Þjóðviljinn - 06.11.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.11.1976, Blaðsíða 11
10 SIÐA — PJOOVILJINN Laugardagur 6. nóvember 1976 Laugardagur 6. nóvember 1976 PJQÐVILJINN — SIDA 11 //Það má vera að mönnum þyki við ekki sinna félags- málum Dagsbrúnar nóg og vissulega voru menn viljugri að sækja félags- fundi og annað því um Ifkt sem félagið stóð fyrir hér áður fyrr, en það get ég fullyrt að enginn skyldi vanmeta okkur. Þegar á reynir bregðast hafnar- verkamenn aldrei. Þegar á reynir munu þeir alltaf verða fyrstir til að styðja við bakið á forsvars- mönnum félagsins okkar. Þeir geta alltaf reitt sig á okkur þegar mikið liggur við í baráttunni fyrir bættum kjörum." Það er Friörik Sigurðsson hafnarverkamaður sl. 30 ár, sem segirþetta, þegarviö heimsóttum hafnarverkamennina, sem vinna við móttöku og afgreiðslu á vörum i portinu hjá Emskip innvið Sundahöfn til að ræða við þá um vinnuna, kjörin, lifið og tilveruna. Þeir sem við ræddum við voru: Guðmundur L. Jóhannesson, Friðrik Sigurðsson og Arni Guðmundsson. Guö- mundur L. Jóhannesson hefur unnið sem hafnarverkamaður siðan 1939 en hann er nú verk- stjóri i afgreiðslunni i Sundahöfn. Friðrik Sigurðsson hefur unnið við höfnina siöan 1946 og Arni Guðmundsson hjá Eimskip siðan 1934, fyrst á skipunum, siðan i landi. GLJ: Það hefur mikið breyst hér siðan ég byrjaði að vinna við höfnina i byrjun striðsins. Þá var allt unnið á höndum að kalla. Eilift strit, frá kl. 7 á morgnana og langt fram á kvöld, einkum eftir að striðiö byrjaði. Það var þvi engin furða þótt gömlu verka- mennirnir væru útslitnir menn uppúr fimmtugu. Þetta hefur breyst, sem betur fer. Vissulega er verkamannavinna við höfnina erfið i dag, en þó ekki nema svipur hjá sjón á móti þvi sem var. Það gera m.a. lyftararnir og önnur hjálpartæki.... FS: Það mátti nú lika breytast. Ég vann i gamla pakkhúsinu hjá Eimskip og þar var allt unnið á höndum. Meira að segja eftir að lyftararnir komu fyrst, voru dyrnar á pakkhúsinu svo þröngar að þeir komust ekki inn og maður varð að bera allt úr dyrunum og stafla þvi upp i pakkhúsinu. — En kjörin þá og nú? Ef viö tökum til að mynda árin fyrst eftir striöið, svona 1945 til 1950, haldiö þið aö kjör ykkar hafi verið betri þá en nú? ÁG: Það fer eftir þvi hvað við köllum kjör. Aðbúnaöur á vinnu- stað hefur batnað mikið og vita- skuld er hann hluti af kjörum manns. En hvað kaupinu viökemur, sem er auðvitaö aðal- málið, þá fer ekki á milli mála, að þaö var betra þá en nú. Þú færð fleiri krónur i dag, en þú færð miklu minna fyrir þær krónur, en þú fékkst fyrir þær fáu 1945 til 1950. Það álit ég. FS: Ég segi það sama. Ég vildi heldur hafa það kaup sem ég haföi þá og það verölag sem þá var, en þaö sem maöur hefur i dag. Ekki vafi á þvi. raun nema rétt fyrstu árin. Þá var hægt að lifa af 8 stunda vinnudegi, en guð hjálpi þeim sem ætlar að reyna þaö I dag. Og meðan menn geta ekki lifaö af átta stunda vinnu, þá á heldur ekki að vera að tala um hann. Þaö er ósköp eölilegt að svona sé, það er alltaf reiknað, með eftirvinnunni þegar kjara- samningar hafa verið geröir. Menn hafa alltaf viljaö vinna eftirvinnu, þéna sem mest, jafn- vel á þeim árum, sem hægt var að lifa af átta stundunum. Og þegar svo er komið að menn taka alltaf eftirvinnuna inni dæmið, kemur aldrei sá timi að menn geti lifað af átta stunda vinnudegi. Þessu mega menn ekki gleyma, þegar þeir býsnast yfir þvi að geta ekki lifaö af dagvinnunni. FS: Það er alveg rétt að auka- vinnan heldur okkur uppi og þegar atvinnurekendur eru að benda á hvaö við höfum mikið i kaup, þá er alltaf nefnd heildar- upphæðin yfir eitthvert ákveðið timabil, en aldrei nefnt hve margar vinnustundir liggja aö baki. Mér finnst það liggja I augum uppi aö við veröum aö fara að gera eitthvað róttækt i þessu máli. Þaö er alltaf sagt sem svo — við stefnum að þvi aö menn geti lifaö af dagvinnunni einni saman en siðan er aldrei neitt gert i málinnu. Viö svo búiö má ekki standa. — Búa menn sig undir baráttu þegar kemur að kjarasamningu i vetur? FS: Já, það máttu bóka. Oft hljóðiö i mönnum verið hvað kjörin varðar, en eins og nú og menn eru tilbúnir til baráttu. Þau við höfum nú bjóða þau eggja menn til ÁG: Það er vist ekki að menn séu óánægðir sin nú, eða hvernig ■ I— [i r—“ í «| Lhi ÁG: RÆTT VIÐ ÞRJÁ GAMALREYNDA HAFNARVERKAMENN í REYKJAVÍK GLJ: R Á REYNIR Atta stunda vinnudagurinn, sem svo lengi haföi verið barist fyrir kom 1942. En átta stunda vinnudagur hefur ekki veriö til i Frá vinstri: Friörik Sigurðsson, Guðmundur L. Jóhannesson og Arni Gubmundsson. Já, ég er það. Að visu eru forsvarsmenn félagsins ofhlaðnir störfum og kannski færi ýmislegt betur ef svo væri ekki, en við Margt er erfiðiö enn viö hafnarvinnuna FS: Ég get nefnt sem dæmi að hér hjá okkur eru aðeins tvö salerni, sem eiga að duga fyrir 40-50 manns, tvö salerni og tvær pissu- skálar. Þetta er ekki til fyrir- myndar. Þá er annað sem viö erum ekki mjög hrifnir af, en það er hve langt við þurfum að fara I kaffi, en viö höfum aðeins 20 min. i kaffi og má segja að uppundir helmingur þess tima fari i að koma sér i kaffi og aftur til vinnu. — Er það ekki versta vinnan að vera hér útí portinu, er ekki skárra að vera i pakkhúsunum? ÁG: Nei, það tel ég ekki. Ég hygg að þegar allt kemur til alls sé einna best að vera hér. FS: Maður venst þvi aö vera alltaf úti. Frost eða rigningu er allt i lagi meö, þaö er verst ef það snjóar. Snjórinn gerir okkur afar erfittfyrir. En það sem mér þykir einna verst hér, er moldrokið þegar hreyfir vind. Mér finnst afar erfitt að þola það. GLJ: Flestum sem fara að vinna svona úti þykir þaö betra en að vera i pakkhúsi. Þar er drag- súgur svo mikill og óþægilegur og kuldi sist minni, jafnvel meiri en hjá okkur. — Eruð þið ánægðir með stéttarfélagið ykkar, Dagsbrún? bakiðá þessum mönnum. Félagiö er vitaskuld ekkert annað en við sjálfir, stjórnin getur ekkert ef hún hefur ekki stuðning frá félagsmönnunum. ÁG: Það fer heldur ekkert á milli rháia að dofnað hefur yfir allri félagsstarfsemi undanfarin ár. Þaö er orðiö svo margt, sem dregur fólk til sin, og félagsstarf- semi geldur þess. En viö styðjum forsvarsmenn okkar þegar á reynir, þú mátt treysta þvi að við bregðumst þeim aldrei, þegar úti slaginn er komiö. FS: Nei, það er vist alveg öruggt, hafnarverkamenn bregöast ekki þegar á reynir. Sjáðu bara verk- fallið sem við geröum um daginn, þegar nokkrir félagar okkar voru reknir. Þá stóðum við saman allir sem einn hér. Við vissum að þeir höföu brotið lög og þvi gátum viö ekki réttlætt verkfallið, en viö vildum sýna ráðamönnum, að okkur væri ekki sama um félaga okkar og aö það væri ekki hægt að fara með menn hér eins og þeir einir vilja hverju sinni. — Fækkar ungum mönnum I stétt hafnarverkamanna? GLJ: Já þeim gerir það. Að visu koma alltaf ungir menn til vinnu við höfnina, en þeir standa stutt við. Flestir fara i einhverja aðra vinnu. Sumir koma oftar en einu sinni. Það virðist vera svo mikið rótleysi á mönnum nú til dags. En kannski er þetta skiljanlegt með unga menn, hafnarvinnan er ekki best borgaða verkamannavinnan. Ætli það verði fyrr en menn skortir i þessa vinnu að farið verður að greiða sama kaup hér og til að mynda i byggingar- vinnunni? En það kemur að þvi fyrr en seinna, ef svo heldur fram sem horfir aö menn fer að vanta i hafnarvinnuna. —S.dór. FS: Hann hefur vissulega batnað frá þvi ég byrjaði að vinna hér og það mikið, en þó ekki nema vissir þættir hans. Pakkhús eru gegnumkeyranleg og þvi er þar alltaf súgur og kuldi og alveg sér- staklega i þeim pakkhúsum sem steypt eru. Steypan heldur i sér kulda og þar er alltaf hálf hráslagalegt. Hjá okkur hér i portinu er það svo að viö vinnum úti undir beru lofti i hvaða veðri sem er, þannig að það hefur litið breyst. Við höfum þennan litla skúr hér f portinu og hann er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir, eða hvað finnst þér? ÁG: Aftur á móti hefur oröiö mikil og góð breyting á kaffistofunni. Nú höfum við fyrsta flokks kaffi- og matstofu, eins góða og frekast verður á kosið, og það er i þvi sem mesta breytingin hefur átt sér stað. bregðast hafnar- verkamenn ekki í baráttunni fyrir bættum kjörum vera eins og verðbólgan hefur leikið kjör okkar. GLJ: Það er staðreynd að með þvi að vinna gegndarlausa eftirvinnu er það rétt svo, að endar nái saman. — Þið höfðuð orð á þvl að ýmis- legt varðandi vinnu hafnar- verkamanna hefði breyst til batnaðar, hvað með aðbúnað á vinnustað, hefur hann breyst til batnaðar? berum fyllsta traust til stjórnar- manna félagsins. Annars hefur verkalýðsbaráttan breyst svo mikið á undanförnum árum að það er ekki hægt að jafna henni saman viö það sem var hér á striösárunum, eða fyrir strið. Menn tala um að forráöamenn félaganna geri ekki þetta eða hitt i dag, en sannleikurinn er sá að dags daglega styðja meölimir félaganna bara alls ekki nóg við Ölafur Kristjánsson, iyftarastjóri hjá Eimskip. Kannski ekki besta atvinnan en heldur ekki sú versta, segir Ólafur Kristjánsson tvítugur hafnarverkamaður ,,AÖ vinna hér við höfnina er kannski ekki besta vinna, sem hægt er aö fá, en hún er heldur ekki sú versta sem býðst. Ég get fullyrt það eftir að hafa stundað ýmsa atvinnu sl. 5 ár, byggingar- vinnu, fiskvinnu og hafnarvinnu, svo ég nefni dæmi”. Það er Ölafur Kristjánsson, tvitugur hafnar- verkamaður sem segir þetta er við ræddum við hann niöri’ við Sundahöfn i Reykjavik fyrir skömmu. Ölafur sagði aö sér hefði likaö einna best að vinna sem hand- langari hjá rafvirkja. En svo bauðst honum að læra rafvirkjun og byrjaöi en hætti þvi fljótlega. „Mér likaði það starf aftur á móti illa. Mér leiddist þetta „fokk”, sem rafvirkjunin er og hætti”. Ólafur vinnur á lyftara i Sunda- skála 1. Hann sagði að lang oftast væri unnið frá kl. 8 til 17 en sá vinnutimi gæfi aðeins 15 þúsund kr. i aðra hönd og væri þá búið að draga af öll gjöld nema skatta. Það kemur stundum fyrir aö unn- ið er frá kl. 8 til 19.00 og þá gerir vikan 18 þúsund þegar búiö er að draga gjöldin frá nema skattana. „Þú sérð aö þetta er ekkert kaup, það er engin leiö aö lifa af þessu kaupi og ég fæ ekki skiliö hvernig fjölskyldumenn lifa af þessu kauDi. Þaö er alltof lágt kaupið, skammarlega lágt”. sagði Ólafur. Hann sagði að aöbúnaður verkamanna við Sundahöfn væri misjafn, en i skálunum væri hann all góður. Sérstaklega rómaöi hann matstofuna, sem er ný og mjög vistleg. Hann sagði menn væru yfirleitt mjög ánægðir meö þann aöbúnaö. „Það sem vantar er meiri vinna, vegna þess hve kaupið er lágt. Aftur á móti ætti kaupiö aö vera svo hátt að ekki væri þörf á að vinna aukavinnu, en fyrst ástandið er svona, þá er bagalegt að hafa ekki meiri vinnu en verið hefur”, sagöi Ólafur. Aðspurður hvort hann hefði hug á aö fara úti eitthvað iðnnám, þótt honum hefði ekki likað raf- virkjunin, sagðist hann ekki hafa áhuga á þvi sem stæði, kannski seinna, hver veit. —Sdór. MYNDIR OG TEXTI S. DÓR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.