Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Page 11
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
11
Afmæli Dagblaðsins
>
I
>
>
i
i
i
i
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, um fjölmiðlun síðustu áratugina:
Nú hef ur f ólk áhrif
í gegnum fjölmiðla
- útlitsbreytingar á D V á morgun kynntar
Jónas segir viðtökur almennings við blaðinu hafa komið þægilega á óvart.
Hér má sjá Óla blaðasala í Austurstræti 8. september 1975 selja blaðið
undir lögregluvernd. DB-mynd Bj.
„Það var ljóst að velgengni Dag-
blaðsins var mjög mikil í upphafi
þannig að greinilegt var að blaðið
stóð undir þeim væntingum sem fólk
gerði til þess dagana áður en það fór
af stað. í kjölfarið jókst útbreiðsla
blaðsins og síðar líka DV á heildina
litið þótt það haíi orðið hlé og smá-
lægðir eftir efnahagsástandi hverju
sinni. Samkvæmt þessum mæli-
kvarða hefur blaðið staðið nægilega
undir þeim væntingum sem fólk
gerði til þess í upphafi," segir Jónas
Kristjánsson, fyrrum ritstjóri DB og
núverandi ritstjóri DV, í tilefni þess
að í dag eru 20 ár hðin frá því að
Dagblaðið kom fyrst út.
Vantaði óháð fréttablað
Áhersla var lögð á að ritstjórnar-
stefna DB væri frjáls og óháð. Þetta
var nýmæh í fjölmiölun. Öllum
fjölmiðlum hafði fram til þessa verið
stjórnað af stjórnmálaflokkum,
ýmist einum sér eða öllum saman.
Segir Jónas enda engan grundvöll
hafa verið fyrir fleiri „pólitískum"
blöðum en ekkert blað í alþjóðlegum
fréttaþlaðastíl hafi verið að finna hér
á landi.
„Við fórum því þá leið að vera meö
fréttir sem voru sagðar utan viö
valdakerfið og lögðum í leiöinni
mikla áherslu á hagsmunamál al-
mennings. Þetta var t.d. gert í formi
þjónustu sem kemur fram í dagbók
blaðsins og neytendasíðu."
Jónas segir að form blaðsins og
efnistök hafi verið byggð á hyggju-
viti manna. Engar rannsóknir hafi
farið fram um hver væri markhópur
blaðsins eða neitt þvíumlíkt. Sömu
leiðir höfðu verið farnar erlendis og
þetta form þótti þvi líklegt tíl að ná
árangri. Enda hefðu viðtökurnar
verið slíkar að þær hefðu komið
mönnum þægilega á óvart. í seinni
tíð hafi hann á vissum tímamótum
orðið var við viðlíka stuðning og fyr-
ir 20 ámm, t.d. þegar útvarpsstöð
Frjálsrar íjölmiðlunar var lokaö með
lögregluvaldi í verkfalh árið 1984.
Breytingar til bóta
Jónas telur að þegar htið sé á fjöl-
miðla í heild sinni hafi þeir breyst
mjög til bóta á síðustu 20 árum. Þeir
séu óhlutdrægari en áður og mun
hvassari að mörgu leyti. Hins vegar
hafi hægt á breytingunum hin seinni
ár og tímarnir í dag einkennist af
nokkurri stöðnun. Það eina sem hafi
gerst sé að miölunum hafi fjölgað í
ljósvakageiranum og enn virðist þró-
unin stefna í þá átt.
„Það sem mér finnst hins vegar
áberandi núna er hve þjóðfélagið er
opnara en það var fyrir 20 árum. Það
er miklu auðveldara að fá upplýs-
ingar. Þeir sem vita úti í bæ eru
miklu fúsari aö láta þessa vitneskju
í té en þeir voru. Ef við lítum til
skemmri tíma þá fylgjast fjölmiðlar
betur með vegna þess að fólkið úti í
bæ telur eðlilegt að lesendur fái vitn-
eskju um hlutina.
Þegar ég byrjaði í þessu fagi fyrir
30 árum var þjóðfélagið nánast lok-
að. Það var ekki ætlast til þess að
fjölmiðlar væru aö skrifa um neitt
annað en það sem „pakkið" mætti
heyra. Það liðu dagar og vikur án
þess að maður vissi hvað var að ger-
ast hjá ríkisstjóminni. Aht sem hét
póhtík lagðist niður á sumrin. Nú eru
stöðugar fréttir af gangi mála úti í
bæ þannig aö þeir sem stjórna í þjóð-
félaginu vita að það er verið að horfa
yfir öxhna á þeim frá degi til dags,
jafnvel frá klukkustund til klukku-
stundar. Fólk hefur þannig áhrif.
Áður afgreiddu stjómmála- og emb-
ættismenn mál í einum pakka og
sögðu: „héma hafið þið það“. Það var
engu hægt að breyta. Þessi breyting
á ekki bara við um stjórnmál heldur
alla málaflokka."
Margmiðlun fyrir prentmiðla
Jónas telur margmiðlun, sem hann
segir stórt orð um marga hluti, á inn-
leið. Hún hafi í fór með sér byltingu
sem ekki sé enn hægt að kortleggja.
Þó sé ljóst að staða dagblaða sé sterk
í þeirri þróun ef höfð sé hliðsjón af
tölvutækninni. Hann bendir til dæm-
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV.
DV-mynd
is á útgáfu DV og Morgunblaðsins á
Internetinu. Hún sé byggð fyrir
prentað mál í dag en þar á eftir komi
myndir, hljóð og hreyfimyndir.
Útlitsbreytingar á DV
„Bandvíddin er svo takmörkuð að
ferhð út frá hugsun dagblaðafjöl-
miðlunar er auðveldara inni á Inter-
neti heldur en út frá sjónarmiðum
útvarps og sjónvarps."
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að hagræðingu í rekstri DV,
jafnframt því sem þjónustan verður
bætt.
„Forsenda þessa er að breyta
tækniháttum hér. Sú vinna hefur
staðið yfir undanfarið og menn fara
að sjá þess merki á næstu vikum.
Greinilegust verður breytingin á út-
hti blaðsins - það verður léttara,
nútímalegra og aðgengilegra vegna
þeirra möguleika sem þessi nýja
tækni býður upp á og um leið mun
innihaldið breytast. Þetta verður
ekki stökkbreyting heldur mun þetta
gerast á einhverjum tíma. Helgar-
blaðið verður fyrst líflegra og það sjá
menn á morgun. Grundvallarlög-
málið verður eftir sem áður hið
sama: Ef maður skrifar stuttar máls-
greinar þá skrifar maður skýrt; ef
texti er skýr verður hann spennandi
og þar með er málið leyst.“ -PP
Jóhannes segist hafa keypt sér fjög-
ur hross og reiðtygi fyrir launin sem
hann fékk fyrir vinnu sína hjá DB.
DV-mynd Sveinn
sendla blaðsiríS og starfaði sem slik-
ur í nokkur ár og einnig við út-
keyrslu á blaðinu. Hann segist hafa
selt Vísi í nokkur ár áður en DB kom
út en ákveðið að byrja að selja DB
því að dreifmgarstjóri Vísis var einn
þeirra sem tóku þátt í stofnun DB.
Eins og fyrr segir starfar Jóhannes
sem markaös- og skemmtanastjóri
Ömmu Lú í dag og segist Jóhannes
sjálfur enn vera í sölumennskunni
20 árum eftir að hann hóf hana.
„Ég held ég hafi starfað í þrjú eða
fjögur ár á DB. í seinni tíð hef ég
skemmt starfsfólki DV, bömum þess
og barnabömum á skemmtunum á
vegum blaðsins, auk þess að rokka
og fleira."
Jóhannes segist hafa lagt kaup sitt
reglulega th hhðar þau ár sem hann
starfaði hjá DB. Allir þessir peningar
fóra í hestamennsku, segir hann,
enda átti hann fjögur hross og reið-
tygi aðeins 16 ára gamall. „Þeim pen-
ingum sem ég vann mér inn hjá DB
var þannig vel varið." -pp
Hildur Björg Helgadóttir, afmælisbarn DB, sem blaðið hefur fylgst með frá
upphafi, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykjavík i vor og ætlar
að spreyta sig i læknisfræði i Háskólanum í haust. Hér má sjá myndir af
henni nýfæddri og ársgamalli og ein mynd er af afmælisbarninu i dag.
DV-mynd GVA
Nýstúdent á leið
í læknisf ræði
Hildur Björg Helgadóttir, sem er
tvítug í dag, er hið eiginlega afmælis-
bam DB. Hún birtist á forsíðu DB
daginn sem blaðið kom út og á ársaf-
mæh þeirra hafði tognað úr hnát-
unni líkt og blaðinu og var mynd af
henni burður afmæhssíðu blaðsins.
Þriðja myndin birtist svo af Hhdi í
DB á fimm ára afmæh þeirra beggja.
Þá var Hhdur að byrja í ísaksskóla.
Það fer því vel á 20 ára afmæh Hhd-
ar, sem er Kópavogsmær, og blaðsins
að taka upp þráðinn á ný í dag en
Hhdur er enn á ný að byrja í nýjum
skóla.
„Ég lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík í vor og er að
byrja í læknisfræði í Háskólanum.
Ég var reyndar að koma frá Svíþjóð
þar sem ég átti heima á meðan pabbi
var í námi. Annars hefur allt gengið
vel í þessi 15 ár sem þið misstuð af
mér,“ segir Hildur Björg Helgadóttir.
Hún segist ahtaf hafa verið ákveðin
í að verða aldrei læknir þótt báðir
foreldrar hennar séu læknar. Á síð-
asta skólaári hennar í MR hafi hins
vegar áhugi hennar á erfðafræði
kviknað og einnig hafi hún haft
áhuga á líffræði. Síðan segist hún
hafa beitt úthokunaraðferðinni og
læknisfræði orðið ofan á. Þótt lífs-
hlaup Hhdar sé ekki langt enn sem
komið er þá er Hildur sannarlega
óskabam.
Hildur fylgist reglulega með DV í
dag og segist kunna ágætlega við
blaðið. í afmælisveislu blaðsins, sem
verður öllum opin í Perlunni, á
morgun mun hún skera fyrstu sneið-
ina af risaafmælistertu DB og bjóða
gestivelkomna. -pp