Þjóðviljinn - 29.04.1976, Side 1
UOWIUINN
Fimmtudagur 29. apríl 1976 —41. tbl. 92. tbl.
Ragnar Arnalds á al þingi:
„Eruin neyddir til
að þjóna bretum”
— segja loýtskex ta-
menn
SJÁ BAKSÍÐU
SVIKIN LOFORÐ í
LANDHELGISMÁLINU
Forsendur þýsku
samninganna
brostnar
,, Hitt bréfið er um að
framkvæmd samkomu-
lagsins megi fresta, ef
bókun nr. 6 við samning (s-
lands við Efnahagsbanda-
lagið hef ur ekki tekið gildi
innan 5 mánaða, og mundi
það m.a. hafa í för með
sér, að hólf það undan
Vestfjörðum, sem ég
nefndi áðan, mundi ekki
opnast, ef slík f restun á sér
stað.
— Og það er fullur ásetn-
ingur ríkisstjórnarinnar,
að nota þá heimild til
frestunar, sem hér um
f jallar."
Á þessa leiö mælti Einar
Agústsson, utanrikisráöherra viö
umræður á alþingi þann 26. nóv.
s.l., þegar rætt var um samkomu-
Ragnar Einar
lagiö viö þjóöverja um veiöar i is-
lenskri fiskveiðilandhelgi.
Ragnar Arnalds, formaður Al-
þýöubandalagsins kvaddi sér
hljóös utan dagskrár á fundi efri
deildar alþingis i gær i tilefni
þess, aö nú hefur rikisstjórnin
hlaupiö frá öllum fyrri yfirlýsing-
um varðandi frestun fram-
kvæmdar á samkomulaginu viö
v-þjóöverja nú að fimm mánuð-
um liönum, þótt bókun 6 hafi alls
ekki komið til framkvæmda.
Ragnar minnti m.a. á fyrri orö
og yfirlýsingar ráðherranna og
þingmanna stjórnarflokkanna,
svo sem þá yfirlýsingu utanrikis-
ráðherrans, sem vitnað var til hér
að framán. Rikisstjórnin þykist
nú ætla að biðja þjóðverjana um
„V ísvitandi
LYGAR”
segir Herbert Benjaminsson skip-
stjóri á Bjarti um viðbrögð Gœsl-
unnar við fréttum af
veiðiþjófnaði þýsku togaranna
Viðbrögð Morgunblaðsins við
fréttum Þjóðviljans af veiðiþjófn-
aði þýskra togara á friðaða hólf-
inu f Berufjarðarál hefa vakið
undrun og reiði austfirskra
togarasjómanna. Blaðið kepptist
við það á sunnudag og þriðjudag
að gera togarasjómenn-ómerka
orða sinna og vitnaði i þvi skyni i
forráðamenn Landhelgisgæsl-
unnar og vestur-þýska sendiherr-
ann.
Þjóöviljinn náði tali af Herbert
Benjaminssyni skipstjóra á
Bjarti i gær þar sem hann var að
veiðum á Digranesflaki. Hann
sagði að hann og starfsbræður
hans væru orðnir ansi þreyttir á
þessu, það væri allt borið til baka
sem þeir segðu.
— Þú mátt hafa það eftir mér
að það sem þeir hjá gæslunni
segja um þetta mál eru visvitandi
lygar. Þeir halda þvi fram að við
þekkjum ekki i sundur varðskip
og togara og segja að það hafi
veriðdimmviðri og þoka. betta er
hreint bull þvi umrædda nótt var
tiu milna skyggni.
Svo var heldur ekki um eina
nótt að ræða þvi við höfðum séð
þá i 2-3 nætur áður, eina fimm
togara. Þeir mokuðu þarna upp
fiskinum og skutust svo
út þegar þeir töldu að hætta væri
á ferðum. Þetta er allt satt og rétt
og maður á ekki eitt einasta orð
yfir viðbrögðum Gæslunnar.
Þá eru þeir ekki betri hjá
sjávarútvegsráðuneytinu og á ég
þá við það þegar þeir opnuðu hólf-
ið aftur. Ég var að þvælast þarna
við hólfið þann 26. mars og frétti
þá eftir krókaleiðum að hólfið
hefði verið opnað viku áður. Allan
þann tima höfðu þjóðverjarnir
mokað þarna upp fiski. Ég get
nefnt dæmi af einum sem fékk 250
tonn á einni viku. Þegar við kom-
um var allur fiskur að verða bú-
inn, við rétt náðum i restina á
þessu.
Maður er ógurlega sár út af
þessu. Eins og allir vita höfum við
varla getað komið trolli i sjó i all-
an vetur vegna bretanna og svo er
komið svona fram við okkur.
Þetta er alveg svakalegt, sagði
Herbert að lokum.
— ÞH
Einar Ágústsson á forsíðu Tímans í gær:
99Og það er fullur ásetningur
rikisstjórnarinnar að nota
þá heimild til frestunar, sem
hér um fjallar”
Einar Ágústsson á alþingi 26. nóv. 1975 í umræðu um
þýsku samningana:
„Samningurinn við v-þjóðverja
gildir eitthvað áfram!!
Skemmdirnar á stefni Nyads eftir áreksturinn við Tý um helgina.
Mynd Sófus.
A Seyðisfiröi voru skemmdirnar á Tý kannaðar. Mynd: Sófus — Sjá
nánar á baksföu.
greinargerð um málið og telur sig
alls ekki geta staðið við fyrri yfir-
lýsingar, þar sem slika greinar-
gerð skorti. Ragnar Arnalds
krafðist þess, að þvi yrði svarað
fyrir hönd rikisstjórnarinnar af-
dráttarlaust, hversu langur þessi
nýi frestur ætti að vera.
Svör ráðherranna, þeirra Geirs
Hallgrimssonar og Einars
Agústssonar, voru einskis virði, —
aðeins óljóst tal um einhverjar
vikur.
Ragnar Arnalds krafðist einnig
svara við þvi, hvernig háttað væri
eftirliti með aflamagni þýsku
togaranna, en ráðherrarnir höfðu
engin svör að gefa i þeim efnum.
Þá lagði Ragnar þyngstu
áherslu á þá skyldu rikisstjórnar-
innar að standa viö orð sin i þess-
um efnum, eða gera frambæri-
lega grein fyrir breyttum for-
sendum ella. Akvæðið um frestun
framkvæmdar samkomulagsins
að 5 mán. liðnum, væri bókun 6
ekki enn komin til framkvæmda,
hafi samkvæmt yfirlýsingum
margra þingmanna verið for-
senda þess. að þeir greiddu at-
kvæði með samningunum fyrir
fimm mánuðum. — Nú væri þessi
forsenda lika brostin.
Slikt brotthlaup frá fyrri hátið-
Framhald á bls. 14.
Nýjar
skatta-
álögur á
næsta leiti
Þjóðviljinn hefur nú um það
öruggar upplýsingar, að
siðustu daga hefur mikið verið
rætt i þingflokkum stjórnar-
flokkanna um nýjar skátta-
álögurá almenning, og má bú-
ast við að stjórnarfrumvarp
um verulega nýja tekjuöflun
fyrir rikissjóð verði lagt fram
næstu daga.
Enn er ekki ljóst, hvað hér
verður um miklar upphæðir að
ræða, en vitað er, að ráð-
herrarnir telja nú að þvi fari
fjarri að sú tekjuöflun, sem
gert var ráð fyrir á fjárlögum
dugi.
1 umræðum innan stjórnar-
flokkanna hefur verið um
nokkurn ágreining að ræða
varðandi það hversu langt
skuli ganga. og hvernig skatt-
lagningunni skuli haga, og
þess vegna m.a. er nú sýnt að
rikisstjórninni tekst ekki það
áform sitt, að lögfesta hinar
nýju skattaálögur fyrir bar-
áttudag verkalýðsins þan 1.
mai sem er á laugardaginn
kemur.
Að öllum likindum verður þó
hér aðeins um fárradaga frest
að ræða, þvi að þinglið
st jórnarinnar hefur orðið
býsna góða æfingu i að kyngja
þvi sem að mönnum er rétt.
Hækkaður söluskattur, eða
aðrir óbeinir skattar eru helst
til umræðu.