Þjóðviljinn - 23.03.1975, Page 17
Sunnudagur 23. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Hjördís Bergsdóttir
velur gítargrip
viö vinsæl lög
Tökum lagið
Halló þið!
I dag tökum við fyrir lag og ljóð MEGASAR „Spáðu i mig”. Þetta lag
er eitt af mörgum lögum á nýrri plötu MEGASAR, sem hann er að
vinna að um þessar mundir og mun hún væntanleg á markaðinn áður
en langt um liður.
Þá mun ég aðeins byrja á þvl að kynna ykkur þvergrip i þættinum i
dag, og bæta við nýjum gripum i næstu þáttum. Þið getið svo sjálf valið
milli þess að nota þvergrip eingöngu, einföld grip eða hvoru tveggja.
Þvergrip eru tekin þannig að visifingur er lagður þvert á háls gitarsins
og merktur á teikningunni eftir sem áður tölustafnum 1. Síðan leggið
þið hina fingurna eins og myndin sýnir. Þó ekkert hljóð komi út úr git-
arnum að viti i fyrstu lotu þá gefist ekki upp en æfið og æfið þangað til
þið hafið náð hljómnum.
C V.- - ’ + ■ ir . Pl
j J -J^-O - : ' Q — &*7
J • N 1 i — —1
-kl/ -J 1 1 1 1 1 1 ’ 1 r J M . 1 1
P* £ £7 0 o cq
d -e F* b 7 £7 A E E7
m =4^
SPÁÐU t MIG
C*cfc)
E-hljómur A7~ htjómur
( DC
( D
Q X D
b ih) moLL 7
©( ) ( D T
©
A
A7
Alþýöubandalagið
Kvöldvaka í Kópavogi.
Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins i Kópavogi heldur kvöld-
vöku á skirdag fimmtudaginn 27. mars kl. 20.30 i Þinghól
Alfhólsvegi 11.
Á kvöldvökunni verður fjölbreytt dagskrá til fróðleiks og
skemmtunar; ávarp, upplestur, söngur og stutt kvikmynd. Sam-
eiginleg kaffidrykkja án endurgjalds til tilbreytingar I dýrtiö-
inni. Þeir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins sem lengi hafa
búið i Kópavogi eru sérstaklega velkomnir.
Bæjarmálaráð.
Tilkynningar um flokksstarfið
skúlu hafa borist blaðinu fyrir hádegi daginn fyrir birtingu. Auglýs-
ingadeild blaðsins tekur við tilkynningunum. Þær munu fnmvegis
birtast á 10. siðu i 12 siðna blaði og á 14. siðu I 16 siðna blöði num. —
Þjóðviljinn.
Lausar stööur
Finnska utanrikisráðuneytið hefur óskað
eftir þvi að auglýstar væru á Norðurlönd-
um fimm ráðunautastöður, þar á meðal
ein staða i dýralækningum við norræna
landbúnaðarverkefnið i Mbaia i Tahzaniu.
Krafist er háskólaprófs i búvisindum.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknar-
eyðublöðum fást á skrifstofu Aðstoðar
íslands við þróunarlöndin, Lindargötu 46,
herbergi 12, sem opið verður á mánudög-
um og miðvikudögum kl. 17—19.
Umsóknarfrestur er til 3. april n.k.
Aðstoð íslands við þróunarlöndin.
Vegna jarðarfarar
Jóhannesar Eliassonar,
bankastjóra
verður bankinn lokaöur þriðjudaginn 25. mars milli kl. 13
og 15.30.
Útvegsbanki íslands, Fiskveiðisjóður Islands.
kvöldin eru kaldlynd útá nesi
D A
kafaldsbylur hylur hæð og lægð
E7 fis
kalinn og með koffortið á bakinu
Gis7 Cis
kem ég til þin segjandi með hægð
Viðlag:
E E7 A
spáðu i mig
D A
þá mun ég spá i þig
fis b7
spáðu i mig
E7 A
þá mun ég spá i þig
nóttin hefur augu einsog flugan
og eflaust sér hún mig þar sem ég fer
heimulega á þinn fund að fela
flöskuna og mig i hendur þér
Viðlag.
finnst þér ekki esjan vera sjúkleg
og akrafjallið geðbilað að sjá
en ef ég bið þig um að flýja með mér
til omdúrman þá máttu ekki hvá
Viðlag.
og kvöldin eru kaldlynd útá nesi
kafaldsbylur hylur hæð og lægð
kalinn og með koffortið á bakinu
kem ég til þin segjandi með hægð:
Viðlag.
|Til sölul
I ódýrir, vandaöir |
svefnbekkir
I og svefnsófar
aö öldugötu 33. I
Upplýsingar
I í síma 19407 I
Auglýsið í
sunnudagsblaði
ÞJÓÐVILJANS