Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
Afmæli
Iilja Eiðsdóttir
Lilja Eiðsdóttir, fiskvinnslukona og
verkakona, Lækjargötu 6c, Siglu-
firði.erfertugídag.
Starfsferill
Lilja fæddist í Reykjavík og ólst
upp þar og í Kópvogi. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Siglufiarðar 1971.
Hún hóf búskap með manni sínum
á Siglufirði 1972 en jafnframt hús-
móðurstörfum hefur hún stundað
fiskvinnslu, verið kokkur og háseti
til sjós, stundaði afgreiðslu- og hót-
elstörfogfleira.
Þau hjónin fluttu til Reykjavíkur
1984 og áttu þar heima í tvö ár er
maður hennar stundaði nám við
Stýrimannskólann. Þá áttu þau
heima í Hnífsdal í eitt ár en fluttu
þá aftur til Siglufjaröar þar sem hún
býrnú.
Fjölskylda
Lilja giftist 16.9.1973 Kristjáni Sig-
urði Elíassyni, f. 7.8.1950, skip-
stjóra. Hann er sonur Elíasar
Bjarna ísfiörð sjómanns, og Aðal-
heiðar Sólveigar Þorsteinsdóttur
húsmóður.
Böm Lilju og Kristjáns Sigurðar
eru Gottskálk Hávarður Krisfiáns-
son, f. 22.7.1973, stúdent og nemi í
Noregi; Brynhildur Þöll Kristjáns-
dóttir, f. 17.6.1975, nemi við Fjöl-
brautaskólann á Sauðárkróki; Eið-
ur Ágúst Kristjánsson, f. 23.9.1982.
Bræður Lilju eru Lúðvík Eiðsson,
f. 8.10.1950, rannsóknarlögreglu-
maður í Reykjavík; Eiður Örn Eiðs-
son, f. 22.8.1951, hljómlistarmaður
í Grundarfirði; Jóhannes Eiðsson,
f. 15.11.1960, hárskeri i Reykjavík.
Foreldrar Lilju eru Eiður Jóhann-
esson, f. 14.3.1992, skipstjóri, búsett-
Lilja Eiðsdóttir.
ur í Kópavogi, og Ágústa Lúðvíks-
dóttir, f. 11.2.1933, húsmóðir.
Menning
Sjálfhverfa
Þessi þjóð talar ofboðslega mikið. Segist vera
söguþjóð og er það kannski. Sumir geta sagt frá
í það óendanlega og haldið athygli manns, aðrir
blaðra bara út í loftið einhverja vitleysu. Þetta
getur stundum verið gott hvað með öðra en aldr-
ei blaðrið eitt. Jafnvel ekki þó að það sé bætt
upp með þögnum. Tónlist hæfir því ekki held-
ur. Þetta reyndi ég á sjálfum mér í fyrradag
þegar ég kveikti á Sígildu FM 94,3 til þess að
hlusta á tónhst á milli fimm og sex síðdegis. Þar
var þá þessi hrottalegi bullurokkur að blaðra
um aht og ekkert.með upphöfnum orðum. Hann
eyðilagði hvort tveggja, orðin og tónlistina, og
gerði leiðindi.
Engu að síður var ég bæði kátur og glaður
þegar ég fór á sagnakvöld niður í Kaffileikhúsið
í Hlaðvarpanum. Það var vegna þess að ég
hlakkaði th og átti von á góðum orðum í sam-
hengi og með merkingu. Veit þó að sagnamenn
geta verið eins misjafnir og þeir eru margir.
Konurnar í Kaffileikhúsinu tóku upp á því í
fyrravetur að halda sögukvöld. Þær fengu mis-
frægt fólk th þess að segja sögur og í hehdina
litið tókst þetta ljómandi vel og ber að þakka
fyrir framtakið. Nú er bjargræðistíminn liðinn,
komið haust og rétt að fara að segja sögur.
Sögumenn virtust ekki af verri endanum:
Skáldin Úlfhildur Dagsdóttir og Einar Kárason
og kvikmyndagerðarmennirnir Friðrik Þór og
Þrándur Thoroddsen. Og fullt hús af fólki til
þess að hlusta.
Ég sat allan tímann. Það gerðu ekki allir. Þetta
var ekkert sérstaklega vel heppnað. Og skal nú
sögð sagan eins og hún var. En þetta fyrst; það
er sérstök kúnst að segja sögu, allt önnur en sú
að skrifa hana eða gera af henni bíómynd.
Hver sögumaður fékk að taka tvisvar til máls,
fyrir og eftir hlé, og reið Úlfhildur á vaðið. Hún
Atburðir
Úlfar Þormóösson
sagöi ekki nógu góðar sögur. Þær gætu þó orðið
að álitlegum smásögum eftir nokkum tíma;
varla þó til þess að segja, frekar th þess að lesa.
Næstu sögur sagði Friðrik Þór. Sjálfsagt getur
maðurinn búið th bíómyndir en hann kann ekki
að segja frá með orðum. Hann er vægast sagt
óáheyrilegur sagnamaður og talar vont mál. Svo
er hann allt of sjálfhverfur; tilraunir hans til
frásagnar voru um það hvað hann þekkti mikiö
af frægu fólki og hverja hann hafði hitt héreða
þar á frægðarferðum sínum um heiminn. Og
um kúk. Það má kannski bjóða nánustu vinum
sínum upp á kúka- og frægðarsögur af sjálfum
sér á áttunda glasi eða svo eftir að menn hafa
drukkið næmið úr eyrunum á sér og engu skipt-
ir hvað sagt er. Það er það, því miður.
Einar Kárason var síðastur sögumanna í röð-
inni. Hann kann málið. Hann kann líka frásagn-
arlistina og hefur komið sér upp persónulegum
tjáningarmáta. Og sagði ágætar sögur. Gallinn
á þeim var hins vegar sá, sem hann reyndar
skýrði frá sjálfur, að hann hafði ekki undirbúið
þær. Þess vegna misstu annars ágætar sögur
hans marks. Urðu of langdregnar. Og, ef th vill
vegna smits frá Friðriki, snerustu þær of mikið
um frægð og ágæti sögumanns og fyrirfólk sem
hann þekkir í heiminum. En vegna þess ágalla
við sögur að þær era ætlaðar áheyranda þá er
það ljóður á þeim ef þær snúast of mikið um
ágæti þess sem segir þær; árans hlustandanum
er nefnhega nokkuð sama um frægð sögumanns
hjá þéttingsköllum veisluheimsins.
Þrándur Thoroddsen sagði sínar sögur næst-
síðastur í báðum umferðum. Hann var ótvíræð-
ur sagnameistari kvöldsins. Og svo sem lengi
vitað að hann er sögumaður af guðs náð almátt-
ugs eins og margt hans fólk. Þrándur talar fal-
legt mál, óskrúfað, hefur góða sögumannsrödd
sem hann kann að beita og ef hann neyðist til
að sveigja að sjálfum sér í sögum sínum þá er
það jafnan með þeim hætti (í það minnsta í
gærkveldi) að hann gerir góðlátlegt grín að sinni
persónu. Fyrir vikiö upphefst hann.
Silungasöguna sem Þrándur sagði í fyrradag
hef ég heyrt hann segja nokkrum sinnum áður.
Hún er af þeirri tegund að hún batnar fremur
en hitt við endursögn,.eins og vín við geymslu
og ostur og hákarl og Þrándur Mka.
31
Látum bíla ekki
vera í gangi að óþörffu!
tkT^O
hnrffu!'
Utblástur bitnar verst
á börnunum
yu^FHROAR
Kr.
Ferðataska
B:60 H:40 D:20
-Það fæst í
BHdshöfða 20 -112 Reykjavlk - Slml 587 1410
8/9-14/9
Rjómalöguð sveppasúpa
með nýjum íslenskum
skógarsveppum
*
Heilsteiktur lambavöðvi
með grænum pipar
og Grand Marniersósu
*
Mokkaparfait
m/kiviávexti og rjómatoppi
Kr. 1.995
Hagstæð hádegisverðartilboð
alla virka daga
Smáauglýsingar
s Bilartilsölu
Toyota Corolla GTi, árg. ‘87, til sölu,
topplúga, álfelgur, ekinn 89.000 km.
Veró 570.000, 460.000 staðgreitt.
Upplýsingar í síma 552 4304.
Jeppar
Feröabíll. Th sölu mjög góóur Volvo
Lapplander, sænskur, model 1981,
ekinn 68 þús. Aflstýri, nýskoðaóur,
eldunaraóstaða, svefnaðstaða, ný
dekk. Aðeins 2 eigendur. Hagstætt
verð. Uppl. í síma 565 6077 e.kl, 19,
Frjáls spilamennska
og dixieland á RúRek
Andrew D’Angelo er altósaxófón- og bassaklarínettleikari. Hann kemur
víða við í tónlistinni en leikur meðal annars með Human Feel, ásamt
þeim Cris Speed og Jim Black sem hér léku nýlega á Jazzbarnum með
Hilmari Jenssyni gítarista. Þessir strákar, ásamt Skúla Sverrissyni bassa-
leikara, leika alhr á væntanlegri plötu Hilmars Jenssonar, Dofinn. Efni
af henni var uppistaða efnisskrárinnar á þriðjudagskvöldið í Þjóðleikhú-
skjallaranum, þar sem D’Angelo lék með Hilmari, Kjartani Valdimars-
syni á píanó og Matthíasi M.D. Hemstock á trommur. Tónhstin var mjög
frjáls en þó heyrðist undirrituðum yfirleitt vera eitthvert form eða beina-
grind sem þeir fylgdu og spannaði hún þá allt verkið þótt mest væri leik-
ið af fingrum fram. Það er yfirleitt nóg að gerast, á köflum jafnvel of
Djass
Ársæll Másson
mikið, en þeir sýndu mikla hugmyndaauðgi í spilamennskunni, sérstak-
lega D’Angelo og Hilmar sem er frábær gítaristi og tónlistarmaður. Kjart-
an átti tvö lög á efnisskránni og voru þau með heldur hefðbundnara sniði
þótt þau fengju sömu meðferð og hin. Það er sérstakt ánægjuefni aö geta
auðgað RúRek-hátíðina með djassi af þessu tagi og ekki er það verra að
það séu íslendingar sem bera þessa tónlist uppi. Það er nefnilega fleira
djass en bebop og frá vaxtarbroddinum í nútímadjassi brá rýnir sér á
Fógetann og heyrði þar í dixielandhljómsveit Björns R. Einarssonar. Þar
rööuðu sér á púltin mismunandi kynslóðir. Annars vegar vora það þeir
hvíthærðu, Björn sjálfur með básúnuna, Sæbjörn Jónsson á trompet, Jón
Sigurðsson á bassanum og Ámi Elfar við píanóið, og hins vegar yngri
mennimir, Gestur Pálsson á klarínett, Ólafur Jónsson á tenór og Pétur
Grétarsson á trommunum. Dixielandið átti greinilega vel við staðargesti
sem fylltu neðri hluta hæðarinnar, enda líf og fiör í tuskunum. Þegar
Björn og félagar höfðu lokið leik sínum tók við kvartett Gests Pálssonar
en hann skipuðu yngri mennirnir í dixielandhljómsveitinni ásamt Þórði
Högnasyni en nú var Gestur kominn á tenórinn. Þeir tóku svo nokkra
blúsa og beboplög og nutu saxarnir sín vel með aðeins bassa og trommur
á bak við sig.
Pú berð númerin á miðanum þínum saman
við númerin hér að neðan. Pegar sama
númerið kemur upp á
báðum stöðum hefur
þú hlotið vinning.
635763
158556
787333
990544
590361
DRAUMAFERÐ OG
FARAREYRIR
Með Farmiða ert þú kominn í spennandi
SUMARLEIK Happaþrennunnar og DV
Farmiðinn er tviskiptur og gefur tvo möguleika
á vinningi. Á vinstri helmingi eru veglegir
peningavinningar, sá hæsti 2,5 MILUÓNIR, og
á þeim hægri eru glæsilegir ferðavinningar og
„My First Sony" hljómtæki.
Fylgstu með I DV alla þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga.
Uppsöfnuð vinningaskrá birtist í DV
2. október 1995.
Ferða- og hljómtækjavinninga má vitja á
markaðsdeild DV Pverholti 14, sfmi 550 5000
gegn framvlsun vinningsmiða.
Farmiðarnir bíða þin á næsta útsölustað og
pú freistar gæfunnar fyrir aðeins 150 kr.
FLUGLEIOIRjm
SONY