Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
Neytendur
Windows 95 frá Microsoft:
Bylting eða eftirlíking?
Canon mate myndavél.
24. ágúst var hafin sala á stýrikerf-
inu Windows 95 frá Microsoft um
allan heim. Mikiö hefur verið rætt
um þetta kerfi í tölvublöðum og
vakna þær spurningar hjá mörgum
hvort þaö sé eins merkilegt og sölu-
herferðin gefur til kynna. Hefur ver-
ið bent á að stýrikerfi sem eru svipuð
að mörgu leyti hafi verið á markaðn-
um árum saman. T.d. System 7 fyrir
Macintosh og OS/2 Warp fyrir PC
tölvur. Þó virðast flestir vera sam-
mála um aö Windows 95 sé mikil
framfór frá Dos og Windows 3.1 þar
sem Dos var stýrikerfið og Windows
viðbót við það. Eigendur PC tölva
gátu náttúrulega ekki nýtt sér Syst-
em 7, sem er fyrir Macintosh tölvur,
og lítið af forritum hefur verið skrif-
að fyrir OS/2 þannig að það var lítið
notað.
Þægilegra en gamla Windows
í Windows 95 er möguleiki á að
nefna skrár lengri nöfnum. Nú er
hámarkið 250 stafir í stað alls ellefu
áður. Auðveldara á að vera að vinna
í mörgum forritum á sama tíma og
hjálpar þar „Taskbar" sem einfaldar
að skipta milh forrita. Windows 95
frýs síður en Windows 3.1 og hægt
er að keyra forrit sem ekki var hægt
að keyra í Windows 3.1 í nýja stýri-
kerfinu. Músin nýtist betur og getur
frekar flýtt fyrir vinnslu. Umfram
allt er stýrikerfið einfalt og ekki þarf
mikla vinnu til að læra á það.
Engin minnisvandræði
Tölvueigendur kannast margir við
vandræði tengd því að minninu í Dos
hefur verið skipt niður. Forrit nota
stundum mismunandi hluta minnis-
ins og því þarf að stilla það sérstak-
lega fyrir mismunandi forrit og ræsa
tölvuna að nýju áður en fariö er inn
í þau. Slík vandamál verða ekki
lengur til staðar með tilkomu
Windows 95. Þar er minnið ein heild.
Ekki þarf heldur að ræsa tölvuna
upp á nýtt þegar forrit frýs. Hægt er
að fara út úr forritinu og allt annað
virkar.
Varað hefur verið við því aö
Windows 95 hafi ekki enn verið próf-
að nóg og því ættu menn að bíða með
að kaupa það þangað til reynsla væri
komin á það. Því er svarað meö því
að benda á að ekkert forrit hafi verið
prófað eins mikiö áður en það kom
á markað. Gífurlegur fjöldi fólks hef-
ur tekið þátt í að prófa það úti um
allan heim og hafa villur verið lag-
færðar.
Sagt hefur verið einnig að svokall-
að „Plug & Play“ virki ekki eins vel
og í Macintosh tölvum og er yfirleitt
tekið undir það. Plug & Play gengur
út á að geta stungið jaðartækjum í
samband við tölvuna án þess að
þurfa að stilla hugbúnaðinn sérstak-
lega.
Tekur lengri tíma að ræsa
Mikið minni þarf þegar Windows
95 er keyrt, 8 megabyte, og örgjörv-
inri má ekki vera aflminni en 486.
Hins vegar hafa söluaðilar Windows
95 sagt að í raun starfi Windows 95
engu verr en Windows 3.1 í sömu
Sagt um
Windows
-í erlendum blööum og samtölum
viö starfsmenn tölvufyrirtækja -
Jákvætt
- Er þægilegra en DOS og Windows
3.1 og auðveldara í notkun.
- Lengri skráamöfn.
- Mús nýtist betur.
- Taskbar auðveldar að skipta milli
forrita. Auðveldara er að vinna í
mörgum forritum í einu.
- Explorer er betri en File Manager í
Windows 3.1
- Frýs síður en Windows 3.1.
- Forrit sem aðeins var hægt að keyra
í DOS áður er nú hægt að keyra í
Windows.
- Ef tölvan frýs þarf ekki að ræsa að
nýju.
- Hefur verið prófað mikið.
- Er ekki á íslensku (deildar
meiningar em um hvort það sé kostur
eða ókostur).
Windows,.
Neikvætt
- Windows 95 er engin bylting. Apple
og IBM hafa komið með svipuð kerfi
áður.
- Þarf mikið minni og pláss á hörðum
diski. 486 örgjörvi er lágmark.
- Langan tíma tekur að ræsa kerfið.
- Sum forrit ganga ekki eins hratt og
áður.
- Ekki eins stöðugt og önnur stýrikerfi.
Frýs fremur.
- „Plug & Play“ ekki eins þróað og í
Macintosh-tölvum. Gárungar kalla það
„Plug & Pray“. (Plug & Play gengur út
á að geta sett jaðartæki í samband við
tölvuna án þess að þurfa að stilla
hugbúnaðinn sérstaklega.)
- Er ekki á íslensku.
DVl
tölvu með jafn mikið minni. Lengri
tíma tekur einnig að ræsa Windows
95 en Dos og Windows 3.1. Það mun
stafa af því að Windows 95 býr yfir
meiri möguleikum og því er meira
að setja í gang. Ef þeir möguleikar
væru aftengdir myndi gangsetningin
taka jafn langan tíma.
Er ekki á íslensku
Stýrikerfið System 7 fyrir Macin-
tosh er á íslensku en Windows 95
ekki. Ekki stendur til að íslenska
það. Sumir líta á það sem kost og
aðrir sem galla. Stuðningsmenn þýð-
ingarinnar hafa málræktarsjónarm-
ið aö leiðarljósi en hinir sem andvíg-
ir eru segja að þýtt stýrikerfi starfi
ekki eins og óbreytt stýrikerfi, t.d. í
netkerfum. Einnig vilja sumir ein-
ungis nota eitt tungumál í tölvum.
ensku, því ómögulegt sé að íslenski
öll forrit. (
Ingvar Sigurðsson, matreiðslu-
meistari á Argentínu, gefur lesend-
um hér tvær uppskriftir í víðbót
að laxaréttum. Fyrir viku var það
snöggsteiktur lax en nú er þaö laxa-
forréttur með sitrónu og graslauk
og einnig kryddblanda til aö setja
á graflax.
I kryddblönduna er þetta notað;
8 tsk. salt
4 tsk. sykur
5 tsk. gi’ænt dill
4tsk. dillfræ
1 tsk. fennikel
1/2 tsk. pipar
Blandið öllu saman. Snyrtið og
beinhreinsiö laxaflakið. Stráið
smávegis af kryddblöndunni á fat
og leggiö laxaflakiö ofan á meö roð-
hliðina niöur. Stráið kryddinu yfir
laxinn þannig að það þeki fiskinn
vel. Athugið að setja meira á laxinn
þar sem hann er þykkri. Látið
standa í kæli í einn sólarhring.
Þessi uppskrift dugir á u.þ.b. eitt
meöalstórt flak.
Forrétturinn er úr laxaþynnum
með sítrónu og graslauk og er fyrir
fióra.
Uppskriftin htur svona út:
300-400 g beinhreinsað laxaflak
1 stór sítróna
4 msk. extra ólífuolía
Smávegis salt
Nýmuhnn svartur pipar
2 msk. klipptur graslaukur
Skerið laxinn í örþunnar sneiðar
og raðið á diska þannig að hann
þeki vel. Stráið ögn af salti yfir og
kreistið sítronusafann yfir. Hellið
ólífuolíunni yfir og dreifið úr með
fingurgómunum þannig að sítr-
ónusafinn og olían dreifist jafnt
yfir fiskinn. Myljið ögn af svörtum
pipar yfir, stráið graslauknum á
og látið standa í fimmtán minútur
áður en borið er fram. Berið fram
með brauði.
„Canon mate“
ekki Canon
Nokkuð hefur borið á því að
fólk sem farið hefur í frí til Kan-
aríeyja hefur keypt myndavélar
sem seldar eru undir merkinu
„Canon mate“ en eiga ekkert
skyld við Canon myndavélar. Er
Canon þó skrifað með eins stöfum
í vörumerkinu. Þegar shkar vélar
hafa bilað hefur fólk leitað sér
þjónustu hjá Hans Petersen sem
selur Canon myndavélar en ekki
fengið og orðið mjög óánægt. Rétt
er að vara neytendur við því að
kaupa vaming sem seldur er
undir fólsku vörumerki erlendis.
Þessar vélar eru einkum seldar á
Kanaríeyjum og eyjum í Miðjarð-
arhafinu.
Verslun opin 9
til 23.30
í Alfheimum 4 er matvöruversl-
unin nú breytt og stærri en einn-
ig er hún sölutum. Hún er opin
alla daga frá því klukkan 9 á
morgnana til klukkan 23.30 á
kvöldin sem verður að teljast
óvenjulegt. Er þar boðið upp á
nokkur tilboð. M.a. er boðið upp
á Homeblest kex á 79 kr., Batchel-
ors pastarétti í sósu á 89 kr., fljót-
andi Lux handsápu á 115 kr„ Lux
handsápu á 29 kr„ Amerísk rauð
epli á 130 kr. kg, nýjar franskar
perur á 90 kr. kg og tvo lítra af
Coca Cola á 169 kr.
Bónustilboð
Margar vörar eru nú á tilboði
í Bónusi sem gildir til 20. sept-
ember. Þar á meðal eru Samsölu-
beyglur á 97 kr„ Axa muslí á 129
kr„ Rjómaskyr í stórri dós á 119
kr„ þrjú Kit-Kat á 99 kr„ sex Hi-C
á 87 kr„ eitt kg Nesquick á 387
kr„ Wesson matarolía á 199 kr„
Bónus saltkjöt á 359 kr. kg, Frosin
ýsuflök á 245 kr„ 500 g af Opal
rúsínum á 187 kr„ Ora fiskibohur
á 159 kr„ fjórir fiskborgarar á 99
kr„ Kjötbúðingur á 259 kr„
Bamableiur á 399 kr„ tíu Osram
perur á 397 kr„ ræstingafata á 99
kr, Hob-Nob súkkulaðikex á 89
kr„ Spar álegg á 499 kr„ örbylgju-
popp á 67 kr„ eitt kg Kellogg’s
kornflögur á 279 kr, blandaðir
ávextir á 77 kr„ örbylgjufranskar
á 179 kr. og sex lítrar af Bónus
eplasafa á 354 kr.
Einnig er selt Colgate tannkrem
á 149 kr„ 12 Nicky salemisrúUur
á 197 kr„ tíu forsniðnir disklingar
á 279 kr„ þrjár myndbandsspólur
og hulstur á 1197 kr„ skrifborðs-
stóU á á 1867 kr„ gufustraujárn á
1997 kr„ samlokugrill á 1997 kr„
leikskólagaUar á 1997 kr„
rúllukragabohr á 587 kr. og Alba
hljómtækjasamstæða með út-
varpi, segulbandstæki, tveimur
hátölurum og geislaspilara á
13.900 kr.
Munið nýt