Þjóðviljinn - 04.07.1976, Page 22

Þjóðviljinn - 04.07.1976, Page 22
22 SÍÐA — I»J0ÐVILJ1NN Sunnudagur 4. júll 1976 Ekiö veröur um Mývatnssveit og vlöar. Sumarferð AB á Norðurlandi vestra 24.-25. júlí: Austurdalur Sprengisandur Bárðardalur—Krafla ÖUum er heimil þátttaka I þessari sumarferö Alþýöu- bandaiagsins á Noröurlandi vestra. Fariö veröur frá Varmahlfö laugardaginn 24. júli n.k. kl. 10. Þátttakendur koma til Varmahlföar aö morgni laug- ardags^ýmist I einkabilum eöa langferöabilum og veröur þaö skipulagt, þegar meira er vitaö um þátttöku. Fyrsti áfangastaöurinn er eyöibýliö Þorljótsstaöir I Vest- urdal, en þar veröur haldiö upp á hálendiö og ekiö um Reyöar- fell og Orravatnsrústir aö sælu- húsi viö Laugafell og siöan noröur Sprengisandsleiö niöur I Báröardal, þar sem gist veröur I tjöldum aöfaranótt sunnudags og efnt til kvöldvöku. A sunnudag liggur leiöin um Mývatnssveit, þar sem margt er aö skoöa og þaöan til virkjun- ar og jaröeldasvæöis viö Kröflu, en slöan veröur ekiö um Akur- eyri til Varmahlföar, þar sem leiöir skilja á sunnudagskvöld. Allir þátttakendur i feröinni þurfa aö hafa meö sér viðlegu- búnar og nesti til tveggja daga. Þátttökugjald veröur kr. 5.000,-, en þátttakendur yngri en 12 ára borga hálft gjald. Væntanlegir þátttakendur láta skrá sig og fá nánari upp- lýsingar hjá eftirtöldum: Hvammstangi: Þórður . Skúlason, Hvamms- tangabraut 19, slmi 1382. Blönduós: örn Kagnarsson, kennarabú- staö Kvennaskólans, simi 4249. Skagaströnd: Eövarð Hallgrimsson, Fella- braut 1, slmi 4685. Varmahllö: Hallveig Thorlacius, Mánaþúfu, simi 6128. Sauöárkrókur: Svava Hjaltadóttir, Ægisstlg 10, simi 5237. Hofsós: GIsli Kristjánsson, Kárastig 16, simi 6341. Siglufjöröur: Sigurður Hlööversson, simi 71406. Kjördæmisráö Alþýöubanda- lagsins á noröurlandi vestra. Bréf unglinga í Kópavogi til bæjar- stjórnar Kópavogs Kæra bæjarstjórn Ykkur rekur ef til vill i roga- stans viö aö sjá okkur öll saman- komin fyrir framan okkar ágæta ráðhús. Unglingavinnan i Kópa- vogi er komin hingaö til ykkar til að minna á að okkar starf er fyrirbæri sem á rétt á sér eins og annað. Þaö tók nógu langan tima að berjast fyrir þvi að Unglinga- vinnan tæki til starfa, i fyrsta sinn, en þessi vinna er svo van- metin að mönnum blöskrar. Jafn- vel aðrir bæjarstarfsmenn sýna okkur aigjört tillitsleysi. Hér skal nefnt eitt dæmi: Þrir starfsmenn Unglingavinn- unnar voru að laga og hreinsa gangstig sem gjörsamlega var ó- hæfur til notkunar gangandi fólks. Stigurinn er I fjórum hlut- um og skilja algjörlega ónýtar tröppur hlutana að. Það tók starfsmennina þrjá daga að laga til aðeins efsta hlutann en hann var allur niðursiginn eftir vatn sem rann af götunni fyrir ofan. Þegar starfsmennirnir voru að byrja á öðrum hluta gangstigsins, kemur veghefill á vegum bæjar- ins sem var að skafa göturnar. Beint fyrir framan gangstiginn er stór pollur. An hiks rennir hefill- inn sér yfir piollinn af mikilli kunnáttu. Ekki er aö sökum að spyrja. Vatnið úr pollinum fossar niður stiginn og gerir hann að for- arsvaði. Þriggja daga verki var þarna umturnað á faglegan hátt. Það er ömurleg tilfinning. Við er- um sett i það verkefni að raka og sópa götukanta, þegar bærinn á þannig bil, sem hreinsar þetta. A Rútstúni og i Hliðagarði starfa vinnuflokkar við að slá grasiö, reyta arfa, gróðursetja plöntur, leggja hraunhellur i beð- in o.s.frv. hvernig liti bærinn út ef við værum ekki þarna að störfum. Bærinn myndi leggjast i órækt eða ættu verkamenn að vinna þessi störf? Það yrði þá saga til næsta bæjar. En ekki er allt upptalið. Eitt ó- geðslegasta fyrirbæri sem til- heyrir Kópavogi er Kópavogslæk- urinn en er réttnefndur Skitalæk- urinn. Óþrifin eru öllum Kópa- vogsbúum til skammar. Þar safnast fyrir ýmiskonar rusl á vetrum, og auðvitað á að hreinsa þetta, eins og annað. En hver sér um það? Það erum við. Það er þó bót i máli að þeir sem þar vinna fá uppháa hanska til að verjast öllu þvi gruggi sem i læknum er. Hluti bæjarbúa gerir mikið veð- ur út af þvi að viö vinnum ekki neitt höngum bara og slórum. Það er einmitt sú tegund af fólki sem segir sinar skoðanir á málinu án þess þá að hafa kynnt sér það að einhverju leyti. Það er ekki til sá maður sem keppist við að vinna að þvi verki sem honum er falið og vita að það er litilsvirt. Það er þetta sem við erum að vekja athygli á. Við viljum að bæjarfulltrúar liti á okkur sem g'ott vinnuafl, sem getur unnið. Hvernig liti holtið við útsýnis- skifuna og hæðirnar sunnan Kópavogs út ef unglingavinnan tæki til óspilltra málanna og leggði þar þökur, gróðursetti tré og gerði gangstiga svo almenn- ingur gæti verið þar i stað þess að byggja þar háhýsi. Hér i bænum mætti gera stóra hluti með hjálp unglingavinnunnar, og þá óskum við að vinnan sé metin að verð- leikum. Við erum lika óánægð með að yngri flokkarnir fá minna kaup en þeir eldri. Þá eiga yngri vinnu- flokkarnir einnig rétt á fullum vinnudegi þvi að nóg eru verkefn- in. Verkamannataxti fyrir ung- linga 14—16 ára er 278 krónur á timann. Er ekki óeölilega mikill mismunur á þessu kaupi og okk- ar, sem er 130 og 145 kr. á timann. Við kref jumst þess aö fá 3/4 hluta af þessu kaupi. Nú standa skólarnir allir lokað- ir yfir sumartimann. 1 þeim gætu farið fram skemmtanir á marg- vislegan hátt, s.s. dansleikir, diskótek, spilakvöid, ýmis nám- skeið o.s.frv. Að lokum viljum við minna ykkur á að eftir 5 ár fáum við kosningarétt og hver veit hverjir sitja þá i bæjarstjórn. UNGLINGAVINNAN IKÓPAVOGI Viðtal Framhald af bls. 20. ákvarðast ekki af hæfileika skáldsins til að troöa upp á al- mannafæri, en þessi hæfileiki getur heldur ekki verið ástæða til gagnrýni útaf fyrir sig. Majakof- ski las ljóð sin á iþróttavöllum — þetta er alveg eðlilegt. Vettvangur 1 jóðskáldsíns er ekki aðeins Listamannamiðstöðin eða Rithöfundafélagið, heldur engu siöur og öllu fremur verk- smiðjur, vinnustaðir, hljómleika- salir og iþróttavellir. Sósialisk menning er ekki fólgin i þvi að fáir útvaldir yrki hver fyrir annan, heldur er hún fólgin i beinu sambandi ljóðlistarinnar við fjöldann, þvi það er einmitt fjöldinn sem hefur fætt af sér ljóðlistina. Sp. — Þér byrjuðuð snemma að birta ljóð á prenti. önnur skáld, einsog t.d. Boris Slútski, eru komin á miðjan aldur þegar þau birta eitthvað eftir sig. Hvað munduð þér ráðleggja byrjanda i þessu sambandi? Évtúsjenko — Ég held maður eigi að byrja að gefa út eins fljótt og unnt er, ef ljóðin eiga það skiiið. Það er aðeins hættulegt fyrir þá sem eru veikir i and- anum. Annaðhvort drepur það skáldið, eða herðir það i eitt skipti fyrir öll. Feröalög. Sp.— Hvers virði eru yður, sem skáldi, ferðalög til útlanda? Évtúsjenko— Ég hef komið til margra landa og verð að segja einsog er, að þessi ferðalög hafa hjálpað mér til að öðlast betri skilning að öörum þjóðarsálum. Þannig var þetta llka I ferð minni til Bretlandseyja fyrir skömmu. Ég kom i háskólann i Belfast þar sem Puskin var lesinn innanum öll götumoröin og bréfasprengj* urnar vindinn sem lyktaði af dýnamiti og óttann við það sem koma skal. Þetta ljóð, sem birtist i Prövdu ekki alls fyrir löngu, lýsir irska harmleiknum. Harmleik, sem ég fékk nokkra nasasjón af og leit ekki augum ferðamanns. Skáldskapur er alltaf mjög þjóðlegt fyrirbæri, þó ekki væri nema vegna þess, aö hann sprettur ailtaf af tilfinningu fyrir móðurmálinu. En i skáldskap þarf maður að forðast allan þjóð- ernislegan einstrengingshátt. Ég er á móti abstrakt ljóðum um „mannlifið yfirleitt” er hlynntur ljóðum sem i raunsæi sinu gefa okkur tilfinningu fyrir vanda- málum mannlifsins. Þannig ljóð ortu Majakofski, Eluard, Neruda. Vitaskuld er það stór synd að stunda bókmenntalegan „túr- isma” án þess að þekkja sitt eigið land. En að færa öðrum þjóðum það besta úr sinni eigin menningu, og auðga sina eigin menningu með þvi besta úr menn- ingu annarra þjóða, það tel ég vera lið i barattunni fyrir friði i heiminum, en án slikrar baráttu getum við ekki barist fyrir bjart- ari framtið. (Frá APN Uppfinningar Framhald af bls. 4. hóf fjölframleiðslu á ljósaperum sinum. Fyrsta peran logaði stans- laust i 40 stundir. Árið 1877 sneri Thomas Edison sivalningi úr tini og lét nál strjúk- ast viö hann. Upphóíust þá hin merkilegustu hljóð. Þar með voru grundvallarreglur plötuspilarans fundnar upp. Arið 1914 hófst öld fjöldafram- leiðslunnar i Detroit er fyrsta Ford-bifreiðin af gerðinni Lizzy rann út af fysta færibandi heims- sögunnar. Framleiðslutiminn hafði styst úr 14 klukkustundum i 93 minútur. Stöðumælar hafa gert mörgum bflstjóranum gramt i geði en bandarikjamaðurinn Carl S. Magee varð miljónungúr á þeim. Hann sótti um einkaleyfi á þessari uppfinningu sinni árið 1932. Hún hefur þó ekki komið i veg fyrir stööugt umferðar- öngþveiti á götum heimsborg- anna. Fram til ársins 1947 klæddust engir nema bandariskir sjóliðar ermastuttum bolum afþeirri gerð sem bandarikjamenn kalla „T- shirt”. Það ár lék Marlon Brando i kvikmynd þar sem vöðvar hans hnykluðust óspart innan i stuttum ermum bolsins og þar með var „T-shirt” orðið almenningseign. Thomas Adams ætlaði að búa sér til dekk úr gúmmii. Það mis- tókst svo Adams blandaði pipar- myntuoliu i gúmmiið, skar það i ræmur, pakkaöi þvi inn i pappir og seldi sem tyggigúmmi. Tómata bar fyrst fyrir augu evrópumanna i Nýja heiminum fyrir 400 árum. Bandarikjamenn komust upp á lagið með að búa til úr þeim sósu og er þar komin tómatsósa sú sem notuð er til að bragðbæta ýmsar tegundir af mat um allan heim. Þessu til viðbótar fundu banda- rikjamenn ma. upp vetnis- sprengjuna, teiknimynda- sögurnar, dósamjólkina, bila- bióið, sláttuvélina, vélbyssuna, matadorspilið, morstækiö, nælon- sokkinn, oliuborturninn, popp- kornið, svefn- og matarvagna járnbrautarlesta, frystikistuna ofl. ofl. ÞH snaraði. * PÚSTSENDUM TROLOFUNARHRINGA Joijiimirs Hnfsson l.mg.ibrgi 30 é>iim 10 200 flnhðlll 4 Slmar 24477 oj 14254 Pípulagnir Xýlagnir, breytingar, ^itaveitutengingar. jSimi 36929 (milli kl. j M og I og eítir kl. j ji á kvöídin).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.