Þjóðviljinn - 23.03.1975, Síða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. marz 1975.
Vopnafjörður
Framhald af 13. siðu.
næði, fæði, hreinlætisvörur, bil og
rekstur hans og rekstur hússins.
Vinna Agústu við búið gengur upp
á móti meiri þörfum þeirra 5
manna fjölskyldu en Gunnars
eins og jafna þeir þetta sin á milli.
Hinsvegar hefur verið talað um
að ef heimilið yrði siðar eitt og
Agústa tæki að sér að vera hús-
móðir fyrir allt yrði hún senni-
lega þriðji aðilinn og tæki þá
kaupgreiðslu eins og þeir. Eins ef
til kæmi önnur húsmóðir og meiri
skipting.
Nú eru tveir ungir menn að
stofna annað félagsbú i Vopna-
firði, en annars er litið um þau á
Austurlandi. En þau eru orðin
nokkuð mörg á landinu, td. mikið
um félagsbúskap i Eyjafirði, og
fer fjölgandi, einkum á mjólkur-
framleiöslusvæðunum. Og þótt
reynt sé að fá þau Agústu og bórð
til að nefna einhverja ókosti eða
galla við þetta fyrirkomulag er
ekki við það komandi.
— En það er áreiðanlega hollast
að ganga vel frá öllum reglum,
skilmálum og eignaraðild, heldur
Ágústa. Og Þórður segir að þótt
hann sjálfur sé fullkomlega
ánægður með þetta fyrirkomulag
sé auðvitað ekki þarmeð sagt, að
það falli öllum: — Sumir eru
haldnir þeirri grillu, að þeir verði
að eiga eitthvað sjálfir og einir og
þeir gætu ekki búið félagsbúi.
— Er sá hugsunarháttur nú
ekki rikur þáttur bóndaeðlisins?
— Sumir segja svo. En þetta er
hlutur sem ég hef aldrei haft
nokkurn áhuga á. Ég er ekki við
búskap að þvi aö ég hafi endilega
svo gaman að kindum, beljum
eða búverkum. Ég lit á þetta sem
rekstur eða nánast fyrirtæki sem
við rekum saman. —vh
ÆFINGASKÓR, verö frá kr. 870.
KVENTÖFLUR, verð frá kr. 1040.
DOMUS,
Laugavegi 91
2^ Aöalfundur
Starfsmannafélags rikisstofnana verður
haldinn að Sigtúni, Suðurlandsbraut 26 i
Reykjavik, mánudaginn 28. april kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt félags-
lögum.
Önnur mál.
Athygli félagsmanna skal vakin á 11. gr. félagslaga, en
þar er kveðið á um, aö heimilt sé 25 eöa fleiri félags-
mönnum að gera tillögu um einn eða fleiri stjórnarmenn.
Skulu tillögurnar berast stjórn félagsins a.m.k. 25 dögum
fyrir aðalfund.
Tillögur um lagabreytingar liggja frammi á skrifstofu
félagsins, að Laugavegi 172, Reykjavlk.
Reykjavik, 23. mars 1975
Einar Ólafsson, formaður SFR
1
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinsemd viö andlát
og útför frænku okkar
MARÍU B.J.P. MAACK
fyrrv. yfirhjúkrunarkonu
Gunnlaugur V. Snædal
Elin Briem
Eyjólfur Jónsson
Guðmundur Jónsson
Páll Þorsteinsson
Elinborg Þorsteinsdóttir
Aðalsteinn P. Maack
Þorsteinn V. Snædal
Elisabet Jónsdóttir
Böövar Jónsson
Pétur Maack Þorsteinsson
Helga Þorsteinsdóttir
Karl P. Maack
Viggó E. Maack
Elisabet Maack Thorsteinsson
helgina
/unnudogur
18.00 Stundin okkar. Meðal
efnis eru myndir um önnu
og Langlegg og Robba eyra
og Tobba tönn, leikrit sem
nemendur I Breiðholtsskóla
flytja, spurningaþáttur og
páskaföndur. Umsjónar-
menn Sigrlður Margrét
Guömundsdóttir og Her-
mann Ragnar Stefánsson.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Enn er raulað. t þessum
þætti koma mörg ný andlit á
skjáinn og má nefna m.a.
Birgi Marinósson frá Akur-
eyri, Agnar Einarsson úr
Kópavogi, Karlakórinn
Hálfbræður, en það eru
nemendur úr Hamrahliðar-
skólanum I Reykjavík,
Brynleif Hallsson frá Akur-
eyri, ennfremur Baldur
Hólmgeirsson, Smári
Ragnarsson o.fl. Kynnir er
Sigurður Hallmarsson frá
Húsavik. Umsjónarmaður
Tage Ammendrup.
21.10 Fiölan.
21.40 Feguröardisirnar fjórar.
Breskt sjónvarpsleikrit úr
flokki leikrita, sem birst
hafa undir nafninu
„Country Matters”. Leik-
stjóri Donald McWhinnie.
Aðalhlutverk Zena Walker,
Jan Francis, Kate Nelligan,
Veronica Quilligan og
Michael Kitchen. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir. Leik-
ritið er byggt á einni af hin-
um kunnu „sveitasögum”
eftir Herbert E. Bates og
gerist I breskum smábæ
snemma á þessari öld.
Aðalsöguhetjan, Henry, er
nýbyrjaður að starfa við
þorpsblaðið. En fréttnæmir
atburðir eru fátfðir i bæn-
um, og honum leiðist lifið.
Þar I þorpinu býr lika mið-
aldra kona, frú Davenport.
Hún á þrjár föngulegar dæt-
ur, og auk þess rekur hún
testofu, sem verður helsti
griðastaður blaðamannsins
unga, þgar lifsleiðinn keyrir
úr hófi.
22.30 Fiskur undir steini.
23.00 Aö kvöldi dags. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson
flytur hugvekju.
23.10 Dagskrárlok.
mónudoguf
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Onedin skipafélagiö.
Bresk framhaldsmynd. 25.
þáttur. Meöan kertiö brenn-
ur. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson. Efni 24. þáttar:
Tyrkneskur soldán, sem er
á ferð I Englandi, hrlfst
mjög af hugmyndum Fraz-
ers um gufuskip. Hann býð-
ur Frazer til Tyrklands og
þegar þangað kemur, er
honum boðin staða flota-
verkfræðings og konungleg
laun. Ekki eru þó allir ráða-
menn I landinu sammála
um þessa ráðstöfun. Soldán-
inn er myrtur, en Frazer
sleppur vegna fórnfýsi einn-
ar af þjónustumeyjunum,
sem soldáninn hefur fengið
honum.
21.30 íþróttir.
22.00 Skilningarvitin. Sænskur
fræðslumyndaflokkur. 4.
þáttur. Smekkurinn. Þýð-
andi og þulur Jón O.
Edwald. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
um helgina
/unnudciguf
Pálmasunnudagur
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfegnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Tilbrigði
eftir Stravinsky um sálma-
lagiö „Af himnum ofan hér
kom ég”. Háskólakórinn og
Sinfóniuhljómsveitin I Utah
flytja Maurice Abravassel
stjórnar. b. Fantasia og
fúga um nafnið B.A.C.H.
eftir Reger. Ragnar Björns-
son leikur á orgel dómkirkj-
unnar I Reykjavík. c. Til-
brigði eftir Brahms um stef
eftir Handel. Sinfóníuhljóm-
sveitin I Fíladelflu leikur,
Eugene Ormandy stj. d.
Konsert I As-dúr fyrir tvö
planó og hljómsveit eftir
Mendelssohn. Orazio Fru-
goni, Annarosa Taddei og
Fílharmóníusveitin í Vin
leika, Rudolf Moralt stjórn-
ar.
11.00 Messa I Háteigskirkju.
Prestur: Séra Arngrfmur
Jónsson. Organleikari:
Marteinn Friðriksson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Hafréttarmálin á vett-
vangi Sameinuöu þjóöanna.
Gunnar G. Schram prófess-
or flytur þriðja og síðasta
hádegiserindi sitt: Mengun
hafsins og frelsi til hafrann-
sókna.
14.00 Þórbergur Þóröarson.
Gylfi Glslason tekur saman
þátt úr viðtölum sínum við
Þórberg og Steinþór bróður
hans. Ennfremur fluttir
kaflar úr ritum Þórbergs.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
útvarpinu I Berlín. Flytj-
endur: Fílharmóníusveitin I
Berlín og Nikita Magaloff
planóleikari. Stjórnandi:
Igor Markevitsj. a. Con-
certo grosso I D-dúr op. 6 nr.
5 eftir Handel. b. Planókon-
sert I G-dúr eftir Ravel. c.
Sinfónla nr. 4 I f-moll op. 36
eftir Tsjaikovský.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Bein llna.
17.25 Létt tónlist frá hollenska
útvarpinu.
17.40 tltvarpssaga barnanna:
„Vala” eftir Ragnheiði
Jónsdóttur.Sigrún Guðjóns-
dóttir les (7).
18.00 Stundarkorn meö
Stefáni Islandi. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?” Jónas
Jónasson stjórnar spurn-
ingaþætti um lönd og lýði.
Dómari: Ólafur Hansson
prófessor. Þátttakendur:
Pétur Gautur Kristjánsson
og Steingrimur Bragason.
19.40 John Milton, maöurinn
og skáldiö. Hrafn Gunn-
laugsson flytur erindi.
20.05 Sinfónluhljómsveit ís-
lands leikur I útvarpssal.
Stjómendur: Páll P. Páls-
son og Karsten Andersen.
Einleikarar: Einar Jó-
hannesson og Harry Kve-
bæk. a. Forleikur að óper-
unni „Nabucco” eftir Verdi.
b. Klarlnettukonsert eftir
Aaron Copland. c. Trompet-
konsert eftir Aratyunajan.
20.45 „Páskabréf” eftir Sol-
veigu von Schoultz. Séra
Sigurjón Guðjónsson þýddi.
Herdís Þorvaldsdóttir leik-
kona les siðari hluta sög-
unnar.
21.25 Fyrri landsleikur ts-
lendinga og Dana I hand-
knattieik. Jón Asgeirsson
lýsir slðari hálfleik I Laug-
ardalshöll.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Heiðar Ástvaldsson dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
mónudogui
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar Ornólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson planóleikari.
(a.v.d.v.) Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. lands-
málabl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra
Jón Dalbú Hróbjartsson
flytur (a.v.d.v.). Morgun-
stund barnanna kl. 9.15:
Sigurður Gunnarsson les
þýðingu slna á „Sögunni af
Tóta” eftir Berit Brænne
(19). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atriða. Búnað-
arþáttur kl. 10.25: Tryggvi
Eiríksson aðstoðarmaður
við tilraunir að Keldum tal-
ar um grasköggla og nýt-
inguþeirra. islenskt mál kl.
10.40: Endurt. þáttur Jóns
Aðalsteins Jónssonar.
Passlusálmalög kl. 11.00.
Morguntónleikar kl. 11.20:
Roberto Szidon leikur á
píanó Fantasíu I h-moll op.
28 eftir Skrjabln/ FIl-
harmonlusveitin I New York
leikur „Verklarte Nacht”
op. 28 eftir Schönberg.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan „Himinn
og jörö” eftir Carlo Coccioli.
Séra Jón Bjarman lýkur
lestri sögunnar I eigin þýð-
ingu (25).
15.00 Miðdegistónleikar.
Karlakórinn „Orphei
Drangar” syngur lög eftir
sænska höfunda, Eric Eric-
son stjórnar. Sinfónluhljóm-
sveit sænska útvarpsins
leikur Sinfóniu I f-moll op. 7
eftir Hugo Alfvén, Stig
Westerberg stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorniö.
17.10 Tónlistartími barn-
anna.ölafur Þórðarson sér
um tlmann.
17.30 Aö tafli. Ingvar As-
mundsson menntaskóla-
kennari flytur skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt mál.Bragi Einars-
son flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Þorsteinn Matthíasson tal-
ar.
20.00 Mánudagslögin.
20.25 Blöðin okkar. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson.
20.35 „Síðasti róðurinn”
smásaga eftir Sigurgeii
Jónasar. Höskuldur Skag-
fjörð les.
20.50 Til umhugsunar. Sveinn
H. Skúlason stjórnar þætti
um áfengismál.
21.15 Slöari landsleikur ts-
lendinga og Dana I hand
knattleik. Jón Asgeirsson
lýsir slðari hálfleik I Laug-
ardalshöll.
21.45 Ötvarpssagan: „Köttui
og mús” eftir Gunter Grass
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Lestur Passlusálma (48)
Lesari: Sverrir Kristjáns-
son.
22.35 Byggöamál. Frétta-
menn útvarpsins sjá um
þáttinn.
23.00 Hljómplötusafniö i um-
sjá Gunnars Guðmundsson-
ar.
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.