinni að þakka sem hafa
verið ötulir stuðningsmenn blaðsins
frá upphafi.
Fyrri ferðir
Áður hefur DB og síöar DV sótt
landsbyggðarfólk heim og átt með
því skemmtilegar stundir. Má til
dæmis nefna Sjórall DB á ámnum
1978, 1979 og 1980 sem vakti mikla
athygli um allt land.
Lesendur blaðsins settu líka heims-
met með DB og Skáksambandinu
árið 1977 þegar tékkneski stórmeist-
arinn Hort tefldi við rúmlega 400
skákáhugamenn.
Öflugir fréttaritarar DV hafa séð
til þess að efni af landsbyggðinni
hefur ætíð sett mark sitt á blaðið,
hvort sem er í formi beinskeyttra
frétta eða viðtölum við hinn almenna
íbúa.
Gjafir og skemmtiatriði
Annað sem gerir blaðiö ólíkt öðr-
um afmælisbömum er að það færir
gestum sínum gjafir og sér um
skemmtiatriðin. Lukkudýr Krakka-
klúbbsins, Tígri, ætlar að vera meö
í fór og skemmta krökkunum. Eins
og í öllum góðum afmælum verður
boðið upp á veitingar. Krakkar fá
stundatöflur, blöðrur og Krakka-
klúbbsbækur.
Þarfir lesenda
í fyrirrúmi
„Blaðið kom eins og sprengja á
götuna!" Þannig var sagt frá þeim
viðtökum sem Dagblaðiö fékk þenn-
an eftirminnilega dag fyrir tuttugu
árum. Frá upphafi var lögð áhersla
á ábyrgt og skemmtilegt, heiöarlegt
og fjörugt dagblaö sem sinnti fyrst
og síðast þörfum lesenda sinna. Með
þetta að leiðarljósi verður lands-
byggðin heimsótt næstu vikur til að
gefa sem flestum landsmönnum kost
á að taka þátt í afmælishátíðinni.