Þjóðviljinn - 10.12.1976, Qupperneq 1
þjoðvhhnn
Föstudagur 10. desember 1976—41. árg. — 278. tbl.
8-13-33
Aðalsimanúmer bjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
dags, og kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þess tima
næst i starfsmenn blaðsins i. 81382, 81527, 81257, 81285, 81482 og
81348.
Reuters-fregnir frá Brussel:
Benda tíl að þegar hafi
verið gerður samningur
Gundelach segir að helmingslíkur séu á því að
„samningurinn ” verði samþykktur fyrir 1. janúar
Það er engu líkara, skv.
orðum sem Finn Gunde-
lach lét hafa eftir sér í
gær, en að þegar haf i verið
gerður leynisamningur við
ríkisstjórn islands um
fiskveiðiheimildir handa
bretum hér við land og að
helmingslikur séu á þvi að
bretar fái að hefja hér
veiðar innan íslensku fisk-
veiðilandhelginnar um
áramót eða frá 1. janúar
1977.
Þetta kemurfram i fréttaskeyti
sem „reuter” sendi út i gær eftir
blaðamannafund sem Gundelach
hélt i Brússel i aðalstöðvum
Efnahagsbandalagsins i gær.
Þá berast sifellt fregnir að utan
um að viðræður muni fara fram
milli rikisstjórnar Islands og
EBE um miðjan mánuðinn.
Fréttaskeytið frá „reuter” sem
áður var nefnt hljóðar svo i orð-
réttri þýðingu:
„BrUssel 9. des. — reuter —
Unnt er að gera ráð fyrir þvi að
meira en helmingur bresku tog-
aranna 24urra, sem áður höfðu
heimild til veiða innan islensku
landhelginnar, fái heimild til
veiöa á ny skv. bráöabirgðasam-
komulagi sem er nú á viðræðu-
stigi milli aðila i Reykjavik og
Framhald á 14. siðu
Gundelach: helmingur togaranna
aftur á tslandsmiö.
Húsgögn
af frí-
lista?
Þjóðviljinn hefur það
eftir nokkuð öruggum
heimildum aö húsgögn og
eldhúsinnréttingar verði
teknar af frilista um
næstu áramót, en til
þessa hefur mjög mikið
verið flutt inn, bæði af
húsgögnum og ekki siður
eldhúsinnréttingum og
skápum hverskonar.
Einn innflytjandi sagði að það
hefði verið látið leka út til þeirra
sem við slikan innflutning fást
að þessar vörur yrðu teknar af
frilista um áramót, eins og gert
var fyrirvaralaust með litasjón-
vörp og kex fyrr á þessu ári.
Einn af þeim sem mikið hefur
flutt inn af þessum vörum, hefur
þegar selt innflutningsfyrirtæki
sitt vegna þess máls, svo fjall-
grimma vissu haföi hann fyrir
þvi að vörurnar yrðu teknar af
frilista um áramót.
Þórhallur Asgeirsson, ráðu-
neytisstjóri i viðskiptaráöu-
neytinu sagðist ekkihafa heyrt á
þetta minnst, er við bárum
þessa frétt undir hann i gær.
Hann sagði ennfremur að sér
fyndist afar ótrúlegt að þetta
væri hægt vegna EFTA-aöildar
okkar. Þegar honum var þá
bent á litasjónvörp og kex,. sem
hvoru tveggja væri háð inn-
flutningsleyfum, sagöi Þór-
haliur að það væri rétt að þessar
vörur væru háðar leyfum, en
það væru takmörk fyrir þvi hve
langt við gætum gengið i að taka
vörur af frilista vegna EFTA-
aðildar.
Að lokum má geta þess að
þótt málið sé ekki komið svo
langt að ráðuneytið viti af þvi,
þá er ekki þar með sagt að það
hafi ekki verið rætt og jafnvel
tekin ákvörðun um það i rlkis-
stjórninni, en það er hún, sem
ræður þvi hvort af þessu verður.
—S.dór
Fulltrúaráðs-
fundur
Kjördæma-
skipan og
ASÍ-þingið
A fulltrúaráðsfundi Alþýöu-
bandalagsins i Rvik, sem hefst að
Hótel Esju kl. 2 eftir hádegi
laugardag, verður fjallað um tvo
málaflokka, kjördæmaskipunina
og verkalýðsmál að afloknu ASl-
þingi. Magnús Kjartansson,
alþingismaður, hefur framsögu
um kjördæmaskipunina, og Guð-
jón Jónsson, formaöur Lands-
sambands málm- og skipasmiða,
hefur framsögu um ASl-þingið og
verkalýðsmálin.
S tj órn a ra n dstaða:
Engar
• x •
veioi-
heim-
ildir
Þingmennirnir Lúðvik
Jósepsson, Benedikt Gröndal
og Karvel Pálmason haf lagt
fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar og hljóðar
hún svo:
Vegna þeirrar vitnesku,
sem fyrir liggur um veika
stöðu helstu fiskistofna við
landið, lýsir Alþingi yfir þvi,
að nýir samningar um veiði-
heimildir útlendinga i fisk-
veiðilandhelgi Islands komi
ekki til greina.
Flutningsmenn hafa óskað
eftir útvarpsumræðum um
tillöguna þar sem tillagan
verði skýrð og rökstudd.
—GFr.
Stœkkun álversins9 ný súrálverksmiðja og orkurannsóknir á vegum útlendinga!
Næsti fundur
aðila í Sviss í
febrúarmánuði
I viðræðum þeim sem Gunnar
Thoroddsen átti við fulltrúa
Svissaluminium i nóvemberbyrj-
un var ákveðiö að næsti fundur
aðila verði haldinn um miðjan fe-
brúar i Sviss. Það er með öðrum
orðum gert ráð fyrir þvi skv.
undirrituðu minnisblaði aðila að
halda áfram að makka um þau
atriði sem nefnd eru á minnis-
blaðinu. Þar er um að ræða 4
meginatriði:
„1. Rætt var um möguleika á
stækkun ISAL'-verksmiðjunnar.
Báðir aðilar lýstu áhuga sinum og
Alusuisse skýrði frá þvi aö þeir
vonuðu að geta eftir þrjá mánuði
lagt fram nákvæma áætlun um
stækkun kerskála 2 og um þriöja
kerskálann.
2. Rætt var um möguleika á
framtiðarsamstarfi milli aðila
við rannsóknir á vatnsafli og
iðnaðaráformum á Austurlandi.
Aðilar munu fjalla um þetta mál
siðar.
3. Alusuisse lagði fram skýrslu
um aðferð við geymslu úrgangs-
efna frá súrálsverksmiðju
(„þurrgeymsluaðferð”)'. Eftir að
islenskir visindamenn hafa rann-
sakað þessa skýrslu munu aðilar
halda áfram að rannsaka mögu-
leika á þvi að setja upp súr-
álverksmiðju i grennd við
Straumsvik, sem fær jarðvarma-
orku.
4. Rikisstjórnin lýsti áhyggjum
vegna þess að hægar hefur gengið
að koma upp hreinsiaðstöðu en
gert hafði verið ráð fyrir. Alusu-
isse mun leggja fram endurnýj-
aða áætlun um málið á næsta
fundi aðila.
5. Aðilar samþykktu að næsti
fundur yrði haldinn 15. febrúar
1977 i Sviss.”
MEMORANDUM
on
Dlscusaions betwoen repreaentativoa ot the
Goverruftont ot lceland and Swlss Aluainiuw Ltd.
held in Reykjsvik on Novewber 4th and 5th 1976.
1. Possible extensions ot the ISAL-plant were discuaaed. Ðoth partiea
expreased their interest and Alusuisso indicated that in about three
wontha tiae they hoped to be in a position to como forward with a
definite plan for the tialng of the extension of potline 2 and a
proposal for the tising of a third potllne.
2. Aspecta conceming future cooporation between the parties in exploring
hydroelectric power and induatrial projecta .in Eastern lceland were
discussed. The parties will revert to this subject at a later date.
3. Alusuisse submittod s report ooncemlng a method for "dry" stocking
of waste saterials frow sn slusina plsnt. After this report has been
studied by Icelandic scientists, the parties will continue to explore
poaslbilitioa for conatructinfc sn aluaina plant near Straumavík ualng
geothenaal energy.
4. The Governaent expressed concem about slower progress in installation
of cleanlng facilities thsn previoualy envisaged. Alusuisse will subait
s revlsed progress schedule st the next eeeting of the parties.
5. The partiea agreod that the next eeeting will be held on February 15,
1977 in Swltzerland.
For the Government of Iceland
For Swiss Aluminiua Ltd.
Minnisblað úr leyniviðræöum Gunnars Thor og Swissaluminum.