Þjóðviljinn - 23.03.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.03.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Umtjón: VUborg Harbardóttir © Húrra! Loks tókst kon-, um að sameinast í máli sem snertir þær allar og þær einar. Hundrað konur úr flestum starfsstéttum og fylgjandi ólíkum stjórn- málaflokkum skrifuðu saman undir mótmæli gegn því vantrausti á dóm- greind kvenna, sem felst í endurskoðuðu fóstureyð- ingafrumvarpi, að ætla konum ekki sjálfum end- anlega ákvörðun um fóst- ureyðingu fram að 12. viku meðgöngu. Sú skerðing mannréttinda að veita konum ekki sjálfstorræði um jafn mikilvægt mál og hér um Taka þeir tillit til óska kvenna? ræðir hefur mætt harðri gagnrýni margra, einkum kvenna, þótt aðrar raddir hafi vissulega lika heyrst ekki sist meðan til umræðu var upphafleg gerð frumvarps- ins, þar sem gert er ráð fyrir, að fóstureyðing skuli heimil að ósk konu, sé aðgerðin framkvæmd fyrir lok 12. viku meðgöngu og engar læknisfræðilegar ástæður mæli móti aðgerð. En þriggja karlmanna nefnd breytti þessu atriði við endurskoðun konum i ó- hag og lýstu þarmeð yfir van- trausti á ábyrgðartilfinningu og dómgreind islenskra kvenna. Nú er spurningin: Hvað gera þingmenn (57 karlar, 3 konur) Taka þeir tillit til óska kvenna um sjálfsforræði eða staðfesta þeir vantraustsy firlýsinguna ? Rætt við þingmenn Eins og sagt var frá á siðustu jafnréttissiðu hafa rauðsokkar að undanförnu verið að ræða við þingmenn og kanna persónulega afstöðu þeirra til tveggja atriða fóstureyðingafrumvarpsins, þ.e. sjálfsforræðis kvenna og hver skuli hafa með höndum kyn- RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN: AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa á ENDURHÆFINGAR- DEILD spitalans nú þegar eða eftir samkomulagi. Starfið verður tengt aðstoðarlæknisþjónustu lyf- lækningadeildar að töluverðu leyti. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar. MEINATÆKNIR óskast til starfa á Heilaritunardeild spitalans frá 15. april n.k. eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 10. april n.k. Upplýsingar veitir starfsmanna- stjóri simi 11765. FORSTÖÐUKONA (FÓSTRA) óskast til starfa á dagheimili spitalans frá 1. mai n.k. eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 15. april n.k. Upplýsingar veitir forstöðukona Landspitalans, simi 24160 og starfsmannastjóri simi 11765. KLEPPSSPÍTALINN: HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa á hinar ýmsu deildir spitalans. Vinna hluta úr degi kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukona, simi 38160. FóSTRA óskast til starfa á dag- heimili spitalans nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðukona, simi 38160. Reykjavik, 21. mars 1975. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRI'KSGÖTU 5.SIMI 11765 ferðisfræðslu i skólum. Sagt var frá svörum formanna þingflokka siðast og i nýútkomnu „Stagli”, fréttabréfi Rauðsokkahreyf- ingarinnar segir frá svörum nokkurra fulltrúa i heilbrigðis- málanefndum þingsins, þeirra sem til náðist og vildu svara, að þvi er segir i fréttabréfinu. Sömu spurningar og áður voru lagðar fyrir þennan hóp þing- manna, þ.e.: 1) Hver er afstaða Ný lög í Svíþjóð: KONAN RÆÐUR SJÁLF Þótt sænsku fóstureyðingalögin hafi þótt vera orðin mjög frjáls- lynd og flestir hafi getað fengið aðgerð samkvæmt þeim, mas, is- lenskar konur sem þangað hafa leitað, hefur endanleg ákvörðun ekki verið i höndum konunnar sjálfrar fyrr en frá og með 1. jan. sl. Samkvæmt breytingum á lög- unum sem þá gengu i gildi á kon- an nú eftir samráð við lækni rétt á fóstureyðingu innan 12 fyrstu vikna meðgöngu ef hún óskar þess. Kveðið er á um, að aðgerð fari fram á sjúkrahúsi eða annarri viðurkenndri heilsugæslustofnun og neiti læknir aðgerð skal þegar visa málinu til félagsmálastjórn- ar. þin til að konur fái sjálfar að ráða hvort þær gangist undir fóstur- eyðingu? 2) Telurðu rétt að hafa kynferðisfræðslu i skólum? og 3) Finnst þér að kynferðisfræðsla eigi að vera hluti af almennu kennsluefni kennara og falla inni t.d. liffræði og félagsfræði eða vera sérstakur þáttur i höndum skólalæknis. Svör sem fengust voru á þessa leið samkvæmt frásögn Stagls- ins: Magnús Kjartansson fv. heil- brigðismálaráðherra, sem lagði fram frumvarpið 1973 og gerði þar ráð fyrir heimild til fóstur- eyðingar að ósk konu fyrir 12 vikna meðgöngu, staðfesti, að hann hefði ekki fallið frá þeirri skoðun, að konan ætti skilyrðis- laust að hafa sjálfsákvörðunar- rétt i þessu máli þegar fóstrið væri yngra en 12 vikna. Hann sagðist mundu flytja tillögu um að ákvæði 9. greinar frv. verði ó- breytt frá þvi sem var i frv. 1973. Magnús segist vilja kynferðis- fræðslu i skólum og að fræðslan eigi að vera eðlilegur hluti af námsefninu i höndum skólayfir- valda, en ekki afmarkað af skóla- yfirlækni. Albert Guðmundssyni finnst konan eiga að „hafa meiri rétt en hún hefur haft til þessa”, en kveð- ur ekki á um það nánar, hvort hann meinar þarmeð fullan sjálfsákvörðunarrétt. Hann er fylgjandi kynferðisfræöslu og að hún sé námsefni kennara, en kennsla fari fram i samráði við skólalækni. Eggert G. Þorsteinsson svarar 1. sp. þannig: „Ég er nánast á þeirri skoðun, án þess aö hafa kynnt mér málið nógu vel, að á þessu eigi að vera einhverjar tak- markanir. Hann er fylgjandi kyn- ferðisfræðslu og finnst hún eiga að vera hluti af almennu náms- efni, en kennari sjái um kennsl- una i samráði við skólalækni. Guðmundur H. Garðarsson svarar óljóst, að „frumkvæðið” hljóti ,,að vera i höndum konunn- ar” og tekið er fram, að hann hafi verið ófáanlegur til að tjá sig nán- ar. Hann vill kynferðisfræðslu og að hún sé hluti af almennu náms- efni sem sé þá kennt af kennara sem hlotið hefur fullnægjandi menntun til að fjalla um þessi mál. Á heimtingu á sjálfsákvörðunarrétti Helgi F. Seljan segir að konan eigi heimtingu á sjálfsákvörð- unarrétti. Það sé „algert vanmat á dómgreind hennar og heilbrigðu mati að ætla óskyldum aðilum (læknum, félagsráðgjöfum) að taka ákvörðun um mál, sem snertir konuna fyrst og fremst. „Þannig skapist lika forréttindi kvenna, sem efni hafi á að fara erlendis. Hann er fylgjandi kynferðis- fræðslu og segir, að þá verði kennarinn að vera reiðubúinn að veita alla þá fræðslu sem að gagni komi. „Gera verður grein fyrir eðlilegu kynlifi og getnaðarvarnir mega ekki vera bannorö. Það þarf að hamla móti klámritum — banna þau — sökum skaðlegra á- hrifa sem þau hafa með þvi að gefa alranga mynd af heilbrigðu kynlifi”. Fræðslan vill hann að sé hluti af almennri kennslu upp- fræddra kennara en læknar að- stoðandi aðilar. Kynlif sé eðlileg- ur hluti af lifi mannsins og eigi hvorki að gera of mikið né litið úr þvi. Það stingur i augun, að eina kor.an i hópnum, Ragnhildur Helgadóttir, er lika sú eina sem kveður uppúr með vantrú á kon- ur: ,,Ég tel að alveg opin heimild til þess að fá eytt fóstri gæti leitt til þess að fólk liti á fóstureyðingu sömu augum og getnaðarvörn og mér finnst það ekki rétt”. Hún segist hlynnt núverandi frv. i megindráttum, segist vilja ORÐ Svei, svei! Þannig skrifar Lesandimeð úrklippu úr sunnudagsblaði Þjóðviljans, myndaþættinum þar sem sýndar eru gamlar myndir af prenturum „ásamt konum sinum” og „með eigin- konum sinum”. Og ég er lesanda svo inni- lega sammála, aö svona á helst ekki að koma fyrir, en hvernig sem reynt var að fá upp viðkomandi nöfn hjá öll- um prenturunum sem starfa hérna kringum okkur, þá bara tókst það ekki, einsog reyndar var skýrt frá — mjög afsak- andi — i meðfylgjandi grein. Satt að segja lá við, að við hættum við að birta myndirn- ar tvær vegna þess arna, en við nánari umhugsun ákváð- um við þó, aö ekki mætti svipta lesendur ánægjunni af kynferðisíræöslu og að hún sé hluti almenns námsefnis. Þórarinn Sigurjónsson vill að konur ráði sjálfar hvort þær gangast undir fóstureyðingu og taki ákvörðun sjálfar, en tekið sé tillit til meðgöngutima. Hann álitur karl ekki geta þvingað konu til aðgerðar ef hún vill ekki sjálf. En réttur hennar sé þó ekki ótak- markaður og einhvern milliveg verði að fara þegar ákvörðun er tekin. Þá lagði hann áherslu á að lögin mættu ekki verða svo rúm, að hægt yrði að lögsækja lækni fyrir að neita konu um fóstur- eyðingu. Hann var meðfylgjandi kyn- ferðisfræðslu og að það væri má skólastjóra og skólayfirvalda hverjir til hennar veldust. Hvorki mætti útiloka lækna frá þeirri kennslu né einskorða hana við lækna, en eðlilegast væri að hún væri i höndum kennara. Rangt með farið 1 Staglinu er einnig sagt frá bréfi rauðsokka til þingsins þar sem visað er til, að i greinargerð núv. frv. sé sagt, að allar skrif- legar umsagnir sem bárust 1973 hafi verið neikvæðar varðandi 9. greinina og sama hafi Ellert G. Schram sagt i fréttaauka i jan. sl. Bent er á, að þetta sé rangtúlk- un og visað m.a á umsögn rauð- sokka, þar sem segir m.a. að i jafn persónulegu máli sem fóst- ureyðing sé hverri konu sé konan ein fær um að meta rökin fyrir endanlegri ákvörðun. Þá segir, að i umsögn Hjúkr- unarfélags íslands komi ekki frain andstaða við 9. grein frá 1973 og i álitsgerð Geðlæknafé- lags Islands segi: „Lagt er til, að 2. töluliður 9. gr. verði burtu felld- ur, enda er hann með öllu óþarf- ur, þvi að skv. 1. tölulið er fóstur- eyöing heimil að ósk konu, þegar þar nánar skilgreindum skilyrð- um er fullnægt”. Bréfi rauðsokka til þingsins lýkur þannig: „Ljóst er af framansögðu, að nefnd sú sem f jallaði um hið nýja frumvarp hefur gert sig seka um visvitandi ósannindi i málflutn- ingi sinum og hörmum við, að al- þingismenn skuli misnota aðstöðu sina á þennan hátt i áróðurs- skyni”. jafn skemmtilegum myndum. P’yrir nú utan skemmtunina af að rifast yfir þessu — sem sannaðist að rétt var álitið. Eiga rétt á dagpeningum Ilúsmóðir varð fyrir þvi slysi fyrir nokkru að hand- leggsbrotna. Fór hún á slysa- varðstofuna og fékk búið um brotið, en bað að þvi búnu lækninn um vottorð. Sá varð hvumsa við og spurði til hvers hún ætlaöi að nota það. — Til að fara með i Trygg- ingarnar, svaraði konan. En hann sagði, að hún ætti ekki rétt á neinum dagpening- um þarsem hún væri bara húsmóðir og neitaði aö gefa vottorðið. Liklega hefur þarna einhver óvanur verið á vakt, þvi vissu- lega eiga húsmæður rétt á sin- um dagpeningum rétt eins og aðrir þegar slys ber að hönd- um. Skilyrði er missir vinnu- getu, sem augljós er t.d, i þessu tilfelli. Ráðleggur full- trúi i Tryggingastofnuninni, sem ég talaöi við, konunni að fara til heimilislæknis sins og biðja hann um venjulegt sjúkradagpeningavottorð. Þaö er. ekki ætlunin að hús- mæðrum sé þarna mismunað. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.