Þjóðviljinn - 10.12.1976, Qupperneq 16
DJOÐVIIJINN
Föstudagur 10. desember 1976
Aöalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
1 daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra
starfsmenn blaðsins i þessum simum Hitstjórn 81382,
81527, 81257 og 81285, útbreiðsia81482 og Blaðaprent81348.
Einnig skal bent á
heimasima starfsmanna
undir nafni Þjóðviljans i
simaskrá.
Árni Jónsson, erindreki Stéttarsambands bœnda:
Niðurgreiðslur og sölu-
skattur tvíverknaður
Fyrsti fundur nýkjörinnar miðstjórnar ASÍ var haldinn i gær og var myndin tekin við það tækifæri.
Ritari stjórnar var kosinn Jón Helgason Akureyri og gjaldkeri Einar ögmundsson. Frá vinstri: Einar
Ögmundsson, Þórunn Valdimarsdóttir, Guðriður Eliasdóttir, Guðm. Þ. Jónsson, Karvel Pálmason, Jón
Eggertsson, , Bjarnfriður Leósdóttir, Hermann Guðmundsson, Björn Jónsson, Snorri Jónsson, Eðvarð
Sigurðsson, Björn Þórhallsson, Magnús Geirsson, óskar Vigfússon, Jón Snorri Þorleifsson og As-
mundur Stefánsson.
Reglugerð um nýja möskvastœrð
T ogaraskipst j ór ar
mótmæla henni
Um næstu áramót tekur gildi
reglugerð þess efnis að möskva-
stærð á trolli við þorsk og ýsu-
veiðar skuli vera 155 millimetrar
i stað 135 mm. eins og nú er og aö
möskvastærö á karfaveiðum
skuli vera 135 mm. Nýlega barst
sjávarútvegsráðuneýtinu skeyti
frá nokkrum togaraskipstjórum,
þar sem þeir mótmæla þessari
nýju reglugerð og hóta að virða
hana að vettugi.
Jón Arnalds ráðuneytisstjóri
sagðist ekki geta sagt um það á
þessu stigi málsins hvernig ráðu-
neytiðmyndi bregðast við þessari
hótun en tók fram að hann væri
vantrúaður á að skipstjórar
myndu standa við þessa hótun,
eftir þær tilraunir sem fram hafa
fariðundanfariðá möskvastærð á
trolli.
Sagði hann að ekki lægju fyrir
nein fiskifræðileg rök fyrir þvi að
ástæða væri til að breyta reglu-
gerðinni aftur og hafa möskva-
stærðina óbreytta.
Einnig benti hann á að það væri
ekki hlaupið að þvi að breyta
reglugerðum um möskvastærð.
Þegar reglugerðin var sett á sl.
vetri var útgerðinni gefin umþótt-
unartimi til að breyta veiðarfær-
um. Nú hefðu innflytjendur neta i
troll flutt inn net með 155 mm.
möskvastærðinni og innlendir
trollframleiðendur fyrir nokkru
hafið gerð trolla með þessari
möskvastærð.
Það er þvi ljóst, að möskva-
stærð á trollum verður 155 mm
við ýsu og þorskveiðar um næstu
áramót og eftir að sjá hvort skip-
stjórar láta verða af þvi að virða
reglugerðina að vettugi.
—S.dór
1 ályktun, sem samþykkt var á
almennum og mjög fjölsóttum
bændafundi I Árnesi I Arnessýslu,
s.I. þriðjudagskvöld var á það
bent, að niðurgreiðslur á land-
búnaðarafurðir væru ekki til-
komnar vegna óska bænda heldur
hefði rikisvaldið átt frumkvæði
að þeim og teldi sig beita þeim
sem hagstjórnartæki i hinni lang-
vinnu viðureign við verðbólgu og
dýrtið. Óskaði fundurinn eftir þvl
að athugað yrði hvort ekki væri
rétt að hætta niðurgreiðslum á
kjöti og kjötvörum og fella jafn-
framt niöur söluskatt á þessum
vörum.
Blaðið spurði Arna Jónasson,
erindreka Stéttarsambands
bænda að þvi, hvernig þessi
breyting kæmi til með að verka,
ef gerð yrði og hvort þetta mál
hefði nokkuð verið á dagskrá hjá
bændasamtökunum og stjórn-
völdum.
Arni Jónasson sagði þetta hafa
verið og vera i athugun. Niður-
greiðsla á kjöti i heilum og hálf-
um skrokkum væri nú kr. 122,00 á
hvert kg. en söluskatturinn á kg.
kr. 109,34. Þetta breytist þegar
búið er að brytja skrokkana niður
þannig að t.d. söluskattur á hvert
kg. af súpukjöti 1 er kr. 113,20 en
niðurgreiðslan sem fyrr kr. 122,00
og er hún jöfn. A súpukjöt 2 er
söluskatturinn kr. 121,57 og má þá
heita, að orðið sé jafnt á klakki.
Siðan fer dæmið að snúast við
þannig að á hvert kg. i lærum er
söluskatturinn kr. 127,71, i
hryggjum kr. 130,50, i læra-
sneiðum kr. 156,19 og kótelettum
kr. 142,93. Otkoman af breyting-
unni yrði þvi sú, að bestu hlutar
skrokksins og smásalan mundi
lækka. En i heildinni mun þetta
vegast mjög á.
Við hjá Stéttarsambandinu
höfum haldið þvi fram, sagði Árni
Jónasson, að ef rikisvaldið hefði'
áhuga á þvi að lækka fjárlaga-
upphæðina, þá ætti það að afnema
þessar niðurgreiðslur á kjöti og
kjötvörum. 1 sjálfu sér er það fá-
sinna, að vera að innheimta sölu-
skatt til þess að borga svo álika
upphæð til baka sem niður-
greiðslur. Hinsvegar verður
þessu ekki beitt gagnvart
mjólkurvörum þvi á þeim er ekki
söluskattur.
Við spurðum Arna Jónasson að
þvi, hvort hann teldi likur á að
horfið yrði að þessu ráði.
Við bentum nú rikisstjórninni á
þetta i haust, svaraði Arni, — en
hún hafði ekki áhuga á þvi þá.
Aftur á móti mun hún vera farin
að ræða um þetta núna.
—mhg
Happdrœtti Þjóðviljans:
Kaupum miða
- eflum blaðið
Nú hefur Happdrætti Þjóðvilj-
ans hafið sölu happdrættismiða,
svo sem venja er á þessum árs-
tima.Stuðningsmönnum blaösins
hafa verið sendir miðar I sam-
ræmi við forsögulegar staðreynd-
ir, sem i sumum tilfellum eru
bæði ónákvæmar og stórgall-
aðar. En eins og svo oft áður, þá
treystir happdrættið á umburðar-
lyndi manna og vonar að þeir hafi
efst I huga markmið þess.
A þessu ári minnumst við 40 ára
afmælis Þjóðviljans. í tilefni af
þvi hafa stuðningsmenn blaðsins
fært þvi glæsilegt húsnæði að
Siðumúla 6 i Reykjavik.
Þótt hér sé um að ræða
myndarlegt átak, þá er mun
þýðingarmeira að tryggja rekst-
ur blaðsins. Hér kemur happ-
drættið til skjalanna. Allt frá þvi
að Þjóðviljinn efndi til happ-
drættis i fyrsta sinn, fyrir um það
bil aldarfjórðungi siðan, hefur
það gegnt þýðingarmiklu hlut-
verki I rekstri blaðsins. Mikil
áhersla var lögð á það i upphafi,
að happdrættið skilaði góöum ár-
angri, eins og það hafði gert undir
nafni Sósialistaflokksins. Þá
seldu deildir flokksins happ-
drættismiða hverikapp við aðra.
Nú er skipulag happdrættisins
með nokkuð öðrum hætti en þá
var, enda má deila um það, hvort
sú þróun, sem átt hefur sér stað,
hafi verið til góðs. Hitt er þó ó-
umdeilanlegt, að mikilvægi
happdrættisins er ekki minna nú
en það var þá. Við hljótum þvi öll
að leggja okkur fram við að koma
miðunum út, og kaupa þann
fjölda miða, sem efni okkar frek-
ast leyfa, en selja afganginn vin-
um og vandamönnum.
Það hefur reynst erfitt að halda
úti róttæku blaði á Islandi, sem
hefur sósialisma og þjóðfrelsi að
leiðarljósi, enda ekki átakalaust.
Einurð og samstaða stuðnings-
manna Þjóðviljans hefur rutt
veginn, en eins og svo oft áður
munum við þarfnast þeirra nú.
Kaupgaröur í leiðinni heim. — KAUPGARÐUR
• Sett upp nýjar
glæsilegar hillur.
# Sett upp sælgætissölu
meö miklu úrvali
af alls konar sælgæti.
# Sett upp flöskumóttöku,
þar sem öll gler eru greidd út
í peningum.
# Allt þetta er til þess að bjóða
viðskiptavinum vorum bætta
þjónustu og aukið vöruval.
KOMIÐ OG SANNFÆRIST.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Komið í
Kaupgarð og
látið ferðina
borga sig.
Opið til
kl. 10
í kvöld
og til kl. 6
á morgun
VIÐ
HÖFUM
BREYTT