Þjóðviljinn - 06.11.1976, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 06.11.1976, Blaðsíða 20
farskipi Hroðaleg meðferð á tveim svertingjum frá Nigeríu Sjómannasamband islands boðaöi til blaðamannafundar i gær vegna tveggja svertingja sem sætt hafa hroðalegri meðferð á skipinu Sögu. Ekki er nóg með að þeir hafi orðiö fyrir barsmfð- um um borð og veriö hótað með - riffli heldur hafa þeir verið ráðnir upp á ólögleg kjör skv. fslenskum sjómannasamningum og þar að auki verið sviknir um kaup- greiðslur. Nú hafa þeir þurft að hirast i Reykjavik i viku meðan skipið er i slipp án matar og pen- inga. Kaldir, hræddir og soltnir leituðu þeir að lokum ásjár sjó- mannasambandsins og tók það upp mál þeirra og ætlaði að fara friðsamlega að útgerðinni til að leita réttar þessara tveggja manna en þar sem undirtektir hafa verið hinar verstu var gripið til þess ráðs að kynna dagblöðum málið. Forsaga málsins er sú að Saga var i Port Harcourt í Nig- eriu i september sl. og réði þá nokkra svertingja á skipiö og var þeim gert að skrifa undir samn- ing sem þeir vissu varla hvað var en skildist að þeir fengju 200 doll- ara hvor fyrir feröina til Rotter- dam og siðan greitt skv. islensk- um samningum til Reykjavikur. Þetta er ólöglegt. Islensk kjör gilda á islenskum skipum. Ben George var ráðinn smyrj- ari i vélarrúm og John A. Ajayi messagutti. Vinnutími hins fyrr- nefnda var frá 8-5 en hins siðar- nefnda frá 7-8 og vann hann störf tveggja manna, og var lika i störfum sem aðstoðarmaður bryta. Hinir svertingjarnir gengu af skipinu i Rotterdam. 1 Rotterdam var lika greinilega ætlunin að losna við svertingjana af skipinu þvi að þar var þeim A blaðamannafundinum i gær. Fyrir enda borðsins sitja þeir óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins og Guðmundur Hallvarðs- son varaform. Sjómannafélags Reykjavlkur en til hliöar þeir John A. Ajayi og Ben George frá Port Harecourt i Nlgerlu. Þeir siðarnefndu eru nú undir vernd Sjómannasambandsins — (Ljósm. eik.) hótað meö byssu, látnir vinna þar i 3 daga meöan aðrir i áhöfninni áttu fri, að visu með loforði um aukagreiðslu, sem aldrei var sið- an greidd. Þar gerðist það lika að Ben George var sleginn af stýri- manni fyrir engar sakir og hefur það verið staðfest af aðila um borð, sagði Cskar Vigfússon, for- maður Sjómannafélagsins. Þegar komið var til Reykjavikur voru nigeriumennirnir settir af skipinu i Gufunesi og látnir hafa 5000 krónur hvor og sagt að fara i leigubil til Reykjavikur. Óskar sagði, að skipstjórinn hefði sagt við sig að hann heföi haldið að þeir ætluðu i bió. Talsvert af þessu fé fór að sjálfsögöu i leigu- bilinn og siðan hafa þeir ráfað um og borðað pulsur, fengið að liggja i skipinu sem er i slipp en ekkert fengið frekar af umsömdu kaupi né heldur mat. Þegar Oskar Vigfússon gekk i málið fór hann á fund útgerðar- mannsins sem er jafnframt skip- stjóri. Hann þrætti fyrir þessa Happdrœtti herstöðvaandstœðinga: Glæsilegt listmuna bókahappdrætti °g Dregið verður 1. desember „Listmuna- og bókahapp- drætti herstöövaandstæðinga er nú komið á staö. Tilgangurinn er sá að standa undir fjölbreyttu og öflugu vetrarstarfi. Ætlunin er að þetta verði helsta fjár- öflunarleiö samtakanna á næst- unni og þvi er mikilvægt að þetta takist vcl.” sagði Gils Guðmundsson, einn af for- göngumönnum happdrættisins i stuttu samtali. „Vinningarnir eru 39 að tölu, þar af 23 myndlistarverk og 16 ritverk. Þetta er skyndihapp- drætti og verður dregið 1. desember. Vinningshlutfall er óvenjuhátt eða 1.350.000.00. Ct- gefnir miðar eru aðeins 3 þús- und og verð hvers miða er kr. eitt þúsund.” sagði Gils enn- fremur. Þjóöviljinn spurði hann hvernig listamenn hefðu brugð- ist við málaleitan herstöðva- andstæðinga. „Þegar leitað var til her- stöðvaandstæðinga i röðum myndlistarmanna, rithöfunda og bókaútgefenda brugðust menn afar vel við og lögðu fram þá glæsilegu vinninga sem 1 boði eru. Meðal vinninga eru mynd- listarverk eftir ýmsa af þekkt- ustu núlifandi listamönnum þjóðarinnar auk verka eftir unga og upprennandi myndlist- armenn. Ritverkin eru flest eða öll eftir höfunda sem lagt hafa málstað herstöövaandstæðinga lið og hafa sumir þeirra staðið framarlega i þeirri baráttu. Nefna má ritsafn Þórbergs Þórðarsonar, ljóöasafn Jó- hannesar úr Kötlum og safnrit Guðmundar Böðvarssonar auk ritsafna og bóka eftir núlifandi höfunda. Viö sem höfum staðið að þessu erum mjög þakklát þeim listamönnum og rithöfundum sem brugðust vel við og vonum Gils Guðmundsson. að herstöðvaandstæðingar taki almennt þátt í að tryggja öflugt starf samtakanna með þvi að kaupa miða i þessu glæsilega listmuna og bókahappdrætti”, sagði Gils að lokum. Simi happdrættisins er 17966 virka daga frá 17 til 19. Skrif- stofan að Tryggvagötu 10 og svæðasamtök munu sjá um dreifingu. —ekh ÞRÆLAHALD á íslensku meðferð á svertingjunum en úr þvi að þeir hefðu farið út i kæru ætti hann nokkuð vantalaö við þá og mundi meðhöndla þá skv. þvi, sagði hann. óskar skipaði honum þá að koma daginn eftir á skrif- stofu Sjómannasambandsins og gera upp mál þessara ungu manna. Ég ætlaði að ljúka þessu máli á friðsaman hátt, sagði Ósk- ar við blaðamenn i gær, og fór fram á að útgerðin borgaði fyrir þá flugfar heim aftur. Ótgerðar- maðurinn lofaði þessu en ég heyrði haft eftir honum sama dag að þeir skyldu aldrei sleppa svo vel. 1 dag hef ég svo árangurs- laust reynt að ná sambandi við þennan mann en hann hefur ekki látið sjá sig. Skv. útreikningum Sjómanna- sambandsins á Ben George 276 þúsund krónur fyrir vinnu sina á Sögu en hefur aöeins fengið greidd ar 106 þúsundir. John A. Ajayi, sem var ráðinn sem vika- piltur en kaup þeirra er nú 52 þús,- undir á mánuði, hefur fengið sömu upphæð borgaða og á þvi inni um 40 þúsund kr. Er þá ekki gert ráð fyrir hinum óheyrilega langa vinnutima. Þá sagðist Öskar hafa grun um að svertingjunum væri stolið úr landi i Nigeriu og hefðu ekki til- skylda passa eins og skipstjóra er skylt að ganga úr skugga um. Passarnir eru enn i fórum skip- stjórans og hafa þeir ekki fengist frá honum. Nú hafa þeir Ben og John mestar áhyggjur af þvi að komast ekki inn i Nigeriu aftur. Skipstjórinn hafði ekkert út á vinnubrögð þessara skipverja að setja en lét jafnframt þau orð falla i viðurvist Óskars að þeir væru ekki eftir sinu höfði. Þá sagði Óskar að framburður konu skipstjórans sem var með i för- inni væri ósamhljóða skipstjóran- um. Sjómannasambandið mun nú beita sér fyrir þvi að nigeriu- mennirnir verði sendir heim til sin á kostnað rikisins en það hefji svo málsókn gegn útgerðinni. Ennfremur verður Samband al- þjóðaflutningaverkamannanna (ITF) látið vita. Forráðamenn Sjómannasam- bandsins létu þess getið i gær að þetta væri einkennandi fyrir is- lenska ævintýraútgerð að koma sér hjá þvi að borga kaup skv. is- lenskum samningum og reyna að græða sem allra mest. Þó væri kaup islenskra farmanna ekkert til að státa sig af. Þess skal að lokum getið að þeir Ben George og John A. Ajayi voru á blaðamannafundinum i gær og skýrðu mál sin og buðu af sér hinn besta þokka. — GFr. Slátursalan brann Lekur gaskútur var orsök brunans að sögn slökkviliðsins Miljónatuga tjón varð I gær- morgun, þegar kviknaöi i húsi Sláturfélags Suðurlands við Skúlagötu i Reykjavík. Eldurinn kom upp I slátursölunni og orsök *hans er talin vera lekur gaskútur, en á milli 40 til 50 propan gaskút- ar voru geymdir þarna, en þeir voru notaðir viö að sviöa kinda- hausa. Gas lak með ventli á ein- um kútnum og barst með ioft- ræstingarröri yfir I herbergiö, þar sem verið var aö sviöa og þá þurfti ekki að sökum að spyrja eldur varð þegar laus. Og fljótlega magnaðist eldurinn mjög og gaskútarnir tóku að springa og gasið streymdi út og nærði eldinn mjög. Telur slökkvi- liðið það mestu mildi að ekki varð þarna stórslys á fólki. Það var kl. 7.44 i gærmorgun, sem tilkynningin um að eldur væri laus hjá SS við Skúlagötu, barst til slökkviliðsins og þegar það kom á staðinn var mjög mik- ill eldur laus og hitinn óskaplegur að sögn, eins og jafnan I gaseldi. Það tók slökkviiiðið ekki nema rúma hálfa klukkustund að ráða niðurlögum eldsins og er þaö vel af sér vikið. Vakt var samt á staðnum fram yfir hádegið. Þarna varð mjög mikið tjón, bæði skemmdust, matvæli, vélar og svo húsnæðið, þannig að tjónið er talið nema tugum, jafnvel hundruðum miljóna kr. Um tima voru nærliggjandi hús talin i hættu, einkum Lindargötu- skólinn, sem er timburhús, en þar sem slökkviliöinu tókst að ráða niðurlögum eldsins á tiltölulega skömmum tima, þurfti ekki aö rýma skólann. Þrátt fyrir tvo bruna hjá SS þarna á Skúlagötunni með stuttu millibili er fyrirtækið ekki talið standa sig verr en aðrir hvað brunavörnum viðkemur. Þarna var aðeins um að ræða óhapp, sem hvenær og hvar sem er getur komið fyrir. — S.dór Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstudaga, kl. 9-12 á laugar- dögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná i blaöa- menn og aöra starfsmenn blaösins i þess- @81333 um simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348. Einnig skal bent á heimasima starfs- manna undir nafni Þjóðviljans I sima- skrá. Ráðstefna ungra sósíalista í Þinghóli í Kópavogi kl. 10 í dag DIÖÐVIUINN Laugardagur 6. nóvember 1976 í gær

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.