Þjóðviljinn - 16.05.1973, Side 2

Þjóðviljinn - 16.05.1973, Side 2
2.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN MiBvikudagur 16. mat 1973 LITLI GLUGGINN FL0T 3L. GaXP* Nú fer að styttast i sumarfriin. Við vonum að það verði eins skemmtilegt hjá ykkur og hjá henni Svanhildi. Þetta er mynd af honum Sigga. Hann er nýbúinn að eiga afmæli og er nú orðinn 6 ára. Helgi, sem er að verða 6 ára, teiknaði myndina. Við hittum þær fyrir utan einn leikvöllinn. Þær voru á leiðinni heim og heita Diana Ivarsdóttir 5 ára og Emilia Guðjónsdóttir 10 ára. Til hvers eru leikvellir? Nokkrar rólur, vegasölt, ein rennibraut, sandkassi og klifur- grind, ekki grasstrá , gráir múr- veggir, hvergi skot, hvergi skjól. Til hvers skyldu svona staðir vera ætlaðir? Hvað ætlast leikvalla- nefnd til að gert sé þarna? Skyldu fullorðnir láta bjóða sér slíka staði til sinna tómstundaiðkana? Hver á leikvellina? Hver á að ráða þvi hvernig þessir staðir lita út? Þeir sem eiga að leika sér þarna eða einhver nefnd skipuð fulltrúum stjórn- málaflokka? Á umsjónarmaður leikvalla að sjá um að þetta sé svona? Litli glugginn krefst fyrir hönd lesenda sinna að viðkomandi aðilar geri grein fyrir skoðunum sinum og sinum tillögum til úrbóta og mun með ánægju kynna lesendum sínum það. 50 milna landhelgi er krafa okkar og þessa mynd hefur Ketill Sigurjóns- son, 6 ára, sent okkur. Við þökkum þér kærlega fyrir.Ketill.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.