Þjóðviljinn - 30.03.1976, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 30.03.1976, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 30. mars 1976 Höskuidur Skarphéöinsson skipherra. — Myndirnar á siöunni tók skipverji um borö IBaldri. Mönnuöum byssum beint aö Baldri eftir aö fjórum sinnum hafði verið siglt á skipið A laugardaginn átti varöskipiö Baldur I erfiöum leik á miöunum fyrir Norðausturlandi, er freigátan Diomede geröi yfir 20 ásiglingartilraunir á þaö, og tókust 4 þeirra. Þar meö er þó ekki öll sagan sögð, þvi aö tvö herskip og tveir dráttarbátar eltu Baldur alveg inn aö 12 mflna mörkunum ásamt tveim dráttar- bátum, og var þaö greinileg ætiun bretanna aö ganga a.m.k. þannig frá Baldri aö taka þyrfti hann i slipp eins og Diomede sem skemmdist mikiö viö ásiglinguna. Skemmdir á Baldri uröu mun minni en þó verufegar, en enginn maöur meiddist. Þjóöviljinn náöi i gær tali af Höskuldi Skarphéöinssyni skipherra á Baldri, en hann var þá á Seyðis- firöi þar sem veriö var aö gera við skipið. Gerði hann þá ráö fyrir aö fara aftur út I gærkvöldi. Koma Baldri a.m.k. i slipp. Það er eiginlega ekki hægt aö gera lengur upp á milli þessara ásiglinga bretanna á varðskipin, hver sé alvarlegust og ósvlfnust. Þær eru allar á þvi stigi að lengra finnst manni varla hægt að ganga i óþverraskapnum, segir Höskuld- ur. Það verður þó að teljast meö þvi svartasta sem sést hefur núna, að hóta skothrið og vera með beinar ráðagerðir um að ganga þannig frá varðskipinu, að þaðyrði ekki til nota, eins og kom fram i orðaskiptum herskipanna og dráttarbátanna er við vorum á leið i land. Þá fékk Lloydsman það hlutverk að koma okkur a.m.k. i dráttarbraut, eins og Diomede verður að fara, og her- skipin áttu að tef ja för okkar svo, að hann næði okkur. Frá þessu sluppum við hins vegar með þvi að beita öllum okkar ráðum og slá ekkert af umfram það sem bráðnauðsynlegast var. Viö urö- um t.d. að taka sem allra minnst- ar beygjur, þvi aö i þeim missum við ferðina og ná nálgaðist Lloydsman ætið. Byssurnar mannaðar Byssurnar á Galatheu voru mannaðar og eldflaugapallarnir lika og allt skotliðið herklætt með hjálma og asbesthlifar fyrir and- liti og niöur um brjóst og hanska úr svipuðu efni. Það leyndi sér þvi ekkert að þeir voru tilbúnir að hefja skothrið, og við sáum þá hlaða byssurnar. Okkur var lika tilkynnt að „frekari áreitni af okkar hálfu gegn breskum þegn- um á úthafinu yrði ekki liðin leng- ur heldur gripið til viðeigandi ráöstafana”. Heiftúðugar ásiglingar Eins og áður er sagt hafði Diomede siglt fjórum sinnum á varðskipið áður en eftirförin i land hófst. Við báðum Höskuld að lýsa ásiglingunum. — Við vorum á leið að togurum þarna austur af Langanesi, stór- um hópi, og Diomede geröi alls 20 ásiglingartilraunir þar sem fjór- ar heppnuðust. Fyrst kom hún á bakborðshlið Baldurs og lagði inn brúarvænginn auk þess sem glufa kom niður i Ibúð mina. Hún kom eiginlega af þvi að skipið er svo sterkt, að i stað þess að bogna gengu stoðirnar niður I gegnum þilfarið. Hinar þrjár ásiglingarnar voru svo á okkur stjórnborðsmegin. Þá kom akkeri freigátunnar i miðgálgann, en þegar við sveigð- um undan kom hornið á Baldri á kinnung Diomede, þar sem komu 3 göt. Freigátuforinginn æstist allur við þetta og kom næst að okkur mjög þvert, eða undir ca, 70 gráðu horni. Við sveigðum náttúrlega undan, en hraðamun- ur skipanna var svo mikill að við sluppum ekki, heldur kom hann á miðsíðuna og skemmdi hana alla frá krana og aftur að miðgálga og lagði þar inn lunn- inguna. Við þessa ásiglingu komu nokkur smágöt á freigátuna. 1 siðustu ásiglingunni var freigátu- foringinn orðinn svo vondur að hann hefur alls ekki gætt sin heldur kom þannig að okkur að þegar við beygðum frá, kom hann á stjórnborðshorniö, sem stakkst inn i sfðuna og reif þar i sundur bönd. Kom þá 5—6 m rifa á Diomede sem er um 1 1/2 m á breidd. Hún er um milliþilfariö svo að við sáum inn i ibúðir fyrir ofan,en tanka eða vélarúm fyrir neðan. Baldur skemmdist hins vegar furðu litið við þennan harða áreksturi á hann kom eitt smá- Framhald á bls. 14. # Tvö herskip og tveir dráttarbátar eltu varðskipið inn að 12 mílna mörkunum í þeim tilgangi að gera það ósjófært. #Allirsluppuómeiddir og fór Baldurá miðinígær

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.