Þjóðviljinn - 04.07.1976, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 04.07.1976, Blaðsíða 23
Sunnudagur 4. júli 1976 þ.IOÐVILJINN — SÍÐA 29 óli var i fótbolta/ en svo sögðu hinir strákarnir aö hann væri ekki i fótbolta- búningi og þá fór hann að háorga. Stelpan er með blöðru. Hún var að leika sér i sand- kassanum og þá fór að rigna. Hún á langt heim og þarf því að vera lengi úti i rigningunni svo fínu fötin hennar blotna. Hún er í denímpilsbuxum og gulri peysu. Arna Einarsdóttir er 7 ára, en hún verður 8 ára 6. ágúst. Hún teiknaði þessar myndir handa pabba sínum af því hann gaf henni rússneska dúkku.Svona kúludúkku úr tré. Það er hægt að taka hana i sundur og þá er önnur minni innan í henni og svo önnur enn minni innan í þeirri svo eiginlega eru þetta þrjár dúkkur. Hann gaf henni lika kósakka. Kompan: Af hverju gaf pabbi þinn þér allar þessar dúkkur? Arna: Svo mér leiðist ekki að vera með honum i vinnunni. Kompan: Af hverju ertu með honum í vinnunni? Arna: Af því mamma er í útlöndum, en hún kemur í dag. Kompan: Þá verður gaman. Arna: Já, og um næstu helgi förum við í Munaðarnes. Ég hlakka svo mikið til. Það hefur nefnilega verið dálítið leiðinlegt í sumar síðan skólinn hætti og besta vinkona mín er í Gaut- landi. Þetta er hún Disa. Hún er svona f ín af því að hún er að koma úr afmæli. Fjóla dúkkan hennar, fékk að fara með í afmælisveisluna. Þessi stelpa er í berjamó. Það er svo gott veður, að hún ætlar að tina tvær fötur fullar. Systir hennar er með henni, en hún sést ekki á myndinni, þvi hún er langt inni i skóginum. Á trjánum vaxa epli. I bilnum er maður að aka úti í góða veðrinu. Hann ætlar upp í sveit með konu sina og börnin. Þau ætla að drekka úti i sólskininu. Sólin skin á græn trén og fallegu blómin. Skýin eru dökkblá. Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.