Þjóðviljinn - 04.07.1976, Síða 10

Þjóðviljinn - 04.07.1976, Síða 10
10 SÍPA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. júli 1976 Bandarísk menning eða „eitthvað fyrir alla” Margt misjafnt hefur verið sagt um banda- riska menningu, sem oftlega er kennd við fjölda eða færiband eða þá neyslu. Hún kom til Evrópu með Hollywood- kvikmyndum, kvik- myndageddum, reyfur- um, vegavinnuvélum, tyggjó, lcóki, gallabux- um, skyrtubolum, djassi, Hemingway, Spiilane — hve lengi er ekki hægt að halda á- fram upptalningu á skyldum og óskyldum fyrirbærum? Evrópu- menn fengu þessa strauma alla yfir sig, einkum eftir strið, þeir fyrirlitu þessa menn- ingu margir hverjir, en liktu eftir henni eins og þeir frekast máttu. Óbundin og söluleg Þetta var menning sem ekki blygðaðist sin fyrir það að koma einatt fram i formi iðnaöarfram- leiðslu. Hún gerði sér engar grill- ur af fyrra menningarmati og setti — til ills og góðs — sölu- möguleikana og skemmtunina öliu ofar. Hún braut niður ýmis- leg landamæri — gat veriö til jafnt i tónleikasal sem i kók- flösku. Meö hinum nýja goð- sagnaheimi filmstjarna og slag- arastjarna var breitt út siðgæði sem sýnist mjög þverstæðufullt: réttur hins sterka og hugmyndin um að „allir erum við eins”. Raymond Chandler, reyfara- höfundur bandariskur, lét einu sinni i ljós vantrú á hinni evrópsku trú á hinn óvinsæla snilling. Hann sagöi aö Shakes- peare hefði gert það gott hvenær sem vera skyldi, einnig i dag. Hann hefði sjálfsagt skrifað núna fyrir kvikmyndir eða þá Broad- wayleikhúsin. Hann heföi ekki sagt: fjölmiðillinn er slæmur, heldur hefði hann notað hann og endurbætt. Eitthvað svipað bandariskt við- horf kemur fram hjá bandariska popplistamanninum Claes Olden- burg: Ég vil list sem ekki bara situr á rassinum á listasafni, heldur list sem maður getur bor- að meö upp i nefið á sér. Draumafabrikkan Hollywood, kvikmyndir þaöan, hafa orðið einskonar samnefiiari þess sem menn hafa viljaö kalla bandariska menningu. Um 1910 byrjaði bandarfskur kvikmynda- iönaður að flytjast vestur þangað, ekki sist vegna þess að þar I Kali- forniu var jafnan mikið sólskin og landslag nærtækt til margvisleg- ustu hluta. Hollywood óx jafnt og þétt, og 1927, þegar timi þöglu myndanna var á enda, þá unnu þar um 25 þúsund kvikmynda- menn. Framleiðslan var I anda stöðlunar og hagræðingar iönaö- arins, henni fylgdi ágengur aug- lýsingamórall eins og bilum eöa gotterii. Snemma einkenndist Hollywood af þaulræktun tiltek- inna og auöskilinna tegunda mynda, sem i senn endurspegluðu drauma neytendanna og stýrðu þeim. Til varö kábojmyndin, glæpamyndin, risamyndir á borö við Ben Húr, sykursæta fjöl- skyldumyndin, táraflóösmyndin o.s.frv. Marilyn Monroe: kóngar lýöveldisins High Noon: kábojmyndin Hómerskviður samtimans? Heimur Disneys: ekki ömmusögur Þessar kvikmyndategundir Hollywoods eru meö sérstæðum hætti draumasmiði i trássi viö hversdagsleikann, draumaráðn- ingar á liðnum veruleika. Dýrkun Villta vestursins hefst þegar Bandarikin eru orðin háþróað kæliskápasamfélag, „hesta- ópera” kábojmyndanna var spil- uð fyrir fólk sem siöar meir fór ekki út úr bilunum, heldur sat i þeim I bilabióunum. Farsæll end- ir, happy end, vinsælasta upp- finning Hollywood, var lika eins og endurómur af fyrirheitum Nýjaheimsins um hamingju, um „hamingjuleit” þá sem allir hafa rétt til samkvæmt stjórnarskrá. Hómerskviður samtimans 1 glæpona- og kábojmyndum, sem sumir hafa tahð merkustu sköpunarverk þessa iönaðar, hef- ur Hollywood einnig lagt sitt fram til sögutúlkunar. Þær fjalla I si- fellt nýjum tilbrigðum um ofbeldi einstaklingsins, sem á hendur að verja og um ofbeldi samfélagsins, sem nær hámarki bæði I einstakl- ingnum og öflum andsnúnum honum. Þær rómantiseruöu land- námið, réttlættu útrýminguhinna „blóöþyrstu” indjána, staðfestu púritanskarhugmyndir um konur og kynlif, læddu að þeirri hug- mynd, að innst inni værum „viö” (þ.e. bandariskir hversdags- menn) meiri hetjur og réttlátari menn en „hinir”. En hvað sem annars má um kábojmyndirnar segja, þá hafa þær með klisjubomum lestarrán- um, griparekstri, indjánabardög- um, megnað að gefa hinu banda- riska samfélagi, sem var I þenslu fram á okkar öld, eigin goðsagna- heim, sem vel má bera saman viö Niflungaljóð, sögur af Artúr kóngi og hetju- og guöaheim Hómers. Kábojmyndin, með staðlaðri atburðarás sinni, er með sinum hætti stærst episkt af- rekinútimanum ogkábojinn hinn eini riddari samtimans sem ris undir nafni. Stjörnuheimurinn Ef við höldum áfram með slik- ar likingar: Með túlkun sinni á sókn landnema vestur á bóginn á sl. öld skapaði kábojmyndin Odysseifskviðu handa fjöldasam- félagi okkar tima. Og Hollywood kom einnig til móts við þarfir þessa samfélags fyrir nýjan stjörnuhimin. Hún skapaði nú- timahálfguði i sinni mynd kvik- myndastjarna. Og timi þeirra stóð lengi, það var ekki fyrr en Marilyn Monroe fannst dauð i rúmi sinu 1962, að þessu skeiöi var að mestu lokið. Stjarnan er arfur Hollywoods til 20stu aldar, segir breskur kvikmyndafræðingur. Hún stend- ur á stalii konungs i lýðræöislegu fjöldasamfélagi, sem i stjörnunni bæði dýrkar og litillækkar sjálft sig. Stjörnur voru búnar til með svipuðum aðferðum og velheppn- uð bilamódel. T.d. gerði miljörð- ungurinn og ævintýramaðurinn Howard Hughes það sér til skemmtunar að skapa kvik- myndagyðju I sinni óskamynd: Jane Russell með brjóstin miklu, sem mögnuð voru meö sérlega hugvitsamri gerð brjóstahaldara. Stjarnan var annarsvegar öll- um nálæg — á tjaldinu, I slUður- dáikum blaðanna, hún var fólki einnig staöfesting á þeim draumi að „allir hefðusjens” —eða höfðu ekki stjörnurnar einhverntima verið slrákar og stelpur i næsta húsi? Um leiö var stjarnan yfir alla hafin, fjarlæg i auglýstri heimsfrægö og auðæfum. Stjörn- urnar voru harðstjórar tilfinning- anna — en, vel á minnst, þær réðu litlu sjálfar um það hvernig sú haröstjórn var, þær voru tæki i höndum útsmoginna framleið- enda, sem vissu vei um hiö sef- andi hlutverk þeirrar drauma- veraldar sem þeir höfðu smiðaö. Teiknimyndirnar Teiknaðar sögur á tjaldi og heftum eru annað merkilegt framlag Bandarikjanna. A hverj- um degi sjá meira en 200 miljónir manna i 60 löndum afurðir hinna bandarisku teiknimyndahringa. Upphrópanamál þessara sagna (Wham!, Pow!) er orðið að eins- konar alþjóðamáli við hliðina á umf erðarmerkjum. Teiknisögurnar taka ævintýri sin úr bandariskum hversdags- leika og gera þennan hversdags- leika um leið að ævintýri, hvort sem er i formi gamansögu eða hetjusögu. Þær breiða út það sið- gæði að best sé að halda sig á mottunni, leita öryggis, eiga börn og buru. Þær eru myndadraumar sem ala börn upp til hinna litil- þægu lifsforma millistéttanna og til hins bandariska gæfúdraums. Og þær hafa með einföldum útlin- um staum og markvissri mynd- rööun oröið merkileg ögrun við marga listamenn samtímans. Teiknikvikmyndin fæddist áriö 1906, en vann sina stærstu sigra, eins og menn vita, I framleiðslu Walt Disneys. Bæðii hinum hraða hasar i kringum Mikka mús og Andrés önd og i disætum ævin- týramyndum eins og Bamba eða Mjallhvlt. Þetta er i senn túlkun á og smiði á draumaheimi barna 20. aldar, ótta þeirra og óskum. Þær eru ævintýri sem ekki geym- ast i alþýöuminni og er miölaö af ömmum ágætum, heldur eru framleidd af tæknivæddum starfshópum kvikmyndaveranna. Um leið eru þær deigla þar sem saman eru bræddar evrópsk þjóð- söguhefð og bandarisk tjáningar- aöferö. Gallabuxur Gallabuxurnar bláu, sem nú um hrið hafa verið einkennisbún- ingur æsku heimsins, eru eldri en kvikmyndir. Það var þýskættað- ur klæðskeri, Levi Strauss, sem fann þær upp og hafði þá aðeins hagnýt sjónarmið i huga. Hann kom til Kaliforniu árið 1850 á tim- um gullæöisins og hafði með sér mikið afsegldúk, semhann ætlaði itjöldog vagnþök. En þegarhann heyröi gullgrafarana kvarta sár- an yfir miklu buxnasliti datt hon- um það snjallræði i hug að breyta dúk þessum i brækur. Sfðan er langur timi liöinn. Dýrkun gallabuxna breiddist út að marki meö kúrekum og kú- rekamyndum, og hafa þær siöan verið tákn um frelsi og karl- mennsku. Margar fleiri túlkanir eru á gallabrókum: Einn skoðar þær sem staðfestingu á frjáls- mannlegum og opnum umgengn- isvenjum bandarikjamanna, sem frá upphafi voru lausir við allt aðalsstúss. Aðrir skoða þær sem tilræði við „verömætamat milli- stéttar”. Hreinlifi og synd 1 öllum kábojmyndum má sjá atriði sem þetta: A kránni þjóra nokkrir kábojar stift meöan aðrir delar spila póker um sihækkandi dollarabunka, á sviöinu sprikla tvær- þrjár syndsamlegar skvis- ur og kasta pilsum hátt. Þessi siendurtekni draumur, þar sem hversdagsmaðurinn baö- ar sig i þrefaldri bannhelgi (kyn- lif, alkóhól, fjárhættuspil), hefur reist heila borg I eyðimörkinni — Las Vegas I Nevada. Þennan ör- yggisventil i samfélagi, þar sem hefðir hreintrúarmanna, bibliu- beltisins, hafa lengst af leitast viö að halda stift á þvi hvað er synd og hvað ekki. Með tilheyrandi sið-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.