Þjóðviljinn - 16.11.1975, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 16.11.1975, Blaðsíða 15
Sunnudagur 16. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Umsjón: Halldór Andrésson •OKKAItÓT ÞOKKABÓT: Bætiflákar 11 11 (Steinar h.f. /003) Þokkabót er hér með aðra breiðskifu sina, „Bætiflákar”. Þcssi plata er önnur plata þeirra félaga og heyra mátti strax við fyrstu heyrn að þeim hefur farið mikið fram. Allur hljóðfæraleikur er góöur, klari- nettið, vibrafónn Reynis Sigurðssonar og kassagitararn- ir, og söngur allur er mjög skýr og góður. Tónlistin er ein af þessum sem vinna á við hverja yfirferð og textar eru allir mjög góðir. Platan er i heild nokkuð jözz- uð og er órafmögnuð að mestu, og er að þessu tvennu nokkuð keimlik væntanlegri breiðskifu Spilverks þjóðanna. Upptakan er mjög góð og hljóðblöndun lika, eiginlega er það eina sem er neikvætt að minu mati hulstrið. Það minnir einna helst á ódýrar gamlar kántri plötur, eins og svo mörg önnur islensk hulstur. Hlið eitt nefnist „flugvélar” eftir fyrsta laginu á hliðinni. A þessari hlið er safn stuttra laga frumsamið og aðfengið. A hlið tvö er svo fyrsta (að þvi er mig minnir) heilsteypta poppverkið sem nefnist „Sólarhringurinn”. Flugvélar Flugvélar, (Halldór Gunnars- son/Hannes Pétursson), fyrsta lagið er það lag sem maður gripur fyrst á þessari plötu af frumsömdu efni. Lagið er gull- fallegt og einfalt, textinn ó- venjulegur og góður, eftir Hannes Pétursson. I)ufl og dans (Donovan/Val- geir Sigurðsson). Reyndar er hvorki lagið né textinn eftir Donovan, heldur eftir Sidney Carter og heitir á frummálinu „Lord of the Dance”. Þetta er ekki fyrsta lagið sem Þokkabót tekur af hinni frábæru plötu Donovan’s „H.M.S. Donovan”. Textinn er mikið til bein þýðing, nokkuð góð sem slik. Þetta lag verður Iiklega vinsælt óskalag. Möwekvæði (Magnús Einars- son/ Þórarinn Eldjárn) Þórar- inn hefur gert nokkuð að þvi að semja góð ljóð, og er Möwe- kvæði engin undantekning. Kvæðið er heil 11 erindi full mikið mál væri að fara út i út- skýringar á þvi, enda treysti ég mér ekki til þess. Kvæðið er til- einkað fórnarlömbum Möweof- sóknanna á íslandi. Lagið sem er samið við kvæðið er mjög gott sem slikt og textinn heldur samt takinu. Þrælgott. „Sveinbjörn Egilsson” („Gylfi Gunnarsson/Þórarinn Eldjárn). Mjög jazzað lag, mjög gott, skemmtilegur bassaleikur Magnúsar Einarssonar góður texti Þórarins enn einu sinni. „Miðvikudagur” (Ingólfur Steinsson/Steinn Steinarr) Ljóð Steins er frábært að sjálfsögðu, sáum við ekki i fréttum fyrir skömmu ,,i morgun var haldið uppboð á éignum manns, sem átti ekki nóg fyrir skuldum”. Mansöngur (Donovan/Hall- dór Gunnarsson) Skemmtilegur texti Halldórs og tungulipurð aðalraddarinnar afsaka fylli- lega þá staðreynd að þetta er annað lag Donovans (?) á plöt- unni. Á frummálinu heitir lagið Maria Magenta og er á LP plöt- unni „Cosmic Wheels”. Skemmtilegur flutningur. BÆTIILíULIll 4WA NYJAR HLJÓM- PLÖTUR V Við Austurvöll (Jón Asgeirs- son/Jónas Arnason) Jazzaðasta lag plötunnar og ansi likt Spil- verkinu. öfugmælavisu Jónasar dæmi ég ekki en lagið og útsetn- ing er bæði fyrsta flokks. Unaðsreitur (Magnús Einars- son/Halldór Gunnarsson) Jazz lag, fyrsta flokks. Textinn er einn af betri klámtextum, sem ég hef heyrt lengi og flutningur allur vél við hæfi. Sólarhringurinn a) Morgunn (Ingólfur Steins- son/Halldór Gunnarsson) Verk- ið allt er skemmtilega þætt sam an og byggt upp. Textinn i Morgunn er myndrænn og eins lagiö, og fellur vel að nafninu. b) Dagur (Magnús Einarsson/Ingólfur Steins- son/Halldór Gunnarsson). Dag- urinn lýsir aftur á móti fremur dagrenningu en degi, ætti að vera llflegri en lagið er gott. Reynir nýtur sin hér enn á vibrafóninum. c) Kvöld (Halldór Gunnars- son) Frábært lag og lýsir vel venjulegu sumarkvöldi (úti á landi) pianóleikur Halldórs Gunnarssonar er fallegur. d) Vögguvisa (útsetning Magnús Einarsson) stutt vögguvfsa, tengiliður. e) Nótt (Ingólfur Steins- son/Halldór Gunnarsson). Fall- egt næturljóð, mjög vel spilað, sérstaklega er flautan áheyri- leg, enda oft notuð i slikum lög- um. Á eftir Nótt kemur svo nokk- urs konar „jam-session”, temprað og stilhreint. Reynir Sigurðsson og Ingólfur Steins- son eiga mestan leikinn auk Eggerts Þorleifssonar á flaut- unni. Það sem laðar mig helst að þessari plötu er hve vel hún er leikin, vel upptekin og frágeng- in, tónlistin er mjúklega jazz- kennd, textarnir vel fyrir ofan meðallag. Aðstandendur allir mega vera hreyknir af. Nú hlýtur Spilverksplatan að fara að koma'. Spáö hefur veriö að nú fyrir jól- in komi til með að vera gefnar út allt að 20 hljómplötur, hér á is- landi. Er þá nokkuð liklegt að stór hluti af þessum 20 (scm gætu orð- ið fleiri) plötum komi til með að sökkva i flóöinu. En cf þessar plötur vcrðagóðar yfir höfuð þá býst ég nú við að þær beri sig, en sala þeirra komi þá niður á er- lendunt hljómplötum, en á þessu ári hafa ekki komið neitt sérlega inargar góðar erlendar hljóm- plötur. Einnig er mögulciki að það kæmi niður' á bókasölu, þar sem bækur eru orönar æriö dýrar. Hvað um það þeir sem hafa stefnt að hljómplötuútgáfufyrir áramót eru fyrst Spilverk Þjóð- anna, en stórgóð breiðsk. þeirra hefur gengiö i gegnum margt erf- itt á leið sinni i pressun og Flug- leiði, einungis smáhluti af upp- laginu er enn komin til landsins og kom hingað frá Kaupmanna- höfn, en hvernig hún komst þang- að vita fáir. Platan var pressuð af Pye, en þeir pressuðu einnig Stuömannaplötuna. Liklegt er nú að platan fari að sjást i búðum. Lögin á plötunni eru: hliö 1: Muse / Plant No Trees In The Garden / Lazy Daisy / Lagið sem hefði átt að vera leikið.... / Of My Life / Going Home, og á hlið 2: The Lemon Song / Snowman / Ice- landic Cowboy/L’ésclaier / Six Pence Only / Muse / Old Man. Plötuna mun Steinar Berg gefa út i félagi við aðra. Annað efni frá Steinari, sem nú hefur stofnað hljómplötuútgáfu ásamt m.a. Ólafi Þóröarsyni: Steinar hf„ er plata Þokkabótar sem tekin er fyrir hér á siðunni, breiðskifa með Hljómsveit Ingimars Eydal og önnur með japanska orgelíeik- aranuin, sem kennir hér á Yama- ha orgel. A plötu þessari mun hann leika innlend lög, svo sem „Litla flugan”. Amundi Ámundason mun ætla sér að gefa út allt að fjórar breið- skifur, Hrif 2, en á henni verða lög með Jakob Magnússyni, Nunnun- um, Bergþóru Árnadóttur frá Þorlákshöfn, Pónik og Þorvaldi og Spilverk þjóðanna, hljomsveit Ýr, sem fór til New York að taka upp sina plötu (LP) undir umsjá Jakobs Magnússonar, kemur með sina fyrstu. Þessar tvær áttu reyndar að koma út i sumar. ÁÁ verður einnig meö breiskifu frá Olgu Guðrúnu. Um aðrar nýjung- ar vildi Amundi ekki uppljóstra. Demant hf. er þegar búið að gefa út 3 litlar plötur, með Eik, Bjarka Tryggvasyni og Megas, sem verða að teljast til jólamark- aðarins. Annað hjá þeim er varla nema Change, en þeir voru búnir að gera ráð fyrir 2 plötum, stórri og litilli, fyrir áramót. „Wild Cat” átti litia platan að heita og stóra platan átti að koma i október. Svo gæti verið að Jakob og White Bachman Trio kæmi sinni breiðskifu á jólamarkaðinn, auk þess sem önnur litil plata var tekin upp i byrjun árs:. „Where Were You” og „Moving On”. Al- bert Albertsson átti lika að hafa tekið eitthvað upp i London i sum- ar, minnir mig. Hljómar hf. koma allavega út plötu Gunnars Þórðarsonar fyrir jólin, en hann er auk þess væntan- legur til landsins sjálfur. Lónli Blú Bojs eru búnir að taka upp breiðskifu og býst ég jafnvel við þvi að hún komi út fyrir jól, en Húnar Júliusson framkvæmda- stjóri hefur verið utan um hrið vegna þessara mála, svo ég veit ekki mikið meira um þeirra út- gáfur. ^-Fálkinn hf mun allavega gefa út plötu Hljómsveitar Pálma Gunnarssonar, og ekki veit ég hvort Sun Records gefa nokkuð út. Svavar Gests, sem sett hefur sér þá sérstöðu að láta ekki dæma plötur sinar, kemur eflaust með nokkrar plötur fyrir jólin. Annað sem væntanlegt er, er tii dæmis smáskifa frá kvartettinum Pelican „Aðeins eina nótt” sem mér skilst að enn hafi ekki verið tekin upp, Júdas eru búnir með sina breiðskifu ekki alls fyrir löngu, Litið Eitt er væntanlegt á breiöskifu innan skamms, Döggin á eitthvað upptekið siðan i sumar, sem gæti komið út þrátt fyrir mannaskiptin hjá þeim. Jóhann G. Jóhannsson tók eitthvað upp i sumar lika. Hjörtur Blöndal og Kjartan Eggertsson gefa út breiðskifuna „Afram Stelpur” og smáskifu með Hirti sjálfum. Árni Johnsen er búinn að taka upp plötu (LP), Sigrún Harðardóttir og Axel Einarsson hafa lika tekið upp sitt hvora breiðskifuna. Og aldrei er að nema Tónaútgáfan á Akureyri gefi eitthvað út. Svo var tekin upp önnur plata með Fjórtán Fóstbræðrum i sumar. kannski kemur hún út núna. Þar fyrir utan verða aðrar plötur þessa árs flestar á markaðinum um jólin, en fregnir af nýjum „jólaplötum” hef ég engar. Paradís í Austurbæjarbíói næsta laugardag kl. 2. Paradis, sem eru nýkomnir að utan eftir að hafa keypt sér ljósa,,show” og föt (!) ætla sér að halda skemmtun i Austur- bæjarbiói næstkomandi laugar- dag 22. nóvember ásamt Halla og Ladda, Halfbræðrum, Baldri Brjánssyni, og Asláki (misjafnt fylgarlið það). Hefst skemmmt- unin klukkan tvö eftir hádegi. Er ég spurði Pétur Kristjánsson (þ.e. „Pétur i Pops”) um það hvort þeir hefðu ekki tekið eitt- hvað upp á band i London, kvað hann nei við, en bjóst hins vegar við þvi að samningar yrðu gerð- ir við visst útgáfufyrirtæki á næstu vikum, og ef úr þvi yrði færu þeir liklega út til upptöku i febrúar eða mars. Hér hefur Pétur liklega átt við Hljoma hf. ég álykta það allavega.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.