Þjóðviljinn - 13.12.1973, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN F'immtudaf'ur 13. desember 1!)7:!.
iií'STú'm
Gjöfina sem veitir varanlega flfifay
ánægju fáið þér i Jasmin Lauga- Ljt^
vegi 133.
Ath. opið til kl. 22alla föstudaga til jóla.
UNDRALAND
ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst, skoppar, tistir og
brunar. Fjölbreytt úrval.
Komiö, sjáiö, undrist í UNDRALANDI
LEIKFANGALAND
Leikfangaland
Veltusundi l.Sfmi 18722.
Fjölbreytt úrval leik-
fanga fyrir börn á öllum
aldri. — Fóstsendum.
SÓLSKINSBÖRN
Áróra og Sókrates
Höf.: Anne-Cath. Vestly.
býð.: Stefán Sigurðsson.
Myndir: Johan Vestly.
Iðunn, 1973.
Stundum finnst mór, þegar
tekið er mið af barnabókum i
heild, að Arórubækurnar sóu rótt-
læting á þvi, að börn eru ekki ein-
getin. Sú áhersla, sem lögð er á
mæður i barnabókum, er i ansi
miklu ósamræmi við lifið i
kringum okkur, þar sem feður
taka æ meiri þátt i uppeldi barna
sinna, þótt móðurdýrkunin hafi
etv. átt við á tfmum Jóns Sveins-
sonar. Annars hefur mór alltaf
fundist Nonni vondur við pabba
sinn, sem er alger skuggavera i
Nonnabókunum, lesandi tekur
ekki einu sinni eftir þvi, þegar
hans nýtur ekki lengur við meðal
vor. bað var fyrir löngu kominn
timi til að karlar risu til andmæla
gegn þeirri skuggatilveru, sem
þeir lifa i barnabókum. Nú eru
llklega l'leiri barnabókarit-
höfundar karlar en konur, svo að
heimatökin voru hæg. Kn það er
konan Anne-Cath. Vestly, sem
tekur upp hanskann fyrir karla og
býr til föðurmynd, sem er engu
slðri en móðurmynd Nonna,
þegar væmnin er skilin frá.
Nú er komið að þáttaskilum i
lifi fjölskyldunnar i blokk X.
Pabbi Aróru er búinn með
doktorsritgerðina sina, og honum
býðst vinna við háskólann. Kn
hver á þá að passa börnin? ,.Kg
er búin að eyða mörgum árum til
að læra þetta, sem óg kann,"
segir mamma Aróru, ,,og mór
finnst, að það væri slæmt, að
þurfa nú að hætta að vinna.” Kn
pabbi segist ráðstafa öllu saman,
og hann gerir það. Hann minnist
ekki á að það só konan, sem
eignist börnin eftir náttúrunnar
ráðstöfun, og hún eigi þvi að sjá
um þau lika.
Sókrates og Aróra fá nú ömmu i
skóginum og Brand tsem Sókra-
tes kallar Bland) frænda sem
fóstrur þá daga, sem pabbi er að
kenna. Kn dagarnir. sem hann er
heima. pabbadagarnir, eru
bestir. Svo ver pabbi doktorsrit-
gerðina sina. og af vörninni er
bráðskemmtileg saga.
Persónur sögunnar eru maka-
laust vel gerðar. Börnin eru bráð-
Gunna og
dularfulla
brúðan
(lunna og dularfulla hrúðan
nefnist skemmtisaga fyrir 7—13
ára stúlkur sem Stafafell gefur
út. bar segir frá tveim stöllum i
sumarleyfi, sem komast á snoðir
um hvarl' merkilegrar og dvr-
mætrar brúðu. Hefja þær leit að
henni og verðá l'ljott varar við að
þær eiga sór keppinauta heldur
betur.
Höfundur er Catharine Wooley
og hefur hún samið nokkrar bæk-
ur i llokki um Gunnu þessa.
Silja
Aöalsteinsdóttir
skrifar
um
barnabækur
lifandi, sönn börn, sem allir
kannast við. eða að minnsta kosti
einhver einkenni hjá þeim. Til-
finningum Áróru, þegar hún
hlerar samtal foreldra sinna um
fyrirvinnuna og heyrir þau kýta,
er afar vel lýst. Hún tengir þau
systkinin þegar i huganum við
llans og Grótu. og ákveður að
flýja til skógar'. bað gerir hún
lika. en hittir enga norn, heldu
ömniu i skóginum. sem gefur
systkinunum vöfflur. Aróra á sér
margar hliðar og margbreyti-
legar og kemur sifellt á óvart.
Sókrates er liklega um það bil
tveggja ára. Honum er fjarska
skemmtilega lýst. og barnamál
hans er vei endurgert á islensku.
Pabbinn er mun skýrari persóna
en móðirin, enda er hann meira
með börnunum og kemur þvi
meira við sögu. Hann er hæglátur
og þolinmóður og mjög góður
maður. Móðirin er örari, en fljót
til sátta. Auk aðalpersóna koma
svo fóstrur. vinir og vandamenn
við sögu. hver með sin sórein-
kenni. lifandi og skemmtilegt
fólk. Bókin er fallega út gefin með
afbragðsgóðum myndum.
býðingin er góð. en þó koma fyrir
lýti á borð við ,,er ekki svo?"
amk. tvisvar. og stundum má sjá
norskuna svolitið i gegn. En
norska er ndttúrlega alls ekki
ljótt mdl.
Skemmtilegir
skóladagaY-C'
Ilöf.: Kári Tryggvason.
Myndir: Oddur Björnsson.
isafoldarprentsiniðja. 1972.
betta er endurprentun d fjórðu
bókinni um Disu litlu á Græna-
læk. Disa er orðin skólaskyld og
komin að hreppstjórasetrinu
Hvammi, þar sem skólinn er
haldinn. Ekki virðist Disa taka
það neitt nærri sér að fara að
heiman svona langan tima, enda
ástæðulaust, þvi allir keppast um
að vera henni góðir. Henni gengur
auk þess vel I skólanum, hún
vinnur verðlaun i teikningu, er
dugleg á skiðum og mesta sól-
skinsbarn. 1 fyrstu er fátt með
henni og einum skólabróður
hennar, Sigga i Hvammi, en i
lokin er hann liklega orðinn
bestur af öllum.
betta er ákaflega saklaus litil
saga um áhyggjulaust barn.
Annað fólk i bókinni er lika ósköp
gott, það er helst hann Geir á
Hóli, sem er leiðindagaur, og
einkum er skemmtileg sagan,
sem kennarinn les fyrir börnin
um svaninn Búbú. Útgáfan er
fremur vönduð, fáar prentvillur
og gott letur. Myndir Odds
Björnssonar þykja mér alltaf
bráðskemmtilegar, og kápu-
teikning Benedikts Gunnarssonar
er falleg. bað er ánægjulegt til
þess að vita, að góðum lista-
mönnum skuli þykja sér sam-
boðið að skreyta barnabækur.
Gréta og grái
íiskurinn
Ilöf.: Mariette Vanhalcwijn.
Myndir: Jaklien Moerman.
byð.: Örnólfur Thorlacius.
10111111, 1973.
Grái fiskurinn er boðinn i veislu
til sædrottningarinnar, en hann
þorir ekki að fara af þvi að hann
er svo óttalega Ijótur. Stúlkan
Gréta kemst við af að heyra
raunatölur hans og lánar honum
rauðan borða til að skreyta sig
með.t veislunni vekur hann svo
aðdáun allra og nær sér i maka á
staðnum. bau reisa bú i læknum
rétt hjá heimili Grétu og una sæl
til æviloka.
Æjá, það væri gott, ef ekki
þyrfti annað en rauðan borða til
að losna við alla útlitskomplexa!
Bókin er hreinasta augnayndi
hvar sem á hana er litið. Mynd-
irnar stórar og litrikar, pappirinn
afbragð og letur gott, þótt það
mætti etv. vera stærra. Hvergi er
villa i textanum, sem er vel
þýddur.
Fimmta Ijóðabók
Hugrúnar
llaustblóm heitir fimmta ljóða-
bók skáldkonunnar llugrúnar
Geymir hún um fimmtiu kvæði,
við fyrstu sýn náttúrustemmning-
ar og ferðaminningar. Ljóðmál
og form er hefðbundið.
Fyrsta bók Hugrúnar var ljóða-
bókin Mánaskin sem út kom 1941.
Siðan hafa komið út eltir hana
m.a. skáldsögur, barna- og ung-
lingabækur, og flutt hafa verið
eftirhana leikrit i útvarpið. Bæk-
ur hennar munu nú komnar nokk-
uð á þriðja tug.
Sælgætis-
Kerta-
Gjafavöru
MARKAÐUR
Vörumarkaðurinnhl.
J ÁRMÚLA 1A. SÍMI 86112. REVKJAVIK.
Þýddar
skemmti sögur
frá Stafafelli
Bókaútgáfan Stafafell hefur
gefið út tvær þýddar skemmti-
sögur. llulið andlitheitir saga eft-
ir Yictor Canning.Fjallar hún um
mann sem hefur verið dæmdur i
ævilangt fangelsi fyrir morð, sem
hann er saklaus af. Honum tekst
að strjúka úr fangelsinu eftir
nokkrar misheppnaðar tilraunir
- og á flóttanum rekst hann á
stúlku eina sem verður honum
mikil hjálparhella.
Dularfulla stúlkan eftir Henry
Bowland fjallar um morðgátu og
dýrgripahvarf á sveitasetri auð-
ugs manns. bar eru gestir úr
ymsum áttum, og væntanlega
allir meira eða minna grunsam-
legir nema sá ..glæsilegi og
þekkti arkitekt" sem ræður gát-
una að lokum.