Þjóðviljinn - 03.06.1973, Síða 6

Þjóðviljinn - 03.06.1973, Síða 6
ll StDA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. júni 1973. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSiALISMA/ VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS , Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans i Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Augiýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiösia, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur). Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi. Lausasöluverö kr. 18.00. Prentun: Biaöaprent h.f. -------------------r?------------- ER EINN SJÓMANNADAGUR NÓG? Það má vera til nokkurs marks um það á hvern veg íslenzk þjóð metur sjómenn sína, að þeim er valinn sérlegur hátiðisdagur á al- mennum frídegi, á sama tíma og verzlunar- menn hafa lögboðinn frídag ár hvert á virkum degi. Engin ein starfstétt í landi er eins háð veðr- um, vindum og verðsveiflum á erlendum mörkuðum, hvað laun snerfir, og fiskimenn þjóðar, sem byggir 80% útf lutningsverðmæta sinna á sjófangi. Enda hefur sú raunin orðið á, að fyrr en nokkur stétt hefur orðið að skerða sinn hlut vegna óhagstæðs árferðis, hefur sjó- mannastéttin oft borið skarðan hlut. Þannig hefur oft fyrst verið gengið á gerða samninga við fiskimenn þegar þjóðarbúið hefur staðið reikningslega höllum fæti, en þó jafnan síðast réttur þeirra hlutur, hafi þurft að skerða annarra hlut jafnframt. Þegar gróðahluti verzlunarstéttarinnar skertist í tíð viðreisnarstjórnarinnar var ekki hikað við að rjúfa gerða kjarasamninga sjó- manna, hlutakjarasamningana, áður en gengið var á hlut nokkurrar annarrar atvinnu- stéttar í landinu. Og áður en hlutur sjómanna var réttur, var bættur hlutur samtaka atvinnu- rekenda og milliliða. Þannig hefur afstaða fjandsamlegs ríkisvalds verið, og mun halda áfram að verða, í garð sjómannastéttarinnar. Nú hef ur hins vegar verið við völd ríkisstjórn, um tveggja ára skeið, sem ekki hefur annarra hagsmuna að gæta en hagsmuna hins vinnandi fóiks. Því hefur það orðið, vegna þess að slík ríkisstjórn gerir sér Ijóst hvert hlutverk og hver þýðing er í störfum sjómannastéttarinnar, að engin atvinnustétt i landinu hefur, það sem af er þessu ári, fengið meir í sinn hlut og hlotið meiri kjarabætur en einmitt sjómannastéttin. Auk þeirra kjarabóta, sem felast í því að fiskverð hefur hækkað um 22% það sem af er árinu, með þeirri hækkun sem varð nú um þessi mánaðamót, hefur þessi ríkisstjórn unnið að varanlegum kjarabótum fyrir sjómanna- stéttina, kjarabótum, sem eiga eftir að koma fram í ýmissi mynd næstu misserin. Þannig mun útfærsla landhelginnar í 50 sjó- milur hafa varanleg áhrif til góðs á launakjör fiskimanna, sé þeirra varnaðarorða Jakobs Jakobssonar, f iskif ræðings, gætt sem birtast í viðtali hér í blaðinu í dag, að við höf um stjórn á veiðunum og gætum þess að ganga ekki á stofnana; gefa þeim tima til að vaxa. Með endurnýjun fiskiskipaflotans, með kaupum á nýtízku skuttogurum, hefur ríkis- stjórnin tryggt fiskimönnum betri vinnuað- stöðu. Þessir togarar hafa einnig sýnt það og sannað,aðáþáfiskast meir og betur en þau tog- skip, sem verið hafa í notkun, og hlutur fiski- mannsins eykst við komu þeirra. En bættur hlutur sjómanna er ekki ein- vörðungu undir vinveittri ríkisstjórn komið. Sjómenn sjálfir eiga og nokkurn þátt i því hvernig komið er þeirra högum. Um allt of langan tima hafa sjómenn látið átölulaust að með þeirra mál fari menn, í þeirra eigin félög- um, sem ekki eiga, jafnvel hafa aldrei átt hagsmuna að gæta, sem fari saman við hags- muni sjómannastéttarinnar. Það er þessi brotalöm sem sjómenn þurfa að tryggja aðekki valdi þeim skaða í framtíðinni, ekki síður en sú brotalöm sem óvinveitt rikis- vald er þeim. Til þess að sjómannastéttin fái metið sitt starf að verðleikum þarf hún því að gæta þess að stéttarfélög hennar séu ekki í höndum manna, sem hafa engra hagsmuna að gæta með þeim jafnframt því sem hún þarf að tryggja sér valdasetu ríkisstjórnar, sem metur hana að verðleikum. í dag, sjómannasunnudaginn, munu margir tala blítt til sjómanna, menn sem ekki muna deginum lengur hvað þeir segja. Það eru ekki þessir menn sem sjómenn þurfa á að halda sér til liðsinnis. Hins vegar eru það menn sem sjó- menn hafa reynt að góðu, menn eins og nú- verandi sjávarútvegsráðherra, Lúðvík Jósepsson, sem segir í viðtali viðÞjóðviljann í dag, að tryggja beri fiskimönnum betri kjör, en almennt gerist í landi, kjör sem þeir eigi skilið. Þá verður ekki einvörðungu einn sjómanna- dagur á (slandi. Samtökum herstöðvaandstœðinga EYKST FYLGI Eg er ánœgður með aðgerðirnar - segir Finnur Torfi Hjörleifsson starfsmaður Samtakanna Þjóðviljinn hafði samband við Finn Torfa Hjörleifsson hjá Samtökum herstöðvaandstæðinga og spurði hann hvort þetta hefði ekki verið erfið lota sem lauk með fjöldaaðgerðunum á uppstigningar- dag. Finnur lét það allt vera og sagði að margar hendur hefðu að verkinu unnið og það þvi orðið til- tölulega létt. En nú dygði ekki að leggja árar i bát, heldur halda þvi starfi áfram sem vinna þarf fyrir málstað herstöðvaandstæðinga. Kennara vantar Kennara vantar að gagnfræðaskóladeild- um Egilsstaðaskóla. Aðalkennslugreinar: Stærðfræði, eðlis- fræði, islenzka, danska og enska. Húsnæði og staðaruppbætur i boði. Nánari upplýsingar gefur skólastjórinn Ólafur Guðmundsson i sima 40172. Skólanefnd Egilsstaðaskólahverfis Skrifstofustúlka Fjármálaráðuneytið, fjárlaga- og hag- sýslustofnun, óskar að ráða stúlku til vél- ritunar- og skrifstofustarfa i sumar. Um- sóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir fimmtudaginn 7. júni n.k. Fjármálaráðuneytið, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Arnarhvoli, Reykjavik. — Mér er efst i huga, sagði Finnur Torfi, að þakka öllum þeim sem unnu að undirbúningi göngunnar og útifundarins og sáu um framkvæmd aðgerðanna. Ég hef ekki tölu á öllu þessu fólki, en það var fjölmargt sem varði fri- tima sinum til þessara starfa og sumt tók sér fri úr vinnu. Það væri gaman að nefna einhver nöfn, en það væri langur listi að telja. Fyrst vildi ég nefna samstarfs- nefnd þeirra 3ja aðila sem að þessu stóðu, en i henni voru ýmsir sem iögðu nótt við dag i undir- búningsstarfinu. Hópur mynd- listarfólks, félagar i SÚM, vann frábært starf. Leinarar með Jón Hjartarson fremstan lögðu fram dýrmætan skerf. Að öllum öðrum ólöstuðum tel ég að Alfheiður Ingadóttir háskólanemi hafi átt einna drýgstan hlut i skipulagningu að- gerðanna og er þarflaust að þegja yfir þvi. — Hvernig fannst þér að- gerðirnar heppnast? — Ég er ánægður með það. Kröfugangan var stór og myndarleg, svo og útifundurinn. Það er alltaf erfitt aö gizka á töl- ur, útvarpið nefndi 3 þúsund manns, en ég heyrði marga gizka á 5-6 þúsund. Ekki fer á milli mála, að ganga og fundurinn vöktu gifurlega eftirtekt á mál- stað okkar. Þetta á ekki sizt við um grúa erlendra fréttamanna sem fylgdust með göngunni og mynduðu hana. ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA í KR0N Finnur Torfi Hjörleifsson. Mestu varðar þó, ef það er rétt sem ég hygg, að tslendingumsé miklu ljósara nú en áður hve sjálfstæðismálin eru samofin og hversu fráleitt það er að slita her- stöðvamálið og landhelgismálið úr samhengi við stjórnmálin i heild. — En hvaða áhrif hafa fjölda- aðgerðirnar núna á sjálf sam- tökin? — Samtökum okkar hefur bætzt mikill liðsstyrkur þessa dagana. Það gerðist bæði við undirbúninginn og við að- gerðirnar sjálfar. Þegar undirbúningsstarfið hófst voru Samtök herstöðvaand- stæðinga litt skipulögð samtök. Þau eru reyndar laus i reipunum enn, a.m.k. ef miðað er við flokkskerfi, en þau eru samt miklu betur skipulögð og betur búin til átaka eftir þessar að- gerðir en áður. Samtökunum er að aukast traust og fylgi. Nú riður á að þau haldi áfram að skipuleggja sig um allt land. Þvi starfi þarf að verða lokið i haust. hj - Samtök aldraðra Framhaldsstofnfundur Samtaka aldraðra verður haldinn i Súlnasal Hótel Sögu (norðurdyr) miðvikudaginn6. júni kl. 8,30 s.d. Dagskrá: Lögð fram tillaga að lögum fyrir félagið. Kosning stjórnar. önnur mál sem upp kunna að verða borin. Undirbúningsnefndin :fí§> Laugardalsvöllur íslandsmótið 1. deild. Á mánudagskvöld kl. 20.00 leika Fram — Breiðablik í leikhléi fer fram 400 m hlaup kvenna og karla. Knattspyrnufélagið FRAM

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.