Þjóðviljinn - 05.02.1974, Qupperneq 15
Þriöjudagur 5. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Mókti í tuttugu ár
Þetta er Nadezhda Lebedin,
54ra ára gömul kona, sem lá
rúmföst i 20 ár i bænum Mogilev
i úkrainu. Lebedin lagöist i
rúmiö 35 ára, vegna eftirkasta
af völdum inflúensu. Brátt kom
aö því aö hún gat ekki risið upp i
rúminu, og hefur hún legiö i
móki i nær tuttugu ár og fengiö
næringu að mestu i fljótandi
formi. Nú er Lebedin aftur á
batavegi, og telja sérfræðingar
að hún hafi i raun vaknað til lifs-
ins þegar móðir hennar dó, en
systir hennar hafði þá ákaft
beðið hana aö kveöja móöurina.
Látiö hjól-
reiðamennina
gera gagn
Orkuskorturinn hefur leyst úr
læðingi margskonar hugmynd-
ir, og eru sumar býsna athyglis-
verðar. Þannig lagöi blaöiö
Figaro til aö rétt væri að leggja
hjólreiðakeppnina Tour de
France niður, en setja á stofn
aðra keppni fyrir hjólreiða-
menn, sem blaöið lýsti svo: 1
stórborgum setjast hjólreiða-
menn á einskonar þrekhjól sem
tengjast litlum rafölum. Þeir
bera sigur úr býtum sem fram-
leiða mestrafmagn á ákveðnum
tima og rafmagnið yrði notað til
að lýsa upp stræti borganna.
Við höfum ekki heyrt um
undirtektir hjólreiðamannanna.
Óvænt
sending
Katrineholm, Sviþjóð: Kannski
var það bættur fjárhagur,
kannski slæm samviska. t öllu
falli fengu skattayfirvöldin i
Katrineholm bréf með 6 hundr-
aðkrónuseölum frá einhverjum
ónafngreindum skattgreiðanda,
en á miða stóð: Skattpeningar
frá gömlum tima.
Nú vinna læknar og sjúkraþjálf-
ar að þvl aö koma henni aftur á
fætur.
SÍDAN
UMSJÓN: SJ
HannnK
Segðu það
ekki með
blómum!
Breska læknablaðið LANCET
birti i desember grein um hugs-
anlega skaösemi þess að færa
sjúklingum blóm á sjúkrastof-
ur. Blaðið segir að samkvæmt
könnun, sem gerð var i Banda-
rikjunum, geti hættulegar
bakteriur lifnað um klukku-
stund eftir að blóm eru sett i
vasa, og eftir þrjá daga geti
sumar bakteriurnar verið orðn-
ar ónæmar fyrir venjulegum
bakteriudrepandi meðölum.
Blóm á þvi ekki að færa sjúk-
lingum, sem kynnu að vera
mjög næmir fyrir bakterium.
Þessar myndir sýnast i fljótu bragöi eins, en þó eru ein sex
atriöi öðruvisi viö nánari athugun. Og ljóskan segir viö
manninn: —Þetta er fallega boöiö, en ég sest ekki á bekk-
inn, nema aö afloknum göngutúr.
Innlánsviðskipti leið
ígjlytil lán§við§kii>ta
ÍBÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Framleiði SÓLó-eldavélar af mörgum stærðum og gerð-.
um, —einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi, sumarbústaðií
og báta.
— Varahlutaþjónusta —
Viijum sérstaklega benda á nýja gerð einhólfa eidavéla
fyrir smærri báta og litla sumarbústaði.
ELDAVÉLAVERKSTÆÐI
JÓHANNS FR. KRISTJÁNSSONAR H.F.
KLEPPSVEGI 62. — SÍMI 33069.
Nýkomin indversk
bómullarefni og mussur i miklu
úrvali.
Jasmin Laugavegi 133
li»®ffi»f*MHi(ftfR
UNDRALAND
Ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst skoppar, tistir og
brunar.
Fjölbreytt úrval.
Komiö, sjáið, undrist í UNDRALANDI