Þjóðviljinn - 10.12.1976, Síða 4

Þjóðviljinn - 10.12.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. desember 1976 UOOVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. (Jtgefandi: útgáfnfélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudágsblaöi: Arni Bergmann Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjör- leifsson Augiýsingastjóri: Úlfar Þormóösson Ritstjórn, afgreiösla, augiýsingar: Siöumúla 6. Simi 81333 \ Prentun: Blaðaprent h.f. VAR GERÐUR LEYNISAMNINGUR I OSLO? Ráðherrarnir Einar Ágústsson og Matthias Bjarnason fóru undan i flæmingi þegar þeir voru spurðir um það til hvers þeir væru að fara i viðræður við Efna- hagsbandalagið um fiskveiðimál. Þeir voru eins og þokulúðrar i blámóðu fjarsk- ans — og slik framkoma af hálfu ráðherr- anna er blátt áfram dónaskapur við is- lensku þjóðina. Þjóðin á heimtingu á þvi að fá að vita hvaða stefnu stjórnarvöld hafa áður en sest er að samningaborði með útlendingum. Vissulega bendir hins vegar þögn ráðherranna til þess að þeir þurfi eitthvað að fela, að þeir vilji ógjarn- an segja eitt eða neitt fyrr en allt er klapp- að og klárt. Þögn ráðherranna bendir meðal annars til þess sem kom fram hér i. Þjóðviljanum sl. vor að hugsanlegt væri að samhliða Oslóarsamningnum hafi ver- ið gerður leynisamningur við breta um að þeir kæmust aftur inn i islensku landhelg- ina. Þögn ráðherranna bendir og til þess að þeir hafi fullan hug á að starfa sam- kvæmt slikum leynisamningi eða að þeir vilji beinlinis umfram allt semja við Efna- hagsbandalagið um fiskveiðimál. Var fróðlegt, en um leið ömurlegt, að heyra það þegar umræddir ráðherrar hótuðu is- lendingum ofbeldisaðferðum af hálfu breta i sjónvarpsþættinum á þriðjudags- kvöld i stað þess að telja kjark i þjóðina og þó fyrst og fremst sjálfa sig sem jafnan glúpna frammi fyrir hótunum útlendinga. Nú eru bretar farnir. Nú er ljóst að við höfum ekkert að sækja á annarra fiski- mið. Nú er ljóst að Efnahagsbandalagið hefurenga heildarfiskveiðistefnu — þar er hver höndin upp á móti annarri. Við þess- ar aðstæður væri blátt áfram fáránlegt að semja við Efnahagsbandalagið til viðbót- ar við þá samninga sem islendingar verða að burðast með fram eftir næsta ári við tvö riki Efnahagsbandalagsins. En þögn og flótti ráðherranna bendir á iskyggilegar blikur á lofti. — s. ÁSKORUN Á ALÞINGI Þegar unnið var að gerð málefnasamn- ings vinstristjórnarinnar var á það fallist að tillögu Magnúsar Kjartanssonar að unnið skyldi með forgangshraða að bygg- ingu geðdeildar Landspitalans. Ástæðan var ma. sú að þá þegar, 1971, hafði um langt árabil verið mikil umræða um vandamál geðlækninga á íslandi og hafði eitt málgagna viðreisnarstjórnarinnar ma. beitt sér fyrir harðri gagnrýni á sleifarlagið i geðhjúkrunarmálum. Ráð- herrar viðreisnarstjórnar Alþýðuflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins létu hins vegar hvergi á sér hrina og hreyfðu sig ekki þrátt fyrir gagnrýni stjórnarandstöðu og sérfræðinga og umvandanir eigin mál- gagns. Þeir hreyfðu sig hvergi. Það var þvi ekki fyrr en á árinu 1971 sem ákveðið var að hefjast handa af myndarskap og það kom i hlut Magnúsar Kjartanssonar að fylgja málinu eftir innan vinstristjórn- arinnar. Svo myndarlega var þá að verki staðið að áður en langur timi leið lá fyrir áætlun um byggingu geðdeildar. Náði á- ætlunin yfir 3 ár og átti deildin þá að vera fullbúin i ársbyrjun 1978. Var i fyrstunni veitt nægilegt fé til þess að unnt yrði að standa við áætlunina, en strax og hægri- stjórnin kom til valda dró mjög verulega úr framkvæmdahraðanum og nú bendir flest til þess að hægristjórninni takist að. tefja byggingu geðdeildarinnar i sex ár. Þessi vinnubrögð eru algert hneyksli og viðbrögð heilbrigðisráðherra i þessum efnum eru dæmigerð fyrir talsmenn i- haldsins i félagslegum efnum. Þegar rekið var á eftir málinu á alþingi tók ráðherr- ann á móti af hroka, frekju og geðvonsku. Hann neitaði gjörsamlea að skilja nauð- syn þessa verkefnis. Sú neitun hljómar eins og skerandi sarg i eyrum þeirra þús- unda islendinga sem eiga við vandamál að striða vegna geðsjúkra sem ekki hefur verið unnt að veita viðhlitandi umönnun á sjúkrahúsum. Þjóðviljinn skorar á alþingi að láta skilningsleysi heilbrigðisráðherrans lönd og leið og samþykkja svo myndarlega fjárveitingu til geðdeildarinnar að dugi til þess að ljúka byggihgu hennar 1980. Það er að visu töf um työ ár frá þvi sem i önd- verðu var áætlað en það er of seint að bæta að fullu vanrækslu hægristjórnarinnar i þessum efnum. — s. Þórarinn Þórarinsson hefur gleymt uppruna sinum. Þess vegna einn fram- sóknarmaður Þórarinn Þórarinsson ræðst gegn þvi af blóöugri heift i for- ystugrein Timans i gær sem haldið hefur verið fram af for- ystumönnum verkalýðshreyf- ingarinnar að undanförnu að hreyfingin þyrfti að hafa póli- tisk markmið. Má þetta heita furðuleg afstaða ritstjóra sem ólst upp undir handarjaðri Jónasar Jónssonar frá Hriflu, sem átti þátt i þvi að stofna Alþýðuflokkinn og Alþýöusam- bandiö á sinum tima. Enn furðulegri er þessi af- staöa Þórarins — að vera á móti stjórnmálaskoðunum verka- lýðssamtaka — þegar þess er gætt að hann sat sjálfur dag- langt og náttlangt á ASI-þingi sem formaður þingflokks Framsóknarflokksins viö aö reyna aö fá nokkra þingfulltrúa til þess aö hlýöa flokkslinu framsóknar. Þar var vissulega um að ræða tilraun til að hafa pólitisk áhrif en þvi er ekki að neita að þau urðu æði takmörk- uð. Þau voru takmörkuð vegna þessað þeir fáu menn sem Þór- arinn náði til neituðu að hlita leiðsögn hans: þeir gengu út af fundi og þeir neituðu alveg sér- staklega að styðja sérstakan flokksfulltrúa Þórarins i miðstjórn ASI. Þess vegna er nú einn framsóknarmaöur i miðstjórn ASÍ. Hlálegt Þórarni sárnaði að sjálfsögðu aðenginnskyldi vilja taka mark á honum á ASI-þingi. Þess vegna bölsótast hann dag eftir dag i Timanum gegn Alþýðu- bandalaginu og islenskum sósialistum sem halda þvi fram að verkalýðshreyfingin hljóti alltaf og ævinlega að vera póli- tisk i athöfnum sinum. Þessi af- staða islenskra sósialista er i samræmi við upphaflega stefnu ASI og Alþýðuflokksins fyrir 60 árum um að breyta þjóðfélag- inu. En það er hlálegt þegar rit- stjóri Timans árið 1976 traðkar á upphaflegum hugsjónum fyrri leiðtoga Framsóknarflokksins — einungis vegna þess að hon- um var sjálfum i rauninni varp- að á dyr á ASl-þinginu á dögun- um. Harðlínumenn Alþýðubanda- lagsins Morgunblaðið hefur nú birt viðtöl við alla þá ihaldsmenn sem gegna ennþá forystustörf- um i verkalýðshreyfingunni. Er margt fróðlegt i viðtölum þessum, en fátt kemur þó á óvart. Þó verður undirritaður að játa að honum þykir heldur undarlegt að sjá formann Iðju i Reykjavik Bjarna Jakobsson i grátkonugervi i Morgunblaðinu. Þar harmar hann aö róttækir skyldu auka hlut sinn i mið- stjórn ASl. I fyrirsögn segir: „Engum til heilla að fá svo stóran hóp harðlinumanna Alþýðubandalagsins i miðstjórn ASl.” Þessi yfirlýsing Bjarna Jakobssonar er æði furðuleg þegar þess er gætt að sú aukn- ing „harðlinumanna Alþýðu- bandalagsins” i miðstjórn ASl felst að hálfu leyti i þvi að Guðmundur Þ. Jónsson vara- formaður Iðju i Reykjavik — þ.e.a.s. varamaður Bjarna Jakobssonar, var kosinn i miðstjórn ASl. Er það i fyrsta sinn i langan tima sem iðn- verkafólk á fulltrúa i miðstjórn ASI og er sannarlega timi til kominn. Guðmundur Þ. Jónsson er sósialisti, félagi i Alþýðu- bandalaginu. Orð Bjarna Jakobssonar i Morgunblaðinu i gær virðast sérstaklega beinast gegn Guömundi . Það er leitt, fyrst ætti Bjarni Jakobsson að hugleiða örlög forvera sinna, ihaldsmanna, i formannssæti Iðju i Reykjavik, áður en hann lætur slika endileysu á þrykk út ganga i Morgunblaðinu. Kaskótrygging handa verka- lýðsleiðtogum Annað væluviðtal i Morgun- blaðinu i vikunni er við Magnús Geirsson formann Rafvirkja- sambandsins. Hann talar um sig sem „sjálfstæðismann” og kemur það út af fyrir sig fáum á óvart, enda þótt sú nafngift segi aðeins hálfan sannleikann og hálfsannleikur „oftast er óhrekjandi lygi”. Hann hefur nefnilega um langt skeið lika verið Alþýðuflokksmaöur og þannig i tveimur stjórnmála- flokkum. Þessi sjaldgæfa afstaða er að vera eins konar gangandi holdi klædd viðreisn- arstjórn hefur reynst mannin- um einkar heilladrjúg um dag- ana i þjóðstjórnarfyrirkomulagi Alþýðusambands Islands. Þar notar hann þá flokksaðildina sem hentar betur til þess að koma sér fyrir i ASI, en sfðan notar hann aðildina að hinum flokknum eins og bifreiðaeig- endur kaskótryggingu svo- nefnda. Má segja að Magnús Geirsson hafi þannig óvenjulega stöðu meðal islenskra verka- lýðsleiðtoga, stöðu sem vonandi er einsdæmi. Pétur hyggur á hefndir Fyrsta grátkona, Guðmundur H. Garðarsson sagði frá því i Mbl., að hann hefði fyrir all- löngu tilkynnt kommum og krötum að hann vildi ekki gefa kost á sér til miðstjórnar ASI. Þessi tiðindi las Pétur Sigurðs- son afsettur verkalýðsleiðtogi með mikilli forundran i Morgunblaðinu. Honum sagði Guðmundur ekki að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér fyrr en 4- 5'tímum áður en kjör miöstjórn- ar ASI fór fram. Þá þorði Guðmundur ekki að gefa kost á sér, en atti Pétri á foraðiö I von- lausa kosningu. Er það i eina skiptið sem Guðmundur H. Garðarsson hefur stutt Pétur Sigurðsson innan verkalýðs- samtakanna. Núhyggur Pétur á hefndir. Leikreglur lýðrœðisins I stað Guðmundur H. Garð- arssonar sem „fulltrúa versl- unarfólks” kom i miðstjórn ASl Björn Þórhallsson. Hann er svo hreinskilin að lýsa því yfir i Mbl. að hann hefði viljað kljúfa verkalýðssamtökin ef hann hefði lent út úr miðstjórn ASI eða allir þeir sem eru i eða við Sjálfstæðisflokkinn svokallaöa. Þannig virða ihaldsmenn leik- reglur lýðræðisins — þegar þeir eru i minnihluta. Magnús Geirsson Guðmundur II. Björn þolir ekki lýðræöiö.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.