Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
Afmæli Dagblaðsins______________________________________________________ i>v
Það eiga fleiri af mæli í dag en DB
Fyrir tuttugu árura fæddust á ur næstu viku, þess vegna leitaöi myndir sera teknar voru á árs af- skurður af bjartari hliö þjóðfélags- vinnuveg þjóðarinnar, sjávarút-
íslandi níu einstaklingar, fimm DV til fimm einstaklinganna til að mæli þeirra og af þeirri sem valin ins. Þar er að finna háskólastúd- veg.
stúlkur og fjórir drengir. Það eiga ganga úr skugga um hvernig þeim var afmælisbarn DB fyrir 20 árum enta, móður, sem jafnframt er DV óskar þeim öllum til ham-
því fleiri afmæli í dag en Dagblað- heíði vegnað og hvað þeir væru að eigutn við sængurmyndina. menntaskólanemi og íþróttakona, ingiu með daginn og öllum öðrum
ið. Á tuttugu árum getur margt gera þessa dagana. Til tveggja afgreiðslumær sem ferðast hefur sem eiga afmæli þennan merka
gerst, eins og rifjað hefur verið upp þeirra haföi DB leitað áður og eftir Með sarrni má segja að þau afmæl- um heiminn og eitt afmælisbarn- dag.
í DV undanfarna daga og gert verð- leit í myndasafni fundum við isbörn sem DV leítaði til séu þver- anna vinnur við undirstöðuat-
Ásdís Björg Ingvadóttir er jafnaldri þeirra sem talað hefur verið við á þess-
ari síðu. Hún er hér fyrir utan heimili sitt og unnusta síns á Selfossi ásamt
syni sínum, fjögurra mánaða, Gísla Þór Axelssyni. Ásdis, sem hefur stund-
að knattspyrnu og handbolta frá blautu barnsbeini, hyggst Ijúka námi af
íþróttabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands næstu jól og fara síðan í íþrótta-
kennaraskólann á Laugarvatni. DV-mynd Kristján
Gunnlaugur Guðmundsson spair 1 stjömumar:
Umbætur, réttlæti,
miðlun og skemmtun
- er hluti af upplagi blaðsins
Stjömuspeki er fræðigrein þar sem
leitast hefur verið við að fmna sam-
ræmi á milli stööu reikistjarnanna
og persónuleika manna. DV leitaði
til Gunnlaugs Guðmundssonar,
stjömuspekings hjá Stjömuspeki-
stöðinni, og hann kannaði samræmið
á milli reikistjarnanna og DB miðað
við „fæðingartíma" blaðsins.
Það var á þriðja degi eftir nýtt
tungl, sóhn var í meyjarmerkinu,
tunglið í voginni og sporðdrekinn að
rísa yfir sjóndeildarhringinn, þegar
DB var tilbúið úr pressunni. Pappír-
inn var volgur, sléttur og tandur-
hreinn og prentlyktin fyllti vit starfs-
manna blaðsins þegar þeir fengu
fyrstu eintökin í hendurnar. Þetta
var mánudaginn 8. september 1975
og klukkan var rétt fyrir tvö eftir
hádegi.
Böm sem fæðast í meyjarmerkinu
og fyrirtæki sem eru stofnuð á þeim
tíma hafa nokkur atriði að leiðar-
ljósi. Hlutverk þeirra er að þjóna og
lagfæra. Meyjan gagnrýnir og bendir
á það sem miður fer, í þeim tilgangi
að bæta ástandið. Úrbætur og um-
bætur eru leiðarljósið.
Þegar tunglið er í vogarmerkinu
beinist athyglin töluvert að réttlætis-
og menningarmálum. Voginni er
annt um samvinnu, jafnvægi, fegurð
og réttlæti og hún er kurteis.
Sporðdrekinn, sem var að rísa yfir
sjóndeildarhringinn á þeirri örlaga-
ríku stundu þegar fyrsta eintak DB
leit dagsins ljós, vísar til þeirrar nátt-
úru blaðsins að rannsaka, kryfja mál
til mergjar og horfa ekki síður á
skuggahliðar lífsins en á þær björtu.
Auk þessara þátta höfðu ljón og
tvíburi áhrif á upphafsdag DB, sem
þýðir að miðlun er boðorð dagsins
(að sjálfsögöu, þegar fjölmiðill er
annars vegar) og einnig að skemmti-
gildið fær að hafa sitt vægi. Ljónið
er skemmtikrafturinn og blaðið legg-
ur því áherslu á að fólki leiðist ekki
í návist þess. Barátta ér einnig eitt
af einkennum dagsins, sem þýðir aö
blaðið og það fólk sem fæddist á þess-
um degi, hefur keppnisskap.
Því er um að ræða blað sem hefur
það að leiðarljósi að gagnrýna, kryfja
mál til mergjar og benda á leiðir til
úrbóta. Blaðinu er annt um jöfnuð
og réttlæti. Það þorir að halda uppi
vörnum fyrir óvinsælar skoðanir og
berjast, ef svo vill verða. Um leið vill
það skemmta fólki og tekur sjálft sig
ekki of hátíðlega. Þetta er það sem
skráð var í stjörnurnar þann 8. sept-
ember 1975 og mótar upplag blaðs-
ins. Auðvitað gengur upp og niður
frá ári til árs, eins og oft vill verða,
en upplagið er eigi aö síður þetta:
Umbætur, réttlæti, hreinsun, miðlun
og skemmtun.
íris Magnúsdóttir fyllir annan áratuginn í dag. Hún starfar í matvöruverslun
Garðakaups en er að íhuga að fara í nám um áramót. Hún er búsett í
Bessastaðahreppi en hefur verið á faraldsfæti seinustu ár. Hún er nýlega
komin heim frá Bandarikjun þar sem hún var au pair og einnig bjó hún i
eitt ár í Danmörku en þar lauk hún prófi í snyrtifræði. DV-mynd Sveinn
Þessi tvítugí brosmildi piltur heitir Ólafur Helgi Þorgrímsson. Ólafur er tvi-
tugur nýnemi i sáifræði við Háskóla íslands. Líkt og Hildur Björg lauk hann
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík í vor og er hinn ánægðasti
með lífið. Helstu áhugamál Ólafs, sem er búsettur í Fossvoginum, eru júdó,
dans og þolfimi, svo eitthvað sé nefnt. Ólafur hyggst líta inn í Perluna á
morgun á afmælishátíð DB og fá sé tertubita ásamt unnustu sinni.
DV-mynd Sveinn
Gunnar Ingi Gunnarsson er öllu
hressari í dag en fyrir 19 árum þeg-
ar Ijósmyndari DB smellti mynd af
honum. Þá hafði hann verið með
flensu en þó bráði af honum rétt
fyrir myndatökuna. í dag býr Gunnar
Ingi á Sauðárkróki og vinnur við
saltfiskverkun - lífið er jú salttiskur.
Eins og sjá má hefur Gunnar verið
dyggur lesandi DV og forvera þess
frá blautu barnsbeini.
DV-mynd Þórhallur
Seldi DB á Hlemmi:
Forvitni
ein-
kenndi
móttök-
urnar
-fyrstadagtnn:
„Ég man að það var forvitni sem
einkenndi móttökur manna fyrsta
útgáfudag DB og þetta var mjög
spennandi. Það var mikiö stress í
gangi hjá okkur sem seldum blaðið
að komast sem fyrst út á götu og það
kom til pústra. Maður vildi selja sem
mest og fá sem mestan pening. Ég
valdi mér stað á Hlemmi og flestir
vildu fá að fletta blaðinu áður en
þeir keyptu það,“ segir Jóhannes
Bachmann, listamaður, leikari,
dansari og skemmtana- og markaðs-
stjóri veitingastaðarins Ómmu Lú,
um móttökur DB fyrsta söludaginn
fyrir 20 árum.
Jóhannes, sem var 12 ára á þeim
tíma sem hér um ræðir, vár eitt af
mörgum blaðsölubörnum DB fyrsta
daginn. Stuttu eftir stofnun blaösins
gerðist hann annar tveggja fyrstu