Þjóðviljinn - 18.11.1976, Page 3
Kimmtudagur 18. névember X976 ÞJÓÐVILJINN —SÍÐA 3
Þekkasta skáld a-
þjóðverja gert útlægt
á emnig von
á „erfiðleikum
vestan megin
AUSTUR-BERLÍN 17/11 —
Austurþýska skáldið og vlsna-
söngvarinn Wolf Biermann hefur
verið gerður útlægur þaðan úr
landi. Hann er nú staddur i
Vestur-Þýskalandi i söngferð.
Biermann hefur verið bannað að
syngja opinberlega i heimalandi
sinu siðan 1965, en i siðasta mán-
uði veittu yfirvöld honum ieyfi til
umræddrar ferðar til Vestur-
Þýskalands. Nú hefur honum ver-
ið tilkynnt að hann hafi verið
sviptur austurþýskum rikisborg-
ararétti og fái ekki að snúa heim.
Faðir Biermanns var myrtur af
nasistum i Auschwitz sökum þess
að hann var hliðhollur kommún-
istum. Biermann, sem nú er fert-
ugur að aldri, flutti árið 1953 frá
Hamborg til Austur-Berlinar á
þeim forsendum, að af þýsku
rikjunum tveimur væri Austur-
Wolf Biermann — fer I taugarnar
á valdhöfum báðumegin múrs.
Þýskaland betra. Meginatriðið i
viðhorfum Biermanns er það, að
ungir austur-Þjóðverjar eigi ekki
að flýja vestur, heldur að vera
um kyrrt og leitast við að byggja
upþ góðan kommúnisma. Haft er
eftir nánum vini skáldsins: „Wolf
er samviska landsins og hefur
varið mestum hluta lifs sins til að
segja fólki að það ætti ekki að
hlaupa frá öllu saman, heldur að
Agee rekinn
frá Bretlandi
Segir CIA reyna
að grafa undan
stjórn Jamaíku
LUNDUNUM 17/11 — Breska inn-
anrikisráðuneytið hefur visað úr
landi frægum strokumanni úr
bandarisku leyniþjónustunni CIA,
og er honum gefið að sök að hafa
meðal annars haft sambönd við
erlenda njósnara, dreift vissum
upplýsingum og reynt að afla
vissra upplýsinga og með þessu
öllu skaðað öryggi Bretiands.
Maður sá sem hér um ræðir heitir
Philip Agee og telur hann að
bresk stjórnarvöld hafi vlsað hon-
um úr landi vegna þrýstings frá
CIA, sem vilji fyrir hvern mun
hindra útkomu nýrrar bókar um
starfsemi leyniþjónustustofnunar
þessarar, sem Agee vinnur nú að.
Agee hefur þegar sent frá sér
eina bók um starfsemi CIA, sem
varð stofnun þeirri og bandarisk-
um stjórnarvöldum i heild til
mikillar hrellingar. Hann hefur
látið i ljós að I hinni nýju bók sýni
hann fram á, að CIA noti sams-
konar aðferðir og hún gerði sig
seka um i Chile hvar sem er i
heiminum, þar á meðal i Vestur-
Bresjnefs og Tito
Áhersla
lögð á
sjálfræði
kommún-
ista flokka
BEOGRAD 17/11 — Viðræöum
þeirra Bresjnefs, leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins, og
Titos Júgóslavluforseta lauk i dag
meö þvl að báðir undirrituðu yfir-
lýsingu, sem talin er fela i sér
skuldbindingu sovéskra ráða-
manna um að virða i einu og öllu
sjálfstæði Kommúnistaflokks
Framhald á bls. 14.
Philip Agee — heldur ótrauður;
áfram að ljóstra upp um myrkra-
verk fyrrverandi húsbænda
og Austur-Evrópu, Afriku og
Austurlöndum fjær. Agee var ný-
lega á Jamaiku og er sagður hafa
þekkt niu CIA-njósnara i starfs-
liði bandariska sendiráðsins þar.
Hann heldur þvi fram að CIA hafi
þar með höndum aðgerðir til að
grafa undan hinni vinstrisinnuöu
stjórn Michaels Manely, sem
Bandarikin hafa illan bifur á.
Segist Agee hafa varað jamaiku-
menn við aðgerðum CIA til að
grafa undan stjórninni og bent á
að aðferðir þessarar bandarisku
leyniþjónustustofnunar væru
mjög áþekkar þeim, sem hún
hefði beitt i Chile gegn stjórn All-
endes. Getur Agee þar væntan-
lega trútt um talað, þvi að sjálfur
starfaði hann á sinum tima fyrir
CIA I Suður-Amériku.
Hann segist ekkert hafa gert
sem skaðað geti öryggi Bret-
lands, en vegna bókarinnar, sem
hann hefur i smiðum, sé honum
nauðsyn að hafa aðgang að heim-
ildum i Lundúnum. En hann telur
CIA staðráðna i að hindra að hann
komi bókinni út. — 1 gær visaði
breska innanrikisráðuneytið úr
landi öðrum bandarikjamanni,
blaðamanni að nafni Mark
Rosenball. Er hann sakaður um
að hafa náð i til birtingar upplýs-
ingar skaðlegar öryggi Bret-
lands, þar á meðal efni sem orðið
geti „þjónum krúnunnar” til
vandræða.
reyna að gera kommúnismann að
veruleika. Nú hafa þeir (austur-
þýskir valdsmenn) með brögðum
komið honum i útlegðina, sem
hann vildi ekki fara i.”
Biermann er eitthvert þekkt-
asta og jafnframt umdeildasta
skáld Austur-Þýskalands og nýt-
ur aðdáunar fjölmargs fólks,
einkum þess yngra, i þýsku
rikjunum báðum. Hann er
ómyrkur i máli i gagnrýni sinni á
austur-þýska valdhafa og hefur
sakað rikjandi flokk landsins,
Sósialiska einingarflokkinn, um
einræði, en var engu að siður
ósammála afstöðu vina sinna,
sem flýðu vestur yfir. Um einn
þeirra, Florian Havemann, kvað
hann: „Florian situr nú á bak við
múrinn (Berlinar-múrinn) og
heldur að hann sé fyrir framan
hann.”
Vesturþýski rithöfundurinn
Heinrich Böll sagði i dag I sjón-
varpsviðtali að Biermann hefði
orðið mikið um fréttina og að
hann vildi snúa aftur til Austur-
Þýskalands, þar sem hann á konu
og hálfs árs gamalt barn. Þar að
auki sagði Böll að Biermann ætti
von á erfiðleikum i Vestur-Þýska-
landi sökum kommúniskra skoð-
ana sinna, en slikar skoðanir eru
nú allt að þvi bannaðar þar i
landi. Sagðist Böll meira að segja
efast um að Biermann fengi þar
starf sem kennari.
Austur-þýskir
rithöfundar
styðja
Biermann
AUSTUR-BERLIN 17/11 Reuter
— Hópur austurþýskra rithöfunda
mótmæiti i dag þeirri ráðstöfun
stjórnarvalda að gera skáldiö og
visnasöngvarann Wolf Biermann
útlægan. Hvetja rithöfundarnir
ráðamenn landsins til að endur-
skoða þá ákvörðun sina að svipta
Biermann rikisborgararétti og
neita honum um leyfi til að snúa
heim, en hann er nú i söngferða-
lagi I Vestur-Þýskalandi.
Olíuhringar ráðast
gegn skipaeigendum
A samdráttartimum undan-
farinna ára hefur verulega
dregið úr vöruflutningum með
skipum, sem aftur hefur haft i
för með sér samdrátt I skipa-
smlðum, rekstrarvandræði
skipasmiðastöðva og aukið at-
vinnuleysi. Verst hafa þó olíu-
flutningaskipin orðið úti. Fyrir-
tæki þau, sem hafa útgerð
þeirra með höndum, hafa orðið
að draga saman seglin i stórum
stil, leggja skipum, fækka ferð-
um annarra og draga til baka
pantanir hjá skipasmlðastöðv-
um. Hins vegar er svo að sjá að
einn aðili að minnsta kosti tapi
ekki á þessum samdrætti nema
siðursé, en það eru stærstu olíu-.
auðhringarnir sjálfir, sérstak-
lega svokallaðar „sjö systur”,
en svo eru gjarnan nefndir vold-
ugustu hringarnir á þessum
vettvangi, að mestu leyti
bandariskir og breskir að fjár-
magni.
Það er fleira en hinn alhliða
efnahagslegi samdráttur, sem
er að kippa fótunum undan
sjálfstæðri útgerð á oliuflutn-
ingaskipum. Siðustu árin hefur
margt breyst á vettvangi oliu-
vinnslu og oliuflutninga. Oliu-
fundirnir i Kina, Alaska og i
Norðursjó hafa i för með sér að
Persaflóasvæðið verður ekki
eins drottnandi á markaðnum
og fyrr. 1 samræmi við það
minnkar hlutfallslega þörfin
fyrir oliuflutningaskip á löngum
leiðum, það er að segja frá
Persaflóa til Vestur-Evrópu,
Japans og Norður-Ameriku.
Að sögn bandariska blaða-
mannsins George Lauriat, sem
vinnur við timarit um oliumál
og oliuskipaútgerð, útgefið i
Hongkong, hyggjast oliuauð-
hringarnir stóru i þessu sam-
bandi fara þannig að, sem nú
skal greina. Þeir draga ekki til
baka pantanir sinar hjá skipa-
smiðastöðvum, sérstaklega
ekki á smiðum oliuskipa af
stærstu gerðum. Vegna stærðar
sinnar, margbreytilegra mögu-
leika i rekstri og svo til tak-
markalausra yfirráða yfir auð-
magni geta þeir vel þolað það,
að hafa eitthvaö af þeim oliu-
skipaflota, sem þeir eiga sjálf-
ir, aðgerðalitið eða aðgerða-
laust næstu árin. Spádómar ým-
issa efnahagsspekinga kváðu nú
ganga i þá átt, að búast megivið
að samdráttarskeiðinu ljúki á
næsta áratug. Þegar þar að
kemur, verður meö núverandi
áframhaldi svo komið, að olíu-
risarnir geta flutt mestan hluta
þeirrar oliu, sem þeir versla
með, á eigin skipum og losnað
þannig við þá samkeppni, sem
Framhald á bls. 14.
Fjölmenn kröfuganga
breskra verkamanna
gegn efnahagsfyrirœtlunum stjórnarinnar
LUNDUNUM 17/11 — Um 20.000
manns úr verkalýðssamtökum
Bretlands og Verkamannaflokkn-
um fóru i dag I kröfugöngu að
hliðum breska þinghússins og
kröfðust þess að stjórnin drægi á
engan hátt úr fjárveitingum af
hálfu hins opinbera, þar eð slikt
er liklegt til að auka atvinnuleysi
og rýra kjör„verkamanna. Nokkr-
ir þingmenn I vinstra armi
Verkamannafiokksins voru I far-
arbroddi göngunnar, sem er talin
krókalaus atlaga gegn fyrir-
ætlunum rlkisstjórnar flokksins I
efnahagsmálum, en stjórnin
heldur þvi fram að þær ráðstaf-
anir séu nauðsynlegar til að
rétta pundið af.
Þúsundir lögreglumanna voru
á verði við þinghúsið og aðrir
voru á verði i hliðargötum meö-
fram gönguleiðinni. Gangan hófst
i Hyde Park og stöðvaði um skeið
mestanpart umferðina i miðborg
Lundúna. Nokkrum hluta göngu-
manna var hleypt inn i þinghúsið
til að þeir gætu talað máli sinu við
þingmenn, og komtil heitra orða-
skipta með göngumönnum og
þingmönnum i göngum hinnar
fornu byggingar.
7 drepnir á hóteli í Amnian
AMMAN 17/11 Reuter. — Fjórir
menn vopnaðir byssum, sagðir úr
palestinskum samtökum kölluð-
um Svarti júnl, réðust I dag inn i
Intercontinental Hotel i Amman,
höfuðborg Jórdaniu, og tóku 150
manns I gislingu. Sérþjáifaður
jórdanskur herfiokkur réðist inn i
hóteiið og felldi þrjár skæruliða
þessara, en sá fjórði var tekinn tii
fanga, alvarlega særður. Einn
þeirra var talinn japanskur.
Tveir jórdanskir hermenn og
tveir hótelstarfsmenn voru einnig
drepnir i bardaganum og tiu til
fimmtán manns munu hafa særst
alvarlega. Tilgangur fjórmenn-
inganna með þessari aðgerð mun
hafa veriö að neyða jórdönsku
stjórnina til að fordæma sam-
komulag arabaleiötoga um
Libanon, sem gert var á ráðstefn-
um i Riad og Kairó i siöasta mán-
uði. Svarti júni hefur nafn af þvi,
að það var I júni siðastliðnum
sem sýrlenski herinn réðist inn i
Libanon og gekk i lið með hægri-
mönnum i borgarastríðinu Svarti
júni minnti áður á sig með árás á
hótel I Damaskus 26. sept., en þá
biðu fjórir gislar bana áður en
sýrlensk herlögregla bugaði
skæruliðana. Einn þeirra féll i
viöureigninni og hinir voru
hengdir að viðstöddu fjölmenni
morguninn eftir.