Þjóðviljinn - 13.12.1973, Page 1
ÞJOÐVIUINN
Fimmtudagur 13. desember 1973. — 38. árg. 287. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA i KRON
k Á
Geir Gunnarsson, formaður fjárveitinganefndar:
Stórfelldir fjármunir til
framkvæmda og félagsmála
— gagnstœtt því sem var í stjórn-
artíð viðreisnarinnar, þegar lögmál
einkagróðans var látið ráða ferðinni
t lok ræðu sinnar á alþingi i gær
ræddi Geir Gunnarsson, formað-
ur fjárveitinganefndar, almennt
um stefnu núverandi rfkisstjórn-
ar i rikisfjármálum, féiagsmál-
um og framkvæmdum og bar
saman við stefnu fyrrverandi
rikisstjórnar.
A viðreisnartimanum lagði
Sjálfstæðisflokkurinn, sem öllu
réð i stjórninni, sig fram um að
láta hin frjálsu efnahagslögmál
ráða, einkafjármagnið átti að
stjórna þróuninni i landinu sem
allra mest óheft. Þá var fram-
kvæmdum rikisins haldið niðri á
öllum sviðum. Afleiðingar þess-
arar stefnu urðu þær að fjár-
magnið dróst sifellt meira þangað
Frekar sagt frá
fjármálarœðu
Geirs á bls. 10
Ný bók frá
Thor Vilhjálmssyni
Hvað er
San Marino?
sem fjármagn var fyrir. Úti á
landi varö stöðnun og afturför,
landlægt atvinnuleysi og fólkið
hrökklaðist þangað sem fjár-
magnið sogaðist.
Svo rækilega blómstraði fjár-
magnslögmál viðreisnarinnar að
það fóru naumast spurnir af þvi
að byggt væri ibúðarhúsnæði úti á
landi á sama tima og það var
gróðavegur að byggja ibúðir og
selja hér i þéttbýlinu.
Fjárveitingar til 'verklegra
framkvæmda voru i lágmarki og
átti það við alla þætti: Hafnar-
mál, flugvallagerð, sjúkrahúsa-
byggingar. Þetta hafði svo aftur
þær afleiðingar að fólk úti á landi
bjó við miklu lakari félagslega
þjónustu en aðrir landsmenn.
En nú fer með stjórnina i land-
inu rikisstjórn, sem beitir sam-
félagslegum aðgerðum i atvinnu-
lifi og félagsmálum. Hún telur að
ekki eigi að láta óheft lögmál
einkagróðans ráða ferðinni. Nú-
verandi stjórnarflokkar hafa það
markmið að tryggja jafnrétti
þegnanna i þjóðfélaginu um at-
vinnu og þjónustu hvar sem þeir
búa, en þeir ætla ekki einkafjár-
magninu aö sjá um það þar sem
það sjálft vill hreiðra um sig.
Framhald á 14. siðu
Hvað er San Marino? heitir ný
bók eftir Thor Vilhjálmsson sem
væntanleg er á markaðinn ein-
hvern næstu daga. Efni bókarinn-
ar er i þremur hlutum. 1 fyrsta
lagi eru þættir af ferðum höfund-
ar I Póllandi, á ttaliu, Sikiley og
víðar. 1 öðru lagi eru listamanna-
þættir. Þar er einkum fjallað um
ýmsa myndlistarmenn s.s. Jó-
hannes Kjarval, Ninu Tryggva-
dóttur, Svavar Guðnason, Sverri
Haraldsson, Þorvald Skúlason,
Karl Kvaran og Steinþór Sigurðs-
son. 1 þriöja lagi fjallar Thor um
ýmsa höfuðsnillinga nútima kvik-
myndagerðar, t.d. Fellini, Paso-
lini, Bunuel, Antonioni, Marcel
Marceau, Godard o.fl.
Lika eru frásagnir af ýmsum
þekktustu ljóðskáldum samtim- i
ans, s.s. Pablo Neruda, Quasi-
modo, Evtúsjenko o.fl., en Thor '
er meðal viðförlustu höfunda okk-1
ar og hefur kynnst, persónulega
mörgum höfuöskáldum aldarinn-
ar. Hann tekur fram að hann setji
aðeins fram persónuleg viðhorf
sin en ætli sér ekki að seilast inn á
svið gagnrýnenda.
Iðnaðarráðuneytið lét kanna viðskipti borgarinnar og Alþjóðabankans
Bankinn setti engin skilyrði
um 7% arðsemi
Sem kunnugt er hafa forráða-
menn Reykjavikurborgar lengi
haldið þvi fram, að vegna ákvæð-
is um 7% arðgjöf i samningum
borgarinnar og Alþjóðabankans
frá 1962 yrði aö miða bæði sölu-
verð á heitu vatni til Reykvikinga
svo og hitaveituframkvæmdir i
nágrannabyggðum við þessa skil-
mála.
Nú hefur iönaöarráðuneytið
látið framkvæma ýtarlega könn-
un á þessari samningagerð og þá
kemur i ljós aö engin slik bind-
andi skiiyrði hafa verið sett af
hálfu bankans, heldur er aðeins
um að ræða einhliða yfirlýsingu
Geirs Hallgrimssonar, þáverandi
borgarstjóra, um að að slikri arö-
semi sé stefnt.
1 bréfi, sem iðnaöarráðuneytið
sendi borgarstjóra af þessu tilefni
i fyrradagjSegir:
1 stuttu máli skal hér rakin
niðurstaöa þessarar athugunar:
a) Alþjóðabankinn setti Hitaveit-
unni aðeins skilyrði um sann-
gjarna arösemi allan lánstimann.
Sanngjörn arðsemi er ekki skil-
greind af hálfu Alþjóöabankans,
og sanngjörn arösemi er skv. á-
kvæðum framkvæmdarsamn-
ingsins siöan háö mörgum mats-
atriðum. Er ef til vill rétt að
vekja sérstaklega athygli á þvi,
aö við mat á sanngjarnri arðsemi
af fastafjármunum ber aðeins að
taka tillit til kostnaðar við eðli-
lega og venjulega árlega stækkun
eða útfærslu hita veitunnar.
Hvergi I samningunum er að
finna ákvæði um 7% arðsemi.
Framhald á 14. siðu
Flugfélögin reyndu að fá stúdenta i störf flugfreyjanna
Verkfallsbrot undirbúin
Ýmislegt bendir til þess
að flugfélögin ætli að efna
til verkf allsbrota ef til
verkfalls kemur hjá flug-
freyjum nk. laugardag.
í gær kom erindreki Flugfélags
tslands i skrifstofu Stúdentaráðs
þar sem vinnumiðlun stúdenta
hefur haft aðsetur. Var erindi
hans að reyna að ráða háskóla-
stúdenta i störf flugfreyjanna.
Attu þeir að heita einhvers konar
öryggisverðir til að uppfyíla hluta
af þeim skyldum við farþega sem
flugfreyjur annast. Mikið virtist
liggja við,þvi að erindrekinn vildi
ráða stúdenta strax i gærkvöldi,
siðan átti að snöggmennta þá á
námskeiöi i dag.og tilbúnir áttu
þeir að vera i flugið á miðnætti á
föstudagskvöld, en þá hefst verk-
fall flugfreyja ef samningar hafa
ekki náðst.
Forystumenn stúdenta léðu
ekki máls á þessari fyrirætlun um
verkfallsbrot.
Einnig hefur frést að Loftleiðir
séu þegar byrjaðar að snögg-
mennta eitthvaö af starfsfólki
sinu úr ýmsum deildum til að
fremja verkfallsbrot gagnvart
flugfreyjum.
Þegar Þjóöviljinn náði tali af
formanni samninganefndar flug-
freyja, Ernu Friöfinnsdóttur, i
gær hafði nefndin þegar frétt af
tilraunum Loftleiða til aö fá skrif-
stofufólk sitt til starfa i flugvélun
um, en hafði ekki enn heyrt um
aðgerðir þeirra Flugfélags-
manna.
Sagði E rna, að þaö væri væg-
ast sagt íuröulegt ef flugfélögin
hygðust nú kenna fólki á einum
degi það sem flugfreyjur þyrftu
að sitja á 7 vikna námskeiði til að
læra, þvi það væru einmitt ör-
yggismál flugsins og sitthvaö við-
vikjandi fluginu sjálfu, sem mest-
ur timi færi i á námskeiöunum.
Þær þyrftu ekki að læra að
leggja á bakka fyrir farþegana,
sagði hún og i sambandi við ör-
yggismál væri ekki nóg að vita
hvar neyðarútgangurinn væri.
Hún sagði, að flugfreyjur
myndu kæra til ASt og leita
stuðnings sambandsins til varnar
verkfallsbrotum af þessu tagi.
Einnig myndu þær fara fram á
stuðning flugmanna og leita eftir,
hvort þeir gætu ekki neitað að
fljúga með þennan hraðþjálfaða
starfskraft innanborðs.
Sáttafundur hófst kl. 9 i gær-
kvöld og var ekki lokið er blaðið
fór i prentun. _vh,eþ