Þjóðviljinn - 06.11.1976, Síða 3

Þjóðviljinn - 06.11.1976, Síða 3
/ Laugardagur 6. nóvcmber 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA'3 Taílenska valdaránið: Raskar valda jafnvæginu Valdarániö I Tailandi nýverið minnti að mörgu leyti á sams- konar atburð i Chile haustið 1973. Bæði þessi valdarán ein- kenndust af þeim iágkúrulega skepnuskap og sóðalegu hryðju verkum.sem alltaf fylgja „bylt- ingum” frá hægri. Likt og var f Chile leikur sterkur grunur á þvi i Taiiandi að bandariska ut- anríkisley niþjónustan, sú marfræga CIA, hafi haft hönd i bagga með herforingjunum Eftir hrakfarirnar i Indókina var helst svo að sjá að Banda- rikin hefðu gefist upp á þvi að halda verulegum itökum á meg- inlandi Suðaustur-Asiu. Valda- ránið 1 Tailandi gæti þýtt að bandarískum ráðamönnum hefði snúist hugur i þessu efni, að minnsta kostier greinilegt að Sovétrikin og Vietnam lita svo á málin og sennilega Kina einnig. Með tillit til þessa eru miklar likur á þvi að afleiðingar tai- lenska valdaránsins verði við- tækari og aðrar en raunin hefur orðið á um það chiliska. Hin nýja rikisstjórn Tailands, að mestu skipuð teknókrötum en að öllum likindum i vasanum á hernum, fer ekki dult með það að hún stefni að þvi að taka upp aðnýju þá „góðu sambúð”, sem var á milli Bandarikjanna og Tailands á timum Indókina- striösins. Sú sambúð þýddi það að Bandarikin höfðu mikilvæg- ar herbækistöðvar I Tailandi, sem notaðar voru til lofthernað- ar gegn Vietnam, Kambódiu og Laos, og að tailenski herinn tók sjálfur virkan þátt i striðinu með bandarikjamönnum, eink- um i Laos. Strik i reikning sovétmanna Þegar endanlegur ósigur Bandarikjanna og leppa þeirra i grannrikjunum þremur fyrir austan var fyrir dyrum, brugðu tailendingar við titt og af lofs- verðu raunsæi, létu banda- riska herinn fara úr landi og leituðu vinsamlegrar sambúðar við Kina og Vietnam. Valdarán- ið og stefna stjórnarinnar, sem valdaræningjarnir settu á fót, sýnist þýða kúvendingu til stefnunnar frá þvi á dögum Indókinastriðsins. Tassfrétta- stofan sovéska hefur birt frétt þess efnis, að hinir nýju vald- hafar i Tailandi hafi þegar af- hent bandariska hernum á ný flugst. nokkra norður af Bang- kok, sem áður var mjög notuð til loftárása á Vietnam. Sé hér rétt með farið, getur hið nýsamein- aða og sigurreifa Vietnam varla litið á þessa ráðstöfun öðruvisi en sem móðgun við sig, ef ekki beina ögrun. Ljóst er að valdaránið i Tai- landi veldur nýrri ólgu á svæði, sem viss kyrrð og festa virtist vera að færast yfir eftir styrj- aldarlok i Indókina. Svo er að sjá að þetta valdi sovéskum ráðamönnum verulegum á- hyggjum. Allt frá lokum Indókínastr. hafa Sovétrikin hvatt vietnama til vinsamlegrar afstöðu til þeirra grannrikja, sem ekki eru sósialisk A bak við þetta liggur sú ósk sovétmanna að Vietnam verði brimbrjótur gegn kin- verskum áhrifum suður á bóg- inn. Þessi pólitik sovétmanna mun til þessa hafa heppnast nokkuð vel, ekki sist vegna þess að talsverð spenna hefur skap- ast milli Kina og Vletnams út af yfirráðum yfir eyjaklösum i Kinahafi hinu syðra. (Miklar auðlindir, þar á meðal olia, sem taldar eru vera þar i botninum hafa gert þann sjó stórmikil- vægan i margra augum.) Og verulegar likur virtust vera á sæmilegri sambúð milli Viet- nams og Tailands, meöan það stritaðist við að hafa borgara- legt lýðræði. Grunsemdir vietnama styrkjast En nýja stjórnin i Tailandi, bólgin af kommúnistahatri, virðist ætla að eyðileggja þessa pólitisku skák fyrir sovétmönn- um. Stefna hennar er frá sjón- armiði vietnama staðfesting á þeim grun þeirra, að Bandarik- in hafi alls ekki ætlaö sér að hörfafrá meginlandi Suðaustur- Asiu fyrir fullt og allt, heldur hyggist þau reyna að koma upp viggirtum hring kringum Viet- nam með stuðningi hægrisinn- aðra grannrlkja, Taílands, Indónesiu, Filippseyja* Vlet- nama grunar að þessi hringur eigi alls ekki einungis að tryggja að fleiri þjóðir Suð- austur-Asiu „verði ekki kommúnismanum að bráð”, heldur eigi að nota Tailand, vegna hentugrar legu þess, sem bækistöð til stuðnings við and- sósialisk öfli Vietnam. Við þetta má bæta að þeim mun fleiri hryðjuverk sem Tailandsstjórn fremur á andstæðingum sinum i nafni „baráttunnar gegn kommúnismanum”, þeim mun meiri likur eru á að vietnamskir ráðamenn sjái ástæðu til að styrkja skæruliðahreyfinguna i norðausturhéruðum Tailands. Og finni Vietnam sig knúð til að taka herskáa afstöðu gagnvart Tailandi, gefur auga leið að það reynir að tryggja sér stuðning i bakið með bættri sambúð við Kina. Hægrisveifla i Eyjaálfu Að visu er enn óljóst, hversu stórt hlutverk Bandarikin léku i sambandi við valdaránið i Tai- landi. En hitt er vist að ráða- menn i Washington hörmuðu Sangad Sjalorjú, forsprakki tai-. lensku valdaræningjanna. ekki þá atburði, nema siður væri. Hafi Bandarikin átt hér verulegan hlut að máli, virðist leikurinn ekki ýkja gáfulegur af þeirra hálfu. Kina kemur til með að lita það alvarlegum augum að önnur stórveldi reyni að auka itök sin á Austur-Ind- landsskaganum. En vera kann að bandariskum ráðamönnum finnist nú aðstaöa sin að ýmsu leyti sterkari i þessum heims- hluta en fyrir einu eða tveimur árum, meðal annars vegna til- komu hægrisinnaöra rikis- stjórna i Astraliu og Nýja-Sjá- landi, sem virðast hafa allher- skáa afstöðu gagnvart hinu sósialiska Indókina. Tailenskir skæurliðar Tailensku herforingjarnir af- saka gerðir sinar með þvi, gð þingræðisstjórnarfarið, sem verið hefur við lýði I landinu um fárra ára skeið, hafi reynst ónýttog til fárra hluta nytsam- legt. Það er talsvert til i þvi hjá þeim, þess munu fá dæmi að borgaralegt þingræði hafi heppnast vel til lengdar utan Vestur-Evrópu og Norður-Ame- riku. En hætt er við að það eigi eftir að sýna sig fyrir valdastétt Taflands að með valdaráninu hafi hún farið úr öskunni I eld- inn. Vinstrisinnaður skærú iðaher hefur i mörg ár haft fótfestu i norðausturhluta landsins, og hefur tailenski herinn reynst alls ófærumað buga hann, þrátt fyrir ógrynni vopna frá Banda- rikjunum og stuðning banda- riskra „hernaðarsérfræðinga.” Hryðjuverk og ofbeldi valda- ræningjanna hefur að öllum lik- indum þau áhrif, sem þekkt eru frá Vietnam, að sivaxandi f jöldi vinstrisinnaðs og þokkalega hugsandi fólks snúist til fylgis við skæurliðana. Og þeir standa betur að vigi en nokkru sinni fyrr, með sósiallskt Laos i bakið (laótar og tailendingar tala þvi sem næst sama málið) og þar fyrir handan sigurreift Vitnem. Og meira að segja fréttist öðru hvoru af skæurliðum I frum- skógum Malasiu, við suður- landamæri Tailands. Þeir eru leifar þess vinstrisinnaða skæruhers, er barðist þar gegn japönum i heimsstyrjöldinni og að henni lokinni gegn bretum. Breska hernum tókst að visu að sigra þá, en enn þann dag i dag hefur ekki tekist að uppræta þá og þeirminna á sig annaö veifið. dþ. Börnin i Beirút: I hættu sóttum rottum LUNDÚNUM 5/11 Reuter — Llf þúsunda libanskra barna eru i hættu sökum þess að miklar likur eru á þvi að drepsótt brjótist út i Beirút, að þvi að starfsmaður hjálparstofnunar, sem er nýkom- inn til Lundúna frá Libanon sagði i dag. Rottufaraldur hefur magn- Tollverðir þeir, sem sannir urðu að hlutdeild i smygli sl. sumar eru enn á launum hjá tollinum og þeim hefur enn ekki verið sagt upp störfum, en þeir vinna samt ekki við toll- gæslu og hafa ekki gert siðan málið kom upp. „Þessir menn hafa enn ekki verið dæmdir fyrir neitt, málið er enn i rannsókn og á meðan er þeim ekki sagt upp störfum, en annars er það mál fjármálaráðu- neytisins, en ekki mitt, hvort þeim verður sagt upp störfum þegar þar að kemur” sagði Björn Hermannsson tollstjóri, er við spurðum hann um þetta mál I gær. Björn sagðist ekki kannast við það að tollverðir þægju vinflösku i vasann um allan heim, eins og tollverðirnir báru fyrir rétti. „Hitt er annað mál að ég sé ekkert athugavert við það að toll- verðir þiggi gjafir eins og aðrir menn, ef ekkert annað liggur á bakvið”, sagði tollstjóri. — Myndir þú mæla með upp- sögn þeirra tollvarða, sem sann- aðist á að hafa þegið vinflösku að gjöf frá farmönnum eða öðrum? „Nei, það myndi ég ekki gera,- ef aðeins er um gjöf að ræöa, allir ménn hafa sinn rétt, ekki satt og þá tollverðir eins og aðrir menn hvað þvi viðkemur að þiggja gjöf”. Þess má geta að Þjóðviljinn reyndi árangurslaust að ná i Jón Sigurðsson, ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins i gærdag, en hann hafði ekki tima til að ræða við Þjóðviljann, en bent var á simatima hans milli kl. 10.30 til 12.00 á morgnana. Þess má svo að lokum geta, að verkamenn þeir hjá Eimskip, sem þátt tóku i sjónvarpssmygli á fyrir ast mjög i hinni striðsher juðu höf- uðborg Libanons, og fjöldi barna hefur misst aðstandendur sina i striðinu og á hvergi höfði aö halla. Starfsmaður hjálparstofnunar- innar, Annetta Street, kvaðst hafa komiö á munaðarleysingja- hæli, þar sem nú væru helmingi fleiri börn en með góðu móti gætu komist þar fyrir. Þar sagðist hún hafa séð smábarn, sem rottur höfðu lagst á og étið af þvi hálsinn að miklu leyti. dögunum, voru reknir samstund- is úr vinnu. Það er enn gamli munurinn á'Jóni og séra Jóni. —S.dór. Félagsfundur A Iþýðu ban dalags- ins i Reykjavik Lúðvik Jósepsson Kosið í flokksráð Alþýðubandalagið i Reykjavik heldur almennan félagsfund þriðjudaginn 9. nóvember kl. 20. 30 i Tjarn- arbúð (uppi). A dagskrá eru tvö mál: Kjör fulltrúa i flokksráð Alþýðubandalags- ins og framsaga Lúðviks Jósepssonar um landhelgis- viðræðurnar sem framundan eru. Tillögur uppstillinga- nefndar um fulltrúa I flokks- ráð liggja frammi á skrif- stofu félagsins að Grettis- götu 3. Tollverðirnir sem smygluðu: Enn á launmn hjá tollinum Bankaránið mikla i Frakklandi upplýst: Fjáröflun herskárra samtaka hægrisinna Hægrisinnaður öfgamaður, Albert Spaggiari, hefur játað að hafa skipulagt bankaránið mikla i Nice i Frakklandi i júli I sumar og hafi samsærissamtök hægrisinna notið góðs af. Stoliö var sem svarar tveim milljörð- um króna. Ræningjarnir grófu neðanjarðargöng inn I fjárhirslu bankans frá skolpræsi sem lá þar skammt frá. Sex aðrir þátttakendur i rán- inu hafa náðst en margir ganga lausir enn. Spaggiari segist hafa gangið með hugmynd þessa i tvö ár og skipulagt fram- kvæmdir. Hann leigði s^r geymsluhólf i bankanum, komst að þvi að viðvörunarkerfi var mjög ábótavant, og honum tókst hvað eftir annað að taka myndir af starfsfólki bankans þegar það kom og fór þegar hann vitjaði geymsluhólfs sins. Spaggiari hefur um hrið haft ljósmyndun að atvinnu. Hann barðist i hinum illræmdu fall- hlifahersveitum frakka i Alsir og Indókina og siðar stóð hann að stofnun herskárra and- kommúniskra neðanjarðasam- taka. Franska lögreglan hefur þeg- ar skýrt frá þvi aö Spaggiari hafi látið sinn hluta þýfisins ganga til alþjóðlegs hóps her- skárra hægrisinna, sem kallar sig „La Catena” (Keðjan). Tal- ið er að samtök þessi hafi aðal- bækistöð iTorino og vinni að þvi að hjá'pa hægrisinnum og ný- fasistum á Italiu og i Júgóslav- iu. Um tuttugu þjófar, sem hafa sérhæft sig i bankaránum, tóku þátt i ráni þessu, auk pólitiskra vina Spaggiaris. Hópurinn var um tvo mánuði að störfum i hin- um viðu skolpræsum Nizza og grófu þeir göng sin af stakri kostgæfni. Meðal annars lögðu þeir göngin teppum til að deyfa hávaða. Horfur á metuppskeru í Sovét MOSKVU 5/11 Reuter — Korn- uppskera Sovétríkjanna i ár verð- ur að öllum likindum meiri en nokkru sinni fyrr, að sögn vest- rænna sérfræðinga um landbún- aðarmál. Fjodor Kúlakof, land- búnaðarráðherra Sovétrikjanna, sagði i dag i ræðu fluttri af tilefni 59 ára afmælis rússnesku bylting- arinnar að 1. nóv. hefði uppsker- an verið orðin yfir 220 miljónir smálesta og væri uppskerunni þó ekki lokið. Mesta uppskera sovét- manna til þessa var árið 1973, er þeir uppskáru 222.5 miljónir smá- lesta.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.