Þjóðviljinn - 10.12.1976, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. desember 1976
SPARIÐ!
Rúllukragapeysa úr
acryl.
Verð
Stærðir: S — M — L
Litir: blátt — rautt —
gult — grænblátt —
grænt — flöskugrænt.
Mussa úr polyester /
cotton blöndu
Verð:
Stærðir: S — M — L
Litir: rautt — blátt —
grænt
Fást einnig röndóttar.
Opið til klukkan 10 í kvöld
og til kl. 6 á morgun
SKEIFUNNI 15l ISIMI 86566
Skipaafgreiösla Suöurnesja s/f
Aðalfundur
Skipaafgreiðslu Suðurnesja s/f verður
haldinn föstudaginn 17. desember, n.k. og
hefst kl. 14 i Framsóknarhúsinu i Kefla-
vik.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir nóvem-
ber mánuð er 15. desember. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna rikis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið.
10. desember 1976.
KLÆÐUM
HÚSGÖGN
úrval af áklæðum og kögri
Notið ykkur þjónustu okkar
Borgarhúsgögn
Hrey f ilshusinu við
Grensósveg.
Simi: 85944 og 86070
ttarfr
Lögfest verði hefðbundin
sameign þjóðarinnar
t fyrradag kom til fyrstu um-
ræöu i cfri deild Alþingis frum-
varp þeirra Ragnars Arnalds,
Stefáns Jónssonar, Helga F. Selj-
an og Geirs Gunnarssonar um
breytingu á stjórnarskránni. Það
sem bætist viö stjórnarskrána er
skv. frumvarpinu þetta:
Öll verðmæti i sjó og á sjávar-
botni innan efnahagslögsögu, svo
og almenningar, afréttir og önnur
óbyggð lönd utan heimalanda,
teljast sameign þjóðarinnar allr-
ar, einnig námur i jörðu, orka i
rennandi vatni og jarðhiti neöan
við 100 m. dýpi.
Eignarrélti á islenskum nátt-
Uruauðæfum, iandi og landgrunni
skal að öðru leyti skipað með lög-
um. Tryggja ber landsmönnum
öllum rétt til eðlilegrar umgengni
og útivistar i landinu. Við eignar-
nám á landi, i þéttbýli sem dreif-
býli, skal almennt ekki taka tillit
til verðhækkunar, sem stafar af
uppbyggingu þéttbýlissvæða i
næsta nágrenni, opinberum
framkvmdum eða öðrum ytri að-
stæðum, heldur ber að miða mat
við verðmæti hliðstæðra eigna,
þar sem þess háttar ástæður hafa
óveruleg áhrif til veðhækkunar.
Með þeim takmörkunum, sem
hér greinir, skal við það miða, að
bændur haldi eignarrétti á jörð-
um sinum, beitirétti i óbyggðum
og öðrum þeim hlunnindum í
heimalöndum ogutan þeirra, sem
fylgt hafa islenskum búskapar-
háttum á liðnum öldum.
Rangtúlkun i
Morgunblaðinu
og Timanum
Ragnar Arnalds fylgdi frum-
varpinu úr hlaði og sagði að efni
þess hefði verið rangtúlkað i
Morgunblaðinu og Timanum en
þessi blöð hefðu látið að þvi
liggja að hér væri um takmörkun
á eignarétti bænda að ræða og
þjóðnýtingu. Þetta væri villandi
þvi að með þjóðnýtingu væri átt
við að einkaeign breytist i rikis-
eign. Þó að flutningsmenn vildu
gjarnan þjóðnýtingu á ýmsum
sviðum væri alls ekki um hana að
ræða i þessu frumvarpi heldur
einungis verið að festa það i
stjórnarskrá að það sem verið
hefur sameign verði það áfram.
Ragnar Arnalds.
Bragi Sigurjónsson.
óljós ákvæði
Þá sagði Ragnar að eignarrétt-
arákvæði væru óljósari hér á
landi heldur en i nágrannalönd-
um. Væri það bæði vegna strjál-
býlis og allt fram til aldamóta
hefði það verið trú manna að ekki
væri um önnur auðæfi að ræða á
Isandi en fiskur og gras.
Vatnsorka er
almenningseign
Ragnar Arnalds rakti itarlega
svokölluð fossamál fyrir tæpum
60 árum en þá komst meirihluti
fossanefndar með Einar Arnórs-
son prófessor i fararbroddi að
þeirri niðurstöðu að vatnsorka
væri almenningseign.
Takmörk fyrir þvi
hversu eignarréttur á
jarðhita nær djúpt i jörð
1 sambandi við eignarrétt á
jarðhita hefðu prófessorarnir
Ölafur Lárusson og Ölafur Jó-
hannesson bent á það á sinum
tima að -engin ákvæði væru um
það hversu djúpt i jörðu eignar-
ráð landeigenda næðu og skv.
orðum þeirra mundu islenskir
dómstólar komast að þeirri nið-
urstöðu að eignarréttur undir 100
metra dýpi væri ekki á hendi
einkaaðila. Hér væri þvi ekki um
þjóðnýtingu að ræða.
Dómsúrskurðir um
eignarrétt á afrétti
Þá vitnaði Ragnar i tvo úr-
skurði hæstaréttar um að enginn
ætti eignarrétt á afrétti. Væri þvi
með þessu frumvarpi einungis
verið að úrskurða i eitt skipti fyr-
ir öll að svo skuli vera áfram.
Að marka skýra stefnu
íslendingar hafa verið sinnu-
lausir um að marka skýra stefnu i
eignarréttarmálum og þess
vegna er hætta á að einstaklngar
sölsi undir sig réttindi sem þeir
eiga engan rétt til. Þess vegna er
þetta frumvarp fram komið,
sagði Ragnar að lokum.
Bragi samþykkur
Bragi Sigurjónsson fagnaði
frumvarpinu og taldi það ganga i
sömu átt og frumvarp alþýðu-
flokksmanna i meginatriðum.
Fleiri tóku ekki til máls. -GFr.
KULDAÚLPUR
KULDAÚLPUR
Stuttar og síöar kuldaúlpur
Allar stæröir
Sendum
í póstkröfu
VINNUFATABÚÐIN
Laugavegi 76 og Hverfisgötu 26.