Þjóðviljinn - 21.01.1973, Side 13
Sunnudagur 21. janúar 1973 'ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 13.
Leiðbeiningar vegna skatta
framtals fvrir árið 1973
INNGANGUR
Áritun.
Til innsendingar til skattyfir-
valda skal nota framtalseyðu-
blaðið, sem áritað er i skýrslu-
vélum, sbr. þó 3. mgr. Notiö
aukaeintak af eyðublaöi til að
taka afrit af framtali yðar og
geymið afritið með þeim upp-
lýsingum og gögnum til stuðnings
framtali, sem yður ber að geyma
a.m.k. i 6 ár miðað við framtaln-
ingu skattskrár. Framteljanda
skal bent á að athuga, hvort
áritanir gerðar af skýrsluvélum,
nöfn fæðingardagar, -mán. og -
ár, svo og heimilisfang, séu
réttar, miðaö við 1. des. sl. Ef svo
er ekki, skal leiðrétta það á fram-
talinu. Einnig skal bæta við upp-
lýsingum um breytingar á fjöl-
skyldu i desember, t.d. giftur
(gift), hverri (hverjum), hvaða
dag, nafn barns og fæöingardagur
eða óskið (ur) dóttir (sonur)
fædd (ur) hvaða dag.
Ef áritanir eru ekki réttar,
miðað við 1. des., þá skal fram-
teljanda bent á að senda einnig
leiðréttingu til Hagstofu íslands
(þjóðskrá), Reykjavik.
Athygli er vakin á orðsendingu
frá Hagstofu Islands, sem fylgir
með árituðum framtalseyðu-
blöðum i ár, varðandi skráningu
rikisborgararéttar.
Ef áritað eyðublað er ekki fyrir
hendi, þá skal fyrst útfylla þær
eyður framtalsins, sem ætlaðar
eru fyrir nafn og nafnnúmer
framteljanda, fæðingardag hans,
-mán, og -ár, svo og heimilisfang
hans 1. des sl. Einnig nafn eigin-
konu, fæðingardag hennar, -mán.
og -ár, svo og nöfn, fæðingardag -
mán. og fæðingarár barna, sem
fædd eru árið 1957 eða siðar.
2. Fengið meðlag og barna-
lífeyrir
Fengið meðlag með börnum
yngri en 16 ára, þar með talinn
barnalifeyrir frá almannatrygg-
ingum, ef annað hvort foreldra er
látið eða barn er ófeðrað, skal
færa i þar til ætlaða eyðu neðan
við nöfn barnanna.
önnur meðlög, aðrar barnalif-
eyrisgreiðslur frá almannatrygg-
ingum og allar barnalifeyris-
greiðslur frá öðrum (t.d. lifeyris-
sjóðum), skal hins vegar telja
undir tekjulið 13, „Aörar tekjur”.
3. Greidd meðlög
Upplýsingar um greidd meðlög
með börnum framteljanda skal
færa i þar til ætlaðan reit fyrstu
siðu framtalsins. Varðandi upp-
lýsingar um aðra vandamenn á
framfæri framteljanda, visast til
leiðbeininga um ákvæði 52. gr.
skattalaganna i liðnum „Aðrar
upplýsingar”.
4. Slysatrygging við
heimilisstörf
Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr.
67/1971 um almannatryggingar
geta þeir, sem heimilisstörf
stunda, nú tryggt sér rétt til
slysabóta við þau störf með þvi að
skrá i framtal sitt ósk um það, i
reit, sem til þess er ætlaður, á
fyrstu siðu framtals. Ársiðgjald
verður nú kr. 780.
Þeir, sem atvinnurekstur hafa
meö höndum, geta tryggt sér og
mökum sinum, sem með þeim
starfa að atvinnurekstrinum, rétt
til slysabóta, sbr. upplýsingar þar
um á launamiðafylgiskjölum.
Öski þessir aöilar að tryggja sér
eöa mökum sinum jafnframt rétt
til slysabóta við heimilisstörf,
skulu þeir geta þess f umræddum
reit, og mun þá slysatryggingin i
heild reiknast 52 vikur á viku-
gjaldi þess áhættuflokks, sem
hærri er.
1. Eignir 31. des. 1972
1 Hrein eign samkv. með-
fylgjandi efnahagsreikningi
Framtölum þeirra, sem bók-
haldsskyldir eru skv. ákvæðum
laga nr. 51/1968 um bókhald, skal
fylgja efnahagsreikningur.
I efnahagsreikningi, eða i
gögnum með honum, skal vera
sundurliðun á öllum eignum, sem
máli skipta, svo sem innistæðum i
bönkum og sparisjóðum, vixil-
eignum og öðrum útistandandi
kröfum (nafngreina þarf þó ekki
kröfur undir kr. 10.000), birgðum
(hráefni, rekstrarvörur, hálf-
unnar eða fullunnar vörur),
skuldabréfum, hlutabréfum og
öðrum verðbréfum, stofnsjóös-
innistæðum, fasteignum (nafn-
greindar á þann veg, er greinir i
3. tl. — Fasteignir), vélum og
tækjum og öðrum þeim eigum,
sem eru i eigu framteljanda.
Birgðir skulu tilgreindar á
heildarmatsverði án sérstaks frá-
dráttar skv. heimild i D-lið 22. gr.
skattalaga, og skal siðan tilgreina
frádráttinn sérstaklega.
A sama hátt ber að sundurliða
allar skuldir svo sem yfirdráttar-
lán, samþykkta vixla og aðrar
viðskiptaskuldir (nafngreina þarf
þó ekki viðskiptaskuldir undir kr.
10.000) veðskuldir og önnur föst
lán, svo og aðrar skuldir fram-
teljanda.
Einnig skal sýna á efnahags-
reikningi, hvernig eigið fé fram-
teljanda breytist á uppgjörs-
árinu.
Ef i efnahagsreikningi eru f jár-
hæðir, sem ekki eru i samræmi
við ákvæði skattalaga (svo sem
tilfært verð fasteigna), skal úr þvi
bætt með áritun á efnahagsreikn-
inginn eða gögn með honum.
Hreina skattskylda eign skal
siðan færa á framtal undir 1.
tölulið I eða Skuldir umfram
eignir i C-lið bls 3.
2. Bústofn skv. land-
búnaöarskýrslu
Framtölum bænda og annarra,
sem bústofn eiga, skulu fylgja
landbúnaðarskýrslur, og færist
bústofn skv. þeim undir þennan
lið
3. Fasteignir
Fasteignir skal telja til eignar á
gildandi fasteignamatsverði eða
áætluðu matsverði fullbyggðra
mannvirkja, ef fasteignamat er
ekki fyrir hendi. Gildandi fast-
eignamatsverð, sem telja ber til
eignar i framtali 1973, er fast-
eignamat það, sem gildi tók 31.
des. 1971 eða skv. siöar gerðum
millimötum.
Metnar fasteignir ber að til-
greina i lesmálsdálk og kr. dálk á
þann veg, er hér greinir:
Tilgreina skal fyrst nafn eða heiti
hverrarsérmetinnar fasteignar i
lesmálsdálk, eins og það er til-
greint i fasteignamatsskrá. Sé
fasteign staðsett utan heimilis-
sveitar framteljanda, ber einnig
að tilgreina það sveitarfélag, þar
sem fasteignin er.
1 fasteignamatsskrám er hverri
fasteign skipt niður i ýmsa mats-
hluta eða matsþætti. T.d. er jörð
um i sveitum skipt i eftirtalda
matsþætti: tún, land, hlunnindi,
ibúðarhús, útihús o.s.frv. öðrum
sérmetnum fasteignum er skipt i
eftirtalda matshluta eða -þætti:
land eöa lóð, hlunnindi, sér-
byggðar (sérgreindar) byggingar
eða önnur mannvirki. Hins vegar
er sérbyggðum byggingum ekki
skipt eftir afnotum t.d. milli
ibúðar- og verzlunarhúsnæðis,
séu þau i sömu sérbyggðri bygg-
ingu.
I lesmálsdálk ber að tilgreina
einstaka matshluta eða -þætti
fasteignarinnar, sem eru i eigu
framteljanda, á sama hátt og
með sama nafni og þeir eru til-
greindir i fasteignamatsskrá. Sé
matshluti eða -þáttur ekki að fullu
eign framteljanda, ber að geta
eignarhlutdeildar. Séu sér-
byggðar byggingar notaðar að
hluta til ibúðan og að hluta sem at
vinnurekstrarhúsnæði, ber einnig
að skipta matshluta eða -þætti
eftir afnotum, og skal skiptingin
gerð i hlutfalli við rúmmál. Sér-
reglur, sbr. næstu málsgrein,
gilda þó um skiptingu leigulanda
og leigulóða til eignar milli land-
eiganda og leigutaka. Fjárhæð
fasteignamats hvers matshluta
eða -þáttar, i samræmi við
eignar- eða afnotahlutdeild, skal
færð i kr.-dálk.
Eigendur leigulanda og leigu-
lóða skulu telja afgjaldskvaðar-
verðmæti þeirra til eignar.
Afgjaldskvaðarverðmætið er
fundið með þvi að margfalda árs-
leigu ársins 1972 með 15. Til-
greina skal i lesmálsdálk nafn
landsins eða lóðarinnar, ásamt
ársleigu, en i kr. dálk skal til-
greina ársleigu x 15. Leigjendur
leigulanda og leigulóða skulu
telja sér til eignar mismun fast-
eignamatsverðs og afgjalds-
kvaðarverðmætis leigulandsins
eða -lóðarinnar. Tilgreina skal i
lesmálsdálk nafn landsins eða
lóðarinnar svo og fullt fasteigna
matsverð lóðarinnar eða landsins
eða þess hluta, sem hann hefur á
leigu, og auðkenna sem „Ll.”, en
i kr.-dálk skal tilgreina mismun
fasteignamatsverðs og afgjalds
kvaðarverðmætis ( sem er land-
eða lóðareign ársins 1972 x 15).
Mannvirki, sem enn eru i bygg-
ingu eða ófullgerð, svo sem hús,
ibúðir, bilskúrar og sumarbú-
staðir, svo og viðbyggingar og
breytingar eða endurbætur á
þegar metnum byggingum eða
öðrum mannvirkjum, skal tilfæra
sérstaklega i lesmálsdálk undir
nafni skv. byggingarsamþykkt
eða byggingarleyfi og kostnaðar-
verð þeirra i árslok 1972 i kr.
dálk. Eigendum slikra eigna ber
að útfylla húsbyggingarskýrslu,
sem fylgja skal framtali. Hafi
eigandi bygginga eða annarra
mannvirkja, sem byggð eru á
leigulandi eða leigulóð, ekki
greitt leigu fyrir landið eða lóðina
á árinu 1972, ber land- eða lóðar-
eiganda að telja fasteignamats-
verð lands eða lóðar aþ fullu til
eignar.
4. Vélar, verkfæri og áhöld.
Hér skal færa i kr.-dálk bókfært
verð landbúnaðarvéla og -tækja
skv. landbúnaðarskýrslu. Enn
fremur skal hér færa eignaverð-
mæti véla, verkfæra, tækja og
áhalda, annarra en bifreiða, sem
ekki eru notuð i atvinnurekstrar-
skyni eða ekki ber að telja i efna-
hagsreikningi, sbr. tölulið 1.
Slikar eignir skulu teljast á kaup-
eða kostnaðarverði i kr.-dálk. Þó
skal heimilt að iækka þetta verð
um fyrningu, nú að hámarki 8% á
ári miðað við kaup- eða kostn
aðarverð, svo og um áöur reikn-
aða fyrningu. Þó má aldrei telja
eignarverð lægra en 10% af kaup-
eða kostnaðarverði. Fyrning
þessi kemur aðeins til lækkunar á
eign, en ekki til frádráttar
tekjum.
5. Bifreiö
Hér skal færa i kr.-dálk kaup-
verð bifreiða, sem ekki eru
notaðar i atvinnurekstrarskyni
eða ekki ber að telja i efnahags-
reikningi, sbr. tölulið 1. Þó skal
heimilt að lækka kaupverð um
fyrningu, nú að hámarki 10% á
ári, miðaða við kaupverð, svo og
um áður reiknaða fyrningu. Þó
má aldrei telja eignarverð lægra
en 10% af kaupveröi. Fyrning
þessi kemur aðeins til lækkunar á
eign, en ekki til frádráttar
tekjum.
6 Peningar
Hér á aðeins að færa peninga-
eign um áramót, en ekki aðrar
eignir, svo sem vixla og verðbréf.
7. Inneignir
1 A-lið framtals, bls. 3 ber að
sundurliöa eins og þar segir til
um a.m.k. allar framtalsskyldar
og skattskyldar innstæöur i
bönkum, sparisjóöum og innláns-
deildum, svo og verðbréf, sem
hlita framtalsskyldu og skatt-
skyldu á sama hátt skv. sér-
stökum lögum. Þessar tegundir
eigna eru framtalsskyldar og
skattskyldar til jafns við skuldir
framteljanda. Til skulda i þessu
sambandi teljast þó ekki eftir-
stöðvar fasteignaverðlána, að
hámarki kr. 600.000, ef þau voru
tekin til 10 ára eða lengri tima og
sannanlega notuð til að afla fast-
eigna eða endurbæta þær. Siðan
skal færa samtölu skattskyldra
inneigna i eignarlið 7
Vixlar eða verðbréf, þótt geymt
sé i bönkum eða sé þar til inn-
heimtu, teljast ekki hér, heldur
undir tölulið 9.
8. Hlutabréf
Rita skal nafn hlutafélags i les-
málsdálk og nafnverð hlutabréfa
i kr.-dálk, ef hlutafé er óskert, en
annars með hlutfallslegri upp-
hæð, miðað við upphaflegt hluta-
fé.
9. Verðbréf, útlán, stofn-
sjóðsinnistæður o.fl.
(Jtfylla skal B-lið framtals bls 3
eins og eyðublaðið segir til um og
færa samtölu i eignarlið 9.
10. Eignir barna
Útfylla skal E-liö framtals bls 4
eins og eyðublaðið segir til um og
færa samtöluna, aö frádregnum
skattfrjálsum innistæðum og
verðbréfum, i eingarlið 10. Ef
framteljandi óskar þess að eignir
barns séu ekki taldar meö sinum
eignum, skal ekki færa eignir
barnsins i eignarlið 10, en geta
þess sérstaklega i G-lið framtals
bls 4, að það sé ósk framteljanda,
að barnið verði sjálfstæður
eignarskattsgreiðaandi.
11. Aðrar eignir.
Hér skal færa þær eignir (aðrar
en fatnað, bækur húsgögn og aðra
persónulega muni), sem eigi er
getið hér að framan.
II. Skuldiralls
Útfylla skal C-liö framtals bls 3
eins og eyðublaöiö segir til um og
færa samtölu I þennan liö.
III. Tekjurárið 1972
1 Hreinar tekjur af atvinnurekstri
eöa sjálfstæðri starfsemi skv.
mcðfylgjandi rekstrarreikningi
eða landbúnaðarskýrslu.
Framtölum þeirra, sem bók-
haldsskyldir eru skv. ákvæðum
laga nr. 51/168 um bókhald, skal
fylgja rekstrarreikningur. Þeir,
sem landbúnað stunda, skulu nota
þar til gerða landbúnaðarskýrslu.
gögnum þessum skal fylgja fyrn
ingaskýrsla, þar sem fram komi
a.m.k. sömu upplýsingar og til er
ætlazt, að komi fram á fyrninga-
skýrslueyðublb’ðum, sem fást hjá
skattyfirvöldum.
Þegar notuð er heimild I D-lið
22. gr. skattalaga til sérstaks frá-
dráttar frá matsverði birgða,
skal breyting frádráttar milli ára
tilgreind sem sérliður i rekstrar-
reikningi, en ekki reiknuð inn i
vörunotkun eða -eyðslu.
Ef i rekstrarreikningi (þ.m.t.
landbúnaðarskýrsla) eru fjár-
hæðir, sem ekki eru i samræmi
viö ákvæði skattalaga, svo sem
þegar taldar eru til tekna fjár-
hæðir, sem ekki eru frádráttar-
bærar, skal úr þvi bætt með
áritun á rekstrarreikning eða
gögn með honum. Sama gildir, ef
framteljandi vill nota heimild til
frestunar á skattlagningu skatt-
skylds hluta söluhagnaðar eigna,
en sú fjárhæð skal enn fremur
sérgreind á efnahagrreikningi.
Gæta skal þess sérstaklega, að
1 rekstrarreikningi séu ekki aðrir
liðir færðir en tilheyra þeim at-
vinnurekstri, sem reikningurinn
á að vera heimild um. Þannig
skal t.d aðeins færa til gjalda
vexti af þeim skuldum, sem til
hefur verið stofnað vegna at-
vinnurekstrarins, en ekki vexti af
öðrum skuldum, og ekki skal færa
til gjalda á rekstrarreikning önn-
ur persónuleg gjöld, sem ekki til-
heyra atvinnurekstrinum, þótt
frádráttarbær séu, svo sem lif-
eyris- og liftryggingariðgjöld,
hefur skal færa þau i viökomandi
liði i frádráttarhlið framtals.
Sama gildir um tekjur, sem ekki
eru tengdar atvinnurekstrinum,
svo sem eit húsaleigu, vaxta-
tekjur og arð. Þessar tekjur skal
færa i viðkomandi liðiö i tekna-
hlið framtals.
Tekjur af útleigu eða reiknaða
húsaleigu af ibúðarhúsnæði, svo
og öll gjöld vegna hennar, svo
sem fasteignagjöld, fyrningu,
viðhald og vaxtagjöld, sem til
greind eru á rekstrarreikn. ber
á sama hátt að draga út úr
rekstrarreikningi með áritun þar
á eða gögn með honum. Tekjur af
ibúðarhúsnæði og gjöld tengd
þeim ber að telja til tekna i tölulið
2 eða 3 i teknahlið framtals og til
gjalda i tölulið 1 og 2 i frádráttar-
hlið framtals eftir þvi sem við á.
Endurgjaldslaus afnot laun-
þega (og fjölskyldu hans) af
ibúðarhúsnæði i eigu vinnuveit-
anda ber að telja til gjalda i
rekstrarreikningi með 2% af gild-
andi fasteignamati hlutaðeigandi
ibúðarhúsnæöis og lóðar, en sömu
fjárhæð ber framteljanda að telja
til tekna i tölulið 3 i teknahlið
(ramtals. Sama gildir, ef hluti
ibúðarhúsnæðis I eigu atvinnu
rekanda er notaður vegna at-
vinnurekstrarins.
Rekstrarkostnað bifreiða, sem
skráðar eru sem fólksbifreiðar,
ber að tilgreina fyrir hverja ein-
staka bifreið. Láti vinnuveitandi
starfsmönnum sinum i té endur-
gjaldslaus afhot slikra bifreiða,
ber að láta rekstrarreikningi
fylgja upplýsingar þar um, sbr.
skýringar um útfyllingu launa
miða. Hafi framteljandi hins
vegar sjálfur, fjölskylda hans eða
aðrir aðilar afnot slikra bifreiða,
beraðláta fylgja rekstrarreikn-
ingi upplýsingar um heildaafnot
bifreiðarinnar.
Nú vinnur einstaklingur eða
hjón, annað hvort eða bæði eða
ófjárráða börn þessara aðila, við
eiginn atvinnurekstur eða sjálf-
stæða starfsemi, og ber þá að
geta þess með athugasemd á
rekstrarreikning eða gögn meö
honum og tilgreina vinnuframlag
framteljanda sjálfs, maka hans
og ófjárráða barna hans. Laun
reiknuð framteljanda sjálfum,
maka hans eða ófjárráða börn-
um, sem hafa verið færð til gjalda
á rekstrarreikningi, ber að til-
færa sérstaklega á honum, að-
skilið frá launagreiðslum til ann-
arra launþega, og gera viðeigandi
úrbætur, sbr. 3. mgr. þessa tölu-
liðar.
Hreinar skattskyldar tekjur
skal siðan færa á framtal undir 1.
tölulið III eða rekstrartap undir
12. tölulið IV.
2. Hreinar tekjur af eignaleigu,
þ.m.t. útleiga ibúðarhúsnæðis
samkv. meðfylgjandi rekstrar-
yfirliti.
Hafi framteljandi tekjur af
eignaleigu, án þess að talið verði,
að um atvinnurekstur sé að ræða i
þvi sambandi, ber honum aö gera
rekstraryfirlit, þar sem fram
koma leigutekjur og bein útgjöld
vegna þeirra, þ.m.t. vaxtagjöld,
sem eru tengd þessari teknaöflun.
Sé slikra tekna aflað i atvinnu-
rekstrarskyni, ber að gera
rekstrarreikning skv. tölulið 1.
Hafi framteljandi tekjur af út-
leigu Ibúðarhúsnæðis, hvort held-
ur hann telur það vera i atvinnu-
rekstrarskyni eða ekki, ber hon-
Framhald á næstu siöu