Þjóðviljinn - 13.06.1974, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 13.06.1974, Qupperneq 7
Fimmtudagur 13. júnl 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Ráöstefna Rauösokka aö Skógum Um komandi helgi, dagana 15. — 17. júni, efna Rauðsokkar til fyrstu ráðstefnu sinnar eftir fjögurra ára starf. Þar má gera ráð fyrir, að teknar verði afdrifa- rikar ákvarðanir varðandi framtið Rauðsokkahreyfingar- innar, þvi það er fyrst og fremst starfið framundan, skipulag hreyfingarinnar, stefnumark og starfsaðferðir, sem á að ræða og taka til gagngerrar endurskoð- unar. Starfshópar hafa undanfarnar vikur unnið að undirbúningi ráð- stefnunnar og munu leggja fram tillögur eða umræðugrundvöll um stefnuyfirlýsingu, uppbyggingu, málaflokka og aðferðir svoog um húsnæðismál, þvi það er knýj- andi nauðsyn orðin að Rauð- sokkar fái fastan samastað fyrir starfsemi sina, stað, sem getur verið opinn daglega og ávallt má snúa sér til. Ráðstefnan verður haldin að Skógum, þar sem fengist hefur fundarsalur, svefnpokapláss og fæði, en á milli funda er ætlunin að lyfta sér upp meö fjallgöngum og sundiðkan eða öðru, sem fólk lætur sér detta i hug. Fyrir þá, sem ekki komast nema með börn sin, verður skipulögð barnagæsla á fundartimum. Lagt veröur af stað á laugardagsmorgun kl. hálfniu frá Umferðarmiðstöðinni. Þeir sem áhuga hafa og enn hafa ekki tilkynnt sig geta haft samband við Hjördisi i sima 16972, Steinunni i 10153 eða Eddu i 10401. 1 tilefni þessarar ráðstefnu birtast meðfylgjandi hugleið- ingar um mannréttindabaráttu kvenna og tengsl hennar við bar- áttu verkalýðsins, — upphaflega kaflar i ræðu, sem haldin var islenskum námsmönnum i Osló á baráttuhátið þeirra 1. mai sl. Þetta er stétta ba rátta og verður ekki slitin úr tengslum við baráttu annarra undirokaðra stétta Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna og frelsi kvenna veröur ekki slitin úr tengsl- um við baráttu annarra undirokaðra sfétta fyrir jöfnuði í þjóðfélaginu né heldur verður sigur unnin í verklýðsbaráttunni án virkrar þátttöku kvenna, helmings mannkynsins. Mannréttindabarátta kvenna er margþætt og það þarf að slást á ýmsum vigstöðvum eiginlega alls staðar og alltaf, þvi yfirleitt koma konur einhversstaðar og einhvern veginn við sögu hvað sem gerist, — þótt þagað sé um það i mannkynssögubókunum — eða þær ættu þá að gera það. En i aðaldráttum er baráttan tviþætt, þ.e.a.s. annars vegar baráttan gegn kúgunar- og afturhaldsöfl- unum og fyrir umbótum i þjóðfé- laginu og svo hinsvegar sú bar- átta, sem snýr að okkur sjálfum, vitundarvakningin, andspyrnan gegn — oft ómeðvituðum — upp- eldis- og umhverfisáhrifum, bar- áttan við aldagamla fordóma og hefðir, löngu úreltar, hafi þær þá nokkurntima átt tilverurétt i raun. Þetta er stéttabarátta og verður ekki háð án tillits til og stuðnings við jafnréttisbaráttu alþýðunnar i heild — þar feilaði eldri, borgaralegum kvenrétt- indahreyfingum, bæði á Islandi og annars staðar. Þær héldu jafn- réttið fólgið i kosningarétti og kjörgengi og jafnréttisaðstöðu i lagabókstafnum. Með þvi væri allt fengið. En verkamaðurinn hefur reyndar lika kosningarétt og jafnréttisaðstöðu samkvæmt lögunum, samt nýtur hann ekki jafnréttis i launum og aðstöðu, — landsins gæðum er misskipt eftir sem áður, það eru örfáir menn sem ráða i raun, þeir sem hafa vald yfir atvinnutækjunum og framleiðslugróðanum. Auðvaldið er enn rikjandi i landi okkar, þó svo að verkalýðurinn hafi unnið marga áfangasigra. Það er efna- hagsleg staða verkamannsins, sem markar honum bás i þjóðfé- laginu,og hið sama gildir um kon- una, undirokun hennar er efna- hagslegs eðlis, hvort sem hún sel- ur atvinnurekanda vinnu sina eða selur sig karlmanni gegn fram- færslu. Hitt er svo jafn augljóst, að án virkrar, raunverulegrar þátttöku kvenna og fulls tillits til hags- Konur 7,2% bæja- og sveita- stjórnafulltrúa Af samanlagt 346 fulltrúum sem sæti eiga i bæja- og sveitastjórnum landsins eftir kosningarnar 26. mai eru konur aðeins 25 eða 7,2%. Þær voru að vísu 16,5% frambjóðenda, en eins og bent var á í grein hér á siðunni þá, flestar í harla vonlitlum eða vonlausum sætum. 1 kaupstöðum landsins að Reykjavikurborg meðtalinni voru kosnir alls 159 bæja- og borgar- fulltrúar, þar af 15 konur og 144 karlar, þ.e. konur eru 9,4% full- trúanna. 1 hreppsnefndir kauptúna- hreppanna 33ja (Hvammstangi og Hrisey ekki talin með — þar var kosið óhlutbundið og ég hef ekki handbær úrslitin) voru kjörnir alls 187 aðalfulltrúar, þaraf voru konur 10, já, tiu! Það er 5,3%. t 6 af 19 kaupstöðum eru engar konur i bæjarstjórn, i 9 á ein kona sæti i bæjarstjórninni og i þrem tvær konur, hvergi fleiri, en tala bæjarfulltrúa er frá 7 og uppi 15 i Reykjavik, viðast 9. Það er i Keflavik, á Seltjarnar- nesi, Akranesi, Sauðárkróki, Siglufirði og á Ólafsfirði, sem þeir búa við algert karlaveldi, en fyrir utan Reykjavík eru það Grind- vikingar og Seyðfirðingar, sem hafa tvær konur i sinum bæjar- stjórnum. t kauptúnunum, þarsem hreppsnefndarfulltrúar eru ýmist 5 eða 7 talsins, er algerlega kvenmannslaust i 25 hrepps- nefndum,i6sveitarstjórnum á ein kona sæti og i tveim tvær konur. Þessir tveir hreppir eru Mosfells- sveit og Fáskrúðsfjörður. Þetta voru semsé úrslit bæja- og sveitastjórnakosninganna varðandi hlutfall kvenna i fulltrúafjöldanum, en eftir er að kjósa hreppsnefndirnar til sveita. Ekki sérlega glæsilegt með tilliti til þess að við konur erum hartnær helmingur landsmanna. (Miðað við mannfjöldatölur 1. desember 1973 voru karlar 107.666 og konur 105.404). Og þvi miður má áfram búast við enn lélegra hlutfalli úr alþingiskosningunum samkvæmt framboðslistunum fyrir þær, en um þá fjöllum við siðar. —vh muna þeirra ásamt vitundinni um þá inngrónu fordóma, sem við er að berjast, bæði hjá konum og körlum, verður verklýðsrikið heldur ekki jafnréttisriki i raun. Þannig er t.d. langt i land i rikj- um, sem kenna sig við sósialisma i Austur-Evrópu, að þar sé náð jafnrétti kynjanna, og það þrátt fyrir almenna þátttöku kvenna i atvinnulifinu og tiltölulega góðan aðbúnað varðandi dagheimili, skóla, mötuneyti o.þ.h. Alþýðu- rikinu Kina hef ég ekki kynnst af eigin raun, en þykir margt benda til, að við það megi binda veru- legar vonir að þessu leyti. Þegar Rauðsokkahreyfingin, sem er mjög lausbundin samtök skipulagslega, byrjaði að starfa fyrir fjórum árum, var markmið- ið fyrst og fremst að vekja konur og hvetja, baráttan átti ekki að beinast að karlmönnum sem slik- um, heldur mannfélaginu i heild og þá virtist mest áriðandi að við BELG Annað atriBi er það, sem ég leyfi mór að taka undir með m.a. Rauðsokkum. og það eru tak- mörkuð framboð kvenna til þingkosninganna Sennilega eru enn fæni konur á listunum nu en var til hinna kosninganna. Nú dettur mér ekki i hug að halda þvl fram. að kona eigi að stokkva inn á nokkurn lista aðeins vegna síns kynferðis. Langt I frá. Ég get tekið undir þá skoðun borgarstjórans 5 Reykjavik i viðtali í Mbl. fyrir borgaretjórnarkosningarnar. , að það þjónar harla litlum tilgangi að hafa konur á listunum aðeins til skrauts oða uppfyllingar. Ég efa heldur ekki, að það sé rétt, sem borgarstjóri sagði i sama viðtali, og á sjálfsagt bæði við um borgar og landsmál. að margar konur eru tregar til að fara i sjálfan slaginn og ganga fram fyrir skjöldu. En erfitt er að sann færa mig um. að ekki séu til fleiri hœfar konur I örugg sæti. hvort sem er i Reykjavik eða úti á landsbyggðinni en raun ber vitni um sam kvæmt listunum. að visu aðeins eftir lauslega könnun. En ég á örðugt með að trúa þvi. að konur séu svo tregar til að gefa kost á sér til þátttöku og listarnir gefa visbendingu um Það mætti segja mér. að karlmennirnir teldu sjálfsagt og eðli legt. að hlutur þeirra væri sem fyrr stærri og myndarlegri Við konurnar tinar er svo auð- vitað að sakast ef þær láta allkt viðgangast endalaust. Jóhanna Kristjónsdóttir. Oánægja kvenna i Sjálfstæðisflokknum Það er greinilegt, að óánægja Sjálfstæðisflokks- kvenna,vegna þess hve konur eru þar ævinlega sniðgengnar f sambandi við framboð til sveitastjórna og alþingis, er alltaf að magnast, skrifar SV með meðfylgjandi úrklippu úr Lesbók Morgunblaðsins. Nú er meira að segja farið að senda karlaveldi flokksstjórnar- innar tóninn i málgagninu. sjálfar, konurnar, gerðum okkur grein fyrir misréttinu, hvar og hvernig það birtist, i hverju það lægi og af hverju það stafaði, og vektum siðan athygli á þvi. Þetta höfum við siðan reynt að gera á ýmsan hátt, bæði meö skipulögð- um könnunum á ýmsum sviðum og eins með skyndiaðgerðum og skrifum. An þess að fara út i upp- talningu tel ég, að svo langt sem upphaflega markmiðið náði, hafi talsverður árangur náðst. A hinu er svo engin launung, að verr hefur gengið að koma fram þeim raunverulegu breyting- um, sem við óskum auðvitað allar eftir, einstaka hlutir hafa unnist beinlinis af okkar völdum, en þeir eru þvi miður fáir og smáir. Nú er svo komið, að varla verður haldið lengur áfram á sömu braut, við viljum meira, en þar er hætta á, að ágreiningur verði um bar- áttuaðferðir. Þegar Rauðsokkar Elsku Hafnfirðingar, fyrirgef ið A kosningadaginn og næstu daga hringdu særðir, hafn- firskir Alþýðubandalagsmenn til min hver um annan þveran og skömmuðu mig. Og það var lika fyllilega réttmætt, þvi i grein hér á siðunni um kyn- skiptingu frambjóðenda hafði ég skrifað, að listi Alþýðu- bandalagsins á Selfossi væri sá eini á landinu sem væri skipaður konum og körlum jafnt. En það var reyndar Alþýðu- bandalagslistinn i Hafnarfirði lika og það var af hreinni handvömm, sem þessi skyssa kom fyrir. Auðvitað hafði ég tekið eftir listanum i Hafnar- firði,og við hér á blaðinu — flest Reykvikingar — vorum mas. mikið búin að dást að honum, ekki bara af þvi að þar var kynjunum gert jafnhátt undir höfði, heldur lika vegna þess hve margt var þar af ungu fólki — að þvi eldra ólöstuðu. En i timapressunni við að skrifa greinina hafði ég þegar flett framhjá kaupstöðunum þegar ég kom að Selfosssíðunni og einhvern- veginn þannig urðu mistökin. En kvenframbjóðendur i Hafnarfirði voru vissulega taldir með i heildartölunni og gerðu sitt til að hún yrði konum hagstæðari. Vonandi venjulegur maður.... Nýr Tímakaupandi segist hafa gerst áskrifandi að Timanum og þá verið spurð, hvort hún vildi ekki lika kaupa Heimilistimann. — Hverskonar blað er það? spurði kaupandinn. — Jú, það væri mjög vinsælt hjá konum, svaraði afgreiðslumaðurinn, I þvi væru nefnilega matar- byrjuðu að starfa þótti okkur sjálfsagt, að þar skyldu allir rúm- ast án tillits til stjórnmálaskoð- ana, aðalatriðið væri að konur störfuðu saman og létu pólitikina ekki sundra sér. Þess vegna var hreyfingin lika nokkuð borgara- leg i byrjun, en það hefur breyst, sumir hafa fallið úr, en aðrir harðnað i baráttunni. Þannig eru nú sumir, sem áöur stóðu langt og jafnvel lengst til hægrijsomnir lengst til vinstri. Og það rennur upp fyrir æ fleirum, að þeim veigamestu breytingum, sem hefðu i för með sér fullkomið jafnrétti kynjanna, verður ekki komið á nema með verulegum þjóðfélagsbreytingum. Þar með er hvorki sagt, að við mænum til sósialisku rikjanna, sem kalla sig svo, né ætlum að læsa okkur i fila- Framhald á bls. 13 uppskriftir og fleira þessháttar. — En ef það er heimilis- maðurinn, sem eldar matinn? Vöflur komu á afgreiöslu- manninn, en svo sagðist hann gera ráð fyrir, að slikur maður hefði gaman af að sjá blaðið lika. Eftir þetta svar benti kaupandinn honum á, að ekki gæti hann vonast til að margir Rauðsokkar mundu kaupa blaðið ef hann talaði svona. — Það gerir nú minnst til, sagði seljandi, þvi ég vona i lengstu lög, að ég verði bara venjulegur maðurU?) Övarkárni í skrítlubirtingum ,,Eitt af fleiri dæmum um að þið eruð ekki á verði gagn- vart kynferðisáróðrinum i skrltlunum, þarna á Þjóð- viljanum,» fannst þeim, sem klippti þessa út og sendi. Og i von um að þeir 15. siðu menn taki sig á, segi ég bless i bili. Haldið áfram að láta heyra til ykkar þótt sumarið sé komið og umburðarlyndið þá kannski meira. Það á ekki siður við að segja hér frá þvi sem vel fer og gefur vonir um hugarfarsbreytingar. Siminn er 17500, en bréf eru lika ákaf- lega vel þegin. —vh Og svo fór ég i Hagkaup og i Domus og...

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.