Þjóðviljinn - 21.01.1973, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 21.01.1973, Blaðsíða 13
Sunnudagur 21. janúar 1973 'ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 13. Leiðbeiningar vegna skatta framtals fvrir árið 1973 INNGANGUR Áritun. Til innsendingar til skattyfir- valda skal nota framtalseyðu- blaðið, sem áritað er i skýrslu- vélum, sbr. þó 3. mgr. Notiö aukaeintak af eyðublaöi til að taka afrit af framtali yðar og geymið afritið með þeim upp- lýsingum og gögnum til stuðnings framtali, sem yður ber að geyma a.m.k. i 6 ár miðað við framtaln- ingu skattskrár. Framteljanda skal bent á að athuga, hvort áritanir gerðar af skýrsluvélum, nöfn fæðingardagar, -mán. og - ár, svo og heimilisfang, séu réttar, miðaö við 1. des. sl. Ef svo er ekki, skal leiðrétta það á fram- talinu. Einnig skal bæta við upp- lýsingum um breytingar á fjöl- skyldu i desember, t.d. giftur (gift), hverri (hverjum), hvaða dag, nafn barns og fæöingardagur eða óskið (ur) dóttir (sonur) fædd (ur) hvaða dag. Ef áritanir eru ekki réttar, miðað við 1. des., þá skal fram- teljanda bent á að senda einnig leiðréttingu til Hagstofu íslands (þjóðskrá), Reykjavik. Athygli er vakin á orðsendingu frá Hagstofu Islands, sem fylgir með árituðum framtalseyðu- blöðum i ár, varðandi skráningu rikisborgararéttar. Ef áritað eyðublað er ekki fyrir hendi, þá skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins, sem ætlaðar eru fyrir nafn og nafnnúmer framteljanda, fæðingardag hans, -mán, og -ár, svo og heimilisfang hans 1. des sl. Einnig nafn eigin- konu, fæðingardag hennar, -mán. og -ár, svo og nöfn, fæðingardag - mán. og fæðingarár barna, sem fædd eru árið 1957 eða siðar. 2. Fengið meðlag og barna- lífeyrir Fengið meðlag með börnum yngri en 16 ára, þar með talinn barnalifeyrir frá almannatrygg- ingum, ef annað hvort foreldra er látið eða barn er ófeðrað, skal færa i þar til ætlaða eyðu neðan við nöfn barnanna. önnur meðlög, aðrar barnalif- eyrisgreiðslur frá almannatrygg- ingum og allar barnalifeyris- greiðslur frá öðrum (t.d. lifeyris- sjóðum), skal hins vegar telja undir tekjulið 13, „Aörar tekjur”. 3. Greidd meðlög Upplýsingar um greidd meðlög með börnum framteljanda skal færa i þar til ætlaðan reit fyrstu siðu framtalsins. Varðandi upp- lýsingar um aðra vandamenn á framfæri framteljanda, visast til leiðbeininga um ákvæði 52. gr. skattalaganna i liðnum „Aðrar upplýsingar”. 4. Slysatrygging við heimilisstörf Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr. 67/1971 um almannatryggingar geta þeir, sem heimilisstörf stunda, nú tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf með þvi að skrá i framtal sitt ósk um það, i reit, sem til þess er ætlaður, á fyrstu siðu framtals. Ársiðgjald verður nú kr. 780. Þeir, sem atvinnurekstur hafa meö höndum, geta tryggt sér og mökum sinum, sem með þeim starfa að atvinnurekstrinum, rétt til slysabóta, sbr. upplýsingar þar um á launamiðafylgiskjölum. Öski þessir aöilar að tryggja sér eöa mökum sinum jafnframt rétt til slysabóta við heimilisstörf, skulu þeir geta þess f umræddum reit, og mun þá slysatryggingin i heild reiknast 52 vikur á viku- gjaldi þess áhættuflokks, sem hærri er. 1. Eignir 31. des. 1972 1 Hrein eign samkv. með- fylgjandi efnahagsreikningi Framtölum þeirra, sem bók- haldsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald, skal fylgja efnahagsreikningur. I efnahagsreikningi, eða i gögnum með honum, skal vera sundurliðun á öllum eignum, sem máli skipta, svo sem innistæðum i bönkum og sparisjóðum, vixil- eignum og öðrum útistandandi kröfum (nafngreina þarf þó ekki kröfur undir kr. 10.000), birgðum (hráefni, rekstrarvörur, hálf- unnar eða fullunnar vörur), skuldabréfum, hlutabréfum og öðrum verðbréfum, stofnsjóös- innistæðum, fasteignum (nafn- greindar á þann veg, er greinir i 3. tl. — Fasteignir), vélum og tækjum og öðrum þeim eigum, sem eru i eigu framteljanda. Birgðir skulu tilgreindar á heildarmatsverði án sérstaks frá- dráttar skv. heimild i D-lið 22. gr. skattalaga, og skal siðan tilgreina frádráttinn sérstaklega. A sama hátt ber að sundurliða allar skuldir svo sem yfirdráttar- lán, samþykkta vixla og aðrar viðskiptaskuldir (nafngreina þarf þó ekki viðskiptaskuldir undir kr. 10.000) veðskuldir og önnur föst lán, svo og aðrar skuldir fram- teljanda. Einnig skal sýna á efnahags- reikningi, hvernig eigið fé fram- teljanda breytist á uppgjörs- árinu. Ef i efnahagsreikningi eru f jár- hæðir, sem ekki eru i samræmi við ákvæði skattalaga (svo sem tilfært verð fasteigna), skal úr þvi bætt með áritun á efnahagsreikn- inginn eða gögn með honum. Hreina skattskylda eign skal siðan færa á framtal undir 1. tölulið I eða Skuldir umfram eignir i C-lið bls 3. 2. Bústofn skv. land- búnaöarskýrslu Framtölum bænda og annarra, sem bústofn eiga, skulu fylgja landbúnaðarskýrslur, og færist bústofn skv. þeim undir þennan lið 3. Fasteignir Fasteignir skal telja til eignar á gildandi fasteignamatsverði eða áætluðu matsverði fullbyggðra mannvirkja, ef fasteignamat er ekki fyrir hendi. Gildandi fast- eignamatsverð, sem telja ber til eignar i framtali 1973, er fast- eignamat það, sem gildi tók 31. des. 1971 eða skv. siöar gerðum millimötum. Metnar fasteignir ber að til- greina i lesmálsdálk og kr. dálk á þann veg, er hér greinir: Tilgreina skal fyrst nafn eða heiti hverrarsérmetinnar fasteignar i lesmálsdálk, eins og það er til- greint i fasteignamatsskrá. Sé fasteign staðsett utan heimilis- sveitar framteljanda, ber einnig að tilgreina það sveitarfélag, þar sem fasteignin er. 1 fasteignamatsskrám er hverri fasteign skipt niður i ýmsa mats- hluta eða matsþætti. T.d. er jörð um i sveitum skipt i eftirtalda matsþætti: tún, land, hlunnindi, ibúðarhús, útihús o.s.frv. öðrum sérmetnum fasteignum er skipt i eftirtalda matshluta eða -þætti: land eöa lóð, hlunnindi, sér- byggðar (sérgreindar) byggingar eða önnur mannvirki. Hins vegar er sérbyggðum byggingum ekki skipt eftir afnotum t.d. milli ibúðar- og verzlunarhúsnæðis, séu þau i sömu sérbyggðri bygg- ingu. I lesmálsdálk ber að tilgreina einstaka matshluta eða -þætti fasteignarinnar, sem eru i eigu framteljanda, á sama hátt og með sama nafni og þeir eru til- greindir i fasteignamatsskrá. Sé matshluti eða -þáttur ekki að fullu eign framteljanda, ber að geta eignarhlutdeildar. Séu sér- byggðar byggingar notaðar að hluta til ibúðan og að hluta sem at vinnurekstrarhúsnæði, ber einnig að skipta matshluta eða -þætti eftir afnotum, og skal skiptingin gerð i hlutfalli við rúmmál. Sér- reglur, sbr. næstu málsgrein, gilda þó um skiptingu leigulanda og leigulóða til eignar milli land- eiganda og leigutaka. Fjárhæð fasteignamats hvers matshluta eða -þáttar, i samræmi við eignar- eða afnotahlutdeild, skal færð i kr.-dálk. Eigendur leigulanda og leigu- lóða skulu telja afgjaldskvaðar- verðmæti þeirra til eignar. Afgjaldskvaðarverðmætið er fundið með þvi að margfalda árs- leigu ársins 1972 með 15. Til- greina skal i lesmálsdálk nafn landsins eða lóðarinnar, ásamt ársleigu, en i kr. dálk skal til- greina ársleigu x 15. Leigjendur leigulanda og leigulóða skulu telja sér til eignar mismun fast- eignamatsverðs og afgjalds- kvaðarverðmætis leigulandsins eða -lóðarinnar. Tilgreina skal i lesmálsdálk nafn landsins eða lóðarinnar svo og fullt fasteigna matsverð lóðarinnar eða landsins eða þess hluta, sem hann hefur á leigu, og auðkenna sem „Ll.”, en i kr.-dálk skal tilgreina mismun fasteignamatsverðs og afgjalds kvaðarverðmætis ( sem er land- eða lóðareign ársins 1972 x 15). Mannvirki, sem enn eru i bygg- ingu eða ófullgerð, svo sem hús, ibúðir, bilskúrar og sumarbú- staðir, svo og viðbyggingar og breytingar eða endurbætur á þegar metnum byggingum eða öðrum mannvirkjum, skal tilfæra sérstaklega i lesmálsdálk undir nafni skv. byggingarsamþykkt eða byggingarleyfi og kostnaðar- verð þeirra i árslok 1972 i kr. dálk. Eigendum slikra eigna ber að útfylla húsbyggingarskýrslu, sem fylgja skal framtali. Hafi eigandi bygginga eða annarra mannvirkja, sem byggð eru á leigulandi eða leigulóð, ekki greitt leigu fyrir landið eða lóðina á árinu 1972, ber land- eða lóðar- eiganda að telja fasteignamats- verð lands eða lóðar aþ fullu til eignar. 4. Vélar, verkfæri og áhöld. Hér skal færa i kr.-dálk bókfært verð landbúnaðarvéla og -tækja skv. landbúnaðarskýrslu. Enn fremur skal hér færa eignaverð- mæti véla, verkfæra, tækja og áhalda, annarra en bifreiða, sem ekki eru notuð i atvinnurekstrar- skyni eða ekki ber að telja i efna- hagsreikningi, sbr. tölulið 1. Slikar eignir skulu teljast á kaup- eða kostnaðarverði i kr.-dálk. Þó skal heimilt að iækka þetta verð um fyrningu, nú að hámarki 8% á ári miðað við kaup- eða kostn aðarverð, svo og um áöur reikn- aða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaup- eða kostnaðarverði. Fyrning þessi kemur aðeins til lækkunar á eign, en ekki til frádráttar tekjum. 5. Bifreiö Hér skal færa i kr.-dálk kaup- verð bifreiða, sem ekki eru notaðar i atvinnurekstrarskyni eða ekki ber að telja i efnahags- reikningi, sbr. tölulið 1. Þó skal heimilt að lækka kaupverð um fyrningu, nú að hámarki 10% á ári, miðaða við kaupverð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaupveröi. Fyrning þessi kemur aðeins til lækkunar á eign, en ekki til frádráttar tekjum. 6 Peningar Hér á aðeins að færa peninga- eign um áramót, en ekki aðrar eignir, svo sem vixla og verðbréf. 7. Inneignir 1 A-lið framtals, bls. 3 ber að sundurliöa eins og þar segir til um a.m.k. allar framtalsskyldar og skattskyldar innstæöur i bönkum, sparisjóöum og innláns- deildum, svo og verðbréf, sem hlita framtalsskyldu og skatt- skyldu á sama hátt skv. sér- stökum lögum. Þessar tegundir eigna eru framtalsskyldar og skattskyldar til jafns við skuldir framteljanda. Til skulda i þessu sambandi teljast þó ekki eftir- stöðvar fasteignaverðlána, að hámarki kr. 600.000, ef þau voru tekin til 10 ára eða lengri tima og sannanlega notuð til að afla fast- eigna eða endurbæta þær. Siðan skal færa samtölu skattskyldra inneigna i eignarlið 7 Vixlar eða verðbréf, þótt geymt sé i bönkum eða sé þar til inn- heimtu, teljast ekki hér, heldur undir tölulið 9. 8. Hlutabréf Rita skal nafn hlutafélags i les- málsdálk og nafnverð hlutabréfa i kr.-dálk, ef hlutafé er óskert, en annars með hlutfallslegri upp- hæð, miðað við upphaflegt hluta- fé. 9. Verðbréf, útlán, stofn- sjóðsinnistæður o.fl. (Jtfylla skal B-lið framtals bls 3 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtölu i eignarlið 9. 10. Eignir barna Útfylla skal E-liö framtals bls 4 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtöluna, aö frádregnum skattfrjálsum innistæðum og verðbréfum, i eingarlið 10. Ef framteljandi óskar þess að eignir barns séu ekki taldar meö sinum eignum, skal ekki færa eignir barnsins i eignarlið 10, en geta þess sérstaklega i G-lið framtals bls 4, að það sé ósk framteljanda, að barnið verði sjálfstæður eignarskattsgreiðaandi. 11. Aðrar eignir. Hér skal færa þær eignir (aðrar en fatnað, bækur húsgögn og aðra persónulega muni), sem eigi er getið hér að framan. II. Skuldiralls Útfylla skal C-liö framtals bls 3 eins og eyðublaöiö segir til um og færa samtölu I þennan liö. III. Tekjurárið 1972 1 Hreinar tekjur af atvinnurekstri eöa sjálfstæðri starfsemi skv. mcðfylgjandi rekstrarreikningi eða landbúnaðarskýrslu. Framtölum þeirra, sem bók- haldsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/168 um bókhald, skal fylgja rekstrarreikningur. Þeir, sem landbúnað stunda, skulu nota þar til gerða landbúnaðarskýrslu. gögnum þessum skal fylgja fyrn ingaskýrsla, þar sem fram komi a.m.k. sömu upplýsingar og til er ætlazt, að komi fram á fyrninga- skýrslueyðublb’ðum, sem fást hjá skattyfirvöldum. Þegar notuð er heimild I D-lið 22. gr. skattalaga til sérstaks frá- dráttar frá matsverði birgða, skal breyting frádráttar milli ára tilgreind sem sérliður i rekstrar- reikningi, en ekki reiknuð inn i vörunotkun eða -eyðslu. Ef i rekstrarreikningi (þ.m.t. landbúnaðarskýrsla) eru fjár- hæðir, sem ekki eru i samræmi viö ákvæði skattalaga, svo sem þegar taldar eru til tekna fjár- hæðir, sem ekki eru frádráttar- bærar, skal úr þvi bætt með áritun á rekstrarreikning eða gögn með honum. Sama gildir, ef framteljandi vill nota heimild til frestunar á skattlagningu skatt- skylds hluta söluhagnaðar eigna, en sú fjárhæð skal enn fremur sérgreind á efnahagrreikningi. Gæta skal þess sérstaklega, að 1 rekstrarreikningi séu ekki aðrir liðir færðir en tilheyra þeim at- vinnurekstri, sem reikningurinn á að vera heimild um. Þannig skal t.d aðeins færa til gjalda vexti af þeim skuldum, sem til hefur verið stofnað vegna at- vinnurekstrarins, en ekki vexti af öðrum skuldum, og ekki skal færa til gjalda á rekstrarreikning önn- ur persónuleg gjöld, sem ekki til- heyra atvinnurekstrinum, þótt frádráttarbær séu, svo sem lif- eyris- og liftryggingariðgjöld, hefur skal færa þau i viökomandi liði i frádráttarhlið framtals. Sama gildir um tekjur, sem ekki eru tengdar atvinnurekstrinum, svo sem eit húsaleigu, vaxta- tekjur og arð. Þessar tekjur skal færa i viðkomandi liðiö i tekna- hlið framtals. Tekjur af útleigu eða reiknaða húsaleigu af ibúðarhúsnæði, svo og öll gjöld vegna hennar, svo sem fasteignagjöld, fyrningu, viðhald og vaxtagjöld, sem til greind eru á rekstrarreikn. ber á sama hátt að draga út úr rekstrarreikningi með áritun þar á eða gögn með honum. Tekjur af ibúðarhúsnæði og gjöld tengd þeim ber að telja til tekna i tölulið 2 eða 3 i teknahlið framtals og til gjalda i tölulið 1 og 2 i frádráttar- hlið framtals eftir þvi sem við á. Endurgjaldslaus afnot laun- þega (og fjölskyldu hans) af ibúðarhúsnæði i eigu vinnuveit- anda ber að telja til gjalda i rekstrarreikningi með 2% af gild- andi fasteignamati hlutaðeigandi ibúðarhúsnæöis og lóðar, en sömu fjárhæð ber framteljanda að telja til tekna i tölulið 3 i teknahlið (ramtals. Sama gildir, ef hluti ibúðarhúsnæðis I eigu atvinnu rekanda er notaður vegna at- vinnurekstrarins. Rekstrarkostnað bifreiða, sem skráðar eru sem fólksbifreiðar, ber að tilgreina fyrir hverja ein- staka bifreið. Láti vinnuveitandi starfsmönnum sinum i té endur- gjaldslaus afhot slikra bifreiða, ber að láta rekstrarreikningi fylgja upplýsingar þar um, sbr. skýringar um útfyllingu launa miða. Hafi framteljandi hins vegar sjálfur, fjölskylda hans eða aðrir aðilar afnot slikra bifreiða, beraðláta fylgja rekstrarreikn- ingi upplýsingar um heildaafnot bifreiðarinnar. Nú vinnur einstaklingur eða hjón, annað hvort eða bæði eða ófjárráða börn þessara aðila, við eiginn atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi, og ber þá að geta þess með athugasemd á rekstrarreikning eða gögn meö honum og tilgreina vinnuframlag framteljanda sjálfs, maka hans og ófjárráða barna hans. Laun reiknuð framteljanda sjálfum, maka hans eða ófjárráða börn- um, sem hafa verið færð til gjalda á rekstrarreikningi, ber að til- færa sérstaklega á honum, að- skilið frá launagreiðslum til ann- arra launþega, og gera viðeigandi úrbætur, sbr. 3. mgr. þessa tölu- liðar. Hreinar skattskyldar tekjur skal siðan færa á framtal undir 1. tölulið III eða rekstrartap undir 12. tölulið IV. 2. Hreinar tekjur af eignaleigu, þ.m.t. útleiga ibúðarhúsnæðis samkv. meðfylgjandi rekstrar- yfirliti. Hafi framteljandi tekjur af eignaleigu, án þess að talið verði, að um atvinnurekstur sé að ræða i þvi sambandi, ber honum aö gera rekstraryfirlit, þar sem fram koma leigutekjur og bein útgjöld vegna þeirra, þ.m.t. vaxtagjöld, sem eru tengd þessari teknaöflun. Sé slikra tekna aflað i atvinnu- rekstrarskyni, ber að gera rekstrarreikning skv. tölulið 1. Hafi framteljandi tekjur af út- leigu Ibúðarhúsnæðis, hvort held- ur hann telur það vera i atvinnu- rekstrarskyni eða ekki, ber hon- Framhald á næstu siöu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.