Þjóðviljinn - 06.10.1977, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. október 1977
Verjandi Kristjáns Viöars í
Guðmundar og Geirfmnsmálinu:
Krefst sýknunar
Undir hádegi i gær, lauk Bragi Steinarsson
vararíkissaksóknari sókn sinni i Guðmundar og
Geirfinnsmálunum og hliðarmálum er þeim
fylgja. Eftir hádegið hófst svo vörn þeirra lög-
manna, sem eru verjendur sakborninga og fyrst-
ur talaði Páll A. Pálsson hrl, en hann er verjandi
Kristjáns Viðars Viðarssonar. Lauk hann ræðu
sinni kl. 16.00 og var réttarhöldunum þá frestað
þar tii kl. 9.30 i dag.
Verjandi lagði mikla dherslu
á að framburður sakborninga
hefði allan timann verið mjög
ruglingslegur og ósamhljóða.
Gerði hann hlut Kristjáns Við-
ars sem minnstan og fullyrti til
að mynda, að hann hefði alls
ekki verið i Dráttarbrautinni i
Keflavik 20. nóv. 1974, þegar
Geirfinni Einarssyni var ráðinn
bani.
Þá lagði verjandi mikla
áherslu á það, að áður en þýski
rannsóknarlögreglumaðurinn
Karl Schutz kom til sögu, hefði
framburður sakborninga svo og
málið i heild verið i lausu lofti,
en náðst saman eftir afskipti
þjóðverjans, en siðan hefði allt
gliðnað aftur eftir að hann fór.
Lagði verjandi áherslu á að
vararikissaksóknari vildi trúa
játningu sakborninga, en ekki
neitun þeirra eða afturköllun á
fyrra framburði, sem verjandi
gaf iskynaö fenginn hefði verið
með þvi að þreyta og rugla
skjólstæðing sinn, Kristján Við-
ar.
Þá lagði hann einnig þunga
áherslu á, að Kristján Viðar
hefði verið haldinn drykkjusýn
og eiturlyfjasýki á þeim tima
sem áður nefnd Guðmundar og
Geirfinnsmál áttu sér stað og
einnig þegar yfirheyrslur byrj-
uðu, þannig að litið sem ekkert
væri að marka framburð hans á
þeim tima.
Einnig benti verjandi á að
hvorki lik Guðmundar Einars-
sonar eða Geirfinns Einarsson-
ar hefðu fundist og spurði sem
svo, hvort nokkur vissa væri
fyrir þvi að Geirfinni hefði verið
ráðinn bani i Dráttarbrautinni i
Keflavik 20. nóv., 1974 og að
sakborningar hefðu verið þar?
Er vissa fyrir þvi að eitthvað
hafi gerst þarna? spurði verj-
andi.
Verjandi taldi að þar sem hér
væri f jallað um m jög alvarlegar
ákærur, sem manndrápsákæra
er, bæri ákæruvaldinu að leggja
fram sterk sönnunargögn og
taldi hann fjarri lagi áö þau
lægju fyrir nú.
Varðandi þann lið ákærunnar,
sem fjallarum rangar sakagift-
ir þeirra Sævars, Erlu, og
Kristjáns á hendur fjórmenn-
ingunum, sem hnepptir voru i
gæsluvarðhald, taldi Páll A..
Pálsson að Kristján Viðar hefði
þar enga sök átt, sökin væri
þeirra Sævars og Erlu. Kristján
hefði verið veiddur i gildru af
rannsóknarlögreglumönnum til
að benda á þessa fjóra menn.
Páll dróg mjög i efa lagalegan
rétt þess að láta Karl Schutz
stjórna rannsókn málsins.
Hann hefði ekki þekkt islensk
lög, sem skyldi og gaf verjandi i
skyn að þjóðverjinn hefði á
stundum notað óvönduð meðöl i
rannsókn sinni.
Páll benti á að vararikissak-
sóknari hefði krafist þyngstu
refsingar á sakborningunum.
Hann krefðist þess aftur á móti
Málin hafa
gliðnað sundur
aftur eftir að
Schutz fór,
segir Páll A.
Pálsson hrl.
að Kristján Viðar yrði dæmdur
sýkn saka. Ef dómendur kæm-
ust aftur á móti að þeirri niður-
stöðu að hann væri sekur, krefð-
ist hann þess til vara, að tekið
yrði tillit til þess, að Kristján
hefði verið drykkjusjúklingur
og eiturlyfjaneitandi á þessum
tima og þvi tæplega ábyrgur
gerða sinna, og að það hefði ekki
verið ásetningur hans að drepa
þá Guðmund Einarsson og Geir-
finn Einarsson, þar hefði verið
um slys að ræða, manndráp af
gáleysi og bæri að dæma hann
eftir þvi.
Varðandi önnur ákæru atriði á
hendur Kristjáni, taldi verjandi
að taka bæri tillit til þess sama.
í dag kl. 9.30 hefja aðrir verj-
endur ræður sinar, en alls munu
verða fluttar 14 varnarræður i
málunum. — S.dór.
Skoðaðí
Bildshöfða
Bifreiðaeftirlit rikisins opnaöi beru lofti. Gert er ráð fyrir að
að nýju i gær eftir flutning i leigu- byggt verði yfir Bifreiöaeftirlitið
húsnæði i Bildshöfða. Er nú rúmt á lóð, sem er viö hliðina á leigu-
um starfsmennina 30, en enn er húsnæðinu i Bildshöfða.
skoöun að mestu leyti úti undir
W
Fær fólk bætur
þann fímmtánda?
Enn er ekki Ijóst hvort
sex þúsund bótaþegar al-
mennra trygginga fá mán-
aðargreiðslu sína 15. þessa
mánaðar, ef kæmi til verk-
fall BSRB. Á svæöinu eru
15.200 bótaþegar í öllum
flokkum, og þar af sækja
um 40% enn greiðslur sínar
í Tryggingastofnun ríkis-
ins á Laugavegi. Aðrir fá
greiðslur gegnum banka og
eru þær færðar til reikn-
ings 10. hvers mánaðar.
Sigurður Ingimundarson, for-
stjóri Tryggingarstofnunar, sagði
i gær aö nú þegar ljóst væri að
sáttatillagan hefði veriö felld,
væri athugun á hvort undanþága
fengist til að undirbúa og af
greiða greiðslurnar hafin '. Mjög
naumur timi væri tii stefnu, ekk-
ert væri hægt að gera fyrr en búið
væri að keyra upplýsingar gegn-
um tölvu hjá Skýrsluvélum
Reykjavikur, og þegar tölvuút-
skrift fengist, tæki það nokkurn
tima að flokka hana saman við
gamlar inneignir o.fl.
Hjá BSRB fengust þær upplýs-
ingar að á fundi samninganefnd-
ar, stjórnar og verkfallsnefndar i
gærkvöldi hefði átt að kjósa sér-
staka undanþágunefnd og kæmi
það til kasta hennar að afgreiða
Laugardaginn 15. október n.k.
verður fundur haldinn að Hroll-
augstöðum i Suðursveit i kjör-
dæmisráði Alþýðubandalagsins á
Austurlandi.
A fundinum verður m.a. rætt
um undirbúning alþingiskosn-
inga, þar á meðal framboðsmál,
einnig verður rætt um sveitar-
stjórnarmál, landbúnaðarmál,
undanþágu vegna greiðslna bóta
almennra trygginga. Gert var ráð
fyrir þvi á skrifstofunni að tekið
yrði vinsamlega i það aö greiöa
götu aldraðs fólks og lasburða i
þessu máli, og verkfallið yrði
varla látið bitna á bótaþegum.
-ekh
stefnu Alþýðubandalagsins i mál-
efnum kjördæmisins, um fyrir-
hugaða verkalýðsmálaráðstefnu
Alþýðubandalagsins og fleira.
Framsögumenn á fundinum
verða Lúövík Jósepsson, Helgi
Seljan, Hjörleifur Guttormsson,
Jóhannes Stefánsson, Olafur
Gunnarsson og Baldur Öskars-
son.
Alþýdubandalagid
Fundur kjördæmis-
ráds á Austurlandi
Utflutningur idnvarnings:
42% verdmætaaukning á
fyrstu 6 mánuðum ársins
Útflutningsmiðstöð iðn-
aðarins hefur sent frá
sér yfirlit um útflutning
iðnvarnings á fyrra
helmingi þessa árs.
Heildarverðmæti útflutn-
ingsins var 14.4 miljarðar
króna og er það 42%
aukning miðað við sama
tíma í fyrra. Magnaukn-
inq i tonnum var 9%.
Stærsti hluti þessa verömætis
er fyrir ál og álmelmi, 10,5 milj-
arðar króna en þar næst koma
skinn- og ullarvörur ýmiss kon-
ar.
Heildarverðmæti fyrir út-
flutning á unnum prjónavörum,
ytri fatnaði, ullarteppum,
áklæðum, ullarlopa og -bandi
nam 1,7 miljarði króna.
Mest hefur aukningin orðið á
útflutningi á unnum prjónavör-
um, sem seldust úr landi fyrir
1,2 miljarö. Það er 72%
verðmætaaukning miðað við
sama tima i fyrra en 47% magn-
aukning.
Kisilgúr var fluttur úr landi
fyrir 527 miljónir króna, niöur-
soðnar og niðurlagðar sjávaraf-
urðir fyrir 434 miljónir króna og
jókst þessi útflutningur um 11 -
12% aö magni til.
Annað sem flutt er út í aukn-
um mæli er málning og lökk,
pappaöskjur, fiskilinur, kaölar
og net, en dregið hefur úr út-
flutningi húsgagna og skraut-
varnings. —AI
Millilandaflug stöövast ekki
Takmarkaö innanlandsflug
I frétt frá Flugleiðum segir að
ekkert hafi komið fram sem
hindrar að farþegaflug milli
landa stöðvist komi til verkfalls
opinberra starfsmanna. Likur
eru einnig á að innanlandsflugi
takist aö halda uppi að nokkru
leyti. Vöruflutningar með þotum
félagsins stöðvast sennilega,
nema um sérstakar neyöarsend-
ingar sé að ræða.