Þjóðviljinn - 31.10.1976, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 31.10.1976, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. október 1976 Fagleg barátta ein er ekki nægileg Eövarö Sigurösson I þann mund sem Þjóöviljinn var aö hefja göngu sina haföi yfirstéttin i landinu ekki enn tamiö sér þá slægö i viöskiptum sinum viö alþýöuna sem hún siðar læröi og atvinnurekendur réöust þá beint á kaup verka- fólksins og heimtuöu lækkun. En á þessum sömu árum óx verkalýöshreyfingunni veru- lega fiskur um hrygg og at- vinnurekendur hættu aö þora aö koma fram grimulaust og fóru aö beita fyrir sig rikisvaidinu meö ráöstöfunum til kjara- skeröinga i staö beinnar kauplækkunar. Eövarö Sigurösson, formaöur Dagsbrúnar, rifjar hér upp þau timamót er þessari aöferö var fyrst beitt og hvernig verka- lýðshreyfingin snerist tii varnar og vann frækilegan sigur með Þjóðviljann einan að vopni gegn borgarapressunni allri samein- aðri. En fagleg barátta ein út af fyrir sig er ekki nægileg, segir Eðvarö. Þaö veröur aö tryggja verkalýönum þau pólitisku áhrif á gang þjóömála, aö ávinn- ingarnar veröiekki jafnóðum að engu geröir meö pólitiskum ráö- stöfunum stéttarandstæöings- ins. — Ég þyrði ekki að hugsa þá hugsun til enda, hvar barátta verkalýöshreyfingarinnar og verkafólks á íslandi væri á vegi stödd ef við hefðum ekki haft Þjdðviljann öll þessi ár, svaraði Eðvarð, þegar beint var til hans spurningunni um þátt og hlut- verk Þjóðviljans i baráttu verkalýðsins. — Þar með er ekki sagt, að það sé Þjóðviljinn sem hefur skapaö söguna. Það er aö sjálfsögðu verkalýðsstétt- insem hefur skapað Þjóðviljann og Þjóðviljinn hefur að minu viti verið svo beitt og svo nauösyn- legt vopn, að án hans hefði öll þessi saga oröið önnur og miklu lakari. Þjóöviljinn hefur verið málsvari og baráttutæki verka- fólks og verkalýðshreyfingar- innar. Eðvarð man vel bæði stofnun og forsögu Þjóðviljans, breyt- inguna úr Verkalýðsblaðinu tvisvar til þrisvar i viku i dag- blaðið Þjóðviljann. En sú breyt- ing var ekkert einangrað fyrir- bæri i þeirri öru þróun sem þá varö 1 pólitiskri baráttu: — Stofnun Þjóðviljans var hlekkur i pólitiskri þróun róttækrar hreyfingar á þessum tima, segir hann. Ef viö tökum annars vegar Verkalýðsblaðið og hlutverk þess i sögunni sem nauðsynlegan forvera Þjóðvilj- ans og útgáfu dagblaðs hins- vegar, þá endurspeglar þetta hvorttveggja það sem er að gerast á hinum róttæka armi verkalýðshreyfingarinnar á timabilinu frá 1930 þegar Kom múnistaflokkurinn er stofnaður. Við göngum þá gegn- um margskonar erfiðleika, fyrst og fremst almennt i þjóðfélaginu, þegar heims- kreppan mikla skellur á. Gengum gegnum barnasjúkdómana! Það var á kreppuárunum miklu sem hin róttæka verka- lýðshreyfing tók forustuna i baráttu stéttarinnar, — og við urðum einsog fleiri róttækar hreyfingar aö ganga gegnum okkar barnasjúkdóma á fyrstu ef við tryggjum ekki verkalýðnum pólitísk áhrif á gang þjóðmála og komum í veg fyrir að ávinningar séu að engu gerðir með ráð- stöfunum stétta ra nd- stæðingsins árunum eins og titt er um ung- viði. Við höfðum ekki mikla reynslu og urðum að fá okkar eldskirn i baráttunni sjálfri.. Ekki varö hjá þvi komist, að við gerðum eitt og annað, sem við siðar sáum, að við hefðum getaö gert kannski öðruvisi og betur. Á þessu timabili er að þróast smátt og smátt hugmyndin um samfylkingarbaráttuna, — að samfylkja verkalýðsstéttinni, þrátt fyrir mismunandi pólitisk- ar skoðanir hjá ýmsum hópum, til markvissrar og einarðrar baráttu fyrir hagsmunum stétt- arinnar. Þetta var ekki einangr- að hér hjá okkur, heimshreyf- ingin var þá að sveigja meira og meira inná þessa braut. Hitt er óhætt að segja, aö okkar for- ystusveit og pólitiska róttæka hreyfing hafi tilei nkað sér þessa stefnu betur og fyrr en viöast annarsstaöar, með nokkrum undantekningum þó, og við höf- um borið gæfu til að komast fyrr yfir marga innbyrðis erfiöleika en flestir aðrir. Þetta hafði sin áhrif. Flokkur- inn stækkar og áhrif hans vaxa og undirbúningur og stofnun Þjóðviljans er einmitt mjög táknrænn fyrir þessa framsókn hreyfingar, aukinn mátt henn- ar, þrótt og vilja til að efla þessa sókn. Þetta helst allt i hendur: Sig- ur Kommúnistaflokksins i kosn- ingunum 1937, stofnun Samein- ingarflokksalþýöu — sósialista- flokksins 1938 og siðar sú gjör- breyting sem verður á fylgi hreyfingarinnar þegar Alþýðu- sambandið er gert að óháöum verkalýössamtökum, þar sem allir höfðu jöfn réttindi til trún- aðarstarfa, en áður haföi þaö verið svo að einvöröungu alþýðuflokksmenn höfðu þenn- an rétt. Þrælalögin brotin á bak aftur Allt þetta gerir það aö verk- um, að hin pólitiska og faglega hreyfing vex mikið að styrk- leika, sem kemur einkar ber- lega fram i atburöunum 1942, skæruhernaðarárinu. Þá voru ofbeldislög sem bönnuðu verk- föll og kauphækkanir, þrælalög- ineins og þau voru kölluö, brot- in á bak aftur og rikisstjórnin varð að viöurkenna, að verka- lýðshreyfingin hafði brotið þau niður. Tók afrit af kjörskrá Dags- brúnar: Guömundur í. Guð- mundsson Fletti menn blöðum Þjóðvilj- ans þetta timabil má sjá hve gifurlegan þátt hann átti I skipulagningu þessarar bar- áttu. Hann var sterkasta áróöursvopn verkalýösstéttar- innar á þessu timabili og var eina dagblaðið i landinu sem studdi okkur og gerði i rauninni skipulagningu þessarar baráttu mögulega. — Forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar hljóta þá að hafa unnið mjög náið með Þjóðviljanum. — Já, á þessum árum var samband okkar i þessari bar- áttu i verkalýðsfélögunum og á vinnustöðunum, ákaflega náið og gott við Þjóðviljann og má segja, að frá degi til dags hafi þar verið hin ákjésanlegasta samvinna. Sá blaðainaður sem þetta lá kannski þyngst á á þessum tima var Siguröur Guðmundsson og siöar Jón Bjarnason. .Er auðvitað margs að minnast og margir atburðir sem þarna koma til, en mig langar þó að taka eitt sérstakt dæmi, sem kannski lýsir þvi betur en nokk- urt annað, hvers virði Þjóðvilj- inn var verkalýðsstéttinni. Þar á ég viö verkfall Dagsbrúnar- manna 1947 Söguleg umskipti. Ég veit ekki hvort menn hafa almennt gert sér ljóst hvaða sögulega þýðingu verkfallið ’47 hefur i þeim mörgu hörðu átök- um sem átt hafa sér stað. Þá var pólitiska ástandið i landinu þannig, að nýsköpunarstjórnin var farin frá völdum, en i byrj- un febrúar 1947 tekur við ný rikisstjórn undir forsæti Stefáns Jóhanns Stefánssonar, formanns Alþýðuflokksins, á sjónarsviðið kemur þriflokka- kerfið svonefnda, samvinna Sjálfstæðisflokks, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks, sem nú gengur opinberlega I fylkingu með borgaraflokkunum. Annað er mjög einkennandi fyrir þessi stjórnarskipti og snýr að verkalýðsstéttinni. Fram að þessu höfðu atvinnu- rekendur, yfirstéttin i landinu, ævinlega gengið hrei'nt til verks og ráðist á sjálft kaupið. Þetta gerðist einkum á árunum milli 1920 og 30, einnig milli 1930 og 40 og9. nóvember 1932 er gleggsta dæmið um þessar beinu árásir atvinnurekenda og rikisvalds á kaupgjald verkafólks, þar sem reynt var að knýja fram beinlín- is kauplækkun. Siðari hluta fjórða áratugsins vex verka- lýöshreyfingunni hinsvegar fiskur um hrygg og það kemur fram, hve. sterk verkalýðs- hreyfingin er orðin einmitt i at- burðunum 1942. Yfirstéttin leggur ekki lengur til beinnar atlögu við kaupgjald verkafólks og þegar „Stefania” tekur við völdum 1947 kemur raunverulega i fyrsta sinn fram súbeiting rikisvaldsins til árása á lifskjörin, sem við þekkjum svo vel siðan. Það er reynt að lækka kjörin með efnahagsráð- stöfunum. Stjórn Dagsbrúnar var þá bundin af samningum til 6 mán- aða, en við gengum á fund Stefáns Jóhanns og vildum fá tryggingu fyrir þvi, að næstu 6 mánuðina yrðu ekki gerðar neinar þær ráðstafanir af hálfu rikisstjórnarinnar, sem hefðu áhrif á kjör verkafólks til lækk- unar, en gegn slikri yfirlýsingu var Dagsbrún reiðubúin að framlengja samninga sina um 6 mánuöi. Þegar fyrir lá, að þessi yfir- lýsing fékkst ekki sömdum við um að samningar væru uppsegjanlegir hvenær sem væri með eins mánaðar fyrir- vara.Þetta var varúðarráöstöf- un af okkar hálfu og það kom fljótlega i ljós, að hún var fylli- lega á rökum reist, þvi i april samþykkti alþingi lög samkvæmt tillögu rikis- stjórnarinnar um stórkostlegar tollalækkanir, sem þýddu 2000 króna auknar álögur á ári á hverja fimm manna f jölskyldu i landinu. 2000 krónur voru þá ekkert smáræði, sem sést best á þvi, að þá var mánaðarkaup dagsbrúnarmanna i dagvinnu um 1600 krónur. Þaö var þvi vel rúmlega mánaðarkaupið sem þarna átti að ræna. Strax á eftir, i byrjun mai, var samþykkt uppsögn samninga með allsherjaratkvæðagreyðslu og verkfall boðað. Borgarapressan ! ham Það var áberandi og einkenn- andi fyrir þetta timabil eftir að lögin voru samþykkt og stjórn Dagsbrúnar hafði lagt til uppsögn samninga, að öll dagblöðin i Reykjavik, að Þjóð- viljanum að sjálfsögðu undan- teknum, voru með svo gegndar- lausan og óheyrilegan áróður gegn samningauppsögn og gegn Dagsbrún, að ég trúi, að borgarapressan hafi ekki i ann- an tima öll sameiginlega beitt sér jafn hatrammlega gegn verkalýðshreyfingunni. Enda má með sanni segja, að at- vinnurekendum og yfirstéttinni I landinu hafi legið mikið viö, að það tækist án átaka að beita verkafólk i landinu þessari nýju aðferð til kjaraskeröingar. Það sem var kannski allra lærdóms- rikast fyrir verkafóik var að sjá hvernig Alþýöuflokkurinn var ekki aðeins með i þessari árás, en gekk bókstaflega framfyrir skjöldu. Rikisvaldinu er beitt á alla lund og rétt áður en til verkfalls kom gerðist það að skipuð er sáttanefnd af hálfu rikis- stjórnarinnar og rikissátta- semjara og hans tilraunum til sátta þannig i rauninni vikiö til hliðar. Torfi Hjartarson var þá þegartekinn við sem sáttasemj- ari, en starf hans er algerlega truflað með að setja við hlið hans tvo aðra menn, Guðmund í. Guðmundsson, sem þá var einn aðalforystumaður Alþýöu- flokksins, og Gunnlaug Briem ráöuneytisstjóra

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.