Þjóðviljinn - 29.04.1976, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 29. apríl 197«
Félagsmálanámskeið
Dagana 3. 4. og 7. april sl. fór
fram á vegum iþróttabandalags
Hafnarfjarðar félagsmólanám-
skeið.
Aðstoð og stuðning við nám-
skeiðshaldið veittu Iþróttasam-
band tslands og Æskulýðsráö
rikisins, og mættu fulltrúar
þessara aðila bæði við setningu og
slit þess. Formaður IBH, Sveinn
Guðbjartsson, setti námskeiðið
og bauð þátttakendur, kennara og
gesti velkomna. Jafnframt kynnti
hann aðdraganda og tilgang nám-
skeiðisins og lagði rika áherslu á
að allir hefðu þörf fyrir að læra að
kunna, sem best skil á þeim
atriðum er lúta að uppbyggingu
og stjórnun félags auk þess að
geta tjáð sig á mannamótum og
við þau tækifæri, sem nauðsyn
bæri til.
Forseti tSI, GIsli Halldórsson,
formaður fræðslunefndar ISt,
Hannes Þ. Sigurðsson og Æsku-
lýðsfulltrúi rlkisins, Reynir
Karlsson, lýstu ánægju sinni með
að námskeiðiö skyldi haldið.
Kváðust og binda vonir við að
með þessu framtaki tBH yrði enn
frekari félagsleg þjálfun á vegum
iþróttabandalaga, sérsambanda
og annarra er að iþróttastarfi
vinna hrundið af stað.
Þátttakendur, sem sóttu nám-
skeiðið, voru 20, frá þeim 7
aðildarfélögum, sem standa að
ÍBH. Kennari var Jóhann Geir-
dal. Námskeiðinu var slitiö meö
kaffisamsæti I Skiphóli og fluttu
þar kveðjur og árnaðaróskir,
Hermann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri tSt, en hann átti
virkan þátt i þvi að ýta nám-
skeiðinu úr vör og ennfremur
Hannes Þ. Sigurðsson, form.
fræðslunefndar tSI. Form. IBH
þakkaði siðan öllum er lögðu hönd
á pióginn við þetta verkefni og
bar fram þær óskir stjórnar ÍBH
að árangur skilaði sér i aukinni
þekkingu innan félaganna á
stjórnarstörfum. Þess má geta að
það var einróma álit þátttakenda
að námskeiðið hefði tekist vel og
bæri að halda fleiri slik á heppi-
legum tima.
A meðfylgjandi mynd, sem tek-
in var viö upphaf námskeiðsins,
en það var haldið i húsnæði öldu-
túnsskóla, eru þátttakendur
ásamt forseta ISt, Gisla
Halldórssyni, form. fræðslu-
nefndar ISI, Hannes Þ. Sigurðs-
syni, Æskulýðsfulltrúa ríkisins,
Reyni Karlssyni, Jóhanni Geir-
dal, kennara og form. IBH, Sveini
Guðbjartssyni.
i\Iynd úr sýningu LA á Umhverfis jörðina á 80 döguin. Það er Phiieas Fogg sem blæs á byssuhlaupið.
Umhverfis jörðina
frumsýnt á Akurey
A morgun, föstudaginn 30.
april, frumsýnir Leikfélag Akur-
eyrar leikritið „Umhverfis
jörðina á 80 dögum” eftir Bengt
Ahlfors, og er það byggt á hinni
heimsfrægu skáidsögu Jules
Verne. Þetta er I fyrsta sinn aö is-
lenskt leikhús sýnir „Umhverfis
jörðina”, en áður hefur þaö verið
flutt af Lilla Teatern frá Vasa i
Finnlandi i Norræna húsinu I
Reykjavfk. Einnig hefur það
verið flutt sem framhaldsleikrit i
útvarpi.
Leikfélag Akureyrar ræðst hér i
stórvirki. Persónur eru 34,
sýningin umfangsmikil tækni-
lega, örar tækni- og sviðs-
skiptingar, búningar margvis-
legir og vandaðir, leikurinn fer
fram á 39 stööum og innkomur
fyrir músik og leikhljóö yfir
sjötiu.
Gervi hinna ýmsu þjóöa og
manngerða sem i leiknum koma
fram eru einnig vandasöm og
þurfa að gerast hratt, þvi aö
margir leikaranna fara með fleiri
en eitt hlutverk.
Þýðingu leikritsins geröi Ey-
vindur Erlendsson sem jafnframt
er leikstjóri og hefur hannaö leik-
myndina með hjálp Hallmundar
Kristinssonar. t helstu hlutverk-
um eru Gestur E. Jónasson, sem
leikur Mr. Phileas Fogg, Aðal-
steinn Bergdal, sem leikur Passe-
partout, Þórir Steingrimsson,
sem leikur Fix leynilögreglu-
mann, og Saga Jónsdóttir sem
leikur Mrs. Aoudu.
Sýningum verður hraðað eftir
föngum þar eð L.A. hyggur á leik-
ferð um Suður- og Austurland I
vor, væntanlega með Kristnihald
undir Jökli. Auk þess stendur
fyrir dyrum að leika Glerdýrin á
listahátið og taka Rauðhettu upp
á plötu.
Fyrstu sýningar verða á föstu-
dag og sunnudag.
Vandalítið
að gera út
á þorskinn
einan
i ferð blaðamanns og
Ijósmyndara um Njarð-
vfk/ Keflavík og Sand-
gerði sl. þriðjudag gaf
ýmislegt að líta ekki síður
en að heyra.
Meðal þess/ sem gaf að
sjá var fiskileysið. Um
það fengum við upplýs-
ingar hjá vigtarmanni
keflvíkinga/ Ingólfi Fals-
syni.
Þann 26. april, kvöldið áður en
við Þjóðviljamenn vorum á
ferðinni, var hæsti bátur með
12,7 tonn, sem ekki er sem verst,
en meðaltalið var mun lægra, og
lægsti bátur var með 1,5 tonn og
mun fleiri nær honum að afla-
magni en þeim hæsta. Þess ber
þó að geta hér og nú, að margir
Keflavikurbátar róa frá
Grindavik og afla meir og betur
og tala um aflabrögð þeirra er
ekki hér með færð.
A vertiðinni I ár hafa Kefla-
vikurbátar, þeir sem þar upp
leggja að staðaldri, 25—30 tals-
ins, aflað 5.060,3 tonn, en 7.823,1
tonn miðað við sama tima i
fyrra. 1 ár voru farnir 989 róðrar
en 1153 róðrar i fyrra. Þessar
tölur eru i gildi frá áramótum til
15. april. Hér er einvörðungu átt
viðnetabáta. Aflarýrnun nemur
þvl hvorki meira né minna en
■2.762,8 tonnum á þessum þrem
fyrstu mánuðum ársins.
Þessu til viðbótar lönduðu
togarar i ár 2.850 lestum i 33
löndunum, en i fyrra lönduðu
þeir 2.934 lestum I 28 löndunum,
þannig að ljóst er að togararnir
fá minni afla i styttri túrum i ár,
svo nemur um ellefuhundruð
lestum. Togararnir eru fimm
talsins.
Loðnuaflinn i ár varö einnig
minni i Keflavik en i fyrra. t ár
bárust á land 17.320 lestir, en i
fyrra bárust þar á land 18.824
lestir af loðnu.
Væri hægt með þorski
Meðal þeirra, sem við áttum
orðastað við, var Reynir Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Fisk-
miðlunarinnar og einn eiganda
Fiskverkunar Ólafs Lárussonar
i Keflavik.
Reynir sagði, að fyrirtækin,
sem I reynd eru þrjú talsins,
gerðu út þrjá báta og auk þess
hálfan togara á móti Sjöstjörn-
unni. Til frystingar færi aðal-
lega afli togarans og það sem
lifandi væri blóðgað af bátun-
um, en annað færi i söltun og
skreið.
A vertiðinni nú, sagði Reynir,
að bátarnir hefðu fengið um 1000
tonn. Af þessum afla heföu svo
sem 150 til 200 tonn farið i fryst-
ingu, en annað i salt og skreið.
Enda var ekkert tekið af þess-
um bátum i annað en i skreið og
salt meðan loðnuvertiðin stóð
yfir.
Hjá þessari fiskverkun mun
hafa verið sami bátafjöldi i
fyrra. Þá öfiuðu bátarnir um
1500 tonn á allri vertiðinni, og
sagði Guðjón að aflinn i ár yrði
verulega undir þyi sem var þá.
Guðjón sagði, að útgerðar-
menn hefðu ef til vill sungið
þann sama söng árum saman,
að þeir þyldu ekki það, sem á þá
væri lagt. Nú yrðu þeir að
stoppa. En gallinn væri sá, aö
útgerðarmenn væru ósamstæð-
ir; til dæmis hefðu útgerðar-
menn á Vestfjörðum og Aust-
fjörðum ávallt skotið sér undan
þvi að vera með I allsherjar-
stoppiútgerðarmanna,sem yröi
stofnað til, til þess að ná fram
betri útgerðarkjörum. Re'ynir
sagðist vegna þessarar reynslu
reikna með þvi áfram og að út-
gerðarmenn eystra og vestra
myndu skera sig úr aðgerðum
annarra útgerðarmanna, og
myndu t.d. útgerðarmenn á
Suðurnesjum þess vegna halda
áfram að gera út þótt enginn
grundvöllur væri fyrir þvi.
Reynir sagði að t.d. 100 tonna
karfaafli væri að verðmæti á að
giska 2,7 miljónir, en af sama
afla af þorski væri aflaverð-
mætið 6,7 miljónir. Nefndi
Reynir, að af afla togara þess,
sem Fiskmiðlun Suðurnesja
gerir út, Framtiðarinnar, hefði
á siðasta ári verið 44% karfi, um
40% þorskur og 26% aðrar fisk-
tegundir.
— Við verðum á næstu 3—7 ár-
um að takmarka þorskveiðarn-
ar. Jafnframt verðum við að
bæta verðið á verðminni teg-
Framhald á bls. 14.
Verðum að yfirbjóða
herinn með vinnuafl
Við spurðum Reyni Ólafsson að þvi hvort erfitt
væri að fá verkamenn til fiskvinnslustarfa.
Reynir sagði: Það er oft erfitt. Um leið og
framkvæmdir hefjast hjá hernum á vellinum
þyrpast menn þangað uppeftir. Til þess að halda
mönnum verðum við að yfirbjóða þá. Við eigum i
ójafnri samkeppni við herinn um vinnuafi.
-úþ